Morgunblaðið - 01.06.2019, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 01.06.2019, Qupperneq 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 Fallegar 3ja og 4ra herbergja íbúðir í nýbyggingu Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Sýningar- íbúðir tilbúnar Bókið skoðun Dalsbraut 4 - Reykjanesbæ VERÐ FRÁ KR. 29.900.000 Fyrir rúmum 70 árum síðan, eða þann 9. mars 1949, flutti Lyndon Baines John- son, þáverandi ný- græðingur í öld- ungadeild Banda- ríkjanna, jómfrúarræðu sína. Ræða þessi, sem fékk heitið Frjáls rök- ræða: Síðasta vörn skynseminnar, fjallaði um tillögu til nýrra ákvæða í þingskapalögum öldungadeild- arinnar sem myndu gefa auknum meirihluta þingsins möguleika á að takmarka ræðutíma þingmanna og vald til þess að binda enda á mál- þóf. Ræðan var 25 blaðsíður og tók það Lyndon hálfa aðra klukkustund að flytja hana. Ég hef fylgst með umræðunum um orkupakkann í þinginu. Það er fræðandi. Sérstaklega það sem ekki er sagt. Framsóknarflokkurinn í heild sinni forðast ræðustólinn sem heitan eldinn. Forysta Sjálfstæð- isflokksins hefur lítið tekið til máls. Formaður og varaformaður ekki neitt. Það er áhugavert. Það bendir til þess að sannfæringin sé ekki mikil í málinu. Fánaberar orku- pakkans á þingi koma úr röðum Viðreisnar, Samfylk- ingar og Pírata. Það er líka áhugavert. Grundvöllurinn fyrir allri umræðu um hag- fellda orkustefnu hlýt- ur að byggjast á því að það séu íslenskir stjórnmálamenn sem ákveði stefnuna. Síð- ustu orkupakkar frá Brussel gerðu hægt og rólega grundvall- arbreytingar á fyrri stefnu sem gekk út á að „afla al- menningi og atvinnuvegum landsins nægrar raforku á sem hagfelld- astan og ódýrastan hátt“. Nú virð- ist ríkjandi stefna að orkufram- leiðsla verði einhverslags tekjustofn fyrir eigendur raforkuvera. Hið op- inbera á vissulega flest raforkuver hérlendis en á móti kemur að hið opinbera fer illa með fé og þarf ekki meir. Sjóðasukk verður ekkert betra með fallegu forskeyti. Rík- issjóður er okkar almenni þjóð- arsjóður og ef menn kunna ekki að fara vel með ríkissjóð þá munu þeir ekki fara vel með sérstakan þjóð- arsjóð. Þessi nýja vegferð er hluti af markaðsvæðingu orkugeirans. Mönnum hefur oft orðið tíðrætt um rökræður í ræðustól þingsins og nú vilja sumir nýta ákvæði í þingskaparlögum til þess að stöðva umræður um orkupakkann. Vænt- anlega í þeirri von um að takmarka hinn pólitíska skaða sem flutnings- menn innleiðingarinnar bera sjálfir fulla ábyrgð á. Ofan á það virðist vera mikill vilji fyrir því að málið sé einna helst rætt þegar þjóðin sefur. Áhugasömum til mæðu og myrkraverk þótt sólin sé hætt að setjast. Það er kannski skiljanlegt að flutningsmenn innleiðingarinnar vilji ekki hafa orkupakkann hang- andi yfir sér lengi. Tíminn vinnur líklega ekki með þeim. Ekki hjálp- ar heldur málflutningur sem geng- ur út á að niðurlægja og uppnefna samflokksmenn sem einangr- unarsinna eða gamalmenni. Á milli þess er einhverjum öðrum kennt um innleiðinguna. Það er ekki alltaf gleðiefni að sjá pólitískar afleið- ingar af slíkum gjörðum. Hverjum hefði dottið það til hugar aðeins nokkrum vikum eftir hina ómann- úðlegu útreið, sem sex þingmenn Miðflokksins fengu í kjölfar þess að fjölmiðlar birtu leynilega og óheim- ila upptöku af einkasamtali þeirra, að Miðflokkurinn myndi mælast með 12% fylgi í skoðanakönnunum? Á sama tíma mælist Sjálfstæð- isflokkurinn með um 20% fylgi. Flokkur sem var með 50,4% með- alfylgi á árunum 1930-2006 hér í borginni. Þetta er þó að gerast. Menn geta ekki bæði kvartað yfir velgengni pólitískra andstæðinga á sama tíma og þeir afhenda þeim fylgisaukningu á