Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 18
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Minnihlutinn í atvinnuveganefnd Al-
þingis leggur til ýmsar breytingar á
frumvarpi til laga um breytingar á
ýmsum ákvæðum um fiskeldi.
Samfylkingin, Píratar og Viðreisn
standa saman að álitinu en Miðflokk-
urinn hefur fylgt meirihlutanum.
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir,
þingmaður Samfylkingar, Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Við-
reisnar, og Jón Þór Ólafsson, þing-
maður Pírata, unnu álitið.
Rætt var við Lilju Rafneyju Magn-
úsdóttur, formann atvinnuveganefnd-
ar, í Morgunblaðinu í gær. Þar sagði
Lilja Rafney mikilvægt að skýra betur
hvar línan verður dregin varðandi
fram komnar umsóknir um rekstr-
arleyfi í fiskeldi. Þ.e.a.s. hvort þær
verði meðhöndlaðar á grunni gömlu
eða nýju laganna.
Miðað sé við dagsetningu
Spurð hvar minnihlutinn telji að
þessi skurðarpunktur eigi að vera seg-
ir Albertína þingmennina leggja til að
miðað sé við ákveðna dagsetningu
varðandi umsóknir um fiskeldi sem
hafa borist til Matvælastofnunar; að
umsóknirnar sem bárust eftir 5. mars
sl. séu meðhöndlaðar samkvæmt nýju
löggjöfinni. Þann dag var frumvarpið
lagt fram.
Albertína segir fyrirhugaðar breyt-
ingar á lögum um fiskeldi hafa verið
gagnrýndar úr öllum áttum „eins og
gefur að skilja þegar um er að ræða
breytingar á jafn viðkvæmri og mik-
ilvægri löggjöf“.
„Það má halda því til haga að um-
fjöllun í nefndinni hefur verið mjög ít-
arleg. Það hefur verið samstaða í
nefndinni um umfjöllun málsins. Við
teljum að það séu margar ágætar til-
lögur í áliti meirihlutans í nefndinni.
Við teljum hins vegar mikilvægt að
ganga lengra varðandi ýmis atriði til
að tryggja að á Íslandi verði fram-
sækin fiskeldislöggjöf sem tryggi
hagsmuni náttúrunnar en taki jafn-
framt tillit til nærsamfélagsins og at-
vinnugreinarinnar.“
Fjalli ekki um áhættumatið
Meðal tillagna meirihlutans er að
ráðherra skipi samráðsnefnd um fisk-
eldi til fjögurra ára í senn. Skal hún
vera stjórnvöldum til ráðgjafar vegna
málefna fiskeldis.
„Við teljum að það sé hið besta mál
að skipuð verði samráðsnefnd um fisk-
eldi. Þannig verður til samráðsvett-
vangur stjórnvalda og hagsmunaaðila
í greininni. Við teljum hins vegar að sú
nefnd eigi ekki að fjalla um áhættumat
erfðablöndunar, enda yrðu fæstir
nefndarmenn með vísindalegan bak-
grunn. Hins vegar fögnum við því að
þarna verði settur inn fulltrúi frá um-
hverfis- og auðlindaráðherra og vænt-
um þess að sá aðili verði fulltrúi
óháðra náttúruverndarsamtaka.“
Meðal breytingatillagna er að ráð-
herra sjávarútvegsmála skuli skipa
nefnd þriggja vísindamanna á sviði
fiskifræði, stofnerfðafræði og/eða vist-
fræði til að rýna aðferðafræði sem
Hafrannsóknastofnun notar við mat á
burðarþoli og við gerð áhættumats.
Skal hún skila áliti og tillögum til ráð-
herra fyrir 1. maí 2020.
Albertína segir minnihlutann jafn-
framt taka undir það sjónarmið að
gagnlegt sé fyrir Hafrannsóknastofn-
un að geta rætt áhættumatið við slíka
nefnd. „Hins vegar teljum við mik-
ilvægt að slík nefnd sé skipuð erlend-
um, óháðum aðilum.“
Meðal annarra atriða sem minni-
hlutinn leggur áherslu á er að innleiða
aukna hvata til sjókvíaeldis í lokuðum
kerfum. Þá leggur minnihlutinn m.a.
til að Jökulfirðirnir verði friðaðir frá
fiskeldi og að eftirlitsstofnunum verði
tryggðir nægir fjármunir og þær stað-
settar sem næst fiskeldisstöðum.
„Svo teljum við brýnt að móta þá
stefnu um fiskeldi á Íslandi að það
verði laust við laxalús og að notaðar
verða umhverfisvænar aðferðir til að
vinna á henni. Við þekkjum það til að
mynda frá Noregi,“ segir Albertína.
Spurð um þá gagnrýni að aðstoð-
armaður Kristjáns Þórs Júlíussonar,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, sé mágur fjármálastjóra Arctic
Fish, eins umsækjandans um fiskeld-
isleyfin, segir Albertína „alltaf óheppi-
legt þegar það eru svo náin tengsl“.
„Jafnvel þótt viðkomandi starfi af full-
um heilindum vekur slíkt alltaf efa-
semdir hjá fólki.“
Málsmeðferðin kemur á óvart
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pí-
rata, segir að í ljósi þess hvernig frum-
varpið komi frá ráðuneytinu komi það
sér á óvart að það skuli hafa fara í
gegnum ríkisstjórn með Vinstri
græna innanborðs.
