Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 14

Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 VIÐTAL Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Eldhúsdagsumræðurnar á Alþingi á miðvikudagskvöldið fóru fram með hefðbundnum hætti. Þær voru reyndar óvenjulegar að einu leyti. Þetta voru nefnilega síðustu eld- húsdagsumræðurnar þar sem Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Al- þingis, situr í þingsalnum. Forsetar þingsins koma og fara en eitt hefur verið óbreytt síðustu rúm- lega 40 þingin. Helgi hefur setið í sínu sæti, forsetanum á hægri hönd. Þar hafa áhugamenn um stjórnmál fylgst með honum í sjónvarps- útsendingum. Helgi verður sjötugur í haust og lætur þá af störfum sem æðsti embættismaðurinn á Alþingi Íslendinga. Hvað bærðist í brjósti þér? „Ekkert sérstakt, en ég gerði mér grein fyrir því að þetta var síðasti eldhúsdagur minn í þinghúsinu og hugleiddi það þegar ég leit yfir sal- inn.“ En hvenær hófst þú störf á Al- þingi? „Ég fór í fullt starf á 106. löggjaf- arþingi, 1983. Nú er 149. þing. Þannig að þetta er 43. löggjaf- arþing mitt. En áður hafði ég verið í ýmsum hlutastörfum á Alþingi með háskólanámi 1973-1978. Eldhúsdag- ur hefur verið á flestum löggjaf- arþingum, nema kannski helst auka- þingum, stuttum sumarþingum eftir kosningar, sennilega ein sjö slík þing, þannig að þeir eru komnir á 4. tuginn eldhúsdagarnir síðan ég byrj- aði að sinna þeim og undirbúa.“ Hefur þú setið þá fleiri þing en Pétur Ottesen? „Nei, hann sat tæp 43 ár samfellt á þingi, ég held 51 löggjafarþing, en ég hef verið hér samfellt 36 ár og 5 ár í hlutastarfi áður; samtals 41 ár.“ Hver er eftirminnilegasti eldhús- dagurinn? „Ég á engan sérstakan, nema þá helst þann fyrsta; maður var dálítið taugaóstyrkur. En annars er þetta form eldhúsdagsins orðið mjög fast og hefðbundið, jafnvel staðnað, og ég held það sé þörf á því að endur- skoða formið, gera umræður líflegri fyrir sjónvarpsáhorfendur. Flestir koma með skrifaðar ræður, og vilja þannig vanda sig, en það hefur verið skemmtilegast þegar ræðumenn tala blaðalaust, og það hafa nokkrir gert, t.d. Steingrímur J. Sigfússon, Bjarni Benediktsson og nú síðast Inga Sæland, svo ég telji nokkra sem sitja núna á þingi.“ Hvenær hófust eldhúsdags- umræður? „Þetta er eldgamalt form, var upphaflega tengt fjárlagaumræðu en þetta fyrirkomulag, að hafa al- mennar stjórnmálaumræður eins og það heitir í þingsköpum, að vori þeg- ar þingi er að ljúka er talsvert yngra. Mig minnir að það hafi komið í þingsköp 1972, en orðin venja nokkru áður, jafnvel upp úr 1950.“ Hvenær var byrjað að sjónvarpa beint frá Alþingi? „Beinar daglegar útsendingar í sjónvarpi hófust við upphaf þings 1995. Streymi á vef Alþingis hófst við upphaf þings 1998. Alþingi var meðal fyrstu þinga í heiminum sem hóf útsendingar á vef af öllum þing- fundum.“ Hvað tekur við hjá Helga Bernód- ussyni í haust? „Ég ætla að snúa mér að mínum hugðarefnum sem er lestur og skriftir; ég á margt gott ólesið og mig langar að skrifar greinar um ýmis efni sem ég hef safnað til á und- anförnum árum, bæði það sem snertir mig persónulega og það sem hefur víðari skírskotun. Og svo á ég fjölskyldu sem stundum hefur ekki séð mikið af mér í mestum önnunum, þar á meðal barnabörn; þeim vil ég sinna betur og meira þegar um hæg- ist hjá mér.“ Ljósmynd/Kristján Sveinsson Eldhúsdagur Helgi Bernódusson í sæti sínu á miðvikudagskvöld, við hlið Steingríms J. Sigfússonar þingforseta. Í ræðustól er Haraldur Benediktsson, þingmaður Norðvesturkjördæmis. Ráðherrar og þingmenn hlýða á ræðuna. „Skemmtilegast þegar menn tala blaðalaust“  Helgi Bernódusson var viðstaddur eldhúsdagsumræður á Alþingi í síðasta skipti  Verið við umræður á 40 þingum Morgunblaðið/Golli Alþingi Helgi Bernódusson skrif- stofustjóri við ræðustól þingsins. VINNINGASKRÁ 4. útdráttur 31. maí 2019 153 12033 21468 30435 43706 54414 62994 72333 680 12184 21871 30528 43839 54444 63417 72806 726 12272 22264 31066 43870 54543 63846 72999 776 12435 22731 31119 43978 54952 63896 73255 1031 12445 22881 31481 44427 55113 64352 73337 1093 13633 22952 31618 44464 56129 64526 73338 1407 14221 23016 32028 44972 56523 65076 73407 1643 14500 23386 32071 45081 57358 65155 74082 1650 14738 23414 32160 45114 57421 65199 74090 1737 14973 23633 32865 45269 57589 65372 74584 1831 15057 23944 32947 45675 