Morgunblaðið - 30.05.2019, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
K260 Hasle
3ja-2ja sæta sófi eða stóll
Erum á
facebook
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Eftir sveitarstjórnarkosningarnar
2015 hefur meirihlutinn í Ósló gripið
til margvíslegra aðgerða til að draga
úr umferð einkabíla í miðborginni.
Meðal annars hefur bílastæðum
verið fækkað og götum verið lokað
fyrir umferð ökutækja.
Fjallað var um þessar aðgerðir á
ráðstefnunni Framtíð borga sem
fram fór í Ósló í síðustu viku.
Umræðan var sett í samhengi við
rafbílavæðingu í Noregi og barátt-
una gegn loftslagsbreytingum.
Fram kom í máli Britt Ann Kås-
tad Høiskar, sérfræðings hjá stofn-
un sem rannsakar loftgæði í Ósló
(NILU), að mælingar bendi til að
dregið hafi úr nituroxíðsmengun í
miðborg Ósló eftir að byrjað var að
draga úr umferð á svæðinu. Á það
beri þó að líta að veðurfar geti haft
áhrif á útkomu slíkra rannsókna.
Markmiðið væri að minnka nitur-
oxíðsmengun í miðborginni um 60%
milli ára 2014 og 2020. Það ætti þátt í
þessari þróun að nýr staðall, Euro
VI, hefði verið innleiddur fyrir flutn-
ingabíla. Árið 2020 væri áætlað að
hlutur þeirra verði 70%. Þá hefði
fjölgun rafbíla haft sitt að segja.
Hún fjallaði um svifryk í miðborg-
inni og þátt nagladekkja í meng-
uninni.
Spurð um öryggisþáttinn sagði
Høiskar að eðlilegt þætti að hlutfall
nagladekkja væri um 10% í Ósló.
Þess má geta að nituroxíðs-
mengun sést stundum sem gul slikja
hér á höfuðborgarsvæðinu, ekki síst
í stillum á köldum vetrardögum.
Bíllinn tekið of mikið rými
Ellen De Vibe, yfirmaður skipu-
lagsmála í Óslóborg, fjallaði um að-
gerðir til að fækka einkabílum í mið-
borginni. Árin eftir síðari heims-
styrjöldina hefði einkabíllinn verið
tákn frelsis. Hann hefði orðið mót-
andi í skipulagi borganna og krafist
mikils rýmis í miðborgum.
Síðustu ár hefði verið reynt að
snúa þeirri þróun við með því að
greiða fyrir öðrum fararmátum.
„Hugmyndin um bíllausa borg var
kynnt fyrir kosningarnar 2015. Hún
var meðal málefna í kosningunum,“
segir De Vibe og rifjar upp fyrri að-
gerðir til að stuðla að útbreiðslu raf-
bíla í Ósló. Það sé verk núverandi
meirihluta að afmarka svæði í mið-
borginni sem bíllaus svæði.
De Vibe segir borgina hafa til að
byrjað með gert tilraunir með lokun
gatna. Næsta skref hafi verið að
breikka gangstéttir og planta trjám.
Þá hafi verið lögð áhersla á að efla
menningarstarfsemi í miðborginni,
til dæmis með úthlutun lóða.
„Milli 600 og 700 bílastæði hafa
verið fjarlægð af götunum og rýmið
sem losnaði við það var annaðhvort
nýtt til að útvíkka gangstéttar, eða
sem stæði fyrir fatlað fólk eða flutn-
ingabíla,“ segir De Vibe.
Hvað varðar möguleg neikvæð
áhrif slíkra breytinga á veltu stærri
verslana í miðborg Óslóar bendir
hún á breytt verslunarmynstur.
Netverslun hefði hvort sem er rutt
sér til rúms. Hún telur versl-
anamiðstöðvar nærri miðborgum
munu halda velli. Hins vegar verði
róðurinn þyngri fyrir versl-
anamiðstöðvar fjær miðborginni. Þá
meðal annars vegna þess að fólk
sækist eftir upplifun og menningar-
starfsemi. Kannanir bendi til að 60%
fólks noti verslunarferðir til að fara
út að borða eða til að sækja menn-
ingarviðburði. Kauphegðun hafi því
breyst.
Spurð um það sjónarmið að þess-
ar breytingar ýti undir að miðborg
Óslóar verði of dýr fyrir lágtekjufólk
í Noregi, sem hafi ekki efni á að fara
út að borða í verslunarferðum, segir
De Vibe verðlag á húsnæði vera
ótengt afmörkun bíllausra svæða.
Það sé algeng þróun í Evrópu að
eftir því sem starfsemi safnast sam-
an og byggist upp í miðborgum fjölgi
efnaðra fólki á kostnað fátækra.
„Þekkingin, auðurinn, sköpunar-
gáfan og svo framvegis safnast
gjarnan saman í borgunum. Því
flytjast margir til borganna. Fyrir
vikið hækkar fasteignaverðið,“ segir
De Vibe og bendir á að núverandi
meirihluti í Ósló hyggist grípa til að-
gerða til að stýra markaðnum.
