Morgunblaðið - 30.05.2019, Síða 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70
hitataekni.is
– sjö viftur í einni
Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB)
Valin besta nýja
vara ársins,
Nordbygg 2016
Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar
ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými.
Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð og
framleidd í Svíþjóð.
Hjólastillingar
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
SAMEINUÐ GÆÐI
Starfsstyrkjum Hagþenkis 2019 til
ritstarfa var úthlutað fyrr í vikunni.
Hagþenkir, félag höfunda fræðirita
og kennslugagna, auglýsti í apríl
eftir umsóknum um starfsstyrki til
ritstarfa og handritsstyrki vegna
fræðslu- og heimildamynda. Til út-
hlutunar starfsstyrkja voru 15
milljónir og þrjár milljónir til hand-
ritsstyrkja. Alls bárust 67 umsóknir
um starfsstyrk til ritstarfa og af
þeim hljóta 29 verkefni styrk. Í út-
hlutunarráði Hagþenkis fyrir
starfsstyrki voru þrír félagsmenn,
Hafþór Guðjónsson, Ingólfur Vil-
hjálmur Gíslason og Kristín Jóns-
dóttir. Tíu umsóknir bárust um
handritsstyrk og hlutu níu þeirra
styrk. Í úthlutunarráði fyrir hand-
ritsstyrki voru þrír félagmenn, Árni
Hjartarson, Helgi Máni Sigurðsson
og Sólveig Ólafsdóttir.
Fimm hlutu hæsta styrk til rit-
starfa sem er 900 þúsund krónur.
Þetta eru Guðmundur Ólafsson fyr-
ir The Complex Development of a
Greenlandic Norse Farm; Ingunn
Ásdísardóttir fyrir Jötnar í blíðu og
stríðu; Jóhann Óli Hilmarsson og
Ólafur Einarsson fyrir Lífið í fjör-
unni – Fræðslurit fyrir skóla og
almenning; Paolo Turchi fyrir
Grísk-íslensk, íslensk-grísk orða-
bók og Ragnhildur Sigurðardóttir
fyrir Fyrirsagnar tilraun um lit-
unargjörð. Einn umsækjandi hlaut
750 þúsund króna styrk, en það er
Sigrún Huld Þorgrímsdóttir fyrir
Þá ung ég var. Mannlíf og atburðir
á Íslandi 1950-1990.
Fimm hlutu styrk að upphæð 600
þúsund krónur. Það eru Davíð
Hörgdal Stefánsson fyrir Skapalón-
ið hugvekja um ritlist; Kristín Guð-
björg Guðnadóttir fyrir Að finna
listinni samastað í samfélaginu.
Ágrip af sögu FÍM; Kristján Leós-
son fyrir Silfurberg – merkasta
framlag Íslands til vestrænnar
menningar?; Lára Magnúsardóttir
fyrir Að finna velvildinni takmörk –
eða bannsett fordæðan og Margrét
Tryggvadóttir fyrir Reykjavík
barnanna. Sex hlutu styrk að upp-
hæð 450 þúsund krónur. Þetta eru
Ásdís Ósk Jóelsdóttir fyrir Textíl-
og neytendafræði: Neysla, nýting
og nýsköpun; Bára Baldursdóttir
fyrir Ríkisafskipti af íslenskum
konum og hermönnum í síðari
heimsstyrjöld; Hallfríður Þórarins-
dóttir fyrir Innflytjendur starfandi
á veitingastöðum; Ólafur J. Eng-
ilbertsson fyrir Þórir Baldvinsson
arkitekt; Rannveig Lund fyrir
Fimm vinir í blíðu og stríðu – 5
daga stríðið og Viðar Hreinsson
fyrir Náttúrur og fornar frásagnir.
Fjögur hlutu styrk að upphæð
400 þúsund krónur. Þetta eru Art-
húr Björgvin Bollason fyrir Die Is-
länder, þættir af merkum Íslend-
ingum (skráðir á þýsku); Árni
Daníel Júlíusson fyrir Bók um Þóri
Baldvinsson arkitekt; Clarence E.
