Morgunblaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 39
ÍÞRÓTTIR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019
Góð
heyrn
glæðir samskipti
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru
sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum.
Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með
rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.
Síðasta mánudag var ég í
hópi 85 þúsund áhorfenda á
Wembley í London þar sem
Aston Villa og Derby mættust í
„verðmætasta leik heims“ í fót-
boltanum ár hvert. Leiknum um
sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Úrslitin voru ekki samkvæmt
mínum væntingum en Aston
Villa vann og þetta stóra félag er
vel að því komið að leika á ný í
deild þeirra bestu næsta vetur.
Birkir Bjarnason er meðal
leikmanna Aston Villa en undan-
farna mánuði hefur hann nær
ekkert fengið að spila. Hlutskipti
hans hefur verið að sitja á
bekknum eða vera utan hóps.
Ég fylgdist með Birki á Wem-
bley. Hann var með hópnum, sat
ásamt öðrum sem voru utan 18
manna hópsins rétt hjá vara-
mannabekknum, fór inná völlinn
í leikslok til að fagna samherj-
unum og allt það.
En það sást á þessum mikla
keppnismanni að hann var dauf-
ur í dálkinn yfir hlutskipti sínu.
Birkir missti sig ekki í fagn-
aðarlátum en gamli jaxlinn John
Terry, aðstoðarþjálfari Aston
Villa, fékk hann til að brosa og
fagna með sér þegar leikmenn-
irnir gengu upp tröppurnar á
Wembley og tóku við bikarnum
fyrir miðri stúkunni. Terry skynj-
aði greinilega hvernig okkar
manni leið.
Birkir er einn þeirra leik-
manna sem íslenskir og erlendir
fótboltaáhugamenn tengja hvað
mest við uppgang og árangur ís-
lenska landsliðsins á undan-
förnum árum, enda átt marga
flotta leiki í landsliðstreyjunni.
Nú er hann á leið til landsins
vegna leikjanna gegn Albaníu og
Tyrklandi og það er engin hætta
á öðru en Birkir nýti langþráð
tækifæri til að sýna allar sínar
bestu hliðar á Laugardalsvelli.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
EM 2020
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Reynsla er það sem síst skortir í hópi
karlalandsliðsins í fótbolta sem Erik
Hamrén tilkynnti í gær fyrir leikina
gegn Albaníu og Tyrklandi í und-
ankeppni Evrópumótsins.
Enginn þjálfari í sögu íslenska
landsliðsins hefur haft úr jafnstórum
hópi reyndra leikmanna að spila og
Hamrén. Af þeim 35 íslensku karl-
kyns knattspyrnumönnum sem hafa
spilað 50 A-landsleiki eða meira frá
upphafi eru ellefu í þeim 25 manna
hópi sem Svíinn kynnti í gær. Fimm
þeirra, Birkir Már Sævarsson, Ragn-
ar Sigurðsson, Aron Einar Gunn-
arsson, Birkir Bjarnason og Kári
Árnason, eru komnir í hóp þeirra níu
leikjahæstu frá upphafi.
Alfreð Finnbogason, sá eini sem
vantar í hópinn, er einn af áður-
nefndum 35, en hann er úr leik fram á
haust vegna meiðsla.
Kolbeinn, Emil og Jón Daði
Kolbeinn Sigþórsson er kominn í
hópinn á ný, Hamrén sagði að hann
væri orðinn leikfær á ný eftir meiðsli
sem hann varð fyrir hjá AIK eftir að
hafa spilað einn leik í byrjun maí.
Kolbeinn gæti spilað sinn 50. lands-
leik gegn Tyrkjum, komi hann við
sögu í báðum viðureignunum.
Emil Hallfreðsson er með á ný eft-
ir fjarveru síðan í október. Hann kom
inn í lið Udinese í lok tímabilsins á
Ítalíu og skoraði mikilvægt mark í
lokaumferðinni þar sem lið hans hélt
sér í A-deildinni.
Jón Daði Böðvarsson er sá þriðji
sem bætist við en hann hefur verið
frá keppni með landsliðinu síðan í
október. Hann lék síðast deildaleik
með Reading um miðjan febrúar en
spilaði leik með varaliðinu í lok apríl.
Jón Daði endaði sem næstmarka-
hæsti leikmaður Reading í vetur þótt
hann hefði aðeins spilað 20 leiki af 46.
Leikur Íslands og Albaníu fer fram
á laugardaginn kemur, 8. júní, og er á
óvenjulegum tíma, eða klukkan 13.