Meðal annars sé til skoðunar að
Óslóborg kaupi 20% hlut í íbúðum til
að greiða fyrir því að efnalítið fólk
geti búið á miðborgarsvæðinu.
Vildu fleiri græn svæði
Hanna Marcussen aðstoðarborg-
arstjóri, sem fer með skipulagsmál í
Ósló, rifjaði upp að árið 2015 hefði
verið mynduð ný borgarstjórn með
samvinnu Verkamannaflokksins,
Græna flokksins, sem hún er fulltrúi
fyrir, og Sósíalíska vinstriflokksins.
Flokkarnir hefðu verið sammála um
að gefa gangandi vegfarendum
aukið rými í miðborginni.
Íbúarnir hafi verið spurðir hvað
þeir vildu helst sjá í miðborginni.
Þeir hafi ekki helst nefnt bíla heldur
fleiri göngugötur, græn svæði og
garða, meiri menningarstarfsemi og
fleiri leiksvæði fyrir börn.
Borgaryfirvöld hafi gert tilraunir
með tímabundna lokun gatna, til
dæmis á sunnudögum, áður en þeim
yrði lokað varanlega fyrir bílum.
Bílastæðum hafi verið fækkað og
hjólastígum fjölgað.
Hvatar fyrir rafbíla
Arild Hermstad aðstoðarborgar-
stjóri, sem fer með umhverfis- og
samgöngumál í Ósló, sagði í samtali
við Morgunblaðið að borgin hefði
innleitt margvíslega hvata til að
stuðla að fjölgun rafbíla í borginni.
„Rafbílarnir voru undanþegnir
gjöldum þegar þeim var ekið um
tollhringina. Við munum með tím-
anum innheimta slík gjöld en þau
verða engu að síður mun lægri en af
bensín- og dísilbílum. Þá er ókeypis
að leggja bílunum í stæði á vegum
sveitarfélagsins. Við erum jafnframt
að útvega hleðslustöðvar á götunum
og við fjölbýlishús,“ sagði Hermstad
og vísaði m.a. til svæða með mis-
munandi veggjöld í Ósló. Þ.e. til toll-
hringanna.
Hann áætlaði að frá og með byrj-
un júní yrðu veggjöldin af rafbílum
10-15% af hefðbundnum gjöldum.
Þau myndu síðan hækka í 50% af
hefðbundnum gjöldum í mars 2020.
Hermstad benti í fyrirlestri sínum
á að rúmlega 230 þúsund nýir rafbíl-
ar hefðu selst í Noregi. Núverandi
skattalöggjöf á rafbíla renni út 2021.
Vegna hennar eru rafbílar hag-
kvæmari fjárfesting en ella.
„Með sama hraða er býsna líklegt
að eftir 2 til 3 ár verði um hálf millj-
ón rafbíla í Noregi,“ sagði Hermstad
og bætti því við að engin áform væru
um að breyta skattalöggjöfinni. Þó
kynnu skattarnir smátt og smátt að
hækka með tímanum.
Bíllausu svæðin verða stærri
„Það verður alltaf ódýrara að eiga
rafbíl en bíl sem er knúinn jarðefna-
eldsneyti. Norsk stjórnvöld hafa
sagt að frá og með árinu 2025 verði
ekki lengur hægt að selja nýja
einkabíla knúna jarðefnaeldsneyti,“
segir Hermstad sem telur aðspurður
að árið 2030 verði bíllaus svæði orðin
enn stærri í miðborg Óslóar. Þá
verði almenningssamgöngur orðnar
betri.
Mun fleiri muni hjóla og lítil flutn-
ingatæki verði orðin algengari kost-
ur. Þá m.a. með rafknúnum tækjum.
Dísilknúnir bílar verði þá á útleið.
Lifað án einkabíls Hanna Marcussen vinnur við skipulagsmál í Óslóborg. Bílagötum breytt Ellen De Vibe stýrir skipulagsmálum í Óslóborg.
Færðu bílinn úr miðborg Óslóar
Skipulagsstjóri borgarinnar segir fækkun bifreiða hafa eflt mannlíf og skapað götustemningu
Vegna ýmissa þátta sé miðborgin að verða of dýr fyrir fátæka Því verði íbúðir niðurgreiddar
Ný ásýnd Mikil uppbygging hefur verið í miðborg Óslóar.
Morgunblaðið/Baldur
Við aðallestarstöðina Lítið er um einkabíla í miðborg Óslóar.Hjólað Nýja bókasafnið í miðborginni er til hægri á myndinni.
Teikning/Jakob+MacFarlane arkitektar/T.ark arkitektar/Landslag
Framhald af síðu 28 Byggingin á Malarhöfða í Reykjavík yrði sennilega
stærsta timburbygging landsins. Fjallað er um verkefnið á bls. 28 í dag.
Ráðstefnan Framtíð borga