58141 65819 74766 1888 15118 24220 33891 46246 58146 66234 74927 2082 15170 24415 33900 46644 58288 66303 75050 2142 15517 24606 34236 47001 58489 66362 75162 2723 15539 25453 34342 47285 58514 66530 75435 3300 15549 25754 35846 47323 58732 66539 75592 4416 15995 25771 35979 47455 59087 66879 75600 4526 16697 25934 36157 47672 59275 67098 76175 4657 16740 25970 36206 48093 59334 67111 76615 4677 16936 26231 38148 48139 59446 67188 76648 4682 17013 26634 38301 48440 59603 67377 76984 4693 17153 26785 38568 49031 59677 67907 77748 4716 17446 27152 38929 49931 59888 68095 77990 4792 17729 27179 39771 49967 60086 68144 78207 5629 18267 27588 39835 50111 60421 69103 78239 5795 18664 28165 39860 51234 60627 69177 78382 5981 18977 28582 40611 51249 60750 69423 78602 6548 19182 28647 40653 51406 60910 69865 79297 7291 19241 29213 40776 51466 61007 70001 79354 8269 19373 29299 41102 51540 61281 70042 79518 8728 19384 29383 41188 51865 61660 70146 79704 9005 19555 29510 41407 51972 61868 70460 9026 20613 29641 41656 52524 62217 70963 9292 20644 29794 42074 52783 62652 71428 10426 20753 29916 42212 53652 62716 71472 11852 21151 29918 42437 53790 62816 72072 11969 21280 30023 43171 53996 62967 72103 312 16392 27239 36497 47220 57388 64908 73678 445 17465 29525 39011 47470 58221 67498 73818 1333 17697 32077 39421 47638 58327 67957 74653 4503 19122 32150 39507 47812 58421 68946 75468 5950 19333 32215 40083 49085 59434 69507 75605 8277 19791 32445 40154 49511 60397 69573 77693 9209 21711 32619 40748 49564 60725 69893 78654 10454 22346 33534 43562 51242 61093 70248 78825 12227 24623 33736 43612 55221 61762 70752 79416 12733 25197 34703 44192 55360 62083 71541 13280 25431 34906 45018 55767 62748 71562 13778 26252 35517 46267 56719 62998 72527 14258 26285 36126 46460 56722 63489 73252 Næstu útdrættir fara fram 6., 13., 20. og 27. júní 2019 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 8229 24557 30210 46116 58374 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 387 12521 25157 30558 43251 60188 950 13134 25716 34766 43448 63463 3955 17018 27758 34846 46494 71846 11617 23133 28310 35012 58402 78557 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr.4.000.000 (tvöfaldur) 6 5 7 4 8 ,,Við verðum að vona að bætt fæð- ingarþjónusta og samgöngur skili okkur fleiri börnum,“ segir Drífa Gunnarsdóttir, fræðslufulltrúi Vest- mannaeyjabæjar. Hún segir að til standi að fækka deildum á leikskóla bæjarins úr fimm í fjórar í haust. Drífa segir að fækkun barna á leikskólaaldri hafi ekki verið fyr- irséð og fæðingum haldið áfram að fækka í fyrra og á þessu ári. Vegna færri barna en ráð var fyrir gert eru börn nú tekin 12 mánaða inn á leik- skóla í Vestmannaeyjum. Auk fækkunar deilda verður ráð- inn verkefnastjóri í stað aðstoð- arleikskólastjóra, þar sem engar umsóknir um stöðu aðstoðarleik- skólastjóra bárust að sögn Drífu. ge@mbl.is Vantar börn á leikskóla í Vestmannaeyjum Reykjavíkurborg hefur óskað eftir því að endurvinnslustöð á Sævar- höfða verði opin alla morgna. Áætlaður brúttókostnaður vegna þess er 30 milljónir króna. Áætlað er að árlegur kostnaðarauki, að frátal- inni tekjuaukningu verði rúmar fimmtán milljónir. Málið var tekið fyrir á stjórnar- fundi Sorpu í vikunni og því frestað. Birkir Jón Jónsson, stjórnarfor- maður Sorpu, segir að kostnaður og öryggisatriði standi í vegi fyrir því að beiðni Reykjavíkurborgar verði fram- fylgt strax en málið sé til skoðunar. „Ef við erum að lengja opnunartím- ann þá er fólk þarna að fara með sorp sem kemur frá heimilum innan um stór tæki sem eru að losa gáma og setja nýja upp. Við höfum því verið að hugsa um öryggi þeirra sem sækja stöðina, ungra sem aldinna, þar sem þetta eru stór athafnasvæði með stór- ar vélar sem þurfa að athafna sig.“ Birkir segir 30 milljóna króna kostnaðinn skýrast að stærstum hluta af lengri vöktum starfsfólks sem verði til aukinna launatengdra gjalda. Í minnisblaði Guðmundar Tryggva Ólafssonar, rekstrarstjóra endur- vinnslustöðva, segir að flutnings og ráðstöfunarkostnaður aukins magns úrgangs spili einnig inn í aukinn kostnað. ragnhildur@mbl.is 30 milljónir fyrir lengri opnun  Stjórnarformað- ur segir að huga þurfi að öryggi Morgunblaðið/Friðrik Tryggvason Vinsæl Stöð Sorpu á Sævarhöfða fær flestar heimsóknir árlega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.