Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 25
25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019
Kristinn Magnússon
Mælingar Veðrið hefur leikið við íbúa höfuðborgarsvæðisins síðustu daga og líf hefur verið í miðborg-
inni. Þessi hópur var við mælingar í Bankastræti í gær og vakti verðskuldaða athygli vegfarenda.
Núverandi ráðherrar
leggja mikla áherslu á að
Ísland innleiði 3. orku-
pakka Evrópusambands-
ins. Fáir hafa þó reynt að
benda á neinn kost við
orkupakkann fyrir Íslend-
inga. Áköfustu talsmenn
hans segja að hann skipti
engu máli. Brjóti hann
stjórnarskrána sé það í lagi
af því að stjórnarskrár-
brotin muni aðeins vera í
gildi, en „ekki virk“. Skoð-
anakannanir sýna að yf-
irgnæfandi meirihluti
þeirra sem afstöðu taka er
á móti því að orkupakkinn
verði innleiddur á Íslandi.
Það finnst orkupakkas-
innum vera fáfrótt fólk sem
er að hafa skoðanir á því
sem það veit ekkert um.
Ráðherrarnir hafa hins
vegar fengið álit „sérfræð-
inga“ og þá skiptir andstaða almennings
engu máli. Landsfundarsamþykktir og
miðstjórnarsamþykktir eigin flokka, gegn
orkupakkanum, eru að mati ráðherranna
byggðar á misskilningi svo ekki þarf að
fara eftir þeim.
Bergmálshellirinn
Síðastliðinn laugardag var orkupakka-
málið rætt í Ríkisútvarpinu í þættinum
Vikulokunum og gestir þáttarins voru að-
stoðarmaður fjármálaráðherra, þingmað-
ur Vinstri grænna og fyrrverandi aðstoð-
armaður formanns Viðreisnar.
Aðstoðarmaður fjármálaráðherra hafði
þennan skilning á úthaldi Miðflokksmanna
í baráttunni gegn innleiðingunni: „Svo er
kannski ekki alveg hægt að vanmeta berg-
málshellinn sem fólk býr í, vegna þess að
sá sem er í þessari stöðu hann er vænt-
anlega mest að tala við fólk sem finnst
þetta mjög gott hjá honum,
og þeir eru örugglega að fá
mikið klapp á bakið frá alls-
konar fólki sem, þú veist, er
mjög mikið á móti Evrópska
efnahagssvæðinu, er mjög
mikið á móti orkupakkanum,
er mjög mikið á móti kannski
ríkisstjórninni, og bara
svona lífinu yfir höfuð, og ég
geri ráð fyrir að það fólk setji
sig í samband við þá og hvetji
þá áfram …“
Á móti lífinu
Samkvæmt könnunum er
sáralítill stuðningur við
orkupakkann meðal al-
mennings. En ráðamenn,
sem eru búnir að tala við
sérfræðinga, trúa því að aðr-
ir séu í bergmálshelli. Við
Miðflokksmenn höfum feng-
ið mikinn stuðning við bar-
áttu okkar, ekki síst frá fólki
sem tilheyrir tveimur af
stjórnarflokkunum þremur.
Það fólk þraukaði þegar
ákveðið var að samþykkja Icesave, þegar
neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar var
lokað, og nú síðast þegar fóstureyðingar
voru undir klappi og blístri á þingpöllum
leyfðar fram að 23. viku meðgöngu, við at-
kvæðagreiðslu þar sem forsætisráðherra
sagðist vilja leyfa fóstureyðingar allt fram
að fæðingu. Nú horfir þetta fólk á kröfuna
um innleiðingu orkupakkans og veit að
næst ætla fulltrúar þess að opna fyrir inn-
flutning á ófrosnu kjöti og eggjum, þvert
gegn alvarlegum ráðleggingum lækna. Í
því máli verður nákvæmlega jafn lítið gert
með andstöðu eigin flokksmanna eða alls
almennings. Þetta fólk er byrjað að skilja
hvað mörgum ráðamönnum finnst um það
í raun og veru. Það er bara á móti rík-
isstjórninni og lífinu.
Á móti lífinu
Eftir Jón Þór
Þorvaldsson
Jón Þór Þorvaldsson
» Það fólk
þraukaði
þegar ákveðið
var að sam-
þykkja Icesave,
þegar neyð-
arbraut Reykja-
víkurflugvallar
var lokað.
Höfundur er varaþingmaður
Miðflokksins.
