Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 31

Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda 551 1266 Skipulag útfarar Dánarbússkipti Kaupmálar Erfðaskrár Reiknivélar Minn hinsti vilji Fróðleikur Sjá nánar á www.utfor.is Vesturhlíð 9 Fossvogi | Sími 551 1266 | utfor.is Önnumst alla þætti útfararinnar með virðingu og umhyggju að leiðarljósi Reynslumikið fagfólk Elín Sigrún Jónsdóttir Framkvæmdastjóri Jón G. Bjarnason Útfararþjónusta Ellert Ingason Útfararþjónusta Helga Guðmundsdóttir Útfararþjónusta Lára Árnadóttir Útfararþjónusta Katla Þorsteinsdóttir Lögfræðiþjónusta Guðmundur Baldvinsson Útfararþjónusta Sigurður Bjarni Jónsson Útfararþjónusta Magnús Sævar Magnússon Útfararþjónusta Emilía Jónsdóttir Félagsráðgjafi Sigrún Óskarsdóttir Guðfræðingur Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta utfor.is Hann Dóri besti vinur okkar er dá- inn og hans er sárt saknað. Hann var alltaf svo léttur og skemmtileg- ur og tók sig ekkert of hátíð- lega, einstakt ljúfmenni í um- gengni og sannur vinur vina sinna. Fjölskyldur okkar eru mjög nánar og höfum við um áratuga- skeið deilt saman jólum, áramót- um og fleiri viðburðum. Þá fórum við saman í ótal ferðir innanlands; skoðunar-, skemmti-, veiðiferðir o.fl., sér- staklega þegar börnin voru lítil, en Dagný okkar og Ívar Hall- dórsson eru nánast eins og systkini, svo náin eru þau. Þá fórum við í seinni tíð saman í utanlandsferðir, sem eru með þeim eftirminnilegustu sem við höfum upplifað. Þá er ótalinn sameiginlegur griðastaður okkar sem er sumarbústaðurinn í Úthlíð, þar sem við áttum mjög margar góðar stundir saman, ekki síst meðan á byggingu hússins stóð og fleiri framkvæmdum sem til féllu gegnum árin. Dóri var þessi skemmtilegi Halldór Jón Sigurðsson ✝ Halldór JónSigurðsson fæddist 6. nóvem- ber 1947. Hann lést 17. maí 2019. Útför Halldórs fór fram 31. maí 2019. þrasari sem tók ekk- ert sem sjálfsagðan hlut nema vita af hverju. „Ég spyr bara af því að ég veit það ekki,“ var hann vanur að segja þegar hann vildi fá skýringu á hlutun- um. Þannig var það t.d. alltaf þegar við vorum saman í ein- hverjum framkvæmdum, en Dóri elskaði að smíða en var ekki smiður af guðs náð. Viljann hafði hann sannarlega til að gera sitt besta og ég virti það við hann að hann var alltaf tilbúinn til að taka leiðsögn og var mjög ánægður þegar honum var leiðbeint á rétta braut, hvort sem það var í ein- hverri hallamálsfræði eða verka- röð, sem um var að ræða. Að sjálfsögðu þurfti hann að vita af hverju og þegar hann hafði vegið og metið rökin var allt í lagi. Hann Dóri var alltaf hreinn og beinn og þannig kom hann til dyranna. Hann sagði það sem honum fannst umbúðalaust. Hann gat stundum talað aðeins of hátt þegar honum var mikð niðri fyrir. Þurfti Edda þá stundum að sussa á hann, en það var allt í góðu. Á góðum samverustundum var alltaf mikið hlegið og spunnust gjarnan skemmtilegar umræður um allt milli himins og jarðar. Ekkert var Dóra óviðkomandi og hafði hann mjög vítt áhuga- svið, en alltaf þurfti hann að sjálfsögðu að rökræða hlutina alveg í botn, þessara stunda verður sárt saknað. Dóri var alltaf mjög hjálp- samur, hvetjandi og alltaf tilbú- inn að aðstoða alla, eins og í hans valdi stóð. Hann var einnig mjög mikill fjölskyldumaður, sinnti sonum sínum af alúð í uppvexti þeirra, enda oft einn með þá þegar Edda var í burtu vegna vinnu sinnar sem flug- freyja. Hann hafði einnig mjög mikið yndi af barnabörnunum sínum fjórum og heimsótti þau oftast daglega eða eins oft og hann gat alveg fram undir það síðasta og voru þau öll mjög hænd að