Morgunblaðið - 30.05.2019, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 30.05.2019, Qupperneq 10
vaxa. Elliði segir að sóknarfæri Ölf- uss felist í land- fræðilegri sér- stöðu með stærstu fersk- vatnslindir lands- ins, stærstu jarð- orkuver í heimi og allt upplandið auk þess að vera úthverfi Reykjavíkur þar sem stór hluti íbúa sem flytji þangað haldi áfram að vinna í Reykjavík. Útgerð mun ná fótfestu á ný „Ein af forsendum stórskiphafnar í Þorlákshöfn er stórir gámavellir. Athuganir hafa sýnt að 1⁄3 allra fyr- irtækja í Sundahöfn vilji fara þaðan því erfitt sé að reka fyrirtæki þegar komið er út í borgarumferðina eftir fyrstu 300 metrana. Það eru allt aðr- ar forsendur í Ölfusi með allt land- rýmið en samt í nálægð við borgina,“ segir Elliði sem telur að með inn- og útflutningshöfninni muni útgerð ná fótfestu í Þorlákshöfn á ný. Elliði segir Þorlákshöfn til- tölulega ungt samfélag, ekki nema 60 til 70 ára gamalt. Miðbærinn sé eins og í gömlum sjávarplássum og fyrst hafi verið jarðað í kirkjugarð- inum 1984. „Við erum að horfa upp á mikla íbúðafjölgun og til þess að geta tekið á móti ferðamönnum úr farþegaskipum þurfum við að þjónustu. Höfnin sé miklu áreið- anlegri en menn þorðu að vona. Með örlítið meiri breytingum verði hægt að taka inn miklu stærri skip en Mykinesið og vilji sé til þess að geta tekið inn 180 m löng 30 m breið skip. „Við finnum áhuga skipafélaga á því að efla fraktsiglingar til Þorláks- hafnar beint frá Bretlandi og til meginlands Evrópu. Það er líka áhugi fyrir farþegaflutningum. Með slíkum siglingum myndi sparast mikill útblástur og tugir þúsunda lítra af olíu,“ segir Elliði sem bendir á að það sé ekki spurning um hvort heldur hvenær Þorlákshöfn muni Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Koma Mykinessins gjörbreytti daglegum rekstri hafnarinnar og það dylst engum hvað mikið breytist með uppbyggingu hafnaraðstöðu í Þorlákshöfn. Eftir að Mykinesið fór að sigla skilja landsmenn betur hversu miklu máli styttri sigling milli landa skiptir. Það sparast um sólarhrings sigling fram og til baka ef miðað er við Sundahöfn,“ segir El- liði Vignisson, sveitarstjóri Ölfuss,og bætir við að sveitarfélagið eigi mikið land til að leggja undir hafnsækna styrkja miðbæinn. Hann er nú í deiliskipulagi og ein hugmynd til að styrkja miðbæinn er að staðsetja framtíðarskjalasafn Árnessýslu í Þorlákshöfn. Búið er að vinna ákveðna hugmynd að húsinu og Sunnlendingar hafa tekið vel í hug- myndina,“ segir Elliði og bætir við að búið sé að deilskipuleggja 400-500 íbúða svæði og semja við eitt fyrir- tæki um skipulagningu gatna, skolps, gangstétta o.þ.h. Auk þess séu 150 til 200 íbúðir í deiliskipulagi á næstu árum. Sveitarfélagið sjálft sé svo að byggja íbúðir fyrir aldraða og byggi með Bjargi, húsnæði á fé- lagslegum forsendum. Auk þess sem fimleikahús sé í byggingu. Hér sé ævintýraleg íþróttaaðstaða. Þrír grasvellir, tartanbraut, stúka, hand- bolta- og körfuboltavöllur, sjö heitir pottar, inni- og útilaug, tveir 18 holu golfvellir, mótorkrossbraut, reið- skemma, strandblaksvöllur og völlur fyrir frisbígolf svo eitthvað sé nefnt. Jarðhitagarðar