Morgunblaðið - 30.05.2019, Síða 76
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
BLAZER borðstofustóll. Grátt áklæði, eikarfætur. 29.900 kr. Nú 19.900 kr.
opið í dag 12-18
20-50%
af öllum
borðstofuhúsgögnum
Tvíeykið Tvíund heldur tónleika í
Mengi í kvöld sem hefjast kl. 21.
Ólöf Þorvarðsdóttir og Guðrún
Edda Gunnarsdóttir stofnuðu Tví-
und árið 2016 og flytja frumsamda
tónlist fyrir hljómborð, fiðlu og
rödd. Þær hafa leikið sér með þjóð-
lagastef, eru innblásnar af klassík
og verk þeirra eru einlæg, tilrauna-
kennd og spunaofin.
Tvíund flytur frum-
samda tónlist í Mengi
FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 150. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Í annað sinn í sumar er kanadíski
framherjinn Cloé Lacasse úr ÍBV
besti leikmaður umferðarinnar að
mati Morgunblaðsins í Pepsi Max-
deildinni. Cloé skoraði þrennu þegar
ÍBV vann 5:0-sigur á Stjörnunni og
fékk þrjú M fyrir frammistöðu sína.
Hún tók þar með forystuna í ein-
kunnagjöf blaðsins með átta M. Lið
umferðarinnar er í blaðinu. »62
Cleó Lacasse efst í M-
gjöf Morgunblaðsins
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Kór Akraneskirkju heldur tónleika í
Hallgrímskirkju í Saurbæ, Hvalfirði,
í kvöld kl. 20. Kirkjan, sem þykir
sögulega og menningarlega mikil-
væg, hefur látið á sjá á undan-
förnum árum og eru kórtónleikarnir
haldnir til styrktar henni. Þeir eru
hluti af fyrirhugaðri tónleikaröð í
fjáröflunarskyni. Á dagskrá tón-
leika kvöldsins verður mestmegnis
íslensk kórtónlist af
veraldlegum og
andlegum toga.
Kór Akraneskirkju
er stjórnað af
Sveini Arnari Sæ-
mundssyni.
Kórtónleikar í Hall-
grímskirkju í Saurbæ
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Álftagerðisbræður hafa að undan-
förnu auglýst að þeir ætli að kveðja
stóra sviðið með tónleikum í haust.
„Gott er að hætta hverjum leik þá
hæst fram fer,“ segir Óskar Pét-
ursson spekingslegur og leggur
áherslu á að hætta þýði hætta hjá
bræðrunum frá Álftagerði. „Síðasta
Sjallaballið á Akureyri hefur verið
fimm ár í röð en við höldum ekki sam-
an tónleika aftur fyrr en þá kannski í
himnaríki.“
Bræðurnir Sigfús, Pétur, Óskar og
Gísli hafa sungið frá því þeir muna
eftir sér. Þeir komu fyrst fram saman
opinberlega þegar þeir sungu við út-
för föður síns, Péturs Sigfússonar, í
Víðimýrarkirkju 3. október 1987, en
allir nema Óskar hafa sungið í Karla-
kórnum Heimi í áratugi. „Sigfús hef-
ur sungið með Heimi lengur en elstu
menn muna, Pétur byrjaði í Karla-
kórnum Geysi á Akureyri og þeir Sig-
fús voru saman í Heimi þegar á sjö-
unda áratugnum,“ rifjar bifvéla-
virkinn upp og bætir við að Gísli hafi
líka sungið með þeim í kórnum.
„Sjálfur byrjaði ég í Karlakór Akur-
eyrar 1973. Þetta er að verða hálf öld
hjá mér og er það ekki andskotans
nóg?“
Önnum kafnir við hitt og þetta
Ferðalag skagfirsku söngfuglanna
hefur verið skemmtilegt og bræð-
urnir eru ekki síður þekktir fyrir
gamanmál en söng. Eitt sinn létu þeir
gesti bíða eftir sér á tónleikum. „Við
vorum að syngja á hjúkrunarheim-
ilinu Grund í Reykjavík og vorum
bókaðir á Eiðistorgi strax á eftir.
Þess vegna drifum við okkur út í bíl
en Sigfús lenti á kjaftatörn. Þegar
hann ætlaði einn út stoppaði starfs-
stúlka hann og spurði: „Hvert ert þú
að fara, vinur? Þú veist að þið megið
ekki fara út núna.“ Þetta var það eina
sem mér datt í hug að búa til fyrir
fólkið sem beið, en sagan er góð!“
Bræðurnir syngja hver í sínu lagi
þegar tækifæri gefst. „Ég var að
syngja í jarðarför og fór svo beint í að
kafa ofan í klósettrör,“ segir Óskar
spurður hvað hann sé helst að gera á
Akureyri þessa dagana. „Svo held ég
áfram að gera við dráttarvél enda er
ég aðallega í því að gera upp bíla og
dráttarvélar þannig að ég er bara
góður.“
Hann segir að ekkert sé heldur
nýtt að frétta af hinum bræðrunum.
„Við erum misgóðir eftir aldri. Sigfús
er ellibelgur í Varmahlíð og höktir
um af gömlum vana. Pétur býr úti á
Króknum og er líka hættur að vinna.
Gísli er enn rollubóndi í Álftagerði og
hefur góðan tíma til að fara á hest-
bak.“
Tónleikarnir verða í Miðgarði í
Skagafirði kl. 20.30 dagana 24. og 25.
október og í Eldborg Hörpu kl. 20 26.
og 27. október og er miðasala hafin
(tix.is). „Það er mál að linni áður en
ég verð mér til háborinnar skamm-
ar,“ áréttar Óskar.
Ljósmynd/Mummi Lú
Í Hörpu Álftagerðisbræður hafa haldið marga eftirminnilega tónleika og kveðja stóra sviðið í lok október.
Gleðigjafar kveðja
Álftagerðisbræður hætta að syngja saman á tónleikum
og blása til þeirra síðustu Hugsanlega aftur í himnaríki