Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2019, Side 32
SUNNUDAGUR 12. MAÍ 2019
Mikið verður um dýrðir á gervi-
grasvelli Fram í Safamýrinni í dag,
laugardag, þegar Fjölmiðlamótið í
knattspyrnu fer fram. Ríkjandi
meistarar, Sjónvarp Símans, hafa
ekki setið auðum höndum milli
móta en liðinu bættist góður liðs-
auki á dögunum, þegar Eiður
Smári Guðjohnsen, réð sig í vinnu
hjá fyrirtækinu sem sérfræðingur
við umfjöllun um ensku knatt-
spyrnuna næsta vetur og er hann í
leikmannahópnum í dag. Hvort
Eiður Smári kemst í byrjunarliðið
kemur svo í ljós þegar flautað
verður til leiks stundvíslega klukk-
an 14.10.
Auk Sjónvarps Símans taka
Ríkisútvarpið, Fótbolti.net, Áttan
Miðlar, Morgunblaðið og Mbl.is
þátt í mótinu. Allir leika við alla og
stendur hver leikur í tólf mínútur.
Efstu tvö liðin leika svo hreinan úr-
slitaleik um sjálfan fjölmiðlabik-
arinn.
Aðgangur að mótinu er ókeypis
og allir velkomnir. Framarar komu
meira að segja fyrir nýrri áhorf-
endastúku við völlinn á dögunum.
Hvort sú framkvæmd tengist
mótinu skal þó ósagt látið.
Kemst Eiður Smári í byrj-
unarlið Sjónvarps Símans?
Eiður Smári eftir leik með íslenska landsliðinu á EM í Frakklandi árið 2016.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fjölmiðlamótið í knattspyrnu fer fram með pomp og prakt um helgina
„Hvað þetta pop eða popp þýð-
ir, veit ég ekki,“ segir Halldór
Pétursson í bréfi til Velvakanda í
maí 1969 en tilefnið virðist hafa
verið svokallaðar poppmessur
sem þá voru farnar að tíðkast.
„Nú síðan velmegun okkar
breyttist í ládeyðu hafa börn og
unglingar keypt svonefnt popp í
stað sælgætis. Þetta er í rauninni
hænsnamatur, en ekki má skilja
þetta svo að nýr Hænsna-Þórir
sé risinn meðal vor í kenni-
mannastétt,“ hélt Halldór
áfram og skipti nokkuð um gír.
Og áfram reit hann : „Heyrzt
hefur að þessi popalda sé að ein-
hverju runnin frá hópi þeirra
sem sendir eru til Ameríku í
stórum stíl til að skipta um skyn
í þeim. Þetta er samstofna við
það að ekki má nú leggja vegar-
spotta nema skipta um jarðveg
og ekki einungis það, heldur og
klöpp. Ég geng þess ekki dulinn
að við getum margt gott lært af
Ameríkönum, en komi til þess
að alveg þurfi að skipta um skyn
í okkur þá verðum við líka að
taka til athugunar okkar gamla
og góða orð skynskiptingur.“
Loks fengu klerkar kaldar
kveðjur:
„Sjái einhverjir prestar ekki
aðra leið til sáluhjálpar en
bumbur, merkisspjöld eða bítla-
skræki, þá held ég að þeir ættu
að skipta um starf.“
GAMLA FRÉTTIN
Hænsna-
matur
Bréfritari hefur að líkindum ekki verið mikið í poppinu fyrir hálfri öld.
Morgunblaðið/Þorkell
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Julian Assange
stofnandi Wikileaks
Johnny Logan
Eurovision goðsögn
Herbert Guðmundsson
tónlistarmaður
AÐ SOFA BETUR OG LÍÐA BETUR ER OKKUR ÖLLUM DÝRMÆTT
HEILSUDAGAR Í BETRA BAKI
ÖLL HEILSURÚM OG KODDAR MEÐ 20% AFSLÆTTI
Svefn er undirstaða heilsu, langlífis, hreystis og lífshamingju. Rétt dýna
skiptir sköpum fyrir svefngæði. Komdu á heilsudaga í Betra Baki og
finndu dýnuna sem skilar þér fullkomnum nætursvefni.
n Náðir þú 8 klukkustunda svefni í
nótt? Komdu í Betra Bak, leyfðu
okkur að hjálpa þér að finna
réttu dýnuna og njóttu þess að
vakna tilbúin/n í daginn.
n Vissir þú að svefn getur haft
áhrif á þol þitt og úthald? Á
heilsudögum finnur þú dýnuna
sem hentar þér hvort sem þú vilt
hafa hana mjúka eða stífa.
VERÐDÆMI
Tilboð 186.600 kr.
TEMPUR ORIGINAL
OG TEMPUR CLOUD
90 x 200 cm með
Comfort botni og fótum.
Fullt verð: 233.250 AFSLÁTTUR
20%
HEILSUDAGAR!
Tilboð 254.976 kr.
160 x 200 cm með Comfort botni og fótum.
Fullt verð: 318.720
Cavallo heilsu-
dýnan er upp-
byggð til að veita
hámarksslökun
og hvíld í svefni.
Fimm svæða
pokagormakerfið er
stífara á mjaðmasvæði og
mýkra á axlasvæði. Cavallo er
gerð úr 100% náttúrulegum efnum
og inniheldur m.a. hrosshár í efsta yfirlagi.
Steyptir hliðarkantar dýnunnar gefa 25%
meira svefnsvæði.
SERTA CAVALLO
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566