Fróðlegt var að
hlýða á eldhúsdags-
umræðu frá Alþingi sl.
miðvikudagskvöld,
bæði það sem sagt var
í knöppum ræðum eða
menn leiddu hjá sér að
minnast á. Meirihluti
ræðumanna vék að
loftslagsmálunum,
lýsti yfir áhyggjum og
hafði uppi heitstreng-
ingar um viðbrögð. Það er ekki
undrunarefni í ljósi þeirrar vakn-
ingar sem orðið hefur víða um lönd,
ekki síst meðal ungs fólks. Úrslit
kosninga til Evrópuþingsins um síð-
ustu helgi með tvöföldun á fylgi
Græningja í Þýskalandi er áminning
sem endurspeglar breytt pólitískt
landslag. Jafnframt rifjast það upp
að hátt í mannsaldur tók að koma
skýrum vísbendingum um hvert
stefndi á framfæri við ráðandi
stjórnmálamenn þannig að þeir
vöknuðu og viðurkenndu aðsteðj-
andi vanda. Sá er hins vegar marg-
þættur hvað varðar samskipti
mannkyns við umhverfið og kallar á
allsherjarendurskoðun á lífsháttum
og efnahagskerfi. Skipti yfir á vist-
væna orkugjafa eru brýn, en þeim
þarf að fylgja mikill samdráttur í
neyslu og skorður við hömlulausri
fjölgun íbúa jarðar.
Loftslagsváin enn
stórlega vanmetin?
Stöðugt bætast við upplýsingar
um rannsóknir vísindamanna og
stofnana á líklegum áhrifum lofts-
lagsbreytinga af mannavöldum á
umhverfið, þar á meðal á hækkun
sjávarborðs. Grein í bandaríska vís-
indatímaritinu PNAS
20. maí sl. um líkleg
áhrif af bráðnun jökla
á sjávarstöðu undir
lok 21. aldar hefur
vakið mikla athygli
(Jonathan L. Bamber
o.fl.: Ice sheet cont-
ributions to future
sea-level rise …).
Byggt á eigin rann-
sóknum telja höfund-
arnir að miðað við
tveggja gráðu hækkun
meðalhita að hámarki
í aldarlok, sem liggur að baki Par-
ísarsamkomulaginu frá 2015, geti
hækkun sjávarborðs orðið tvöfalt
meiri en þar er gert ráð fyrir og
numið allt að tveimur metrum.
Þeirra ráðlegging til skipulags-
yfirvalda er að miða við hækkun
sjávar yfir þeim mörkum árið 2100.
Árið 2200 gætu efri mörk sjávar-
stöðu, miðað við fimm gráðu hækk-
un meðalhita, numið +7,5 metrum!
Óvissan um þróun mála svo langt
fram í tímann er þó að sjálfsögðu
mikil, tengd áhrifum á jökla á
Grænlandi og á Suðurskautsland-
inu, sem og árangur af gagn-
aðgerðum. Hafa verður líka í huga
að sjálft Parísarsamkomulagið er á
engan hátt bindandi og Bandaríkin
hóta að draga sig út úr því. Áhrif
slíkra umhverfishamfara á sístækk-
andi borgarsamfélög yrðu gífurleg.
Sú spurning blasir við hér sem ann-
ars staðar við hvað er miðað í núver-
andi skipulagsákvörðunum.
Áhrifin af EES-aðild hérlendis
Í eldhúsi Alþingis höfðu talsmenn
flestra flokka uppi viðtekna þulu um
ágæti EES-samningsins og bæði
Samfylking og Viðreisn hafa aðild
að Evrópusambandinu nú sem fyrr
að meginmarkmiði. Það vill gleym-
ast þegar metin eru áhrif pólitískra
skuldbindinga til langs tíma, að þótt
allt virðist slétt og fellt að jafnaði
geta áhrifin reynst afar afdrifarík til
lengdar litið. EES-samningurinn fól
í sér víðtækt og einhliða valdafram-
sal til Evrópusambandsins, sem
margir töldu þá vera brot á
stjórnarskrá okkar og enn frekar nú
horft til baka. Schengen-sam-
komulagið fylgdi í kjölfarið um alda-
mótin og reglugerðir frá ESB áttu
stóran þátt í hrunadansinum og falli
íslensku bankanna haustið 2008.
Hindrunarlaus sala á jarðeignum í
heilum landshlutum til auðmanna á
EES-svæðinu, eins og nú hefur
gerst á Norðausturlandi og víðar, er
afsprengi þessa margprísaða samn-
ings, og nú síðast þriðji orkupakki
ESB sem skrifað hefur verið upp á í
blindni af meirihluta á Alþingi. Við-
komandi láta sér í léttu rúmi liggja
augljóst stjórnarskrárbrot og víð-
tækar afleiðingar á orkubúskap og
náttúruvernd hérlendis. Stjórnar-
þingmenn báru það ekki við að ræða
þennan gjörning við eldhúsborðið,
þótt fyrir liggi í skoðanakönnunum
að hann sé gerður í andstöðu við
vilja meirihluta landsmanna.
