Morgunblaðið - 30.05.2019, Side 63

Morgunblaðið - 30.05.2019, Side 63
ÍÞRÓTTIR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019 Þótt augu margra áhuga- manna um íþróttir muni á laug- ardaginn beinast að úrslita- leiknum í Meistaradeild karla í knattspyrnu er ég satt að segja spenntari fyrir öðrum alþjóð- legum íþróttaviðburði. Fram- undan er úrslitahelgi Meist- aradeildar Evrópu í handknatt- leik karla í Lanxess-- íþróttahöllinni í Köln. Til Kölnar stefni ég í rauðabítið í dag. Þar ætla ég að njóta þess besta í evr- ópskum handknattleik á laugar- dag og á sunnudag. Þetta verður sjötta árið í röð sem ég fylgist í návígi með hand- boltahátíðinni í Köln. Vænti ég þess að verða ekki svikinn af skemmtuninni fremur en áður. Ekki mun spilla fyrir að Íslend- ingur verður í eldlínunni á leik- vellinum. Aron Pálmarsson tekur nú þátt í úrslitahelgi Meistara- deildarinnar í áttunda sinn. Að þessu sinni með Spánarmeist- urum Barcelona. Aron var í sigurliði Meistara- deildarinnar 2010 og 2012 með Kiel. Síðan hefur hann komist nærri sigrinum en herslumuninn vantað uppá, bæði með Kiel og síðar með Veszprém. Raunar voru Aron og félagar klaufar að tapa úrslitaleiknum fyrir þremur árum á móti Kielce eftir að hafa náð níu marka forskoti stundar- fjórðungi fyrir leikslok. Barcelona vann Meistara- deild Evrópu í handknattleik síð- ast fyrir fjórum árum. Þá var Guðjón Valur Sigurðsson í áhöfn liðsins. Vonandi endurtekur Barcelona leikinn á sunnudaginn með Aron innanborðs. Hafi ég bærilegan tíma á laug- ardagskvöld er aldrei að vita nema ég liggi á meltunni eftir handboltann og gjói augum í átt að sjónvarpinu meðan ensku lið- in eigast við á iðgjagrænum leik- vellinum í Madríd. BAKVÖRÐUR Ívar Benediktsson iben@mbl.is NBA Gunnar Valgeirsson Í Los Angeles Meistarar Golden State Warriors stefna nú á þriðja meistaratitil sinn í röð og þann fjórða á fimm árum í viðureigninni gegn Tortonto Rap- tors í lokaúrslitarimmu NBA- deildarinnar sem hefst í nótt í Kan- ada. Árangur Warriors er sögulegur fyrir þær sakir að þetta er í fyrsta sinn síðan Boston Celtics komst tíu sinnum í röð í úrslitin frá 1957 til 1966 að lið nær að komast í loka- úrslitin fimm ár í röð – nú loksins eitthvert annað lið en Cleveland. Þegar Boston náði sínum árangri voru bara níu lið í deildinni, ekkert launaþak, og leikmenn gátu aldrei skipt um lið nema með samþykki liðs síns. Það voru öðruvísi tímar. Árangurinn Warriors á þessum tímum er sérstaklega athygl- isverður þar sem mun erfiðara er fyrir lið að vinna titilinn ár eftir ár vegna launaþaks deildarinnar og frelsis leikmanna að skipta um lið – sem er mun algengari nú en fyrr í sögu deildarinnar. Leikmenn meist- aranna leika þar að auki fleiri leiki en önnur lið og þegar það gerist ár eftir ár tekur það mikla orku leik- manna að halda það út mörg ár í röð. Scottie Pippen, fyrrverandi leik- maður Chicago Bulls, sagði á ESPN-sjónvarpsstöðinni í síðustu viku að þegar hann lék með Michael Jordan, ákvað sá kappi að taka sér frí frá körfuboltanum í tvö ár eftir að liðið vann þrjá meistaratitla í röð 1991-1993. „Michael var alveg búinn eftir þá titla. Hann átti ekkert eftir til að gefa og það átti við um okkur flesta. Þennan árangur Warriors nú verður erfitt að endurtaka í náinni framtíð eins löng og strembin deild- arkeppnin og úrslitakeppnin er orð- in í dag. Styrkur þrátt fyrir mótlæti Það er ekki eins og að allt hafi fallið með Golden State í þessari úr- slitakeppni. Bæði miðherjinn DeM- arcus Cousins og Kevin Durant meiddust fyrr í keppninni og óvíst er hversu mikið – ef eitthvað – þess- ir kappar eiga eftir að leggja liðinu til í þessari rimmu. Þá meiddist framherjinn Andre Iguodala gegn Portland TrailBlazers og lék nánast ekkert í tveimur síðustu leikjunum. Þrátt fyrir fjarveru þessara þriggja lykilleikmanna rúllaði Warriors yfir Portland. Liðið er eins og vel smurð vél. Það virðist litlu skipta fyrir leik- mannahópinn hver meiðist – það virðist ávallt maður koma í manns stað. Í þessum pistlum fyrir síðustu umferð var bent á að ekkert af þessu væri mögulegt án framtaks þjálfarans Steve Kerr. Hann hefur þróað ákveðna menningu hjá liðinu síðan hann tók við Warriors fyrir fimm árum og hún sýnir sig í leik liðsins