Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2019, Page 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2019, Page 15
Eurovision-aðdáendurnir Flosi Jón Ófeigsson og Laufey Helga sjást hér á sjálfu með Salvador Sobral, portúgalska söngvaranum sem vann Eurovision árið 2017. Hatari stóð sig vel á blaðamannafundi í Tel Aviv. Laufey skrifar fréttir frá Ísrael á fases.is. Euro-klúbbar eru opnaðir í kringum Eurovision og oft er mikið stuð á dansgólfinu. Eingöngu má spila gömul Eurovision-lög. Í Úkraínu fóru aðdáendur í setuverkfall þegar önnur lög voru spiluð. Laufey spáir Svíþjóð sigri. Hér sést hún með sænska flytjandanum, John Lundvik. Laufey náði mynd af sér með Nettu frá Ísrael, sem stóð uppi sem sigurvegari í fyrra. pression“-tímabil, sem við köllum alltaf PED, eða peddið. Eða á íslensku: eftirsöngvakeppnis- bringsmalaskottan, eða ESB. Bringsmalaskotta er gamalt orð yfir þunglyndi. Við leggjum sér- stakan metnað í að íslenska öll svona Eurovisi- on-heiti,“ segir hún. „Peddið nær yfir svona þrjá, fjóra mánuði og þá er gott að eiga góða vini sem hugga mann. Svo skellir maður sér jafnvel á aðdáendavið- burði. Í ágúst er t.d. stór viðburður hjá finnska Eurovision-klúbbnum en þeir eru með siglingu þar sem siglt er frá Helsinki til Tallinn og aftur til baka. Á skipinu koma fram gamlar Eurovisi- on-stjörnur og er þetta sannkölluð partíhelgi. Ég fór 2017,“ segir hún. „Svo kjósum við í keppni allra Eurovision-klúbba hvaða lag sem komst ekki í Eurovision var best. Við höldum okkur uppteknum í þessu blessaða peddi og svo keyrum við vertíðina í gang með haustinu. Þá er aðalfundur, Eurovision-barsvar (pubquiz), Eurovision-bingó og svo hittumst við á Happy hour og horfum á gamlar keppnir. Síðan byrjar undirbúningurinn aftur í desember. Fjöl- skyldan er farin að kalla þetta Eurovision- kirkjuna mína,“ segir hún. Peningar innan um vændiskonur Laufey hefur farið alls átta sinnum á Eurovision og er nú í Ísrael á níundu keppninni. Hún segir einna eftirminnilegast hafi verið í Malmö. „Þeir eru algjörir fagmenn að halda Eurovisi- on í Svíþjóð. Þetta var agalega skemmtileg keppni fyrir aðdáendur. Úkraína 2017 stendur líka upp úr. Það voru alls kyns skrítnir hlutir sem komu upp, en þá var ég komin í stjórn OGAE International og sá þetta innan frá. Þar var þarna Euro-klúbbur og þeir voru ekki búnir að fatta að maður spilar auðvitað bara Eurovisi- on-tónlist. Okkar fólk fór í setuverkfall á dans- gólfinu og við ræddum við vertinn sem gerði ekkert annað en að sjúga spítt í nösina á meðan við ræddum við hann,“ segir hún. „Svo erum við í regnhlífarsamtökunum í sam- bandi við Eurovision-plötusnúða og kom í ljós að þarna í Kænugarði höfðu þeir ekkert fengið borgað fyrir sína vinnu. Klukkan þrjú um nóttina eftir úrslitin, þegar Salvador Sobral frá Portúgal var búinn að vinna, var ég dregin baksviðs að lesa yfir samning um greiðslu fyrir þessa þjónustu. Samningurinn var á úkraínsku þannig að ég fékk stelpu til að þýða fyrir mig; hún var ekki meira en sextán ára. Okkur var rétt mjög þykkt seðlabúnt sem við þurftum að telja á staðnum sem var frek- ar mikil vinna, enda tveggja vikna laun allra Eurovision-plötusnúðanna. Þarna var fullt af vændiskonum og fylgdarkonum en ég var búin að segja þeim þarna að það þýddi lítið að bjóða upp á þessa þjónustu þar sem 97% þeirra sem sæktu Eurovision væru samkynhneigðir karlmenn. Það var mjög skrítið að telja alla þessa peninga um miðja nótt í kringum allar þessar vændiskonur; mjög einkennileg upplifun!“ Fíla Hatara í botn Hvað er besta Eurovision-lag allra tíma að þínu mati? „Þetta er spurning sem þú spyrð aldrei al- vöru Eurovision-aðdáanda. Það er ómögulegt að nefna eitthvert eitt lag. Ég á uppáhalds rúss- neskt, íslenskt, frá þessari eða hinni keppninni. En lengi vel var mitt uppáhalds Eurovision-lag Neka Mi Ne Svane, króatíska Eurovision-lagið 1998 sem lenti í fimmta sæti. Það er frægt Eurovision-lag,“ segir hún. „Eitt lag enn með Siggu og Grétari situr mjög fast í minningunni, maður ólst upp við það. Ég var send á dansnámskeið í safnaðarheimilið þar sem ég bjó, í Ólafsvík, til þess að læra Eitt lag enn-dansinn. Svo fíla ég Hatara alveg í botn! Ætli það verði ekki bara uppáhalds Eurovision- lagið mitt? Ef fólk hefur ekki séð Hatara á sviði mæli ég með að fólk mæti á tónleika því sjón er sögu ríkari.“ Önnur klassísk spurning, spáir þú Hatara góðu gengi? „Ég held að við munum komast upp úr bless- aðri undankeppninni í fyrsta sinn síðan 2014 og ég hlakka til þess. Við erum í verri undankeppn- inni og þarna eru ekki mjög sigurstrangleg lög þannig að við eigum meiri möguleika. Svo dró Úkraína sig út úr keppni og þeir voru í okkar riðli. Þannig að við keppum við einum færri.“ Heldurðu að Hollendingar vinni? „Nei, ég er ekki komin á þennan hollenska vagn en samkvæmt veðbönkum eru þeir sigur- stranglegastir. Ég hef mjög mikla sigurtilfinn- ingu fyrir sænska laginu sem heitir Too late for love og er mjög fallegt gospel-lag. En með öll- um fyrirvara um að Ísland sé að fara að vinna Eurovision; það gæti gerst. Þeim er spáð sjötta sætinu en ég veit ekki hvaða öldu þeir ætla að sigla. Þeir eru búnir að vera mjög áberandi í aðdáendasamfélaginu og í aðdraganda Euro- vision. Þeir eru agalega vinsælir. Annaðhvort elskar fólk þá eða hatar. En í öllu falli er þetta mjög flott sviðsetning, vel flutt lag og góð laga- smíð. Þetta dregur fólk að skjánum,“ segir Laufey og upplýsir blaðamann um að Hatari muni syngja á íslensku. Þegar þú sérð Eurovision-stjörnur, verður þú stjörnuslegin? „Já, ég hef sérhæft mig í Eurovision-sjálfum með stjörnunum.“ Heldur þú að Ísland vinni einhvern tímann? „Það væri hámarkið á þessum Eurovision- tryllingi. Við erum öll að bíða eftir því og það mun gerast.“ Morgunblaðið/Ásdís 12.5. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.