Morgunblaðið - 01.06.2019, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 01.06.2019, Qupperneq 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 Elsku amma Svana. Þegar við hugs- um til þín kemur upp í hugann skemmtileg, dugleg, hress og umfram allt yndislega ljúf amma sem alltaf var til í að gera eitt- hvað skemmtilegt. Ávallt þegar einhver þurfti á húsaskjóli að halda varstu fús að hjálpa. Ég var það heppinn að fá að búa hjá þér um tíma á meðan ég stundaði nám í háskólanum. Við áttum margar góðar stundir saman, áttum okkar uppáhalds- sjónvarpsþætti, elduðum góðan mat og töluðum um pólitík. Þegar við Eva vorum að kynn- ast pössuðum við húsið fyrir ykk- ur meðan þið Reginn fóruð í frí til Spánar. Þá var búið að fela súkkulaði og litlar gjafir undir sængunum okkar til að koma Svanhildur Árney Ásgeirsdóttir ✝ SvanhildurÁrney Ásgeirs- dóttir fæddist 24. nóvember 1937. Hún lést 27. maí 2019. Svanhildur var jarðsungin 31. maí 2019. okkur á óvart. Eitt sinn þegar við biðum eftir nýrri íbúð sem við vorum búin að kaupa feng- um við aftur að búa hjá þér í nokkra mánuði. Þessi tími er okkur afar dýrmæt- ur í dag því börnin fengu að kynnast þér svo vel. Þá áttum við frábær jól saman á Álfhólsveginum. Einnig minnumst við jólagjafanna sem hittu ætíð í mark. Þær voru ávallt margar, litlar og laglegar sem annaðhvort sungu eða dönsuðu og svo urðu flestir nokkrum úrum ríkari. Meðan við bjuggum hjá þér skelltir þú þér til Spánar að heim- sækja Ásu systur þína. Í þessari ferð keyptir þú þér eitt stykki hús sem varð þér líf og yndi næstu ár- in. Við fjölskyldan heimsóttum þig nokkrum sinnum í húsið og voru þessar heimsóknir til Spánar upp- spretta margra góðra minninga. Alltaf tókstu vel á móti okkur og ýmislegt var brallað á meðan á heimsókninni stóð. Haldin Euro- vision-partí og grillveislur, ferða- lög í dýragarða, slappað af á ver- öndinni og þú fórst í sundlaugina með krökkunum. Þú hafðir einstakan hæfileika til að segja skemmtilega frá og ná athygli fólks til að hlusta. Þú varst ósjaldan miðpunktur at- hyglinnar og við drukkum sam- an marga kaffibollana þar sem þú sagðir okkur skemmtilegar sögur af þér og samferðafólki þínu. Þessar sögur eru okkur í dag mikill fjársjóður. Við þökkum þér fyrir alla gestrisni þína, ást og umhyggju í okkar garð. Þú átt sérstakan stað í hjarta okkar og minning- arnar um þig munu lifa um aldur og ævi. Við munum hugsa til þín á himnum þar sem er bara sól og gleði og örugglega einn ískaldur svalandi drykkur í glasi. Steinar, Eva, Birta, Dagur og Laufey Thea. Elsku amma Svana mín, kvenskörungurinn, frum- kvöðullinn og hörkutólið, er fall- in frá. Hún kvaddi þennan heim á sinn eigin hátt, með sínu nefi, dansandi á balli. Hrókur alls fagnaðar. Amma Svana var ekki mikið fyrir kvart og kvein enda fékk hún að lifa tímana tvenna. En með þrautseigju sinni komst hún fremst í sinni grein, tölvugeiran- um, enda nýjungagjörn af guðs náð. Ást hennar á Mac-anum, nýj- ungum og tækniþróun var henni ávallt hugleikin og komst maður aldrei með tærnar þar sem hún hafði hælana í þeim efnum. „Elsku barn, Kolli keypti Ipod Touch fyrir mig í Bandaríkjun- um fyrir mörgum mánuðum, þetta er nú ekkert nýtt. Komdu ég skal kenna þér á hann.“ Það er alltaf gaman að segja sögur af ömmu, en líflegri kar- akter er vart hægt að finna. Eftir að amma keypti húsið á Spáni komu þáttaskil í jólagjöfum, „lítil gjöf en lagleg“ sagði hún alltaf þegar hún rétti manni pakkann. En alltaf voru gjafirnar frá henni þær skemmtilegustu undir trénu og oft þær furðulegustu, en háls- men sem prýddu hálsa okkar systra og mæðgna voru oft skrautleg, ekki endilega þægileg en sérstök. Ég kynntist ömmu Svönu aldr- ei sem mikilli hannyrðakonu, þótt hún væri húsmæðraskólagengin. Það var líklegast vegna þess að hæfileikar hennar og áhugi lágu á tæknilega sviðinu og endurspegl- aðist það þegar hún dundaði sér við að fjölrita og gefa út sögur, taka saman vísur, kvæði í hefti auk þess að skrifa sjálf. Búa til gimsteina fyrir okkur hin, okkur til að njóta. Kyrrðin hefur nú umlukið ömmu mína, konuna sem við barnabörnin og „barna-barna- barna-barnabörnin“ eins og hún sagði alltaf, getum stolt horft upp til, borið sögur hennar til fram- tíðarinnar, fyrirmynd okkar og hörkutól. Minning hennar mun lifa hjá okkur sem hlutum þau forréttindi að kynnast henni og fylgja um ókomna tíð. Sorgin og söknuðurinn er djúpstæður í hjörtum okkar sem eftir standa, en það er ást okkar á henni elsku ömmu Svönu líka. Við fylgjum henni í dag – í hinsta sinn. Ljúfi Drottinn lýstu mér svo lífsins veg ég finni. Láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Gísli á Uppsölum) Guðrún Birna Sigmarsdóttir. