Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 44

Morgunblaðið - 01.06.2019, Page 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2019 SALURINN.IS 6. júní kl. 17 Guitar Islancio Frítt inn Sumarjazz Tvær nýjar sýningar verða opnaðar í menningarmiðstöðinni Hafnarborg í Hafnarfirði í dag kl. 15, annars vegar sýningin Tímahvörf – sýn átta sam- tímaljósmyndara á Hafnarfjörð, í sýningarstjórn Kirsten Simonsen, og hins vegar sýningin Comme ça lou- ise? eftir Guðnýju Rósu Ingimars- dóttur. Á þeirri fyrrnefndu má sjá myndir átta samtímaljósmyndara sem sýna gestum það sem fangaði athygli þeirra þegar þeir mynduðu umhverfi Hafnarfjarðar á árunum 2006 til 2019. „Þar ferðast þeir frá innstu kimum bæjarins allt út á jaðar hans og beina sjónum sínum að því sem fellur jafnan í skuggann. Þá stöndum við frammi fyrir mynd sem samrým- ist kannski ekki alveg hugmyndum okkar um litla bæinn sem kúrir við höfnina og hefur oft verið sýndur í heldur rómantísku ljósi af listmál- urum síðustu aldar. Hér fáum við tækifæri til að hugsa um það hvert við stefnum og hvaða áhrif við höfum á nærumhverfi okkar, er bærinn stækkar og teygir úr sér í allar áttir. Varpa verkin þannig ljósi á bæ á tímahvörfum og gefa innsýn í hið nýja, flókna bæjarfélag sem er að myndast – okkar náttúrulega um- hverfi árið 2019,“ segir í tilkynningu en listamennirnir átta eru Daniel Reuter, Marino Thorlacius, Pamela Perez, Pétur Thomsen, Spessi, Staœ Zawada, Stuart Richardson og Svala Ragnars. „Tíminn og vatnið“ á ensku Á sýningu Guðnýjar Rósu má sjá verk sem byggjast á upptöku af ís- lenskri stúlku sem les upp úr þýðingu á ljóði Steins Steinarrs, „Tímanum og vatninu“. Stúlkan skilur ekki merk- ingu ensku orðanna en þó skilar kjarni merkingarinnar sér til þess sem leggur við hlustir, eins og því er lýst í tilkynningunni. „Bókstafleg merking hljóðanna skiptir ekki öllu máli, þar sem við eigum í samskiptum okkar á milli – samskiptum sem kunna að vera knöpp en áköf – er öld- ur hafsins gjálfra í takt við tímann. Hér veltur allt á þeim tengingum sem við sjálf myndum,“ segir þar. Ólík sýn á Hafn- arfjörð og ljóð Ásfjall Ljósmynd eftir Pétur Thomsen á sýningunni Tímahvörf.  Níu listamenn sýna í Hafnarborg Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Þetta verkefni er hluti af fullveld- isdagskrá Lettlands,“ segir Æsa Sigurjónsdóttir, sýningarstjóri Tal- aðu við mig! sem opnuð verður í Listasafni Ak- ureyrar í dag, laugardag, kl. 15. Ásamt henni stýrir sýningunni Astrita Rogule frá Þjóðlista- safninu í Riga en verkin koma öll úr safneign þess. Á sýning- unni eru verk eftir 19 lettneska samtímalistamenn. Það elsta eru ljósmyndir frá 1965, nokkur verk eru frá 10. áratugnum og svo eru mörg ný verk frá síðustu árum. Verkin tala til áhorfenda „Í tilefni sýningarinnar er sett upp margmiðlunarverkið „Talaðu við mig, tjáskipti manna og plantna“. Nafn sýningarinnar er dregið af þessu verki. Verkið krefst þátttöku áhorfenda og hefur verið sýnt út um allan heim. Safnað hefur verið gögnum um hvernig fólk talar við náttúruna og hvernig það talar við plöntur. Þetta þema, „Talaðu við mig“, hnýtir sýninguna saman,“ segir Æsa og útskýrir: „Öll verkin tala á einhvern hátt til áhorfenda. Þau segja ákveðna sögu sem er í sumum tilfellum pólitísk og í öðrum er það saga úr samtímanum. Rauði þráðurinn í sýningunni er að verkin tala til áhorfandans mjög beint í gegnum frásögn.