Morgunblaðið - 01.06.2019, Qupperneq 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
DVERGARNIR
Þungar og öflugar undirstöður
DVERGARNIR R
HNERRIR
DURGURJÖTUNN
DRAUPNIR
ÞJARKUR
Þessir dvergar henta vel sem
undirstöður þar sem þung og
öflug festing er aðalatriði.
HANDBOLTI
Umspil HM kvenna
Fyrri leikir:
Hvíta-Rússland – Noregur ................. 21:34
Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg.
Tékkland – Svartfjallaland.................. 26:24
Serbía – Pólland.................................... 33:19
Spánn – Ísland ...................................... 35:26
Forkeppni EM kvenna
Finnland – Lúxemborg........................ 24:27
Ísrael – Grikkland ................................ 21:28
Úrslitakeppni NBA
Fyrsti úrslitaleikur:
Toronto – Golden State.................... 118:109
Staðan er 1:0 fyrir Toronto sem verður
einnig á heimavelli í öðrum leik liðanna
annað kvöld.
KÖRFUBOLTI
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Mustad-völlur: Grindavík – Víkingur R L14
Hásteinsvöllur: ÍBV – ÍA ....................... S16
Meistaravellir: KR – KA ........................ S16
Kópavogsvöllur: Breiðablik – FH ......... S17
Kórinn: HK – Fylkir .......................... S19.15
Samsung-völlur: Stjarnan – Valur ... S19.15
Mjólkurbikar kvenna, 16-liða úrslit:
Samsung-völlur: Stjarnan – Selfoss ..... L13
Kórinn: HK/Víkingur – Afturelding..... L14
Nettóvöllur: Keflavík – KR ................... L14
Würth-völlur: Fylkir – Breiðablik ........ L16
Fífan: Augnablik – Tindastóll ................ S14
1. deild karla, Inkasso-deildin:
Extra-völlur: Fjölnir – Njarðvík........... L14
Þórsvöllur: Þór – Þróttur R ................... S16
2. deild karla:
Norðfjarðarv.: Fjarðabyggð – Vestri ... L14
Samung-völlur: KFG – Tindastóll ........ L16
Nesfiskvöllur: Víðir – Völsungur........... S12
Fjarðab.höll: Leiknir F. – Þróttur V..... S14
3. deild karla:
Ólafsfjarðarvöllur: KF – Sindri............. L15
UM HELGINA!
Hjörtur Hermannsson lagði sitt af
mörkum til þess að tryggja liði
sínu, Bröndby, sæti í Evrópudeild-
inni í knattspyrnu á næstu leiktíð.
Varnarmaðurinn lagði þá upp eitt
mark í 4:2-sigri á Randers í úrslita-
leik um Evrópusæti, en Hjörtur lék
allan leikinn með Bröndby sem
hafnaði í fjórða sæti dönsku úrvals-
deildarinnar á tímabilinu.
Hjörtur komst í
Evrópudeildina
HM 2019
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Óhætt er að segja að stöðugleikinn
hafi ekki verið til staðar hjá íslenska
kvennalandsliðinu í handknattleik
þegar það mætti Spáni í fyrri leik
liðanna í umspili um laust sæti á
heimsmeistaramótinu sem fram fer
í Japan seint á þessu ári. Íslenska
liðið náði að bjarga níu marka tapi,
eins furðulega og það hljómar, 35:26
eftir að hafa verið 14 mörkum undir
í hálfleik 21:7. Ísland þarf að vinna
upp þennan mun í Laugardalshöll-
inni í síðari leiknum á fimmtudags-
kvöld ef það ætlar að eiga mögu-
leika á að komast á lokakeppni
stórmóts í fyrsta sinn í sjö ár. En þá
þarf líka allt að ganga upp.
