Morgunblaðið - 30.05.2019, Blaðsíða 60
60 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019
50 ára Þóra er Akur-
eyringur en býr í Kópa-
vogi. Hún er fatahönn-
uður og viðskipta-
fræðingur, er með
meistaragráðu í fjár-
málum og er löggiltur
fasteignasali. Hún er
framkvæmdastjóri Borgar fasteignasölu.
Maki: Ingimundur Árnason, f. 1970,
verkfræðingur og framkvæmdastjóri
framleiðslusviðs hjá ORF líftækni.
Börn: Birgir Viðar Magnússon, f. 1991,
Inga Rós Ingimundardóttir, f. 2003, og
Árni Þór Ingimundarson, f. 2004.
Foreldrar: Birgir Valur Ágústsson, f.
1939, verkfr. og einn stofnenda Bílaleigu
Akureyrar, og Ingunn Þóra Baldvins, f.
1942. Þau eru búsett á Akureyri.
Þóra Birgisdóttir
út einskonar sýnisbók á CD-diskum
undir samheitinu Íslenska ein-
söngslagið.
Jónas hefur ásamt Trausta Jóns-
syni veðurfræðingi safnað saman og
skráð um 3.000 íslensk einsönglög
og tekið þátt í flutningi mikils hluta
þeirra. Hann hefur haldið fjölda
tónleika þar sem eingöngu íslensk
lög hafa verið á efnisskrá ný og
gömul með landsins bestu söngv-
urum bæði hér heima og erlendis.
Jónas og Trausti hafa gefið Tónlist-
arsafni Íslands söngvasafn sitt og
skrásetningar þess.
Jónas var lengi í stjórn FÍT – fé-
lags íslenskra tónlistarmanna – og
formaður þess um skeið, hann er nú
heiðursfélagi FÍT. Hann var í fjög-
ur ár formaður verkefnavals-
nefndar Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands.
Jónas hafði umsjón með útgáfu
vasasöngbókar UMFÍ 1974. Safnaði
saman, útsetti og gaf út safn laga
fyrir píanó „Með léttum leik“ 1977
og kom það út í endurbættri útgáfu
1988 og 3. útgáfu 1989.
Út hafa komið tvær bækur um
ævi og störf Jónasar, sú fyrri 2004
„Á vængjum söngsins“ skráð af
Gylfa Gröndal og 2018 kom út bók-
in „Þankar við slaghörpuna“ skrifuð
af Jónasi.
lauk stjórnaði hann Karlakór Sel-
foss 1970-74 og var fyrsti stjórnandi
Samkórs Selfoss. Hann stjórnaði
Karlakórnum Fóstbræðrum 1974-
79 og stóð fyrir „Söngdögum“ í
Skálholti 1979-91 og kenndi á sum-
arnámskeiðum þar á vegum Söng-
málastjóra þjóðkirkjunnar um ára-
bil. Auk þessa leiðbeindi hann
fjölda áhugakóra og sönghópa víðs-
vegar allan sinn starfsferil.
Jónas hélt mikinn fjölda tónleika
ýmist einn eða með öðrum og þá
einkum söngvurum. Auk þess hefur
hann komið fram á fjölmörgum
samkomum af öllu tagi. Hann stóð
fyrir öflugu tónlistarkynning-
arstarfi í tengslum við tónleikahald
sitt frá upphafi og skipulagði að
eigin frumkvæði skólatónleika með
fjölda tónlistarmanna fyrir Kópa-
vog, Akranes og Selfoss og raunar
víðar. Þetta leiddi til þess starfs
sem fékk heitið „Tónlist fyrir alla“.
Hann hefur leikið margoft í útvarp
og sjónvarp hérlendis og erlendis
og stjórnað tónlistarþáttum bæði í
útvarpi og sjónvarpi.
Jónas hefur margsinnis leikið
einleik með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands, verk eftir Bach, Mozart,
Beethoven, Brahms, Liszt, Grieg,
Saint-Saëns, hann hefur leikið með
Kammersveit Reykjavíkur, Kamm-
ersveit Akureyrar, Blásarakvintett
Reykjavíkur og starfað með fjölda
hljóðfæraleikara auk starfans með
söngvurum og sem söngstjóri eins
og áður er getið. Jónas hefur komið
fram sem píanóleikari ýmist einn
eða með öðrum um allt land og á
öllum löndum á Norðurlöndum
(einnig Færeyjum og Grænlandi,)
Bandaríkjunum, Kanada, Þýska-
landi, Englandi, Rússlandi, Litháen,
Frakklandi, Sviss, Spáni. Hann hef-
ur leikið á Listahátíðum í Þýska-
landi, Englandi, Noregi og Finn-
landi auk þess á listahátíðum í
Reykjavík og á Akureyri.