Glad fyrir Ævisaga Sveinbjarnar
Egilssonar og Sigríður Dögg Arn-
ardóttir fyrir Litla bókin um blæð-
ingar. Einn umsækjandi hlaut 350
þúsund króna styrk, en það er Úlf-
hildur Dagsdóttir fyrir Grein um
Medúsu. Sjö hlutu styrk að upphæð
300 þúsund krónur. Þetta eru Elfar
Logi Hannesson fyrir Leiklist og
list á Þingeyri; Elín Bára Magnús-
dóttir fyrir Spurningin um höfund
Grettis sögu; Gunnþóra Ólafsdóttir
fyrir Þegar náttúran er áfanga-
staður; Hrafnhildur Ragnarsdóttir
fyrir Íslenskt mál í notkun – þróun
textagerðar frá miðstigi til fullorð-
insára; Jónas Knútsson fyrir Gegn
Catilinu; Unnur Birna Karlsdóttir
fyrir Saga Náttúruverndarsamtaka
Austurlands (NAUST) og Unnur
Óttarsdóttir fyrir Unnið úr tilfinn-
ingum og námsefni lagt á minnið
með minnisteikningum.
Eftirfarandi umsækjendur hlutu
handritsstyrk: Edoardo Mastan-
tuoni hlaut 700 þúsund krónur fyrir
Þeirra Ísland; Davíð Hörgdal Stef-
ánsson hlaut 450 þúsund krónur
fyrir 1 2 3 forever: Jóhann Jóhanns-
son; Vera Sölvadóttir hlaut 450 þús-
und krónur fyrir NAJMO og Ásdís
Thoroddsen hlaut 400 þúsund krón-
ur fyrir Milli fjalls og fjöru. Fjórir
umsækjendur hlutu 300 þúsund
krónur hver. Þetta eru Ari Trausti
Guðmundsson fyrir Eldhugarnir;
Arthur Björgvin Bollason fyrir
Málari Íslands; Ásta Sól Kristjáns-
dóttir fyrir Vonarlandið og Jón
Bjarki Hjálmarsson fyrir Gangan
langa.
Morgunblaðið/Hari
Styrkþegar Ánægjan var að vonum mikil í hópi styrkþega starfsstyrkja Hagþenkis árið 2019.
Starfsstyrkir Hagþenkis 2019
15 milljónum úthlutað til 29 verkefna Alls bárust 67 umsóknir um starfsstyrki til ritstarfa
Þremur milljónum króna úthlutað til níu verkefna á sviði fræðslu- og heimildamynda
» Hollensk prinsessa að þjóna dragdrottningum til borðs á góðgerðarsam-komu, fjölmenn dragdrottningaráðstefna RuPaul, geðþekki leikarinn
Keanu Reeves á frumsýningu og risastórt portrett úr korni af Donald Trump.
Já, ljósmyndarar AFP komu víða við í vikunni sem endranær.
Ljósmyndarar AFP mynda fjölbreytt mannlíf víða um lönd
AFP
Mósaík Í Kósóvó vann listamaðurinn Alkent Pozhegu að mósaíkverki úr
korni af Donald Trump Bandaríkjaforseta. Vildi hann með verkinu slá
heimsmet hvað stærð slíkra verka varðar en verkið er 560 fermetrar.
Reyndur Leikarinn Keanu Reeves
var hress á frumsýningu netflix-
kvikmyndarinnar Always Be My
Maybe í Kaliforníu í vikunni.
Kóngafólk Hollenska prinsessan Mabel þjónar dragdrottningum á góðgerð-
arkvöldverði í Amsterdam til styrktar baráttunni gegn alnæmi.
Glæsileg Dragdrottningin Art Sim-
one stillir sér upp á dragráðstefnu
hinnar heimskunnu dragdrottning-
ar RuPaul í Los Angeles.