á Hellisheiði Elliði segir fiskeldi sterkt í Ölfus- inu öllu og að í undirbúningi séu tvö stór landeldi, annað 5.000 tonn og hitt 8.500. Ölfusingar vilji sjá land- eldi dafna og landfræðilegar að- stæður til fiskeldis séu frábærar með góðum jarðsjó og miklu af fersku vatni og orku. „Eitt stærsta verkefnið í Ölfusi er jarðhitagarðarnir á Hellisheiði sem eru gríðarlega spennandi með verk- Mikil uppbygging í Ölfusi  Bæjarstjóri Ölfuss segir sveitarfélagið með landfræðilega sérstöðu, stærstu ferskvatnslindir landsins, stærstu jarðorkuver í heimi og mikið uppland Fyrirhuguð uppbygging í Þorlákshöfn Grunnkort/Loftmyndir ehf. Nýtt fi mleikahús við Íþróttamiðstöðina Matvælaklasi Fiskeldi Nýr miðbær Nýtt athafna- svæði Endurbætur á hafnarsvæði ■ Endurbygging Svartaskersbryggju ■ Suðurgarður lengdur, Austurgarður styttur ■ Sandfangari austan við Austurgarð ■ Dýpkun innsiglingar og snúningsrýmis 80 íbúðir í 7 nýjum blokkum Parhús, 12 sér- eignaríbúðir aldraðra 24 félagslegar leigu- íbúðir fyrir aldraðra Nýtt Héraðsskjala- safn Árnesinga 75 íbúðir í rað-, par- og einbýlishúsum, fyrsti áfangi tilbúinn í sumar 400-500 íbúðir í bland- aðri byggð í Móanum Stórt Mykines kemur til Þorlákshafnar á föstudagmorgnum og er fram á kvöld. Bæjarbúar gera sér ferð á bryggjuna til að fylgjast með fermingu og affermingu. Elliði Vignisson Breyting Í stað auðnar sjást nú bílar í löngum röðum og annar tollvarningur í Þorlákshöfn. efni sem eru stór á heimsvísu eins og t.d. Algae Inovation þar sem Íslend- ingar og Ísrelar eru í samstarfi í framleiðslu á smáþörungum sem eru eftirsóttir og verðmætir í matvæla- vinnslu. Jarðhitagarðarnir á Hellis- heiði eru samstarfsverkefni Orku náttúrunnar og Ölfuss þar sem orka og hliðarafurðir eru fullnýttar,“ seg- ir Elliði og bendir á að Ölfus ætli sér að verða leiðandi í öllu sem tengist umhverfisvænni og sjálfbærri mat- vælaframleiðslu. „Þorláksskógaverkefni er mjög spennandi umhverfisverkefni og er stærsta framlag Íslands vegna Par- ísarsáttmálans þar sem áætlað er að binda rúma eina og hálfa milljón tonna af koltvísýringi. Landsvæðið sem er ætlað undir skóginn er svipað og allt höfuðborgarsvæðið. Nær úr Selvoginum og út að Þrengslavegi,“ segir Elliði sem bendir á að verk- efnið sé ekki einungis umhverfis- vænt heldur komi til með að breyta umhverfi Þorlákshafnar mjög mikið. Skógurinn verði svipaður og Heið- mörkin, blandaður landgræðslu- og útvistarskógur með umhverfisvænni sumarhúsabyggð. 10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019 Hefur þú prófað nýju kjúklingasteikurnar? NÝTT OG SPENNANDI FRÁ HOLT A Uppstigningardagur 30. maí kl. 11:00 - Dagur eldri borgara Guðsþjónusta verður í Grafarvogskirkju kl. 11:00 þar sem eldri borgurum er sérstaklega boðið að taka þátt. Sr. Vigfús Þór Árnason fyrrverandi sóknarprestur prédikar og prestar safnaðarins þjóna fyrir altari. Karlakór Grafarvogs syngur undir stjórn Írisar Erlingsdóttur. Organisti er Hákon Leifsson. Útvarpað verður frá guðsþjónustunni. Hádegisverður og kaffiveitingar í boði Safnaðarfélags og sóknarnefndar. Uppbygging í Ölfusi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.