Morgunblaðið - 30.05.2019, Page 25

Morgunblaðið - 30.05.2019, Page 25
okkur upphafsmönnum Snorraverk- efnanna varð að ósk okkar um að þau myndu skila sér í öflugra starfi þjóð- ræknisfélaganna. Unga fólkið hefur gengið til liðs við þau og tekið að sér ábyrgðarstörf. Ég dreg samt ekki dul á að víða hefur verið tekið of treglega undir sjónarmið þeirra og nýjar hugmyndir.“ Elstu árgangar Snorranna eru orðnir ráðsett fjölskyldufólk, sem el- ur börn sín upp í Snorrahugsjóninni. „Með tímanum taka þau við,“ segir Almar og bendir á að ámóta upp- bygging hafi verið í íslensku sumar- búðunum á Gimli, sem hafi verið fyr- ir fimm til sautján ára krakka í vikunni fyrir Íslendingadaginn í um 40 ár. Þar hafi tveir Snorrar lengi verið í forsvari, Brad Hirst frá Sel- kirk og Mallory Swanson frá Minne- sota. „Kalla má búðirnar forskóla fyrir Snorra,“ segir Almar. Tungumálið ekki vandamál Lengi vel var stór hluti íslenska samfélagsins vestra íslenskur ef svo má að orði komast. Íslenskan var málið, kennsla fór víða fram á tungu- máli forfeðranna og íbúarnir gáfu út blöð, tímarit og bækur á íslensku. Nú tala æ færri tungumálið og útgáfa þekkist ekki á móðurmálinu. Almar telur þetta brotthvarf íslenskunnar ekki vera vandamál. „Það er rétt að íslenska er almennt ekki töluð en þó er til ungt fólk, sem komið hefur til Íslands á náms- styrkjum til að nema íslensku við HÍ eða með öðrum hætti. Mér finnst að samkenndin og þjóðræknin skipti miklu meira máli en tungan. Það er líka gaman að heyra að ýmis orðtök eru fólkinu töm og koma frá ömmu og afa.“ Hann bendir einnig á að fjar- lægðin til Íslands hafi minnkað með aukinni þjónustu Icelandair og ann- arra flugfélaga. „Vaxandi straumur fólks af íslenskum ættum kemur til Íslands á eigin vegum og í hópum og styrkir þannig böndin.“ Almar segir að nú þurfi að staldra við og skoða vel framhald INL, bæði í Kanada og Bandaríkjunum, byggja upp og bæta við beggja vegna landa- mæranna. „Það sem er knýjandi er að ná meiri útbreiðslu,“ segir hann. „Þótt félögin séu um 30, flest í Kan- ada, er langur vegur frá að þau nái til allra landnámssvæða og sums staðar eru tiltölulega fáir félagsmenn í deildum þótt fjöldi fólks af íslenskum ættum sé býsna mikill.“ Heiðraður fyrir störf sín Á hátíðarfundinum voru veittar ýmsar viðurkenningar. Þar á meðal fékk Davíð Gíslason í Árborg í Mani- toba Joan Inga Eyolfson Cadham- verðlaunin, Margrét Kristjánsdóttir Arnar og Örn Arnar í Minneapolis fengu Laurence S.G. Johnson Life- time Achievement-verðlaunin og Al- mari voru veitt heiðursverðlaunin „Römm er sú taug“ (Strong is the Bond). Þau eru til einstaklings sem hefur unnið ötullega að því að styrkja tengsl Íslands við afkomendur ís- lenskra landnema í Vesturheimi og voru nú afhent í fyrsta sinn. Almar segist vera mjög þakklátur fyrir þessa viðurkenningu. „Ég var svo heppinn að vera kallaður til for- ystu um stofnun og framkvæmd Snorraverkefnisins 1999,“ segir Al- mar sem var valinn í stjórn ÞFÍ í kjölfarið þar sem hann var formaður í átta ár. Hann hefur um árabil verið fararstjóri í hópferðum á íslensku landnámssvæðin í Norður-Ameríku. „Fyrsta heimsókn mín á Íslendinga- slóðir vestra var til Gimli á Íslend- ingadaginn 1998 og þar með hófst þetta stórkostlega skeið í lífi mínu. Á rúmum 20 árum hef ég farið í meira en 60 heimsóknir og kynnst fjöl- mörgum og eignast marga nýja vini,“ segir Almar. „Ég tel að fólkið vestra kunni vel að meta þau störf sem ég hef unnið við að efla samstarfið og treysta böndin milli Íslands og Norð- ur-Ameríku. Fjölmargir hér heima sem og vestra hafa stutt þetta starf og unnið með mér og þeim öllum til- einka ég þessi heiðursverðlaun,“ heldur hann áfram. „Ég vil einnig halda því til haga að stjórnvöld á hverjum tíma, forsetar lýðveldisins, ríkisstjórnir og Alþingi hafa veitt ómetanlegan stuðning og fyrir það er þakkað.“ FRÉTTIR 25Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019 SAGAN Á BAKVIÐ ÆVINTÝRIÐ Mögnuð bók þar sem eitt merkilegasta viðskiptaævintýri Íslandssögunnar er rakið af innsæi og einstakri þekkingu Stefán Einar Stefánsson blaðamaður varpar ljósi á áður óþekktar ástæður þess að WOW varð gjaldþrota FÁANLEG SEM: Kilja Rafbók Hljóðbók Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–16 | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Morgunblaðið. Hann segir að áhrifin af Hvalfjarðargöngum á allt samfélagið hafi orðið miklu meiri en Spalarfólk hafi nokkru sinni þorað að vona og því kveðji þau Spöl afar sátt. „Nú er komin upp sú staða að menn eru farnir að kalla eftir næstu göngum,“ segir Gísli og rifjar upp orð Halldórs Blöndals, þáverandi samgönguráðherra, frá því við opnun ganganna. „Þá sagði Halldór Blöndal að það myndi ekki líða á löngu þar til kallað yrði eftir nýj- um göngum við hlið Hvalfjarðarganga og nú er sá tími kominn,“ sagði Gísli. agnes@mbl.is Gísli Gíslason, hafnarstjóri og stjórnarfor- maður Spalar, hefur setið í stjórn félagsins frá upphafi, eða frá því að Spölur var stofn- aður árið 1991, og stjórnarformaður frá 1995. Hann segist kveðja Spöl afar sáttur. Vegagerðin tók formlega við Speli á lokaaðalfundi fyrirtækisins sem haldinn var á Akranesi í gær og mun Vegagerðin hér eftir tilnefna alla stjórnarmenn félagsins. „Þetta hefur verið yndislegt ferðalag og það hefur verið stórkostlegt að fylgjast með því hversu mikil og jákvæð áhrif Hval- fjarðargöng hafa haft á samfélagið í kring- um Hvalfjörðinn,“ sagði Gísli í samtali við Segir kallað eftir næstu göngum  Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, segist kveðja eftir yndislegt ferðalag Kátir Gísli Gíslason, Jón Sigurðsson stofnhluthafi og Jónas A. Aðalsteinsson lögmaður á síðasta aðalfundi. Ljósmynd/Atli Rúnar Halldórsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.