“ Glæsilegt sýningarrými Ástæða þess að sýningin er haldin í Listasafni Akureyrar segir Æsa að sé að þar er að finna nýtt og glæsi- legt sýningarrými. „Sýningin nýtur sín mjög vel í þessu rými þar sem er bæði hátt til lofts og vítt til veggja. Hér eru líka stórir gluggar sem snúa út að götunni sem gefa af sér fallega birtu. Við reyndum frá upp- hafi að vinna sýninguna inn í þetta rými og höfðum það í huga við verk- efnavalið.“ Tilefni til að kynna erlenda list „Ég held að þetta sé sýning sem gæti komið á óvart. Það heyrist ekki mikið af lettneskri list hér. Allir þessir listamenn eru mjög þekktir í heimalandi sínu.“ Æsa bendir á að á sýningunni sé meðal annars að finna tvö verk eftir heimsfrægu listakon- una Viju Celmins. „Hún býr í New York og verk hennar eru á öllum helstu söfnum heims, til dæmis á MoMA.“ Æsa bendir á að hér á landi sé að finna stórt fjölmenningarsamfélag og segir virkilega vera tilefni til þess að kynna erlenda list hér á landi. „Oft er verið að kynna ís- lenska list erlendis en nú erum við að kynna lettneska list á Íslandi,“ segir Æsa og nefnir að það gefi færi á alls kyns tengingum og samtali. „Það kallast einmitt á við titil sýn- ingarinnar.“ „Sýning sem gæti komið á óvart“ List Úr verkinu Grænn skóli eftir Ievu Epnere sem er ein nítján lettneskra listamanna sem sýna á Akureyri.  Sýningin Talaðu við mig! opnuð í Listasafni Akureyrar Æsa Sigurjónsdóttir Ljósmyndarinn Einar Sebastian opnar sýninguna Tango Milonga í Grafíksalnum, hafnarmegin í Hafn- arhúsi, í dag kl. 15. Viðfangsefni Einars er argent- ínski tangóinn sem félagslegur at- burður en dansinn fagri á rætur að rekja til verkalýðsstéttarinnar í út- hverfum Buenos Aires og Monte- video í Úrúgvæ. Einar myndaði á tangóbörum sem nefnast milonga í Buenos Aires þar sem hann býr og starfar og á sýningunni beinir hann sjónum að dansinum, fólkinu og tengslum dansara við tónlistina. Einar vísar í argentínskan máls- hátt sem hann segir að lýsi tangó einna best: „Tangó er göngulag í faðmlagi.“ Einar stundaði nám í ljósmyndun á árunum 1988 til 1990 við Academ- ie voor bieldende kunste í Den Haag í Hollandi og 1992-1994 hjá Grími Bjarnasyni. Hann útskrif- aðist með ljósmyndaragráðu árið 1995 og hefur unnið víða um heim og þá m.a. á vegum flugfélagsins Atlanta. Hann hefur veirð búsettur í Mið-Austurlöndum og í Norður- og Suður-Ameríku og býr nú í Bue- nos Aires, sem fyrr segir. Einar hefur fengist við mannlífs- og um- hverfisljósmyndun á ferðalögum sínum um heiminn. Sýningunni lýkur 16. júní. Göngulag í faðmlagi Faðmlag Hluti ljósmyndar eftir Einar á sýningunni í Grafíksalnum.  Einar Sebastian sýnir í Grafíksaln- um myndir teknar á tangóbörum Heiðdís Hanna Sigurðardóttir sópr- ansöngkona og Laufey Sigrún Har- aldsdóttir píanóleikari flytja vel valin sönglög á þýsku og íslensku í Hannesarholti á morgun kl. 13. Fluttur verður fagur ljóðaflokkur eftir Clöru Schumann en í ár eru liðin 200 ár frá fæðingu hennar. Einnig verða flutt nokkur lög úr Jónasarlögum eftir Atla Heimi Sveinsson, sönglög eftir Jórunni Viðar og fleiri. Vel valin lög á þýsku og íslensku Sópran Heiðdís Hanna Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.