ár eftir ár. Ég hef verið að fylgjast með NBA-boltanum síðan seint á sjö- unda áratugnum í Kanasjónvarpinu gamla í Keflavíkinni og man ég ekki eftir að hafa séð eins skemmtilega leikandi NBA-lið og Warriors síð- ustu hálfa öld – og er ég ekki sá eini um þá skoðun. Kanadalið loksins í úrslitunum Það má segja að mótherjar Gol- den State nú hafi komið á óvart því fæstir sérfræðingar áttu von á því að Toronto Raptors myndi vinna Milwaukee Bucks í úrslitarimmu Austurdeildarinnar. Í þeim úrslitum kom hinsvegar í ljós að miðherjann Giannis Ante- tokounmpo skortir nægilega reynslu til að taka yfir leiki svo seint í úrslitakeppninni. Það var hins- vegar ekkert mál fyrir Kawhi Leon- ard hjá Toronto sem hreinlega kom liði sínu með viljanum í lokaúrslitin í síðustu leikjunum gegn Milwaukee. Sigur Toronto var mikill sigur fyrir forseta liðsins, Nígeríumann- inn Masai Ujiri, en það var hann sem tók þá ákvörðun síðasta sumar að senda stjörnuleikmanninn DeM- ar DeRozan til San Antonio Spurs í skiptum fyrir Leonard, sem átti að- eins eitt ár eftir á samningi sínum við Spurs og neitaði að leika lengur fyrir Texasliðið. Ujiri rak einnig þjálfara liðsins, en hann hafði verið kosinn þjálfari ársins í deildinni vik- una áður! Það voru ekki margir svokallaðir sérfræðingar (þar á meðal undirrit- aður) sem héldu að þessi skipti myndu virka vel fyrir liðið, þótt Leonard hefði verið kosinn leik- maður lokaúrslitanna 2014, þegar Spurs vann sinn síðasta meistara- titil. Hann hefur þó sýnt í undan- förnum leikjum hversu mikilvægt er fyrir lið að hafa einhvern inni á vell- inum á lokamínútum leikja seint í úrslitakeppninni. Hann hreinlega tók yfir rimmuna gegn Milwaukee eftir töpin í fyrstu tveimur leikj- unum og þaggaði alfarið niður í Antetokounmpo í vörninni. Þetta hafði Ujiri hinsvegar í hug- anum þegar hann gerði þessar stór- breytingar síðasta sumar og hann á skilið lof fyrir að taka áhættuna. Hann hefur breytt árangri Raptors frá því að vera lið sem tapar leikjum í úrslitakeppninni sem það átti að vinna, í lið sem nær sigri í leikjum sem það átti ekki að vinna. Curry að venju lykillinn Langflestir veðja hér á Golden State. Það er ekki annað hægt eftir að hafa séð til leiks liðsins und- anfarið. Þetta verður hinsvegar ekki eins auðvelt og gegn Portland og Houston. Leonard er frábær varnarmaður og hefur gert vel í að þagga niður í Kevin Durant í leikjum hans fyrir bæði Oklahoma City og Golden State. Durant gæti hinsvegar ekki leikið mikið í þessari rimmu þar sem hann er enn að jafna sig á liðamóta- meiðslum í kálfa. Það munu því verða Klay Thompson og Stephen Curry sem þurfa að sjá um stiga- skorunina fyrir meistararana, og þjálfarar Raptors hafa eflaust eytt síðustu dögum í að skipuleggja varnaraðferð gegn Curry. Þeir eru ekki þeir einu sem það hafa reynt í gegnum árin og á end- anum vona andstæðingar Warriors að Curry hitti illa í leikjum, því hann finnur ávallt leið til að finna skot- færi. „Á endanum gengur þetta allt út á að finna góð skotfæri fyrir okk- ur í sókninni, sama hver mótherjinn er. Ég þekki minn styrkleika og mun reiða mig á þá í þessum leikj- um. Þegar í þessa leiki kemur mun- um við þurfa að aðlaga okkur varn- arleik þeirra, en við höfum séð þetta allt áður,“ sagði Curry eftir æfingu í vikunni. Fyrir Golden State er mikilvæg- ast að koma böndum á Leonard í sókn Raptors. Samherjar hans hafa ekki enn sýnt það sem af er þessari úrslitakeppni að hann geti reitt sig á þá að skora nóg í leikjum. Hann er allt í öllu hjá liðinu og ef leikmenn eins og Kyle Lowry, Pascal Siakam og Serge Ibaka ná sér ekki á strik gegn meisturunum gæti þetta orðið erfitt fyrir Toronto. Þetta verður eflaust skemmtileg leiksería, en Golden State ætti að hafa þetta í sex leikjum. gval@mbl.is Söguleg sigurganga Gol- den State heldur áfram  Lið frá Kanada í fyrsta sinn í úrslitunum  Óvissa varðandi Kevin Durant AFP Flottur Greinarhöfundur hrífst af Stephen Curry hjá Golden State Warriors eins og margir aðrir. Krókháls 1 • 110 Reykjavík • S. 567 8888 • www.pmt.is Allt til merkinga & pökkunar VOGIR Allar gerðir voga á nýrri heimasíðu pmt.is • MIÐAVOGIR • TALNINGARVOGIR • RANNSÓKNARVOGIR • SMÁVOGIR OFL.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.