Jónas var skipuleggjandi og
píanóleikari á „Ljóðatónleikum
Gerðubergs“ Menningarmiðstöð
Reykjavíkur í allmörg ár frá 1988.
Gefnir voru út nokkrir CD-diskar
með sýnishornum af þessum tón-
leikum. Þar að auki gaf Gerðuberg
J
ónas Ingimundarson er
fæddur 30. maí árið 1944
á Bergþórshvoli í Vestur-
Landeyjum í Rangár-
vallasýslu. Æskuslóðir
voru á Selfossi og í Þorlákshöfn.
Sumardvöl í sveit var fyrst á Laug-
um í Hraungerðishreppi og síðar á
Búlandi í Austur-Landeyjum.
Grunn- og framhaldskólar voru á
Selfossi, Þorlákshöfn og Hveragerði
og síðar í Kvöldskóla KFUM.
Jónas hóf tónlistarnám sitt eftir
fermingu sumarið 1958. Árin 1959-
67 stundaði hann alhliða tónlistar-
nám við Tónlistarskólann í Reykja-
vík með píanóleik sem aðalgrein og
auk þess nám í Tónmenntakennara-
deild Tónlistarskólans 1963-65.
Á námsárum stjórnaði hann kór
vagnstjóra SVR. Einnig stjórnaði
hann og lék undir söng Keflavíkur-
kvartettsins. Hann aðstoðaði við
æfingar hjá Karlakór Reykjavíkur
og var fyrsti söngstjóri Árnes-
ingakórsins í Reykjavík. Hann
kenndi píanóleik í hlutastarfi í Tón-
skóla Sigursveins. Störf með söngv-
urum hófust þegar á námsárum og
lék Jónas á sínum fyrstu opinberu
tónleikum árið 1967.
Framhaldsnám stundaði Jónas
við Tónlistarháskólann í Vínarborg
(Academie für Music und darstell-
ende Kunst) 1967-70 með píanóleik
„Konsertfach“ sem aðalnámsgrein.
Jónas hefur auk þessa sótt mikinn
fjölda námskeiða og fyrirlestra af
afar fjölbreytilegu tagi.
Að námi loknu starfaði Jónas
sem píanókennari og síðar skóla-
stjóri við Tónlistarskóla Árnessýslu
á Selfossi 1970-74. Píanókennari við
Tónmenntaskóla Reykjavíkur 1974-
78 og við Tónlistarskólann í
Reykjavík frá 1974 og sem deild-
arstjóri píanódeildar þess skóla
1992-94. Frá 1994-2014 starfaði
Jónas sem tónlistarráðunautur
Kópavogs, var listrænn ráðgjafi og
skipuleggjandi tónleika þar og hafði
afskipti af undirbúningi að bygg-
ingu Salarins í Tónlistarhúsi Kópa-
vogs, sem vígður var í janúar 1999.
Jónas var athafnasamur kórstjóri
á árum áður og byrjaði snemma
eins og áður er getið. Eftir að námi
Jónas hefur leikið inn á mikinn
fjölda hljómplatna og CD-diska.
Hann hefur hlotið listamannalaun
og notið starfslauna listamanna.
Hann hlaut heiðurslaun Brunabóta-
félags Íslands 1991. Hann var til-
nefndur til tónlistarverðlauna DV
1990, 1991 og 1992 fyrir störf sín
sem píanóleikari. Í tilefni af því að
menningarverðlaun DV voru veitt í
tuttugasta sinn árið 1998, fékk Jón-
as sérstök heiðursverðlaun frá DV.
Hann var sæmdur heiðurs-
verðlaunum Íslensku tónlistarverð-
launanna árið 2001. Jónas var til-
nefndur heiðurslistamaður
Þorlákshafnar og hlaut heiðursvið-
urkenningu frá Selfossi fyrir tón-
listarstörf. Jónas er heiðursfélagi
Rótarýhreyfingarinnar á Íslandi og
heiðursborgari Kópavogs.