Það er erfitt að tala um fyrri hálf-
leikinn án þess að lýsa honum sem
algjöru afhroði af hálfu íslenska
liðsins. Það gekk nákvæmlega ekk-
ert upp af því sem lagt var upp með
og spænska liðið hreinlega rúllaði
yfir íslenska liðið. Ísland hafði ætlað
að nýta sér hraða sinn sem eitt
helsta vopnið en það var spænska
liðið sem stjórnaði öllu spili á meðan
íslenska liðið var á hælunum, missti
boltann oft illa í sókninni sem skil-
aði hraðaupphlaupum í bakið. Varn-
arleikurinn var ekki til staðar og
sóknin var úti á þekju. Eins og hálf-
leikstölur gefa til kynna, 21:7, var
ráðaleysið algjört í íslenska liðinu.
Það er hins vegar best að spyrna
sér frá botninum og það gerði ís-
lenska liðið eftir hlé. Það hafði þá
orðið í sjálfu sér engu að tapa eftir
afhroðið í fyrri hálfleik og gat sýnt á
köflum hvað í það er spunnið. Sér-
staklega var munur að sjá til sókn-
arleiksins enda skoraði Ísland sjö
mörk á fyrstu tíu mínútunum eftir
hlé, sem var jafn mikið og allan
fyrri hálfleikinn, og 19 alls í síðari
hálfleik. Eins og svo oft áður var
Þórey Rósa Stefánsdóttir marka-
hæst og Steinunn Björnsdóttir
sýndi styrk sinn eftir hlé, en það var
ekki síður Rut Jónsdóttir sem reis
þá upp sem leiðtoginn sem vantaði
fyrr í leiknum, í sínu fyrsta lands-
liðsverkefni í langan tíma, og dró
liðið áfram.
„Það er ekkert ómögulegt“
„Við verðum að taka þennan
seinni hálfleik með okkur og taka
það jákvæða og á sama tíma fara yf-
ir það hvað gerðist í fyrri hálfleik.
Við verðum að eiga stórleik til að
eiga séns. Það er mikilvægt hjá okk-
ur að einbeita okkur að okkur sjálf-
um og vinna úr því sem var að fara
illa. Það er ekkert ómögulegt, það
hefur gerst að maður tapi svona
stórt úti en vinni heima. Auðvitað
verður þetta mjög erfitt, en við
treystum á að þær eigi ekki sinn
besta leik og að við eigum toppleik,“
sagði Rut við mbl.is eftir leikinn.
Nokkur bjartsýni ríkti fyrir leik-
inn um að möguleikinn væri ekki
svo fjarlægur að vinna spænska lið-
ið sem hefur oft verið sterkara, en
miðað við fyrri hálfleikinn á lands-
liðið lengra í land en margir töldu.
Þetta var fyrsti alvöru leikur lands-
liðsins í langan tíma og það virtist
vera sem langan tíma þyrfti til þess
að finna taktinn. Það er ekki hægt
þegar í umspilsleiki er komið, ef
menn vilja á stórmót á annað borð.
Vonin veik um sæti á HM
Kvennalandsliðið í handknattleik þarf að vinna upp níu marka mun í Höllinni
Morgunblaðið/Valli
Erfitt Steinunn Björnsdóttir þarf að berjast af krafti eins og allt landsliðið.
sigurliðið mun senda skýr skilaboð
fyrir toppbaráttuna sem er fram-
undan. Á sunnudag er einnig slagur
KR og KA í Vesturbænum, þar sem
norðanmenn geta blandað sér af
krafti í toppbaráttuna með sigri en
KR styrkt stöðu sína til muna.
Þá mætast HK og Fylkir í áhuga-
verðum slag, en aðeins einu stigi
munar á liðunum sem sitja rétt fyr-
ir ofan fall. Umferðin hefst hins
vegar í Grindavík í dag þegar
heimamenn taka á móti Víkingi R.
klukkan 14, en gestirnir leita enn
að sínum fyrsta sigri. yrkill@mbl.is
Það eru áhugaverðir leikir á dag-
skrá í Pepsi Max-deild karla í knatt-
spyrnu þar sem sjöunda umferð er
leikin í heilu lagi um helgina. Röðin
er nú komin að Eyjamönnum að
reyna að stöðva ósigraða Skaga-
menn í deildinni, sem reyndar töp-
uðu sínum fyrsta leik á tímabilinu
fyrir FH í bikarnum í vikunni. ÍBV
er hins vegar án sigurs en freistar
þess að byrja júnímánuð af krafti á
heimavelli.