Glæpa- og fíkniefnavá
í skjóli Schengen
Aðild Íslands að Schengen-
samkomulagi ESB fyrir tveim ára-
tugum var mjög umdeild og margir
vöruðu við aukinni áhættu af glæpa-
starfsemi í skjóli af svonefndri
frjálsri för innan Schengen-
svæðisins. Ráðherrar Framsóknar-
flokksins á þeim tíma gengu hart
fram í að Ísland skrifaði upp á
Schengen. Nýkomin er út skýrsla
ríkislögreglustjóra (maí 2019) um
gífurlega áhættu af brotastarfsemi.
Þar segir m.a. orðrétt:
„Að mati greiningardeildar ríkis-
lögreglustjóra er skipulögð brota-
starfsemi á Íslandi hvað greini-
legust í innflutningi, framleiðslu,
sölu og dreifingu fíkniefna. Ljóst er
að þessi markaður veltir miklum
fjármunum og starfsemin er þaul-
skipulögð hjá sumum þeirra af-
brotahópa sem nærri koma. Fyrir-
liggjandi upplýsingar greiningar-
deildar ríkislögreglustjóra eru á
þann veg að skipulögðum hópum
hafi fjölgað á síðustu árum … Al-
mennt gildir að hópar samanstanda
ýmist af íslenskum eða erlendum
ríkisborgurum þótt vissulega þekk-
ist samstarf aðkomu- og heima-
manna. Tiltækar upplýsingar benda
til þess að umsvif erlendra glæpa-
hópa fari vaxandi á sviði fíkniefna-
viðskipta. … Geta íslensku lögregl-
unnar til að sporna gegn skipulagðri
glæpastarfsemi telst lítil. … Sam-
kvæmt framangreindu áhættumati
er ljóst að samfélagi og ein-
staklingum á Íslandi stafar mikil
ógn af starfsemi skipulagðra glæpa-
hópa.“
Í skýrslunni er ekki lagt mat á
þátt Schengen-samstarfsins í þess-
ari þróun, en augljóst er að það
skiptir verulegu máli á þessu sviði
sem og öðrum. Þetta eru margir að
gera sér ljóst nú, seint og um síðir,
m.a. forysta Framsóknarflokksins.
Um það vitnar samþykkt 34. þings
flokksins haustið 2016 þar sem seg-
ir:
„Í ljósi þeirra grundvallarbreyt-
inga sem orðið hafa á vettvangi
EES, meðal annars með útgöngu
Bretlands og í ljósi vandamála er
tengjast Schengen-samstarfinu, er
orðið tímabært að meta árangurinn
af þessum samningum og velta upp
valkostum.“
Látum ekki raddir
vorsins þagna
Margt leitar á hugann á björtum
vordögum, fögnuður yfir að sjá nátt-
úruna vakna af dvala, farfuglana
þyrpast yfir hafið og hefja sinn
söng, hvern með sínu nefi, og æsku-
fólk standa upp af skólabekk til að
ganga á vit ævintýra sumarsins. En
gleðin yfir vorkomunni er óneit-
anlega blendin, því að úr öllum átt-
um berast nú varnaðarorð um að-
steðjandi vá, studd af upplýsingum
um manngerða röskun á umhverfi
plánetunnar sem fá staðfestingu
nær daglega. Árið 1965 gaf Al-
menna bókafélagið út ritið Raddir
vorsins þagna (Silent Spring) eftir
Rachel Carson, bandaríska konu og
náttúrufræðing. Hún tileinkaði rit
sitt Albert Schweitzer sem sagði:
„Maðurinn hefur glatað hæfileik-
anum til að sjá fyrir afleiðingar
gerða sinna. Að lokum mun hann
tortíma jörðinni.“ – Það þarf mikið
að gerast til að aðvaranir Rachel
Carsons og ofangreind ummæli
Schweitzers verði ekki að áhríns-
orðum. Til þess þarf aðra og skarp-
ari sýn en einkenndi ræður flestra á
eldhúsdegi á Alþingi.
Loftslagsmálin, EES-aðild og orkupakkar frá
Brussel eru dæmi um hrapallega skammsýni
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Aðild Íslands að
Schengen-sam-
komulagi ESB fyrir
tveim áratugum var
mjög umdeild og margir
vöruðu við aukinni
áhættu af glæpastarf-
semi í skjóli hennar
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.