Morgunblaðið - 30.05.2019, Side 72
72 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2019
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hljómsveitin Twin Dive, skipuð Ís-
lendingnum Ragnari Guðmundssyni,
Litháanum Robert Jancevich og
hinni dönsku Charlie Mortensen,
kom fram á tónlistarhátíðinni Spot í
Árósum í byrjun þessa mánaðar og
hlaut þar góðar viðtökur líkt og hún
hefur fengið í dönskum fjölmiðlum
undanfarið. Ragnar, kallaður Raggi,
hefur búið í Árósum frá árinu 2004 og
hefur komið víða við í listinni þó að
tónlistin hafi alltaf verið í öndvegi.
Hann er með meistaragráðu í leiklist-
arfræðum og kom m.a. að sýningu
Þjóðleikhússins á Óþelló árið 2016.
„Ég hef síðan leikið í nokkrum aug-
lýsingum hérna í Danmörku samhliða
tónlistinni og leikrita „nördaríum“,“
segir Raggi sposkur og að draum-
urinn nú sé að nema lönd með Twin
Dive og þá m.a. Ísland.
Hættu í hljómsveitum
og stofnuðu nýja
Spurður út í stofnun Twin Dive
segir Raggi gaman frá því að segja að
hann hafi setið að sumbli með banda-
ríska leikaranum og tónlistarmann-
inum Johnny Depp í Árósum að sum-
arlagi 2016 þegar Depp var þar
staddur með hljómsveit sinni í tón-
leikaferð. Félagi hans fyrrnefndur,
Robert Jancevich, var þar einnig og
segir Raggi að Depp hafi stungið upp
á því að þeir Robert stofnuðu saman
hljómsveit þar sem þeir næðu svo vel
saman. Á milli þeirra væru góðir
straumar. Þá voru þeir hvor í sinni
hljómsveitinni, Raggi í Bonnie Cried
og Robert í Federal Unicorn þannig
að ekki kom til greina að stofna dúett
þó að Hollywood-stjarna legði slíkt
til.
Tveimur árum síðar, þ.e. í fyrra,
sneru Litháinn og Íslendingurinn svo
bökum saman og stofnuðu hljóm-
sveit. „Ég er búinn að þekkja Robert
í fimm eða sex ár,“ segir Raggi og að
þeir hafi því vitað hvor af öðrum og
verið ágætis félagar. „Það vildi svo
skemmtilega til að við hættum svo
báðir í okkar böndum og ákváðum þá
að sameina krafta okkar og stofna
þessa hljómsveit.“
Heimsborgaralegt pönkrokk
En hvernig tónlist flytur Twin
Dive? „Í einni af greinunum sem hafa
verið skrifaðar um okkur var tónlistin
kölluð „cosmopolitan punk-rock“.
Þetta er pínu eins og Kings of Leon
og Queens of the Stone Age, pínu
Nirvana og jafnvel pínu Oasis ele-
ment. Þetta er melódískt en samt
alveg „in your face“,“ útskýrir Raggi
og mælir með því að áhugasamir
kynni sér myndband við lag sveit-
arinnar, „Joy Will Follow“, sem finna
má á YouTube, til að glöggva sig
frekar á tónlistinni. „Þetta er svona
„punk garage alternative“ rokk með
jákvæðan boðskap um að maður eigi
að trúa á sjálfan sig, hætta að kvarta
og kveina og drífa bara í þessu því líf-
ið sé stutt.“
Ekkert að drífa sig
Hljómsveitin hefur ekki enn gefið
út plötu en hefur tekið upp fimm lög
og gefið út eina smáskífu með fyrr-
nefndu lagi. Þá hefur sveitin gefið út
annað myndband sem sýnir lifandi
flutning hennar á laginu „Animal“ í
hljóðveri. „Við erum ekkert að drífa
okkur að gefa út plötu, erum með
þrjú lög uppi í erminni sem við ætlum
að gera myndbönd við og erum bara
að reyna að fá fleiri tónleika utan
Danmerkur. Þess vegna væri svo
gaman að fá athygli á Íslandi og spila
á Airwaves sem er eins og blanda af
SPOT og NorthSide hér í Dan-
mörku,“ segir Raggi.
SPOT-tónlistarhátíðin er ein sú
umfangsmesta sem haldin er í Árós-
um á ári hverju og má á henni sjá
rjómann af danskri dægurtónlist
hverju sinni, hvort heldur í poppi,
rokki, rappi eða öðrum greinum. Að
fá að leika á hátíðinni er því gott tæki-
færi fyrir nýstofnaða hljómsveit líkt
og Twin Dive og segir Raggi mikinn
fjölbreytileika hafa einkennt hátíðina
í ár. Þá hafi erlendir umboðsmenn og
tímarit sýnt hljómsveitinni áhuga og
framtíðin sé því björt.
Með finnsku pönkbandi
Raggi er að lokum spurður að því
hvað sé framundan hjá Twin Dive.
„Við förum til Helsinki í Finnlandi í
lok maí og spilum tvö gigg, hitum upp
fyrir finnskt pönkband sem heitir Ur-
sus Factory,“ svarar Raggi. „Þeir eru
algjörlega klikkaðir og spila í kjólum.