silfurfati. Í slíku árferði gæti verið freist- andi fyrir stjórnmálamenn að binda enda á umræður í þinginu en slíkar hugmyndir þarf að hugsa til enda. Vald til að ljúka umræðum í þinginu á ekki að ræða með því upplagi að valdinu verði alltaf beitt hóflega. Meirihlutar eiga það til að breytast og því þarf að reikna með því að slíku valdi verði misbeitt. Fyrir utan það hefur þingið þegar sett sér mjög stífar reglur um ræðutíma, svo stífar að innihald þingræðna er farið að vera á pari við stöðuuppfærslu á félagslegum samskiptamiðli. Í sögulegu samhengi virðist nán- ast undantekningarlaust stað- reyndin sú að hið svonefnda málþóf gegnir mjög mikilvægu varn- arhlutverki sem felst í því að al- menningur er upplýstur um mik- ilvæg mál. Hið svonefnda málþóf hefur sjaldan stöðvað meiri- hlutavaldið. Ég man eftir því þegar frumvarp til nýrra vatnalaga var rætt á Al- þingi árið 2006. Þá var ég ungur námsmaður sem fór í friðsældina og dekrið hjá ömmu og afa til þess að klára heimanámið. Hjá ömmu og afa var Alþingisrásin allsráðandi. Ég vissi ekki af málinu fyrr en fréttir fóru að berast um málþóf í þinginu en þá kviknaði áhuginn. Eftir að hafa horft á þingfundi og hlustað á hvað þingmenn höfðu að segja um það mál fór ég að fá efa- semdir. Rök og ræður þingmanna höfðu áhrif á afstöðu mína til máls- ins. Sem kjósandi í lýðræðislegu samfélagi hafði ég svo vald til að haga mínu atkvæði í kjörklefanum. Rökræður eru mikilvægar í lýð- ræðissamfélögum. Rökræðan er lík- lega það sem mætti nefna burð- arstoð í samfélagi og samskiptum manna. Frelsi til rökræðu í ræðu- stól þingsins er lítil vörn almenn- ings gegn óhófi og misbeitingu meirihlutavalds. Eins og Lyndon okkar sagði í nefndri jómfrúarræðu þá á meirihlutinn að stjórna en hann á ekki að ríkja sem alvaldur. Meirihlutar gera stundum skyssur! Frjáls rökræða: Síðasta vörn skynseminnar Eftir Viðar Guðjohnsen » Fánaberar orku- pakkans á þingi koma úr röðum Við- reisnar, Samfylkingar og Pírata. Viðar Guðjohnsen Höfundur er lyfjafræðingur og sjálfstæðismaður. Í dag eru uppi skrítnir tímar í skóla- málum framhalds- skóla. Afleiðingar hinnar alræmdu stytt- ingar náms úr fjórum árum í þrjú eru að koma í ljós og sviðs- myndin er langt í frá fögur. Hér verður ekki farið út í afleiðingar styttingar fyrir nem- endur sem væri efni í aðra grein. Í stað þess ætla ég að ræða aðeins um þær fjöldauppsagnir framhalds- skólakennara sem nú eiga sér stað og valdbeitingu skólameistara und- ir yfirskini styttingarinnar. Skólameistarar hafa að undan- förnu nýtt sér tækifærið til að segja upp fjölda kennara í skjóli skipulagsbreytinga. Þessi þróun hefur m.a. leitt af sér tvennt: Ótta og samkeppni innan kennaraliðsins. Grímulaus barátta kennara fyrir stöðu sinni er orðin að ljótum leik, þar sem kennarar eru komnir í inn- byrðis samkeppni og hika jafnvel ekki við að níða skóinn hver af öðrum ef því er að skipta, m.a. með endalausu baktali, slúðri, niðurrifi og ein- elti, í baráttu sinni við að halda sínu á kostn- að hins. Sannast þar hið forna máltæki að enginn er annars bróðir í leik. Ein birtingarmynd þessarar samkeppni er vinsældakeppni kenn- ara. Sumir kennarar keppast um að vera vinsælir hjá nemendum á kostnað faglegrar kennslu og einkunna- mats. Þannig eru þeir líklegri til að skora hátt í kennslukönnunum nemenda, sem eru einmitt orðnar einn þáttur í mati skólastjórnenda á hæfi starfsmanna eins og ég vík að síðar. Áður fyrr þurfti mikið til svo hægt væri að segja ríkisstarfs- manni upp stöðu sinni og starfs- maður sem var æviráðinn hjá rík- inu gat verið nokkuð öruggur um sína stöðu. En nú er öldin önnur. Nú gilda