Jónas Ingimundarson píanóleikari – 75 ára
Með barnabörnunum Jónas, Elva Lind, Ugla Huld, Sólrún Tara, Hlynur
Orri, Trausti Steinn, Kristófer Örn, Perla Karen og Ágústa árið 2016.
Verðugur allra viðurkenninganna
Börnin Haukur Ingi, Lára Kristín
og Gunnar Leifur.
Ljósmyndir/Gunnar Leifur
40 ára Inga Hlín er
Reykvíkingur, en
dvaldi mikið á sumrin
hjá ömmu sinni og afa
á Borg í Eyja- og
Miklaholtshreppi á
Snæfellsnesi Hún er
með meistaragráðu í
alþjóðamarkaðssetningu frá Strath-
clyde-háskóla í Glasgow. Hún er for-
stöðumaður sviðs áfangastaðarins hjá
Íslandsstofu og hefur stýrt Inspired by
Iceland frá upphafi.
Systir: Lóa Dögg Pálsdóttir, f. 1972, for-
stöðumaður hjá Íslandspósti.
Foreldrar: Páll Pálsson, f. 1950, vinnur
hjá Rafmiðlun, og Hafdís Hallsdóttir, f.
1951, fyrrverandi skrifstofustjóri á Árbæj-
arsafni. Þau eru búsett í Reykjavík.
Inga Hlín Pálsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú býrð yfir miklum fróðleik sem
þú getur miðlað til annarra ef þú ert tilbú-
in/n til að gefa af sjálfri/sjálfum þér. Ekki
gefast upp núna, allt er að smella hjá þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Gakktu glaður/glöð til verka, því þú
átt í vændum skemmtileg verkefni, sem
gera kröfur til allra þinna hæfileika.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er alltaf gaman að rekast á
gamla vini og rifja upp liðna tíð. Þú vilt
ekki láta ráðskast með þig, aðrir ekki held-
ur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú verður hugsanlega fyrir von-
brigðum með skiptingu á tilteknum hlunn-
indum eða verkefni. Þér leiðist að hjakka í
sama farinu, vertu því dugleg/ur að
breyta til.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ef þú hefur ekki hemil á skapi þínu
svona almennt nennir enginn að vera ná-
lægt þér. Ástvinur fer undan í flæmingi ef
hann er spurður um álit.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ekki eyða tímanum í að reyna að
sannfæra einhvern um að hann/hún hafi
rangt fyrir sér. Þú kannt þá list að vera
hvetjandi og ná fram því besta í öðrum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gættu þess að gleyma þér ekki í
vangaveltum og dagdraumum. Góður mál-
staður fær alla þína krafta þessa vikuna.
Hafðu lífið einfalt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér finnst engu líkara en þér
sé haldið í heljargreipum og þú eigir ekki
undankomu auðið. Það áttu samt, þú þarft
bara að kunna réttu svörin.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vertu góður hlustandi.
Geymdu stórinnkaup þar til á morgun.
Einhver siglir undir fölskum fána.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það eru litlu hlutirnir sem gefa
lífinu gildi. Sjálfboðaliðastörf hafa alltaf
heillað þig, hver veit nema þú stökkvir
með haustinu á tækifæri þeim tengd.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þótt einhverjir kasti að þér
hnútum í dag skaltu láta sem ekkert sé.
Taktu forskot á sæluna og farðu í stutt frí.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vegna vaxandi vinsælda þinna
þarftu að eyða meiri peningum á næst-
unni. Gefðu þér tíma til að sýna þig og sjá
aðra.
Byggið upp líkama og húð fyrir fríið
KAUP
AUKA
TILBO
Ð
ÉG FER Í
FRÍIÐ
Astaxanthin – íslenskt og öflugt:
Byggir upp og vernda húðina gegn sterkum
sólargeislum.
Epla Cider – lífsins elexír:
Eflir meltingu, styður við lifrarstarsemi, jafnar
blóðsykur og ýtir undir niðurbrot á fitu.
Hver vill ekki geta sólað sig og
notið matar og drykkjar í fríinu?
Fæst í flestum apótekum og heilsuhillum stórmarkaðanna
Til hamingju með daginn
Reykjavík Astrid Líf Leonar de la
Cruz fæddist 2. apríl 2019 kl. 23.28.
Hún vó 3.310 g og var 47 cm löng. For-
eldrar hennar eru Alexis Mae Leonar
og Clifford Jay de la Cruz.
Nýr borgari