Tyrkland og Frakkland mætast í lyk-
illeik í riðlinum um kvöldið en Tyrkir
halda síðan til Íslands á sunnudaginn
og mæta íslenska liðinu á þriðjudags-
kvöldið 11. júní klukkan 18.45.
Tyrkir og Frakkar eru með sex
stig eftir fyrstu tvær umferðirnar en
Íslendingar og Albanar eru með þrjú
stig. Ljóst er að þessar fjórar þjóðir
slást um sætin tvö í lokakeppni EM
2020 og ef allt er „eðlilegt“ verður það
hlutskipti Íslendinga, Albana og
Tyrkja að bítast um hvert þeirra
fylgir Frökkum í lokakeppnina.
Í hópnum sem Hamrén valdi í gær
eru allir sem voru í hópnum gegn An-
dorra og Frakklandi í lok mars nema
Alfreð, og þeir Kolbeinn, Jón Daði og
Emil bætast við. Björn Bergmann
Sigurðarson er meiddur. Í heild er 25
manna hópurinn þannig skipaður:
Markverðir:
59 Hannes Þór Halldórsson, Val
15 Ögmundur Kristinsson, Larissa
5 Rúnar Alex Rúnarsson, Dijon
Varnarmenn:
90 Birkir Már Sævarsson, Val
86 Ragnar Sigurðsson, Rostov
75 Kári Árnason, Genclerbirligi
64 Ari Freyr Skúlason, Lokeren
27 Sverrir Ingi Ingason, PAOK
24 Hörður B. Magnússon, CSKA
15 Jón Guðni Fjóluson, Krasnodar
10 Hjörtur Hermannsson, Bröndby
Miðjumenn:
83 Aron Einar Gunnarsson, Cardiff
76 Birkir Bjarnason, Aston Villa
72 Jóhann B. Guðmundss., Burnley
67 Emil Hallfreðsson, Udinese
66 Gylfi Þór Sigurðsson, Everton
53 Rúrik Gíslason, Sandhausen
27 Arnór Ingvi Traustason, Malmö
21 Rúnar Már Sigurjónss., Grassh.
11 G. Victor Pálsson, Darmstadt
3 Arnór Sigurðsson, CSKA
Sóknarmenn:
48 Kolbeinn Sigþórsson, AIK
41 Jón Daði Böðvarsson, Reading
20 Viðar Örn Kjartanss., Hammarby
11 Albert Guðmundsson, AZ
Ítarlegt viðtal Sindra Sverrisson-
ar við Erik Hamrén um landsliðsvalið
er að finna á mbl.is/sport/fotbolti.
Reyndasta landslið sem
Ísland hefur teflt fram
Ellefu af 35 leikjahæstu í sögunni eru í hópnum gegn Albaníu og Tyrklandi
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sóknarmenn Kolbeinn Sigþórsson og Jón Daði Böðvarsson voru framherjapar íslenska landsliðsins í öllum leikj-
unum í lokakeppni EM í Frakklandi sumarið 2016. Þeir eru báðir í hópnum á ný eftir talsverða fjarveru.
„Það er vel skiljanlegt að margir
telji okkur vera með sigurstrang-
legasta liðið vegna þess að við höf-
um leikið afar vel í keppninni fram
til þessa og unnum meðal annars
okkar riðil á afar sannfærandi
hátt,“ sagði Aron Pálmarsson,
handknattleiksmaður hjá Barce-
lona, þegar Morgunblaðið hitti hann
í Köln í gær en í dag leikur hann til
undanúrslita í Meistaradeild Evr-
ópu í handknattleik gegn Vardar
frá Skopje.
Sigurliðið mætir Veszprém frá
Ungverjalandi eða Kielce frá Pól-
landi í úrslitaleik á morgun en tap-
liðin leika um bronsið.
Aron tekur nú þátt í úrslitahelgi
Meistaradeildarinnar í áttunda sinn.
Aðeins einn leikmaður hefur oftar
verið með en það Serbinn Momir Ilic
sem nú leikur með Veszprém. Tvisv-
ar hefur Aron verið í sigurliði Meist-
aradeildarinnar, 2010 og 2012 með
THW Kiel, og einnig í tvígang hlotið
silfurverðlaun, 2014 með Kiel og
tveimur árum síðar með Veszprém.
Viðtal við Aron í heild sinni er að
finna á mbl.is/sport/handbolti.
iben@mbl.is
Morgunblaðið/Ívar Benediktsson
Köln Aron Pálmarsson spjallar við fréttamenn fyrir úrslitahelgina.
Aron í áttunda sinn