Morgunblaðið - 30.05.2019, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019
Fagleg og persónuleg húsfélagaþjónusta
Eignarekstur leggur áherslu á að einfalda
og hagræða málin fyrir húsfélög
Traust - Samstaða - Hagkvæmni
eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005
Ráðgjöf
Veitum faglega ráðgjöf
til húsfélaga
Bókhald
Höfum umsjón með
bókhaldi fyrir húsfélög
Þjónusta
Veitum persónulega þjónustu
sem er sérsniðin að hverju
og einu húsfélagi
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
Reykjavíkur, var meðal ræðumanna
á verðlaunahátíð sem haldin var í
gamalli kirkju í miðborg Ósló. Efnt
var til samkeppni um vistvænar
byggingar og voru verðlaunin veitt
samhliða ráðstefnunni Framtíð
borga sem fram fór í borginni.
Ásamt Degi voru ræðumenn þau
Arild Hermstad, sem fer með um-
hverfis- og samgöngumál í Ósló,
Pierfrancesco Maran, sem fer með
skipulagsmál í Mílanó, Silvia Villa-
cañas, sem fer með skipulagsmál í
Madríd, og Valérie Mayer-Blimont,
sem fer með skipulagsmál í París.
Veittu þau öll verðlaun til höfunda
verkefna í viðkomandi borgum.
Rauður þráður í hönnuninni var að
leita leiða til að lágmarka umhverfis-
áhrif húsanna. Það er aftur hluti af
því að endurhanna borgir í þágu um-
hverfisins.
Meðal atriða sem horft er til er
sjálfbærni í orkuöflun, endurnýting
byggingarefna og kolefnisspor.
Verðlaunin eru á vegum C40 sem
eru samtök borga um allan heim.
Reykjavík er ekki aðili að C40 en
fékk að taka þátt í keppninni. Verk-
efnin tvö sem báru sigur úr býtum í
keppninni á Íslandi eru vegna hönn-
unar á nýbyggingum á Malarhöfða
og í Lágmúla 2. Sjá má teikning-
arnar á þessari síðu og síðu 30.
Fékk hugmyndina í París
Fram kom í ræðu Dags að hann
hefði fengið hugmyndina að þátttöku
í keppninni á fundi um loftslagsmál í
París, sem Anne Hidalgo, borgar-
stjóri Parísar, veitti forstöðu.
„Það var mér hugstætt sem stóð í
skýrslu ráðgjafarfyrirtækisins
McKinsey að byggingariðnaðurinn
hefði ekki breyst í 50 ár. Ég var að
hrósa Hidalgo fyrir verkefni sem
miðar að endurhönnun Parísar, sem
mér líkaði vel. Fyrir hreina tilviljun
var málþing í næsta ráðstefnusal um
endurhönnun borga. Ég sótti þingið
en brá í brún þegar ég heyrði að
tímafresturinn fyrir borgir til að taka
þátt í verkefninu myndi renna út inn-
an 48 stunda. Ég hringdi hins vegar
heim og fann lóðir,“ sagði Dagur og
uppskar hlátur viðstaddra.
Hann rakti síðar á fundinum
hvernig byggingin á Malarhöfða
verður stærsta timburhús í sögu Ís-
lands og kolefnishlutlaus. Þá geri
nýjar leiðir til að bora á ská eftir
heitu vatni kleift að nýta jarðhita-
lóðina Lágmúla 2 undir visthæf hús.
Græn skref framundan
Dagur ræddi við Morgunblaðið að
hátíðinni lokinni. Sumarið var komið
og brakandi hiti í kirkjunni. Hann
sagði aðspurður að áherslur borg-
arinnar í umhverfismálum myndu
meðal annars birtast í flokkun sorps
og endurvinnslu. Jarðgerðarstöðin í
Álfsnesi leiki þar stórt hlutverk.
„Núna munum við geta farið að
taka við lífrænum úrgangi frá heim-
ilum og jarðgera hann. Ég held að
samfélagið sé komið á allt annan stað
en það var fyrir 10 árum. Fólk er
miklu tilbúnara að taka þátt, flokka
meira og gera betur,“ segir Dagur og
bendir á að ný endurvinnslustefna sé
í mótun í borginni.
Umdeildar en svo viðurkenndar
Fram kom í máli Dags á ráðstefn-
unni að við umbreytinguna fram und-
an í þágu umhverfisverndar gætu
einstaka ákvarðanir orðið umdeildar
og jafnvel óvinsælar.
„Ég er að tala um verkefni eins og
þegar við erum að gera borgina frá-
bæra fyrir þá sem velja að hjóla. Þá
höfum við stundum fengið mjög hörð
viðbrögð við því. Mér fannst mjög
eftirminnilegt þegar [Boris Johnson]
borgarstjóri London sagði frá því á
Parísarráðstefnunni í loftslags-
málum að sumt af því sem London
hefði gert fyrir hjólreiðafólk hefði
verið órúlega óvinsælt en engu að
síður það sem væri rétt að gera.
Við verðum að horfast í augu við
að sl. 50 ár hefur einkabíllinn verið í
algjörum forgangi í umferðar- og
skipulagsmálum borga, meðal ann-
ars í Reykjavík.
Nú kalla loftslagsmálin, loftgæðin
og lífsgæðin á aðra forgangsröðun;
að við forgangsröðum í þágu þeirra
sem vilja ganga um borgina. Fólkið
er sett í fyrsta sætið og þar með er-
um við ekki að útiloka bílinn, við er-
um bara ekki að veita honum þennan
fyrsta forgang sem hann hefur haft á
kostnað allra annarra samgöngu-
máta.
Við þurfum að gera margt þegar
kemur að loftslagsmálum. Þetta er
einfaldlega það brýnn vandi og sam-
göngurnar eru stóra verkefnið hjá
okkur, heima í Reykjavík, ásamt
endurvinnslunni og úrgangsmál-
unum. Það er að hluta til vegna þess
að við njótum hitaveitunnar, náðum
þar gríðarlegum árangri sem við bú-
um að,“ segir Dagur B. Eggertsson.
Borgirnar endurhannaðar
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, veitti íslenskum arkitektum viðurkenningu í Ósló
Haldin var samkeppni um vistvænar byggingar Dagur horfir til hjólastefnu Lundúnaborgar
Morgunblaðið/Baldur
Verðlaunum fagnað Talið frá vinstri: Hrólfur Karl Cela og Marcos Zotes, arkitektar hjá Basalt arkitektum, Helga J. Bjarnadóttir, verkfræðingur hjá Eflu,
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, og Silvia Villacañas, sem fer með skipulagsmál í Madríd, á verðlaunaafhendingunni í Ósló í síðustu viku.
Teikning/Basalt arkitektar/Verkefni unnið af Basalt arkitektum/Landmótun/Eflu og Regin
Lágmúli 2 Fyrirhugað hús á horni Laugavegar og Kringlumýrarbrautar.
Kulturkirken Jakob Dagur borgarstjóri var meðal ræðumanna á verðlaunahátíðinni sem haldin var í Ósló.
Sjá síðu 30
Ráðstefnan Framtíð borga