Morgunblaðið - 30.05.2019, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
PappelinaMono gólfmotta
27 litir og 8 stærðir
Verð frá 14.500 kr.
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
GOTT var opnað árið 2013 í Vest-
mannaeyjum og var draumaverkefni
þeirra hjóna sem voru að flytja aftur
á æskuslóðirnar. „Þetta er búið að
vera stórkostlegra ævintýri en við
þorðum að vona. Hér er baklandið
okkar, börnin okkar fá að upplifa
stórkostlegt frelsi og við fáum að
gera það sem við elskum.“
Veitingastaðurinn vakti strax
mikla athygli og varð fljótt afar vin-
sæll enda maturinn bæði bragðgóð-
ur, gæðin og hráefnin í fyrirrúmi auk
þess sem verðinu var stillt í hóf. Í
fyrra var svo opnað GOTT Reykjavík
í Hafnarstrætinu.
Umhverfið í fyrirrúmi
Berglind segir umhverfisvernd-
armarkmiðin skýr. „Við reynum að
hafa eins lítið plast og við mögulega
getum. Seljum ekki drykki í plast-
flöskum og bjóðum hvorki upp á
plaströr né plastpoka. Flest matar-
ílát í eldhúsinu eru endurnýtt box.
Sósuflöskurnar eru allar endur-
nýttar flöskur og allar take-away--
umbúðir eru umhverfisvænar. Við
Umhverfisvæn í Eyjum
„Við höfum frá upphafi lagt áherslu á ábyrga stefnu gagnvart umhverfinu,“ segir Berglind Sigmarsdóttir, sem á og rekur
veitingastaðinn GOTT ásamt eiginmanni sínum, Sigurði Gíslasyni matreiðslumanni. Þau hjónin leggja mikið upp úr endur-
nýtingu og er nánast allt leirtau staðarins notað auk þess sem þjónasvunturnar eru saumaðar úr gömlum gallabuxum.
Endurnýting Þessi gamla hurð hefur nú gengið í
endurnýjun lífdaga sem borð. Borðið hefur vakið
mikla athygli gesta og þykir afar fallegt.
Nýveitt og notalegt Þessi þorskur var veiddur fyrr
um morguninn af kokkunum sem ákváðu að bregða
sér út á sjó þar sem það vantaði meiri fisk.
Bollar með sögu Þær eru ábyggilega margar sögurnar sem þessir bollar hafa fengið að heyra.
flokkum jafnframt ruslið okkar og
erum með skýr markmið gegn mat-
arsóun,“ segir Berglind. Athygli vek-
ur jafnframt að innviðir staðarins
eru úr öllum áttum. „Tvö af stóru
borðunum okkar eru endurnýttar
hurðir með glerplötu ofan á,“ segir
Berglind en allur borðbúnaður er
einnig endurnýttur. Borðbúnaðinn
kaupir hún hjá Kristbjörgu Trausta-
dóttur á Akranesi sem selur notaða
muni en Berglind hefur verslað mik-
ið hjá henni í gegnum tíðina. „Öll
ljósin inni á GOTT eru til að mynda
frá henni og má segja að hún hafi
verið mín kona í þessum málum enda
búðin hennar æðisleg. Það er einnig
frábær búð hér í Eyjum sem ég nota
mikið.“
Svuntur staðarins verða allar
saumaðar úr endurunnum gallabux-
um. Frumgerðin er komin í hús og
kemur mjög vel út. Þjónarnir eru
spenntir fyrir þessu og finnst svunt-
urnar bæði óvenjulegar og fallegar.
„Þetta er svo rökrétt þróun. Við
sem rekstraraðilar verðum að axla
ábyrgð á umhverfinu og leggja okkar
af mörkum til þess að gefa gömlum
hlutum nýtt líf og draga þannig úr
neyslunni,“ segir Berglind að lokum.
Smart Nýju svunturnar
eru saumaðar úr endur-
nýttum gallabuxum og
koma vel út.
Veðurblíða Veðrið
hefur leikið við Eyja-
menn að undanförnu.
Gamlir en góðir Þessir fallegu
espressobollar hafa allir átt fjörugt
fyrra líf á öðrum vígstöðvum.