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna veikinda, andláts og útfarar heittelskaðs eiginmanns, föður, bróður og vinar, KOLBEINS EINARSSONAR frá Ísafirði. Íris Birgisdóttir Anna Kolbeinsdóttir Bergljót Halldórsdóttir Einar Garðar Hjaltason Kristín Sigurðardóttir Hagalín Hjalti Einarsson Vilborg Guðrún Sigurðardóttir Edda Katrín Einarsdóttir Helgi Karl Guðmundsson Viktor Máni Einarsson Hagalín Hrafnhildur Eva Einarsdóttir Hagalín og fjölskyldur Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ARNÓRS PÁLS KRISTJÁNSSONAR bónda á Eiði í Eyrarsveit, sem lést á Landspítalanum laugardaginn 11. maí og var jarðsunginn frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 25. maí. Auður Jónasdóttir Elísa Anna Friðjónsdóttir Hermann Jóhannesson Óskar Arnórsson Rannveig Þórisdóttir Sveinn Arnórsson Guðrún Lilja Arnórsdóttir Bjarni Sigurbjörnsson Kári Arnórsson Ólöf Ragnhildur Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Hjartanlegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og vinarþel við andlát og útför okkar ástkæru PETREU GUÐMUNDSDÓTTUR, Petu á Sigurðsstöðum, Akranesi. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki heimahjúkrunar og dvalarheimilisins Höfða fyrir góða umönnun og þá alúð sem Petu var sýnd. K. Guðmundur Skarphéðinsson, Ósk Axelsdóttir Alda B. Skarphéðinsdóttir Guðlaugur Sigurðsson Sigrún B. Skarphéðinsdóttir Ingi Þór Yngvason Hugrún P. Skarphéðinsdóttir Hörður Björgvinsson Skarphéðinn E. Skarphéðinsson, Áslaug I. Kristjánsdóttir Hulda B. Skarphéðinsdóttir Þorsteinn Finnbogason barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÚNAR JÓHANNESDÓTTUR, áður Byggðavegi 88, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks búsetusviðs Akureyrarbæjar og starfsfólks Furuhlíðar á Dvalarheimilinu Hlíð fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót. Guðrún Bjarnadóttir Björn Sigmundsson Jóhannes Bjarnason Þórey Edda Steinþórsdóttir Unnur Bjarnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar systur og frænku, RÖGNU MATTHÍASDÓTTUR, Öldugötu 52, Reykjavík, sem lést 4. maí. Sigríður Ólöf Matthíasdóttir Bjarni Jón Matthíasson Sigurjóna Matthíasdóttir og fjölskyldur Útför eiginmanns míns, föður okkar, afa og langafa, GUNNARS RAGNARSSONAR frá Lokinhömrum í Arnarfirði, fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 4. júní klukkan 15. Anna S. Skarphéðinsdóttir Helga Kristín Gunnarsdóttir Þorleifur Óskarsson Vilhjálmur Gunnarsson Liming Dai Margrét Gunnarsdóttir Gunnar Már Þorleifsson Birna Erlingsdóttir Óskar Helgi Þorleifsson Ari Þór Vilhjálmsson Harpa Sigríður Gunnarsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANN ÁGÚSTSSON, Kirkjusandi 3, Reykjavík, lést laugardaginn 25. maí. Útförin fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 6. júní klukkan 13. Ingunn Kristjánsdóttir Erla Jóhannsdóttir Sigurður Sveinsson Sigurður Jóhannsson Ágúst Jóhannsson Anna Hjaltadóttir og afabörn Ástkær eiginmaður minn, GUÐJÓN VALUR BJÖRNSSON, fyrrverandi kennari á Eskifirði, sem varð bráðkvaddur á heimili sínu 25. maí, verður jarðsunginn frá Eskifjarðarkirkju miðvikudaginn 5. júní klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Austfjarða. Auður Valdimarsdóttir Margrét Guðjónsdóttir Bjarni Gnýr Hjarðar Fjóla Guðjónsdóttir Þorsteinn Sigurðsson Eva Vala Guðjónsdóttir Bergur Þór Ingólfsson og barnabörn Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐLAUG HINRIKSDÓTTIR, Dvalarheimilinu Höfða, áður Höfðagrund 2, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju þriðjudaginn 4. júní klukkan 13. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Þeir sem vilja minnast hennar láti Dvalarheimilið Höfða njóta þess. Börn, tengdabörn og ömmubörn Sálm. 16.1-2 biblian.is Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.” Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.