Morgunblaðið - 30.05.2019, Page 42
42 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019
Í borgaralegu lýð-
ræði er að finna fáeina
burðarbita: Meiri-
hlutavald, sanngirni í
garð minnihluta,
ábyrgð og málfrelsi
sem miðar að skil-
virkni í þeirri vinnu
sem lýðræðið nær til.
Þetta vita allir sem
vilja. Án meiri-
hlutavalds er ekki
hægt að ná árangri og
þess vegna eru hafðar uppi reglur
sem miða að því að meirihluti, til
dæmis þings eða sveitarstjórnar,
geti þjónað samfélaginu með því að
afgreiða mál eftir faglegar umræður
og pólitískar umræður. Þetta vita
allir sem vilja.
Sanngirni meirihluta í garð
minnihluta felst meðal annars í því
að hann nái að koma sínum sjónar-
miðum á framfæri og jafnvel móta
afgreiðslu mála, allt eftir pólitísku
landslagi í samkundunni. Á móti
reynir upplýstur og sanngjarn
minnihluti að virða þau sannindi að
ávallt kemur að þeim tíma að rök
með og á móti í máli eru ljós orðin –
eins þótt ekki verði til nein brú á
milli minni- og meirihluta. Þetta
vita allir sem vilja.
Málfrelsi fylgir ábyrgð; sú ábyrgð
að misnota ekki rýmstu fundarsköp,
misnota ekki heimildir, sem eru
ekki einu sinni tiltek-
inn réttur, svo sem
heimild til andsvara, til
þess eins að lengja um-
ræður með samtölum
við samherja, eins og í
hverjum öðrum mál-
fundarklúbbi hróðugra
og einsýnna manna.
Ábyrgð í umræðum
felst í því að nýta tíma
í raunverulegar rök-
ræður og frelsið í því
að nýta það þangað til
ljós mynd af and-
stæðum sjónarmiðum,
eða samstöðu, er til orðin. Linnu-
lausar endurtekningar og málaleng-
ingar eru andstæðar borgaralegu
lýðræði. Þetta vita allir sem vilja.
Leikritið sem alþjóð er nú vitni
að, eftir umræður fyrstu daga á Al-
þingi og í fjölmiðlum, þar sem öll
helstu rök og staðreyndir hafa fyrir
löngu komið fram, jaðrar æ meir við
farsa, bæði sorglegan og grát-
broslegan en um leið alvarlegan því
hann hindrar lýðræðislega kjörið
þjóðþing í að starfa með eðlilegum
og skilvirkum hætti.
Farsi Miðflokksins
Eftir Ara Trausta
Guðmundsson
» Linnulausar endur-
tekningar og mála-
lengingar á Alþingi eru
andstæðar lýðræði.
Ari Trausti
Guðmundsson
Höfundur er þingmaður VG.
Bolir - Verð 4.995 kr.
Buxur
Verð 9.995 kr.
Buxur
Verð 9.995 kr.
Stuttbuxur
Verð 7.995 kr.
skoðið úrvalið á facebook
Frábær golf- og útivistarfatnaður
frá CMP - ítalskt gæðamerki
Þú getur pantað í gegnum Facebook síðu
okkar og fengið sent hvert á land sem er.
Opið: Mánudaga-laugardaga frá 10-18, sunnudaga frá 11-17.
Bolir
Verð 4.995 kr. Mikið úrval
Þetta er aðeins lítið
brot af því sem við
eigum til!
OPIÐ Í DAG
uppstigningard
ag
kl. 10-18
Uppstigningardagur
dregur heiti sitt af
þeim atburði sem frá
er greint í fyrsta kafla
Postulasögunnar, þar
sem segir frá því að
Jesús hafi fjörutíu dög-
um eftir upprisuna ver-
ið uppnuminn til him-
ins fyrir augliti
lærisveina sinna. Nú
var hann ekki lengur
með þeim á þennan sama hátt og
fyrr. En þess í stað hét hann þeim að
hann myndi ætíð vera nærri þeim í
Anda sínum, Hjálparanum eins og
hann kallaði Andann. Þess vegna
markaði uppstigningin nýtt upphaf
fyrir lærisveinana. Það var ekki sorg
sem var efst í huga þeirra er þeir yf-
irgáfu staðinn þar sem þeir sáu Jesú
síðast, heldur gleði og ný von.
Og nú var þeim líka falið nýtt hlut-
verk. Jesús sendi þá í sínu nafni til
allra þjóða heimsins.
Einhver eftirminnilegasti upp-
stigningardagur sem ég hef lifað var
vorið 1995. Þá var ég
starfandi prestur í
sænsku kirkjunni í út-
hverfasöfnuði í Stokk-
hólmi, þar sem bjuggu
meðal annars fjölmarg-
ir kristnir sýrlenskir
flóttamenn er höfðu
flúið ofsóknir heima
fyrir og fundið skjól í
Svíþjóð. Þennan morg-
un var messað við sól-
arupprás, kl. sex. Veð-
ur var með eindæmum
gott, sól skein í heiði,
og því var messað utan dyra á
kirkjutorginu, við fuglasöng. Mikið
fjölmenni sótti messuna, á þriðja
hundrað manns. En megnið af
kirkjugestum var úr röðum hinna
kristnu sýrlensku innflytjenda því
Svíar sváfu á sínu græna eyra og
nutu þannig frídagsins. Og það sem
meira var, Sýrlendingarnir kunnu
fæstir orð í sænsku, hvað þá að þeir
skildu mína sænsku með mínum ís-
lenska framburði. En það kom ekki
að sök. Öll messan var flutt á
sænsku og Sýrlendingarnir tóku
þátt í öllum liðum hennar, hlustuðu
andagtugir á ræðuna og gengu allir
til altaris – án þess að skilja orð. En
sjaldan hef ég verið kvaddur af meiri
hlýhug heldur en eftir þessa messu.
Hver messugesturinn á fætur öðrum
kvaddi mig með faðmlagi og kossi og
fallegum sýrlenskum bænum, brosi
og hlýju, sem sýndi mér að orðin
sögðu skiptu engu, heldur var það
andinn sem sameinaði okkur öll í
fögnuði Jesú á þessum morgni. Enn
í dag á ég góða vini í hópi sýrlensku
innflytjendanna í Uppsölum og hef
heimsótt þá þegar ég hef átt leið um
slóðir gamla safnaðarins míns.
Og í þessu er kraftur hins kristna
boðskapar fólginn. Hann sameinar
okkur um alla heimsbyggðina í einu
samfélagi, óháð uppruna okkar og
siðum. Og hann styrkir okkur í þeim
ofsóknum sem kristnir menn verða
fyrir um allan heim um þessar
mundir, í Sýrlandi, Írak, Íran,
arabalöndunum, Indónesíu og víðar.
Enginn trúarhópur er ofsóttur meir
en kristnir menn. Þess má líka minn-
ast á uppstigningardegi. En í sam-
félagi kristinna er hinn upprisni með
okkur, í gleði og sorg, í lífi og dauða,
alla daga, allt til enda veraldarinnar.
Uppstigningardagur
með Sýrlendingum
Eftir Þórhall
Heimisson »Kristinn boðskapur
sameinar okkur
um alla heimsbyggðina
í einu samfélagi,
óháð uppruna okkar
og siðum.
Þórhallur Heimisson
Höfundur er sóknarprestur
í Svíþjóð. thorhallur33@gmail.com
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS