Morgunblaðið - 30.05.2019, Page 65

Morgunblaðið - 30.05.2019, Page 65
ÍÞRÓTTIR 65 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019 Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið. útskriftarveislur FRÉTTASKÝRING Kristján Jónsson kris@mbl.is Sterkasta körfuknattleikslið lands- ins í karlaflokki síðustu sex árin, KR, varð í gær enn sterkara. Tölu- vert sterkara. Þrír uppaldir leik- menn hafa ákveðið að snúa heim í KR. Bræðurnir Jakob Örn og Matt- hías Orri Sigurðarsynir og Brynjar Þór Björnsson. Gengið var frá samn- ingum við þá á blaðamannafundi í gær. Brynjar og Matthías semja til tveggja ára en Jakob til eins árs. Þrír úr árgangi 1982? KR hefur misst Emil Barja til Hauka en ekki liggur fyrir hvort aðrir leikmenn hugsi sér til hreyf- ings fyrir utan erlendu leikmennina tvo. Morgunblaðið spurði þjálfarann Inga Þór Steinþórsson út í leik- mannamálin og hann sagði þau vera í vinnslu. Ekkert væri öruggt í þeim efnum en menn væru jákvæðir varð- andi það að vera með næsta vetur. Jakob er fæddur árið 1982 eins og þeir Jón Arnór Stefánsson og Helgi Már Magnússon. Fari svo að Jón og Helgi verði með næsta vetur, eins og ágætar líkur eru á, þá myndu þre- menningarnir sameinast á ný hjá KR en þeir voru saman í firnasterku liði í yngri flokkum félagsins. Léku þeir síðast saman hjá KR fyrir ára- tug, tímabilið 2088-2009. Þar áður voru þeir saman í KR árið 2000. Hver þjálfaði KR þá? Jú Ingi Þór Steinþórsson rétt eins og nú. KR varð Íslandsmeistari bæði 2000 og 2009. Eru það einu tímabilin sem Jakob hefur spilað á Íslandi í meist- araflokki að einhverju ráði. Hann hefur hins vegar átt langan feril er- lendis, síðasta áratuginn í Svíþjóð þar sem hann varð sænskur meistari árið 2011. Jakob styrkir KR-liðið verulega en hann er bæði góð skytta og einnig mjög klókur varnarmaður. ÍR missir spón úr aski sínum Matthías Orri og Jakob hafa ekki spilað saman fyrr en báðir vonuðust eftir að fá tækifæri til þess. Matthías hefur verið einn atkvæðamesti ís- lenski leikmaður deildarinnar síð- ustu árin. Með honum fær KR ekki bara öflugan skorara heldur eru einnig nokkrar tennur dregnar úr liði ÍR um leið, þar sem Matthías hefur blómstrað. Matthías lék síðast með KR árið 2011, þá aðeins 17 ára gamall. Brynjar Þór Björnsson snýr aftur eftir eitt tímabil með Tindastóli. Brynjar er áttfaldur Íslandsmeistari með KR í meistaraflokki og á nú góða möguleika á því að bæta þeim níunda við sem er ævintýraleg stað- reynd. Alla jafna er lítið vit í því að spá um Íslandsmeistara næsta árs í lok maí, en þar sem KR-ingar virð- ast ætla að mæta til leiks með bæði belti og axlabönd þá má ljóst vera að erfitt verður að hnupla bikarnum úr bikaraskápnum í Frostaskjólinu.  Á mbl.is/sport/korfubolti er að finna viðtöl við leikmennina þrjá. KR-ingar með belti og axlabönd  Þrír úrvalsleikmenn gengu í raðir meistaraliðsins í gær  Bræðurnir Jakob og Matthías leika saman í fyrsta sinn  Áratugur síðan Jakob lék með KR Morgunblaðið/Kris Alsæll Gærdagurinn var góður fyrir Inga Þór, þjálfara KR, sem stillir sér hér upp með Matthíasi Orra og Brynjari. Jakob er enn búsettur í Svíþjóð. Eftir fremur slæmt gengi á þessu ári sprakk lið Chelsea út í úrslita- leik Evrópudeildar karla í knatt- spyrnu í Baku í gær. Chelsea vann stórsigur á Arsenal, 4:1, og Arsenal verður þá aftur í Evrópudeildinni á næsta keppnistímabili. Sigur í keppninni hefði fleytt skyttunum í Meistaradeildina á næsta ári en það tækifæri gekk þeim úr greipum að þessu sinni. Fjörið hófst í síðari hálfleik en eftir markalausan fyrri hálfleik komu fimm mörk í þeim síðari. Oli- vier Giroud kom Chelsea á bragðið gegn sínu gamla liði á 49. mínútu. Pedro og Eden Hazard bættu við mörkum áður en Alex Iwobi minnk- aði muninn. Hazard skoraði hins vegar aftur og innsiglaði sigurinn. Líklega í sínum síðasta leik fyrir Chelsea, í bili að minnsta kosti. Er þetta annar sigur Chelsea í keppninni í sögu félagsins og sá fimmti í Evrópukeppnum. Stjóri liðsins, Maurizio Sarri, vann sinn fyrsta titil á ferlinum sem knatt- spyrnustjóri. sport@mbl.is Ljósmynd/AFP Gleði Eden Hazard og Jorginho fagna marki Hazard í Baku í gær. Sarri vann bikar í fyrsta skipti í Baku  Árni Vilhjálmsson var enn og aftur á skotskónum með úkraínska liðinu Chornomorets Odessa í gær þegar lið- ið bar sigurorð af Desna 3:0. Árni skoraði tvö síðustu mörk sinna manna og kom fyrra mark hans af vítapunkt- inum. Hann hefur þar með skorað 7 mörk í 12 leikjum með liðinu. Chornomorets bjargaði sér frá beinu falli í lokaumferðinni í gær. Liðið hafn- aði í næstneðsta sæti í deildarkeppn- inni og fór þar með í aukakeppni sex neðstu liðanna sem lauk í gær. Þar hafnaði liðið í næstneðsta sæti, eftir að hafa setið á botninum lengi vel, og fer í umspil um að halda sæti sínu í deildinni.  Caster Semenya, ólympíumeistari í 800 metra hlaupi kvenna, hefur áfrýj- að til hæstaréttar í Sviss dómsmáli sem hún tapaði þar sem hún vildi fá hnekkt nýjum reglum Alþjóðafrjáls- íþróttasambandsins. Þær kveða á um hámark karlkyns hormóna í líkama kvenna í hlaupamótum á vegum sam- bandsins.Vegna reglnanna þarf hún framvegis að taka inn lyf sem bæla niður testosterónmagnið í líkama sín- um. Alþjóðafrjálsíþrótta- sambandið hélt því fram að reglurnar væru nauðsyn- legar til að tryggja sann- gjarna samkeppni og að allir kven- kyns kepp- endur geti séð „leið til frama“. Eitt ogannað Flensburg færðist nær þriðja Þýskalandsmeistaratitlinum í gær þegar liðið vann Füchse Berlin á heimavelli, 26:18. Bjarki Már El- ísson skoraði 5 mörk fyrir Berl- ínarliðið. Alfreð Gíslason og læri- sveinar í Kiel unnu einnig sinn leik, gegn Lemgo, 34:26. Fyrir loka- umferðina hefur Flensburg 62 stig en Kiel 60 stig í öðru sæti. Í loka- umferðinni sækir Flensburg lið Bergischer heim og Kiel tekur á móti Hannover. Fari svo að liðin endi jöfn að stigum verður Kiel meistari á betri markamun. Ekkert hik á liði Flensburg Ljósmynd/THW Kiel THW Kiel Alfreð Gíslason á enn von um að vinna meistaratitilinn. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir mun í dag hefja leik á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi sem haldið er í Charleston í Suður-Karól- ínuríki í Bandaríkjunum. Verður þetta sjöunda risamót Ólafíu á ferl- inum og er hún í algerum sérflokki íslenskra kylfinga hvað það varðar. Ólafía er í þriðja síðasta ráshópn- um og fer af stað kl. 18.46 að ís- lenskum tíma, eða 14.46 að staðar- tíma. Hún er í ráshópi með Jiyu Jung frá Suður-Kóreu og áhuga- kylfingnum Ginu Kim frá Banda- ríkjunum. sport@mbl.is Ólafía í eldlínunni í suðrinu í dag Ljósmynd/LPGA Heitt Ólafía Þórunn mun að lík- indum leika í rúmlega 30 stiga hita.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.