Stjarnan fær Íslandsmeistara
Vals í heimsókn á sunnudagskvöld,
en óhætt er að segja að þar mætist
liðin sem hafa valdið einna mestum
vonbrigðum það sem af er miðað
við hverju var spáð fyrir tímabilið.
Valsmenn eru í þriðja neðsta sæti
með aðeins einn sigur í fyrstu sex
leikjunum og Stjörnumenn eru um
miðja deild með átta stig, átta stig-
um frá toppliði ÍA. Því má búast við
áhugaverðum slag þar sem barist
er um að komast loks á réttan kjöl.
Það er annar stórslagur á milli
Breiðabliks og FH á Kópavogsvelli
á sunnudagskvöld, en aðeins munar
tveimur stigum á liðunum. Blikar
eru með 13 stig en FH 11 og ljóst að
Misjafnt undir í stórleikjunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stórleikur Valur og Stjarnan mæt-
ast og vilja komast á réttan kjöl.
Antequera, umspil HM kvenna, fyrri
leikur, föstudag 31. maí 2019.
Gangur leiksins: 3:1, 6:1, 10:5, 13:5,
17:7, 21:7, 23:10, 26:14, 28:18, 30:21,
33:23, 35:26.
Mörk Spánar: Nerea Pena 12/6,
Maria Nunez 6, Soledad Lopez 5,
Alicia Fernandez 3, Almudena Ro-
dríguez 3, Mireya Gonzalez 2, Paula
Valdivia 2, Ainhoa Hernandez 1,
Jennifer Gutierrez 1.
Varin skot: Silvia Navarro 10, Darly
Zoqbi 2.
Utan vallar: 6 mínútur.
SPÁNN – ÍSLAND 35:26
Mörk Íslands: Þórey Rósa Stef-
ánsdóttir 6, Karen Knútsdóttir 4/1,
Steinunn Björnsdóttir 4, Sigríður
Hauksdóttir 3, Eva Björk Davíðs-
dóttir 2, Thea Imani Sturludóttir 2,
Helena Rut Örvarsdóttir 2, Arna Sif
Pálsdóttir 1, Andrea Jacobsen 1, Rut
Jónsdóttir 1.
Varin skot: Elín Jóna Þorsteinsdóttir
10, Hafdís Renötudóttir 2.
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Vanja Antic og Jelena Ja-
kovljevic, Serbíu.
Áhorfendur: 2.200.
Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR
komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna bandaríska
meistaramótinu í golfi. Eftir að hafa leikið fyrsta hring-
inn á fimmtudag á pari vallarins, 71 höggi, missti hún
dampinn á öðrum hring í gær. Hún lék þá á 76 höggum,
fimm höggum yfir pari, og fékk aðeins einn fugl á
hringnum.
Þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöld miðaðist
niðurskurðarlínan við tvö högg yfir pari og ljóst að
Ólafía myndi ekki komast áfram þó nokkrir kylfingar
ættu enn eftir að ljúka hringnum. Hún var þá jöfn fleiri
kylfingum í 85.-98. sæti, en miðað var við að efstu 60
kylfingarnir eða svo kæmust í gegnum niðurskurð af þeim 156 sem skráðir
voru til leiks.
Þetta var í sjöunda sinn sem Ólafía keppir á risamóti í golfi, en hún hefur
einu sinni komist í gegnum niðurskurðinn. Það var á Evian-meist-
aramótinu árið 2017. Ef hún hefði komist í gegnum niðurskurðinn og feng-
ið að spila seinni tvo hringina í Suður-Karólínu um helgina hefði hún feng-
ið verðlaunafé í mótinu. yrkill@mbl.is
Ólafía komst ekki áfram
Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir