Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019
VIÐTAL
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Það gengur mikið á baksviðs í menn-
ingarhúsinu The Shed í New York. Í
tveimur litlum herbergjum eru með-
limir Hamrahlíðarkórsins að fara í
þjóðbúninga, piltar öðrum megin,
stúlkur hinum megin, og herbergin
eru lítil svo þau þurfa að fara inn í
hollum. Enda eru kórfélagarnir
margir, þau eru 52 sem hafa und-
anfarinn mánuð tekið þátt í tónlist-
arveislu Bjarkar Guðmundsdóttur,
Cornucopia, í þessari splunkunýju
og umtöluðu byggingu.
Þegar ég heimsæki kórinn bak-
sviðs styttist í að tónleikarnir hefjist
og sumir söngvaranna sem ekki eru
að eiga við föt lesa í bók, einhverjir
tefla, aðrir spjalla. Stjórnandinn
Þorgerður Ingólfsdóttir stendur
frammi á ganginum og spjallar við
suma söngvara sinna; ein stúlkan
hafði tekið próf í læknisfræði í ræðis-
mannsskrifstofu Íslands um morg-
uninn og viðurkennir að hún sé
þreytt. Þorgerður bendir öðrum á
hvernig þeir geti hjálpast að við að
strauja hvítu fötin sem þau klæðast á
sviðinu með Björk. „Það er góð sam-
vinna milli allra hérna, mikil vinátta,
sem er mikilvæg,“ segir hún. Og
bætir við: „Ég hef stundum verið
spurð að því hvernig við höfum náð
svona fallegum tóni í kórnum. Ég hef
svarað að svona syngi vináttan.“
Og það var fallegt skömmu síðar
að sjá kórinn ganga í íslenskum þjóð-
búningum í salinn sem var fullur af
spenntum tónleikagestum, stilla sér
upp fyrir framan sviðið og byrja að
syngja. Fyrst hljómaði „Ísland, far-
sælda frón“ með trompetum og svo
meðal annars „Vísur Vatnsenda-
Rósu“, „Maríukvæði“ Atla Heimis
Sveinssonar og tvo lög eftir Björk,
„Sonnets“ og „Cosmogony“. Með
hverju lagi jókst hrifning gesta og
hápunkturinn var flutningur „Viki-
vaka“ Atla Heimis þar sem ung-
mennin örkuðu og hálfhlupu um sal-
inn syngjandi glaðlega og fallega og
hlutu mikið klapp fyrir. Síðan hófust
glæsilegir tónleikar Bjarkar, með
marglaga myndvörpun og frábærum
hljómburði; þar komu kórfélagar
víða við sögu í misstórum einingum
og stóðu sig einstaklega vel. Undir
lokin, þegar Björk kynnti samstarfs-
menn sína, hyllti hún kórinn og sér-
staklega Þorgerði; Björk sagðist
sjálf hafa verið í kórnum og að sú
reynsla hefði haft mikil áhrif á sig,
eins og fjölda annarra íslenskra tón-
listarmanna.
Tóku prófin í New York
Tveimur dögum fyrr hitti ég Þor-
gerði á hótelinu sem hefur verið
heimili kórsins á Manhattan undan-
farinn mánuð. Við tyllum okkur á
sófa í horni móttökusalarins sem
kórstjórinn kallar „þjóðarbókhlöð-
una“ en þar hafa margir söngvar-
anna setið löngum stundum og lært
fyrir próf í ýmsum deildum háskóla
heima á Íslandi, próf sem þeir fengu
að taka á ræðismannsskrifstofunni.
Þá höfðu nokkrir kórfélagar tekið
lokapróf frá MH en í stað þess að
halda upp á útskriftina heima staðið
á sviði The Shed þann dag og sungið
með Björk. Um kvöldið var slegið
upp stúdentsveislu á hótelinu.
Í kvöld mun Hamrahlíðarkórinn
taka þátt í áttundu og síðustu tón-
leikum Bjarkar í The Shed þennan
mánuðinn en Þorgerður hefur auk
þess séð til þess að kórfélagar hafi
haft nóg að gera þennan tíma. Þeir
hafa ekki bara verið í prófum heldur
séð og upplifað margt og haldið
marga sjálfstæða tónleika.
„Á ferðum mínum um heiminn
með kórnum gegnum árin hef ég
haft að leiðarljósi að allir upplifi sem
mest, út frá menningu hvers staðar,“
segir hún. „Í gærkvöldi fórum við til
dæmis mörg á tónleika með Fíl-
harmóníuhljómsveit New York, sem
var yndislegt. Við erum búin að fara í
heimsókn í Columbia-háskólann, þar
sem við sungum líka á tónleikum í
Earl Hall, við fengum skoðunarferð
um Metropolitan-óperuna, við höfum
sungið hér við messur og við munum
syngja í höfuðstöðvum Sameinuðu
þjóðanna á föstudaginn kemur.
Söngvararnir mega ekki bara vera
með nefið í eigin nafla,“ segir hún.
Tónleikar fyrir heimilislausa
Hótel kórfélaganna er við hliðina á
miðstöð fyrir heimilislausa í New
York. Þorgerður hafði heimsótt það
við komuna, þegar hún var að leita
að píanói fyrir tónlistarnema í hópn-
um að æfa sig á. Í kjölfarið óskaði
forstöðumaðurinn þar eftir því að
kórinn syngi fyrir heimilislausa fólk-
ið.