„Ég spurði Guðmund Inga Guð-
brandsson umhverfisráðherra um
málið í óundirbúnum fyrirspurnum.
Það mátti skilja á svörum umhverf-
isráðherra að sjávarútvegsráðherra
Sjálfstæðisflokksins væri sjálfráður
um hvernig hann legði fram frum-
varpið sitt. Síðan kemur málið í nefnd-
ina og þar er búið að setja inn ýmsa
fyrirvara. Kolbeinn Proppé, þingmað-
ur VG, var framsögumaður í málinu
og hefur sett inn alls konar góð atriði
og fengið inn alls konar umhverf-
isverndarsjónarmið,“ segir Jón Þór
sem telur fyrirhugaðar mótvægis-
aðgerðir vegna fiskeldis þó ekki vera
nógu öflugar. Þá sé kostnaðarreglan
ekki uppfyllt; að sá sem setji umhverf-
ið í einhvers konar hættu beri kostn-
aðinn ef illa fari.
„Þá eru varúðarsjónarmiðin ekki
heldur virt. Þ.e.a.s. að náttúran skuli
njóta vafans,“ segir Jón Þór og bendir
m.a. á leiðir sem takmarka laxalús,
aðrar en lyfjagjöf.
„Það er verið að skapa svigrúm fyr-
ir fiskeldi sem uppfyllir ekki hæstu
gæðastaðla hvað varðar umhverf-
isvernd. Að umhverfið njóti vafans og
að þeir sem setja umhverfið í hættu
beri skaðann.“
Viðurkennt af meirihlutanum
Ólafur Ísleifsson, þingmaður Mið-
flokksins, segir það hafa verið viður-
kennt af hálfu meirihlutans „að ekki
hafi tekist sem skyldi að setja í full-
nægjandi búning ákvæði um meðferð
á fyrirliggjandi umsóknum“.
„Ég tel algert skilyrði fyrir því að
þetta mál geti náð fram að ganga að úr
því verði leyst með fullnægjandi hætti.
Því að auðvitað eru þarna mjög miklir
fjárhagslegir hagsmunir undir,“ segir
Ólafur. Hann segist hafa gengið ríkt á
eftir því að gengið yrði tryggilega frá
áhættumatinu.
„Þannig að áhættumatið mætti sem
best duga til þess að mynda raunhæfa
vörn gegn hættunni á erfðamengun
villtra laxastofna. Tillaga mín um að
samráðsvettvangur fiskeldismála yrði
skipaður fagfólki fékk ekki und-
irtektir. Á móti kemur að það er sett á
laggirnar tímabundin vísindanefnd
sem vænta má góðs af. Ég tel að það
ríki víðtækur skilningur á að standa
þarf vörð um vísindalegt sjálfstæði
Hafrannsóknastofnunar,“ segir Ólaf-
ur.
Skurðarpunkturinn fyrir leyfi til
fiskeldis verði 5. mars á þessu ári
Minnihlutinn í atvinnuveganefnd Alþingis leggur til ýmsar breytingar á fiskeldisfrumvarpi
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fiskeldi Áformað er að margfalda umsvif greinarinnar á næstu árum.
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14
Misty
Nokkrir litir í boði.
Stærðir S-XL.
Verð 7.850 kr.
Bralettar
úr ekta ítalskri
blúndu
Hrókurinn og Kalak, vinafélag Ís-
lands og Grænlands, standa fyrir
Nuuk-skákmótinu 2019 í Pakkhúsi
Hróksins í dag. Tefldar verða átta
umferðir með umhugsunartímanum
3/2. Þátttaka í mótinu er ókeypis.
Fram kemur í tilkynningu að til-
efnið sé Air Iceland Connect-hátíð
Hróksins, sem fram fer í Nuuk 5.-10.
júní. Samhliða verður bókamark-
aður, þar sem bækur úr fórum Þor-
steins frá Hamri og Hrafns Jökuls-
sonar verða til sölu, og rennur ágóði
til Grænlandsstarfs Hróksins.
Í Nuuk munu Hróksliðar efna til
skákviðburða, færa Rauða krossi
Grænlands og Krabbameinsfélagi
Grænlands gjafir, afhenda börnum í
fyrsta bekk hjálma frá Kiwanis-
hreyfingunni á Íslandi og heimsækja
athvörf, heimili og fangelsi. Yf-
irskrift hátíðarinnar 2019 eru kjör-
orð alþjóða skákhreyfingarinnar og
Hróksins: Við erum ein fjölskylda.
Slaufur Krabbameinsfélag Íslands og Hrókurinn afhentu nýlega Krabba-
meinsfélagi Grænlands 100 slaufur til að selja í fjáröflunarskyni.
Skákmót og bóka-
markaður Hróksins
Kristján Þór Júl-
íusson, sjáv-
arútvegs-
ráðherra segir
gagnrýni á fyr-
irhugaða laga-
setningu ósann-
gjarna. Verið sé
að betrumbæta
lagaumgjörðina
kringum fiskeldið. Þetta kemur
fram í viðtali við Kristján Þór í
200 mílum í dag. Þar bendir hann
á að fiskeldi muni þrefaldast að
framleiðslu í ár miðað við árið í
fyrra, og að það gerist í skjóli nú-
verandi löggjafar.
Löggjöfin
ÓSANNGJÖRN GAGNRÝNI
Kristján Þór
Júlíusson