honum. Það er með miklum söknuði sem við kveðjum þann mikla sómamann hann Dóra okkar, sem kvaddur var frá okkur allt of snemma. Hann skilur eftir sig stórt skarð sem ekki verður fyllt, en minning hans lifir og er hér viðeigandi að vitna í Háva- mál: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Ívar Ásgeirsson og Þórunn Árnadóttir. Árið 1975 bættist Halldór í hóp öflugra ungra kennara við Fellaskóla í Reykjavík og tók strax fullan þátt í mótunarstarfi skólans. Flest árin var hann um- sjónarkennari, önnur ár stærð- fræðikennari og tók þá gjarnan að sér sérkennslu. Halldór var góður maður, dagfarsprúður og hógvær með hárfínan húmor. Samskipti hans við nemendur sína einkenndust af væntum- þykju á báða bóga. Það mátti glöggt finna þegar við hin síðari ár hittum nemendahópa sem heimsóttu gamla skólann sinn og heilsuðu upp á kennarana sína. Einn þessara nemenda hafði orð á því að Halldór hefði verið maðurinn sem breytti sýn hans á lífið og kom það engum á óvart. Halldór var bóngóður maður og eitt árið var hann beð- inn að taka að sér dönsku- kennslu sem var langt í frá að vera hans sérsvið. Þá kom í ljós hve agaður og skipulagður hann var enda hófst hann strax handa við að viða að sér efni og leitaði ráða jafnt innan sem utan skól- ans og skilaði síðan dönsku- kennslunni með glans. Á árunum í kringum 1980 varð mikil vakning meðal kenn- ara og skólamanna um breytta og bætta kennsluhætti, m.a. var horfið frá hefðbundnu fyrir- komulagi: einn kennari ein skólastofa. Halldór tók fullan þátt í þessum breytingum með okkur konunum sem störfuðu við hlið hans en þegar honum fannst við fara fram úr okkur lét hann það í ljós því ekki vildi hann flana að neinu heldur vera viss um að breytingarnar væru til góðs. Við tókum mark á honum og höfðum það oft á orði að við værum heppnar að hafa hann Dóra með okkur í liði. Halldór bar alla tíð hag nemenda sinna fyrir brjósti. Honum var vel ljóst að nemendur eru jafn mis- jafnir eins og þeir eru margir og gætti þess að námsefni væri fjölbreytt og við hæfi hvers og eins. Á öllum þessum árum munum við aðeins eftir einum degi þar sem Halldór mætti ekki til vinnu vegna veikinda. Hann var alla tíð einstaklega hraustur enda bjó hann að því að hafa stundað íþróttir á yngri árum. Í Fella- skóla skapaðist sú hefð að halda árlega golfmót sem gekk undir nafninu Fella Open. Þegar Halldór mætti til leiks í fyrsta skipti gekk hann fram af félögum sínum með því að mæta í gúmmístígvélum og fékk að heyra það lengi á eftir. Síðar fór hann í golfskóla og náði ágætum tökum á íþróttinni. Nýlega hittist stór hópur fólks sem starfað hefur við Fellaskóla á ýmsum tímum. Því miður hafði Halldór ekki tök á að mæta vegna veikinda sem nú hafa lagt hann að velli. Það er stundum sagt að skammt sé stórra högga á milli því ekki er ár frá því annar félagi úr þess- um hópi, Jón Mar, féll frá. Þeir Halldór og Jón voru miklir mát- ar sem báðir settu sitt mark á skólastarf í Fellaskóla og margir eru þeir nemendur sem nutu leiðsagnar þeirra. Við kveðjum góðan vin og fé- laga og þótt Halldór hafi ekki verið margmáll um hagi sína vissum við að hann var ákaflega stoltur af fjölskyldu sinni. Við sendum Eddu, sonum og fjöl- skyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Halldórs Jóns Sigurðssonar. Margrét Jónsdóttir, Kristín Böðvarsdóttir, Ólöf Ingimundardóttir, Ólöf Sigurðardóttir, Valgerður Eiríksdóttir. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einn- ig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systk- ini, maka og börn. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.