ekki lengur hinar gömlu góðu regl- ur um menntun og starfsreynslu sem eru þeir áþreifanlegu þættir sem notaðir hafa verið til að meta hæfi starfsmanna. Í dag eru dæmi um skólameistara sem notast við einhverskonar skapalón til að meta starfsmenn út frá, þar sem hug- lægum og matskenndum þáttum, svo sem kennslukönnunum, sam- vinnu og viðmóti, hefur verið bætt inn í formúluna til að auðvelda skólameisturum að komast að þeirri niðurstöðu sem þeir hafa fyr- irfram gefið sér. Þessi nýja aðferð getur leitt til þess að ekki endilega hæfustu starfsmennirnir hljóti náð fyrir augum skólastjórnenda, held- ur frekar að hæfari einstaklingar séu látnir fara af persónulegum, hlutdrægum ástæðum skólastjórn- enda. Þessi geðþóttaákvörðun skóla- stjórnenda um uppsagnir er leið þeirra til að losa sig við ákveðna starfsmenn. Þá er þeim víst líka heimilt í dag að segja upp starfs- manni þótt hann sé í veikindaleyfi. Honum er jafnvel sagt upp af því að hann er í veikindaleyfi. Ekki er litið til þess hvort starfsmaður sé eina fyrirvinnan og hefur fyrir fjöl- skyldu að sjá eða ekki þegar ákvörðun um uppsögn er tekin. Í einum framhaldsskóla var sex mjög hæfum kennurum sagt upp um síðustu mánaðamót auk 15 lausráðinna starfsmanna sem fengu ekki áframhaldandi ráðningu. Svo háar tölur eru sláandi og hlýtur að flokkast undir hópuppsagnir, en ástæðan er sögð vera skipulags- breytingar. Þrír af þessum fast- ráðnu kennurum sem fengu upp- sögn áttu það sameiginlegt að hafa fyrr í vetur kvartað til mennta- málaráðuneytis og Vinnueftirlits ríkisins vegna starfshátta skóla- meistara og eineltis innan skólans. Tilviljun? Varla. Í stað þess að taka á samskiptavanda innan stofnunar- innar, sem sannarlega er til staðar skv. niðurstöðu ráðuneytis, þá ákveður skólastjóri að losa sig við „óþekku“ starfsmennina og telur að þar með sé vandinn leystur. Við þetta má bæta að hvorki menntamálaráðuneyti né Vinnueft- irlit ríkisins hafa tekið at- hugasemdir fimm kennara þessa tiltekna skóla til greina en þeir sendu allir greinargerð til ráðu- neytisins og sumir einnig til Vinnu- eftirlits ríkisins sl. haust með alvar- legum athugasemdum varðandi stjórnsýsluhætti og eineltisvanda innan stofnunarinnar eftir að nýr skólameistari tók þar við embætti. Lítum aðeins nánar á stöðuna. Framhaldsskólakennarar sem sagt er upp í dag vegna ofangreindra skipulagsbreytinga koma líklega að lokuðum dyrum alls staðar, þar sem svipað er uppi á teningnum í öllum framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu og um allt land, þ.e.a.s. að nánast engar stöð- ur eru auglýstar lausar til umsókn- ar í sumum greinum. Þannig að kennurum sem búnir eru að eyða allt að 10 árum í háskólanám til að öðlast réttindi sín sem kennarar er því nauðugur einn kostur að skipta um starfsvettvang sem getur verið ansi flókið fyrir kennara sem eru komnir á miðjan aldur. Hvað eiga hinir brottræku kennarar að gera þá? Það er augljóst að þessar upp- sagnir framhaldsskólakennara munu hafa víðtæk áhrif á sam- félagið í heild í náinni framtíð. Hvernig ætla stjórnvöld að bregð- ast við því? Ef stefna stjórnvalda er að laða fleira fólk til kennslu þá þarf þetta ótrygga starfsumhverfi kennarans að breytast. Um uppsagnir í kjölfar styttingar framhaldsskóla Eftir Sigríði Helgu Sverrisdóttur » Þrír fastráðnir kenn- arar sem fengu upp- sögn áttu það sameig- inlegt að hafa kvartað til menntamálaráðuneytis vegna starfshátta skóla- meistara og eineltis. Sigríður Helga Sverrisdóttir Höfundur er framhaldsskólakennari, M.A. í enskum og amerískum bók- menntum shsverrisdóttir@yahoo.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.