„Af öllum mínum ferðum út um
lönd um dagana var það ein af þess-
um ólýsanlegu upplifunum,“ segir
Þorgerður. „Fyrir ungu söngvarana
í kórnum var það afar sterk upplifun
að horfast í augu við og syngja fyrir
þetta vesalings fólk. Í byrjun var það
sumt alveg líflaust en þau vöknuðu
við sönginn. Margir stóðu og klöpp-
uðu allan tímann, krakkarnir
kveiktu þannig í þeim. Við sungum
íslenska músík og sögðum frá. Í lok-
in kom ein konan hágrátandi, faðm-
aði mig og þakkaði fyrir. Þetta var
alveg sérstakt. Við eigum fallega og
góða músík á Íslandi og margt af því
fer beint í hjartað.“
Eftir að hafa fylgst með æfingum
kórsins með Björk dagana áður en
Cornucopia-tónleikaröðin hófst bauð
forstöðumaður The Shed kórnum að
halda opnunartónleika minni salar í
byggingunni, tónleika sem viðstadd-
ir segja hafa verið frábærlega vel
lukkaða.
Eitt ævintýra lífsins
Þar sem við Þorgerður sitjum og
spjöllum koma af og til kórfélagar að
máli við hana og bera upp ýmis
erindi eða leita ráða. Hún segir að
vitaskuld sé í mörg horn að líta þeg-
ar dvalið sé erlendis með svo stóran
hóp í heilan mánuð. Alls konar
vandamál komi óhjákvæmilega upp
og þarfnist lausna. „Kórstjóri þarf
að vera og geta ótal margt, ég þyrfti
að hafa próf í sálfræði, þyrfti að vera
tölvuséní, auk þess að kunna þá
kúnst að stilla það hljóðfæri sem
röddin er,“ segir hún brosandi. „En
það hefur annars verið mikil blessun
yfir þessu ferðalagi.“
Aðdragandinn að þátttöku
Hamrahlíðarkórsins í þessu ævintýri
með Björk var furðu skammur, ekki
nema um tveir mánuðir. Þorgerður
viðurkennir að þegar hún hafi fengið
símtal þar sem óskað var eftir því að
kór ungmenna sem eru flest í krefj-
andi námi yrði erlendis allan maí-
mánuð þá hafi henni ekki litist á hug-
myndina. „Á þeim tíma nálgast og
hefjast próf í öllum skólum, sumir
áttu að fara að útskrifast; ég þekki
vel að maí er erfiðasti mánuður árs-
ins fyrir skólafólk. Mín fyrstu við-
brögð voru þau að þetta væri ekki
hægt en ég hef haft það að reglu að
taka aldrei ákvörðun fyrir hópinn
sem ég starfa með hverju sinni, það
verður hópurinn að gera lýðræð-
islega.
Fyrir tveimur árum söng kórinn
með Björk við upptökurnar á nýj-
asta diskinum hennar, í stóru verki,
„Body Memory“. Björk óskaði eftir
því að sem flestir sem voru með í því
gætu tekið þátt hér. En þegar ég bar
þetta undir krakkana þá voru við-
brögðin þeirra öll eins, það var fullt
hús.“ Þorgerður brosir og það er
augljóst hvað söngvararnir vildu:
upplifa það að koma fram með Björk
á röð tónleika í New York. „Þau hafa
mörg kallað þetta eitt ævintýra lífs
síns.“ Próf og annað slíkt voru bara
verkefni að leysa í því ljósi.
Dáist að Björk
Eitt laganna sem kórinn flytur að
ósk Bjarkar við upphaf tónleikanna
er „Maríukvæði“ Atla Heimis, sem
var mikill vinur og velgjörðamaður
kórsins. Atli lést á dögunum og
fyrstu tónleikarnir í The Shed voru
daginn sem hann var jarðsettur.
„Þegar við sungum það hágrét all-
ur kórinn fyrir framan mig og ég
sjálf. Það var ótrúlega áhrifamikið.“
Og Þorgerður hrósar kórnum sínum
fyrir það hvað hann vinnur vel og er
lifandi á sviðinu. „Það er mikil fant-
asía í þessum heimi Bjarkar og hún
er sífellt að endurskoða og endur-
hugsa allt í kringum hann; þetta er
mikið og glæsilegt sköpunarverk.
Sem Íslendingur er ég mjög stolt
yfir því hvað Björk hefur sterka
stöðu í hinum stóra heimi. Og það
hefur verið gaman að fá að upplifa
vinnubrögð hennar og ótrúlegan vilj-
ann við að koma á framfæri því sem
hún hugsar. Ísland er svo stór hluti
af þessu og margfaldast með þátt-
töku allra íslensku listamannanna á
sviðinu, sem hún óskaði sérstaklega
eftir að vinna með.
Ég virkilega dáist að henni
Björk.“
Mikið og glæsilegt sköpunarverk
Hamrahlíðarkórinn, skipaður 52 söngvurum, hefur sungið í New York undanfarinn mánuð undir
stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur Komu átta sinum fram með Björk og héldu marga sértónleika
Ljósmynd/Santiago Felipe
Ævintýralegt Fyrir tónleikana með Björk kom kórinn fyrst fram einn og tók svo þátt með henni í mörgum lögum.
Morgunblaðið/Einar Falur
Stjórnandinn „Mikil blessun yfir þessu ferðalagi,“ segir Þorgerður.
SKECHERS PARALLEL DÖMUSANDALAR.
STÆRÐIR 36-41
11.995.-
DÖMUSANDALAR.