Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 4

Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra segir að ríkisstjórnin áformi að halda sumarfund sinn úti á landi, í Mývatnssveit að þessu sinni, en í fyrra hélt ríkisstjórnin fund á Snæ- fellsnesi. Haft hefur verið samband við sveitarfélögin á Norðausturlandi vegna áforma ríkisstjórnarinnar um að koma saman til fundar í Mývatns- sveit 13. júní nk. Jafnframt hefur ríkisstjórnin óskað eftir því að eiga fund með fulltrúum sveitarfélaga innan Eyþings, sem er landshluta- samtök sveitarfélaga á Norðaust- urlandi. Ekki bjartsýn á dagsetninguna „Við gerðum þetta í fyrra og þá vorum við með sumarfund rík- isstjórnarinnar á Snæfellsnesi og funduðum með sveitarstjórnarfólk- inu á Snæfellsnesi. Þetta er óskap- lega gott að komast aðeins út fyrir 101, eins ágætur hann nú annars er,“ sagði forsætisráðherra. Katrín var spurð hvort hún teldi að dagsetning fundarins þann 13. júní myndi standast í ljósi þeirra tafa sem orðið hafa á þingstörfunum á Alþingi: „Nei, ég er ekki bjartsýn á að þetta gangi eftir hjá okkur í ljósi stöðunnar á þinginu, þar sem enn lít- ur út fyrir að við verðum með það að störfum um nokkurt skeið,“ sagði forsætisráðherra. Forsætisráðherra segir að náist ekki að halda fundinn þann 13. verði honum frestað. Komast út fyrir 101  Ríkisstjórnin áformar að halda fund við Mývatn Morgunblaðið/Árni Sæberg Stjórnin Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur áformar að halda sumarfund fjarri 101 Reykjavík með sveitarstjórnarmönnum í Eyþingi í sumar. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Páll Bergþórsson, fyrrverandi veðurstofustjóri, var viðstaddur, þegar íslenska lýðveldið var stofn- að á Þingvöllum 17. júní 1944. Hann braut- skráðist sem stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík um morguninn og síðan héldu ný- útskrifaðir nem- endurnir austur til þess að fylgj- ast með hátíð- arhöldunum. Brautskráning stúdenta í Menntaskólanum í Reykjavík var tvískipt í Háskólabíói í gær. Páll var fulltrúi nemenda sem útskrif- uðust fyrir 75 árum og rifjaði upp daginn við brautskráningu síðustu nemenda í fjögurra ára námi, en eftir hádegið var fyrsta útskrift nemenda að loknu þriggja ára námi. „Við vorum 65 sem útskrif- uðumst á Sal um morguninn,“ seg- ir Páll, sem verður 96 ára í sumar. Hann segir eftirminnilegt að hafa fylgst með æðstu mönnum þjóð- arinnar við þinghaldið á Þingvöll- um. „Þá var Sveinn Björnsson kosinn forseti, þó ekki einróma, því Jónas frá Hriflu fékk eitt at- kvæði. Það var góð tilbreyting frá hátíðleikanum.“ Hann minnist líka skeytis frá Kristjáni kóngi. „Hann óskaði þjóðinni til hamingju, þó hann hafi mátt vera reiður. Manni fannst þingfundurinn merkilegur og það var mikil breyting á yfirborðinu að breyta úr konungsstjórn í lýð- veldi, þó hún hafi ekki breytt miklu um stjórn landsins.“ Páll var aðeins eitt ár í MR. „Ég las fyrstu þrjá bekkina utan- skóla á tveimur vetrum,“ segir hann. Í tilefni 95 ára afmælis síns fór hann í fallhlífarstökk síðsum- ars í fyrra og tekur ekki fyrir að hann eigi eftir að endurtaka leik- inn. „Það gekk ljómandi vel og kannski fer ég aftur þegar ég verð 100 ára.“ Tilbreyting frá hátíð- leikanum  Páll Bergþórsson stúdent fyrir 75 árum Páll Bergþórsson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ari Edwald, forstjóri Mjólkursamsölunnar, hefur tekið við stjórn dótturfyrirtækisins Ísey útflutn- ingur og Jón Axel Pétursson, framkvæmdastjóri þess, látið af störfum. Þá hefur Pálmi Vilhjálms- son, framkvæmdastjóri framleiðslu- og rekstrar- sviðs MS, verið ráðinn aðstoðarforstjóri og mun stýra innlendri starfsemi MS. „Við erum að leggja enn meiri áherslu á erlendu starfsemina, bæði með því að efla það sem við höf- um verið að gera og skipuleggja