Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1. J Ú N Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 128. tölublað 107. árgangur
MARGT Í
BOÐI Á HÁTÍÐ
HAFSINS
TAKA ÞÁTT Í
ÆVINTÝRI
BJARKAR
FLAUTUSEPTETTINN VIIBRA 43200MÍLUR 56 SÍÐUR
Uppsagnir
» Það eru ekki aðeins upp-
sagnir í flugheiminum um
þessar mundir.
» Ýmis fjármálafyrirtæki hafa
sagt starfsfólki upp að und-
anförnu.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Icelandair tilkynnti í gær að óhjá-
kvæmilegt væri að stöðva þjálfun 21
nýliða sem áttu að hefja störf sem
flugmenn á Boeing 737 MAX vélum
félagsins í sumar. Nýliðarnir voru
ekki komnir með ráðningarsamning,
að sögn Ásdísar Pétursdóttur, upp-
lýsingafulltrúa Icelandair. Þá ætlar
félagið að slíta ráðningarsamningum
við 24 flugmenn sem hófu þjálfun á
MAX vélarnar á liðnu hausti og
höfðu hafið störf áður en vélarnar
voru kyrrsettar. Ekki er gert ráð
fyrir MAX vélunum í flugáætlun fyrr
en um miðjan september.
Vitnað er í Boga Nils Bogason,
forstjóra Icelandair Group, í frétta-
tilkynningu og segir hann þungbært
að þurfa að grípa til þessarar sárs-
aukafullu aðgerðar. Icelandair ætlar
að aðstoða við atvinnuleit í samvinnu
við ráðningarstofu. Einhverjir flug-
mannanna eiga kost á að fara í önnur
störf hjá félaginu, t.d. sem flugliðar,
flugumsjónarmenn eða annað.
Hjá Icelandair starfar á sjötta
hundrað flugmanna, samkvæmt
upplýsingum frá félaginu.
Flugmenn að missa vinnu
Þjálfun 21 nýliða stöðvuð og 24 flugmönnum MAX véla Icelandair sagt upp
Ekki er gert ráð fyrir Boeing 737 MAX þotunum í áætlun fyrr en í september
MFleiri missa vinnuna… »6
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ráðherra Kristján Þór segir ís-
lenskan sjávarútveg sterkan.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Kristján Þór Júlíusson, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra, met-
ur stöðu íslensks sjávarútvegs
sterka um þessar mundir þrátt fyrir
harða alþjóðlega samkeppni sem
hann á við að etja. Bendir hann á að
það sé merkileg staðreynd að 350
þúsund manna þjóð standi að baki
sjávarútvegi sem veiði fisk úr sjó
sem sé undirstaða 20 milljón máltíða
á degi hverjum. Þetta kemur fram í
viðtali við Kristján Þór í 200 mílum,
sem fylgja Morgunblaðinu í dag í til-
efni sjómannadagsins á morgun. Í
viðtalinu bendir Kristján Þór á að
helstu ógnirnar sem komið geti upp
gagnvart atvinnugreininni séu átök
hér innanlands, m.a. þau sem lúta að
fiskveiðistjórnunarkerfinu og gjald-
töku af því. Hann telur þó að umræð-
an um fyrrnefnda atriðið sé komin í
betra jafnvægi en áður var. Þá segir
hann að umræðan um veiðigjöld eigi
eftir að taka út sama „þroska“ á
komandi árum og að það muni í kjöl-
farið tryggja meiri stöðugleika fyrir
greinina.
20 milljón máltíðir á dag
Staða sjávarútvegsins sterk í alþjóðlegum samanburði
Heiðagæsin sem þarna liggur á eggjum sínum er
nýlegur landnemi í Héðinsfirði, yst á Trölla-
skaga. Á þessum sama bletti hefur hún verpt síð-
astliðin þrjú sumur og komið upp ungum. Er
þetta talinn vera nyrsti þekkti varpstaður henn-
ar á Íslandi. Siglfirðingurinn Rögnvaldur Gott-
skálksson hefur fylgst með þessari heiðagæs frá
upphafi, 2017, og heimsækir hana nær daglega
og hefur tekist að ávinna sér traust hennar
smám saman svo að nú getur hann verið innan
við einn metra frá henni án þess að hún láti það
trufla sig.
Skeggrætt við hreiðrið
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
„Við erum að
leggja enn meiri
áherslu á er-
lendu starfsem-
ina, bæði með því
að efla það sem
við höfum verið
að gera og skipu-
leggja í hvaða
formi hún eigi að
vera í framtíð-
inni. Talið var mikilvægt að for-
stjóri fyrirtækisins leiddi sjálfur þá
vinnu,“ segir Ari Edwald, forstjóri
Mjólkursamsölunnar.
Ari hefur tekið við stjórn dótt-
urfyrirtækisins Ísey útflutningur.
Pálmi Vilhjálmsson hefur verið ráð-
inn aðstoðarforstjóri og mun stýra
innlendri starfsemi MS. »4
Ari tekur sjálfur við
útrásinni hjá MS
Ari Edwald
Tvöföld útskrift var frá Mennta-
skólanum í Reykjavík í gær. Annars
vegar var um að ræða síðasta ár-
ganginn sem lauk námi við skólann
á fjórum árum og hins vegar fyrsta
árganginn sem lauk námi á þremur
árum. Samkvæmt upplýsingum frá
Elísabetu Siemsen, rektor skólans,
útskrifuðust alls 379 nemendur í
gær, 170 úr fjögurra ára námi en
209 úr þriggja ára náminu. Aldrei
hafa jafnmargir útskrifast frá MR á
einu ári, gamla metið var frá 1972
þegar 301 útskrifaðist.
Árangur nemenda var fram-
úrskarandi að sögn rektors og alls
fengu 42 ágætiseinkunn. Sædís
Karolina Þóroddsdóttir dúxaði í
hópi þeirra sem kláruðu á þremur
árum. Meðaleinkunn hennar var
9,84 sem er með hæstu einkunnum í
sögu MR.
Páll Bergþórsson, fyrrum veð-
urstofustjóri, var viðstaddur út-
skriftina sem fulltrúi stúdenta sem
útskrifuðust fyrir 75 árum. Eftir
brautskráningu sína að morgni 17.
júní 1944 hélt hann til Þingvalla og
fylgdist með hátíðarhöldum þegar
íslenska lýðveldið var stofnað. »4
Aldrei jafnmargir
útskrifaðir frá MR
Yfir 19 þúsund erlendir eldri
borgarar sóttu listasöfn Reykjavík-
urborgar í fyrra. Hefur þessum
eldri gestum fjölgað jafnt og þétt
síðustu ár í takt við fjölgun er-
lendra ferðamanna. Erlendir eldri
borgarar sem sóttu söfnin voru um
650 árið 2013. Á sama tíma hefur
fjöldi íslenskra eldri borgara sem
sækja listasöfn Reykjavíkurborgar
staðið í stað.
Ókeypis er inn á söfnin fyrir 67
ára og eldri og söfnin urðu þannig
af yfir 31,5 milljónum króna í
tekjum af erlendum eldri borgurum
árið 2018. Menningar- og ferða-
málasvið borgarinnar skoðar nú
hvernig hægt sé að breikka þann
hóp sem greiðir einskiptisaðgang
að söfnum borgarinnar. »10
Morgunblaðið/Hari
Kjarvalsstaðir Skoðað hvernig fjölga
megi þeim sem greiða aðgang að söfnum.
Söfnin urðu af 31,5
milljónum í tekjur