Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2019, Page 19
urs Mihr, guði sólarinnar. Því var
hins vegar breytt í konunglegt sum-
arhús eftir kristnitöku.
Armenar voru fyrsta þjóðin til
þess að taka kristni sem opinbera
trú og gerðu þeir það um aldamótin
300 eftir Krist. Kristni á sér þó
lengri sögu á svæðinu og segir sagan
að tveir postular Krists, þeir Bartó-
lómeus og Júdas Taddeus, kæmu til
Armeníu og stofnuðu armensku
kirkjuna samhliða trúboði sínu um
miðja fyrstu öld. Eru því víðsvegar
kirkjur og musteri um landið, þær
elstu oft grafnar inn í fjallshlíðar og
hafa síðar verið reistar stórfeng-
legar kirkjubyggingar og virki á
þessum stöðum.
Ljósberinn
Meðal þess sem verður að sjá er
Geghard klaustrið sem er á lista
UNESCO, það var stofnað á fjórðu
öld af Gregor ljósbera sem sagður er
hafa árið 301 formlega fengið þjóð-
ina til þess að snúa baki við heiðinni
trú. Fyrsta klaustrið var lagt í eyði
af aröbum á níundu öld, en helgi
svæðisins hélt þó gildi sínu þar sem
hellarnir sem liggja inn í fjallið sem
umlykur Geghard hafa verið nýttir
til trúarlegra athafna svo öldum
skiptir jafnvel fyrir kristnitöku.
Helgasti staðurinn er hellir þar sem
rennur lind úr fjallinu sem umlykur
musterið. Kapellan sem stendur í
dag var reist 1215, en hellarnir eru
enn aðgengilegir.
Nafn klaustursins, Geghardav-
ank, þýðir klaustur spjótsins og vís-
ar til þess að það var reist til þess að
geyma spjótið sem sagt er hafa verið
stungið í Krist við krossfestinguna.
Sagan segir að Júdas Taddeus hafi
komið með spjótið til Armeníu á ferð
sinni um svæðið, en munurinn er nú
geymdur í hirslum armensku kirkj-
unnar í Etchmiadzin.
Flogið í klaustur
Víða um landið er að finna miklar
menningarminjar sem tengjast
trúarlegum arfi Armena í stórfeng-
legu umhverfi. Tatev klaustrið var
fyrst stofnað á áttundu öld og stend-
ur á kletti sem horfir yfir djúpan dal
og rennur Vorotan-á eftir honum.
Til þess að komast að klaustrinu er
ferðast með lengsta kláf í Evrópu,
Vængjum Tatev. Svifstrengurinn er
5,7 kílómetra langur og meðan á
ferðinni stendur hangir kláfurinn
hæst 320 metra yfir jörðu.
Það er í raun sérkennilegt hvað
þessi mörgu klaustur og kirkjur
standa á afskekktum stöðum sem
óneitanlega hefur verið erfitt að
komast að á fyrri tímum. Í þröngu
gljúfri sem hefur orðið til við að
Amaghu-áin hefur í gegnum árþús-
undin rofið jarðveginn og klofið fjall-
garð, er að finna Noravank, eða
Nýja-klaustur, sem reist var í byrj-
un þrettándu aldar.
Með stærstu vötnum
67 kílómetra frá höfuðborginni er
Sevan-vatn sem er helsti áfanga-
staður Armena að sumri. Vatnið er
með stærstu hálendisvötnum í heimi
og þekur 1.240 ferkílómetra, til sam-
anburðar er Þingvallavatn aðeins 84
ferkílómetrar að stærð. Sevan-vatn
er umkringt fjöllum og er um þús-
und metrum hærra yfir sjávarmáli
en höfuðborgin, eða 1.900 metra.
Sökum þess að vatnið er í þessari
miklu hæð og að í það rennur tært
og kalt fjallavatn tekur talsverðan
tíma fyrir vatnið að hitna og er ágúst
vinsælasti tíminn til þess að nýta sér
strendurnar.
Aðeins ein eyja er í vatninu, en
hún varð að skaga eftir að Jósef
Stalín skipaði fyrir að tæma skyldi
vatnið og lækkaði vatnshæðina um
20 metra. Á skaganum er að finna
klaustur, eins og víða um landið.
Sevanavank var stofnað árið 874 eft-
ir Krist og fer þar enn fram helgi-
hald. Klaustrið var fram að 20. öld
aðeins fyrir þá munka sem töldust
hafa syndgað.
Andstæður
Landið er mjög frjálslynt ef borið er
saman við nágranna sína, sérstak-
lega Íran og Aserbaísjan. Þá er lág
glæpatíðni og er óhætt að ganga á
götum Yerevan síðla kvölds og þar
er mikill fjöldi bara, kaffi- og veit-
ingahúsa. Hins vegar ber að hafa í
huga ákveðna menningarlega við-
kvæma þætti svo sem að ríkjandi
eru nokkuð hefðbundnari gildi en við
eigum að venjast í Vestur-Evrópu. Í
landinu er framleitt talsvert af víni
og er hægt að finna fyrirtaks vín-
bari, en Armenar eru hugsanlega
stoltastir af brandí-framleiðslu sinni,
einkum Ararat-brandíinu.
Eftirtektarvert er að miklar and-
stæður eru í samfélagi Armena bæði
milli fátæktarinnar á landsbyggðinni
og ríkidæmisins á verlsunargötum
Yerevan. Einnig má sjá sérkenni-
lega blöndu nútímans og einkenni
Sovétríkjanna, má meðal annars
nefna að alls ekki er ólíklegt að
verða var við talsverðan fjölda af
Lödum á götum landsins.
Armenía tekur við um 1,5 millj-
ónum gesta á ári hverju og eru það
helst Rússar, Íranar og Bandaríkja-
menn. Ekki er ólíklegt að íbúar
landsins taki upp á því að tala við Ís-
lending á rússnesku og verða nokk-
uð hissa að frétta að einhver sem
ekki er af armenskum mættum hafi
komið til Armeníu. Þá er algengt að
fá spurninguna: „Af hverju Arme-
níu?“ Þessi spurning er ekki síður
algeng þegar maður hittir fólk hér á
landi. Á móti má spurja: „Af hverju
ekki?“
Miklar andstæður eru í þjóðfélaginu og er ekki óalgengt að sjá ungmenni, eins og þennan dreng, hjálpa til við smala-
mennskuna. Ekki veitir af þegar kúahjarðir eru á beit á stórum hálendissléttum.
Á síðari árum hefur orðið mikil uppbygging í höfuðborginni á sviði úti-
listaverka. Frá Yerevan-fossi er útsýni yfir miðborgina.
Andstæður í arfleifð Sovétlýðveldisins og nútímans eru auðsjáanlegar. Þá er
ekki óalgengt að leigubílstjórar sannfæri gesti um ágæti Lödunnar.
’ Það er í raun sér-kennilegt hvað þessimörgu klaustur og kirkjureru staðsett á afskekktum
stöðum sem óneitanlega
hefur verið erfitt að kom-
ast að á fyrri tímum.
Gömlum hefðum er vel við haldið í Armeníu. Börn sýna þjóðdansa í þjóðdansasýningu í Dilijan í norð-austurhluta landsins og klæðast hefðbundnum fatnaði.
Ljósmynd/Marcin Konsek
12.5. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19