Þeir hituðu upp fyrir okkur í desem-
ber í fyrra, eru góðir vinir okkar og
þekktir í Helsinki. Þeir spurðu okkur
hvort við værum til í þetta og við
spurðum á móti hvort björninn skiti í
skóginum! Þannig að við erum bara
að reyna að harka fleiri gigg, líta
björtum augum á allt í kringum okk-
ur og smita út frá okkur jákvæðni og
sjarma.“
Ljósmynd/Anna Marin
Tríó Litháinn Robert Jancevich, Daninn Charlie Mortensen og Íslendingurinn Ragnar Guðmundsson.
AFP
Rokkari Johnny Depp, leikari og
gítarleikari, á tónleikum með hljóm-
sveitinni The Hollywood Vampires.
Rokk með jákvæðan boðskap
Hljómsveitin Twin Dive gerir það gott í Danmörku en hún er skipuð Íslendingi, Dana og Litháa
Var upphaflega dúett sem Johnny Depp átti hugmyndina að Hefur hug á að leika á Airwaves
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Þetta er búið að vera draumur
mjög lengi, frá því ég var barn í
rauninni. Mig langaði að prófa þetta
spennusagnaform. Ég les töluvert,
alls konar bækur, og ég hef gaman
af spennusögum,“ segir Íris Ösp
Ingjaldsdóttir en hún gaf út spennu-
söguna Röskun nú í vor. Sagan segir
frá lögfræðingnum Heru sem er ný-
flutt í kjallaraíbúð í Þingholtunum
en finnur fyrir óþægilegri nærveru í
íbúðinni. Saga hennar fléttast við
sögu annarrar ungrar konu sem býr
við erfiðar aðstæður. Áður hefur Íris
Ösp skrifað smásögur og gaf út smá-
sagnasafnið Bláar dyr ásamt fjórum
vinkonum sínum árið 2013 en þetta
er hennar fyrsta skáldsaga.
Fann vinnulag sem hentar
Íris Ösp segir það hafa gengið
ágætlega að skrifa meðfram fullri
vinnu og enn betur eftir að börn
hennar fóru að stálpast og það skýri
ef til vill hvers vegna skáldsagan
kemur út núna. „Annars skrifa ég
þegar tími gefst til á kvöldin eða um
helgar. Þetta hefur verið svolítið í
skorpum, stundum hef ég unnið mik-
ið í verkinu og svo hefur þetta legið
aðeins á milli.“
Hún segir að vinnan að þessari
bók hafi ekki verið neitt sérstaklega
langt ferli en aðdragandinn lengri.
„Ég hef gert tilraunir og þannig
uppgötvað hvernig ég vil gera þetta.
Þegar ég settist niður og skrifaði
þessa sögu fannst mér ég vera búin
að finna vinnulag sem hentaði mér.
Sem dæmi var ég mjög upptekin af
því að gera texta fínan strax í stað-
inn fyrir að koma þessu frá mér
fyrst og laga textann eftir á. Það
getur verið erfitt að henda köflum ef
maður er búinn að eyða ofboðslega
miklum tíma í að fínpússa textann.“
Íris Ösp, sem starfar sem lög-
fræðingur, segist ekki byggja á mál-
um sem hún þekki úr starfi sínu.
Aðalsögupersónan Hera vinnur þó á
lögfræðistofu og reynsla höfundar-
ins af slíkum vinnustað hefur því
komið sér vel við skrifin. Annars
segir hún verkið í heild vera tilbún-
ing.
Þarft að fjalla um alvarleg mál
Verkið fjallar um ýmis alvarleg
málefni á borð við andleg veikindi,
áfengissýki og heimilisofbeldi. „Það
hæfði þessari sögu vel að taka á
þessum málum. Það jók á trúverð-
ugleika persónanna og setti í sam-
hengi hvað þær voru að upplifa og
svo er alltaf þarft að fjalla um þessi
mál á einhvern hátt.“
Í Röskun eru kvenpersónur áber-
andi og gegna lykilhlutverkum
verksins. „Ég reyndi að vera ekki
með staðalímyndir. Mér fannst mik-
ilvægt að kvenpersónurnar væru
sjálfstæðar. En það var ekki endi-
lega með ráðum gert að það væru
kvenpersónur í aðalhlutverkum. Það
passaði fyrir þessa sögu en ég veit
ekki hvernig verður með þá næstu.“
Íris Ösp segist stefna á að halda
skrifunum áfram. „Ég er að vinna að
hugmyndum og mig langar fljótlega
að fara á fullt að vinna með þær, með
það fyrir augum að vinna áfram í
spennusagnastílnum.“
Morgunblaðið/Hari
Höfundur Íris Ösp segir það hafa hæft sögunni vel að taka á alvarlegum málum á borð við andleg veikindi.
„Langaði að prófa spennusagnaformið“
Fyrsta skáldsaga Írisar Aspar Ingjaldsdóttur, Röskun, er komin út Fjallar um alvarleg málefni
Kvenpersónur gegna lykilhlutverkum „Ég reyndi að vera ekki með staðalímyndir,“ segir Íris