í hvaða formi hún eigi að vera í framtíðinni. Talið var mikilvægt að forstjóri fyrirtækisins leiddi sjálfur þá vinnu,“ seg- ir Ari. Hann bætir því við að nýtt starf aðstoðarfor- stjóra sem heyrir undir forstjóra en sett er yfir innlendu starfsemina feli í sér breytta verkaskipt- ingu við stjórnun fyrirtækisins þannig að forstjór- inn geti fremur beint sjónum sínum að erlendu starfseminni. Erlenda starfsemin gengið vel Jón Axel Pétursson segir í tilkynningu að þegar hann tók við útflutningsstarfsemi MS árið 2010 hafi skyr verið selt til tveggja landa og veltan verið takmörkuð. „Þegar ég skil við, sáttur eftir mjög skemmtileg og öflug uppbyggingarár, hleypur sal- an á þúsundum tonna og velta okkar og samstarfs- aðila okkar á tugum milljarða,“ segir í tilkynning- unni og því bætt við að Ísey skyr sé nú selt á 16 mörkuðum og brátt muni Japan, Nýja-Sjáland og Ástralía bætast við. Hann þakkar þennan árangur ekki síst öflugu og góðu samstarfsfólki og réttum samstarfsaðilum erlendis. Ari segir að starfsemin á erlendum mörkuðum hafi gengið mjög vel. „Sá árangur sem hefur náðst kallar á að nú verði staldrað við og staðan metin og síðan sótt fram,“ segir Ari. Jón Axel hefur unnið í 20 ár fyrir fyrirtæki í eigu íslenskra kúabænda. Áður en hann snéri sér alfar- ið að útflutningi á skyri sem framkvæmdastjóri Ís- eyjar útflutnings um mitt síðasta ár var hann framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs MS. Forstjórinn í skyrútrás  Aðstoðarforstjóri ráðinn hjá MS  Jón Axel hættir sem framkvæmdastjóri Íseyjar Ísey Íslenska skyrið er vinsælt víða um heim. Börnin úr 1. og 2. bekk á frístundaheimilum Tjarnarinnar tóku þátt í kassabílaralli á Ingólfstorgi í gær. Þátttakendur gengu fylktu liði frá Skólavörðuholti niður í bæ og þar tók við spennandi keppni þar sem ekkert var gefið eftir. Jón Jónsson skemmti svo viðstöddum með söng. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ekkert gefið eftir í kassabílarallinu Íslenska ríkið þarf að greiða lífeyr- isþegum um fimm milljarða króna eftir að Sigríður Sæland Jónsdóttir vann mál gegn Tryggingastofnun rík- isins í Landsrétti í gær. Sigríður hafði tapað málinu í héraðsdómi en Lands- réttur sneri því við. Málið var eins konar prófmál, þannig að dómurinn í máli Sigríðar hefur fordæmisgildi fyrir alla þá sem þoldu sama frádrátt. Og allir fá endurgreitt. Málið snýst um frádrátt sem TR hafði gert á kjörum ellilífeyrisþega í janúar og febrúar árið 2017. Lífeyr- isgreiðslur þeirra voru þar lækkaðar vegna tekna sem lífeyrisþegarnir höfðu haft á sama tíma frá lífeyris- sjóðum. Á meðan TR stundaði þetta var ekki heimild fyrir því í lögum en í lok febrúar 2017 setti Alþingi lög sem áttu að vera eins konar afturvirk heimild fyrir því sem TR hafði verið að gera. Þannig að í raun var heim- ildin sköpuð eftir á, með afturvirkri lagabreytingu. Rökstuðningur Al- þingis fyrir því að afturvirk laga- breyting hafi verið gerð var sú að í upphafli hafi það verið mistök, að TR hafi yfirhöfuð verið óheimilt að stunda þennan frádrátt. Landsréttur hefur metið það svo, að fyrir þau mis- tök hafi lífeyrisþegar ekki átt að líða. „Ég held að þjóðin geti fagnað því þegar dómstólar dæma eftir stjórn- skipulegum reglum og mannréttind- um, að ekki sé verið að beita fólk laga- ákvæðum öðrum en þeim sem búið er að birta og setja í lög,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Sig- ríðar Sæland Jónsdóttur, í samtali við mbl.is. „Þarna var talið að orðið hefðu mis- tök við lagasetningu og að það rétt- lætti þá afturvirku lögin. Bækur rétt- arríkisins leyfa það ekki að mínu mati og Landsréttur hefur staðfest það,“ segir Jón Steinar. Ríkið þarf að greiða 5 milljarða  Landsréttur sneri við dómi héraðsdóms

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.