Morgunblaðið - 30.05.2019, Side 61

Morgunblaðið - 30.05.2019, Side 61
Jónas fékk viðurkenninguna „Steinway artist“ frá Steinway & Sons í Hamburg 2006. Jónas Ingi- mundarson var sæmdur riddara- krossi hinnar íslensku fálkaorðu af forseta Íslands 1. janúar 1994 fyrir tónlistarstörf. Hann var sæmdur Dannebrogsorðunni dönsku 1996. „Ég hef fengið margvísleg verð- laun og viðurkenningar úr öllum áttum en ég læt þetta nægja. Ég vona að ég sé verðugur viðurkenn- inganna – veit það ekki. Ég ræð því ekki hvernig þeir hugsa til mín sem veita verðlaun og viðurkenningar en ég hef tekið við þessu öllu al- gáður og er þakklátur fyrir.“ Fjölskylda Eiginkona Jónasar er Ágústa Hauksdóttir, f. 29.6. 1945, tónlistar- kennari. Foreldrar hennar voru hjónin Haukur Eggertsson, f. 8.11. 1913, d. 24.4. 2006, forstjóri í Reykjavík, og Lára Böðvarsdóttir, f. 25.8. 1913, d. 12.7. 2010, húsfreyja í Reykjavík. Börn Jónasar og Ágústu eru 1) Haukur Ingi Jónasson, f. 9.8. 1966, guðfræðingur, sálgreinir og lektor við Háskólann í Reykjavík, bús. í Kópavogi. Barn Hauks Inga og Pálínu Jónsdóttur leikkonu, f. 16.5. 1968 er Ugla Huld, f. 31.7. 1989; 2) Gunnar Leifur Jónasson, f. 16.5. 1971, ljósmyndari, bús. í Kópavogi. Maki: Guðrún Blöndal, f. 1.6. 1970, talmeinafræðingur. Börn þeirra eru Kristófer Örn, f. 27.9. 1998, Hlynur Orri, f. 12.12. 2002, Perla Karen, f. 12.12. 2002, Trausti Steinn, f. 12.12. 2002, 3) Lára Kristín Jónasdóttir, f. 23.6. 1981, grasalæknir, bús. á Ír- landi. Maki: Tim Morrissey tækni- stjóri. Börn þeirra eru Sólrún Tara, f. 13.10. 2012, og Elva Lind, f. 23.12. 2015. Hálfsystkini Jónasar samfeðra eru Elísabet Anna Ingimundar- dóttir, f. 31.8. 1959, starfsmaður hjá Íslandspósti, bús. í Reykjavík; Ró- bert Karl Ingimundarson, f. 21.8. 1963, rekstrarstjóri, bús. í Þorláks- höfn; Albert Ingi Ingimundarson, f. 18.1. 1969, matreiðslumaður, bús. í Kópavogi. Móðir þeirra var Mar- grét Róbertsdóttir, kona Ingimund- ar, f. 23.1. 1932, d. 17.10. 1993. Foreldrar Jónasar voru Ingi- mundur Guðjónsson, f. 28.12. 1916, d. 4.12. 1982, verkstjóri og organisti í Þorlákshöfn, og Guðrún Kristjáns- dóttir, f. 5.10. 1915, d. 10.2. 1999, saumakona í Reykjavík. Úr frændgarði Jónasar Ingimundarsonar Jónas Ingimundarson Bóel Sigurðardóttir húsfreyja á Þorleifsstöðum Böðvar Jónsson bóndi á Þorleifsstöðum á Rangárvöllum Kristján Böðvarsson bóndi á Voðmúlastöðum Guðrún Kristjánsdóttir saumakona í Reykjavík Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja í Stóru-Hildisey Guðmundur Þórðarson bóndi í Stóru-Hildisey í Austur-Landeyjum Guðjón Guðmundsson bóndi í Voðmúlastaða- Austur-Hjáleigu Jóna Guðmundsdóttir húsfreyja í Voðmúlastaða-Austur- hjáleigu, nú Búland, í Austur-Landeyjum Ingibjörg Helgadóttir húsfreyja á Fífustöðum Guðmundur Þorsteinsson bóndi á Fífustöðum í Ketildölum, V-Barð. Ingimundur Guðjónsson verkstjóri í Þorlákshöfn Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja á Voðmúlastöðum í Austur-Landeyjum DÆGRADVÖL 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019 Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 fös: 12-16 SUMAR 2019 „LÆKNIRINN SAGÐI AÐ ÞÚ VÆRIR HEPPINN AÐ TÓRA. ÉG TÓK ÞVÍ SEM HRÓSI.” „HÁLSKIRTLATAKA ER Á TILBOÐI ÞESSA VIKUNA.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... dýrmætt smáfólk. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG ER ALVÖRU- GEFINN MAÐUR, LÍSA TRÚÐANEFIÐ ÞITT DATT AF EINS OG ÉG SAGÐI … TÖLUM UM EITTHVAÐ ANNAÐ, ÓKEI? GRIMMÚLFUR GRIMMI, VIÐ VITUM AÐ ÞÚ ERT GRIMMUR! EN ÞÚ ÞARFT ÞESS EKKI. ÞÚ GETUR HÆTT OG VERIÐ GÓÐUR! HVAÐA AÐRA GALLA HEFURÐU Í RAUN? ÉG ER EKKI GÓÐUR ÁHEYRANDI! Ljóðmæli séra Matthíasar Joch-umssonar er sú ljóðabók sem ég blaða oftast í. Þar er margt skemmtilegt og blátt áfram og ber það með sér, að skáldið hefur ekki alltaf tekið sig of hátíðlega. Þannig er um „Skriftamál“: Þekkti ég marga fríða frú, fjörs því dofnar eldur; engin var mér alveg trú – ekki ég þeim heldur. Heimtaðu ekki drósar dygð dygðarlaus og hálfur; enginn skyldi treysta tryggð, tryggðarofi sjálfur. Hugsaði ei um heilagleik hér á breyskri jörðu; Guð hefur skapað vífin veik, en veikari menn þau gjörðu. Heimtaðu fyrri fullan rétt, frelsi og ábyrgð kæru, en að svanni í sinni stétt sé þér meiri að æru. Aldrei kviknar æru-blóð undir þrælsins helsi; viljirðu koma upp kosta þjóð kenndu snótum frelsi. Kjósir þú í kvenna hóp að kallast þræll og herra kalla þær þig gauð og glóp og gjöra kannski verra. Eitt vorið orti séra Matthías og kallaði „Kveddu, þröstur“: Kveddu, þröstur, kæri minn, kenn mér bögur yrkja; hálfu betri er hljómur þinn heldur en mögur kirkja. Gefðu mér þín ljúflingsljóð, litli hörpuslagi! Lagið völdu við þinn óð Vanadís og Bragi. – Maður kvað: Annað líf er eins og snær eða veika skarið; mér í dag það máske hlær, á morgun er það farið. Séra Matthías svaraði: Lögmál Guðs um lönd og sjá leyf þér ei að pretta, þótt þú treystir aldrei á æðra líf en þetta. Ármann Þorgrímsson vísar til vísindamanna og hvað þeir segja: Öll við stefnum eina leið öfugþróun virðist hröð gatan okkar bein og breið bráðum komin endastöð. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vísur eftir séra Matthías og fleira gott

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.