Morgunblaðið - 05.06.2019, Qupperneq 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2019
Tilkynningar
Fiskeldi í Ísafjarðardjúpi
Tillaga að matsáætlun
Einkahlutafélagið Hábrún ehf. áformar fram-
leiðslu á 6.000 tonnum á ári af laxi og regn-
bogasilungi í sjókvíum á þremur stað-
setningum í Ísafjarðardjúpi; við Arnarnes,
við Vigur og við Æðey. Í drögum að Tillögu
að matsáætlun er fyrirhuguðum fram-
kvæmdum og framkvæmdasvæðum lýst.
Framangreind drög að tillögu að matsáætlun
má nálgast frá og með 4. júní 2019 á heima-
síðu Hábrúnar (www.habrun.is). Opið verður
fyrir athugasemdir til 19. júní 2019.
Athugasemdum skal skila til: Hábrún ehf.
Stekkjargötu 11, 410 Hnífsdal, eða á nefangið:
habrun@habrun.is
Virðingarfyllst,
Haukur Oddsson
Hábrún ehf.
Mat á umhverfisáhrifum
Athugun Skipulagsstofnunar
Suðurnesjalína 2
Landsnet hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummats-
skýrslu um Suðurnesjalínu 2.
Kynning á frummatsskýrslu: Tillaga að ofangreindri framkvæmd og
skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar
frá 5. júní til 18. júlí 2019 á eftirtöldum stöðum: Á Bókasafni Hafnar-
fjarðar, skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá
Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á vef Skipulags-
stofnunar www.skipulag.is.
Athugasemdafrestur: Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt
fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi
síðar en 18. júlí 2019 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykja-
vík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.
Kynningarfundir: Vakin er athygli á að Landsnet stendur fyrir opnu
húsi til að kynna frummatsskýrslu þann 11. júní kl. 17 til 19 í Álfabergi,
Sveitarfélginu Vogum og 12. júní kl. 17 til 19 að Ásvöllum í Hafnarfirði.
Kynningarfundirnir eru opnir öllum.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Athygli er vakin á sýningu á munum Friðriks Frið-riks-
sonar sem er íbúi á Aflagranda 40. Friðrik er óviðjafnanlegur safnari
og kennir ýmissa grasa í hans safni. Sýningin er á opnuartíma húss-
ins kl. 8.30-15.45 og stendur til 6. júní. Heitt á könnunni og kökur og
kruðerí á vægu verði.
Árskógar 4 Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-16.
Bridge kl. 12.30. Opið hús, t.d. vist og bridge kl. 13-16. Opið fyrir inni-
pútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl.
14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535 2700.
Boðinn Sundleikfimi kl. 14.30.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Botsía kl. 10.40-11.20. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12.30-
15.50. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við hring-
boðið kl. 8.50. Línudans kl. 10. Opin Listasmiðja kl. 9-16. Hádegis-
matur kl. 11.30. NÝTT, salatbarin opnar aftur kl. 11.30. Miðvikufjör,
Pálmi Sigurhjartar píanóleikari og Þóra Jónsdóttir söngkona
skemmta kl. 12. Kynning á BIOPocket vörum kl. 11. Hugmyndabankinn
opinn kl. 9-16. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari uppl. í síma 411 2790.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Kvennaleikfimi Sjálandi
kl. 9.30. Liðsstyrkur Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ásgarði kl. 11.30.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Útskurður með
leiðbeinanda kl. 9-12. Línudans kl. 11-12. Leikfimi Helgu Ben. kl. 11-
11.30. Útskurður/pappamódel með leiðbeinanda kl. 13-16. Félagsvist
kl. 13-16. Döff félag heyrnarlausra. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 félagsvist.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45
og hádegismatur kl. 11.30. Handavinna kl. 13, liðleiki á stólum og
slökun með Önnu kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Ganga kl. 10 í dag inni í Egilshöll og gengið frá Borgum,
margir styrkleikahópar. Félagsvist kl. 13 í dag frá Borgum. Minnum á
fjölskyldubingó Korpúlfa næsta föstudag 7. júní kl. 15 í Borgum.
Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45, lesið upp úr blöðum kl. 10:15.
Upplestur kl. 11. Viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12. Hádegis-
verður kl. 11.30-12.30. Félagsvist kl. 13.30. Bónusbíllinn kl. 14.40.
Seltjarnarnes Botsía, Skólabraut kl. 10. Kaffispjall í króknum kl.
10.30. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Ath. á morgun fimmtudag
verður félagsvist í salnum, Skólabraut kl. 13.30. Sumardagskrá félags
og tómstundastarfsis tekur gildi þriðjudaginn 11. júní. Kynnið ykkur
dagskrána og takið þátt. Dagskráin verður borin í hús nú í vikunni.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík GÖNGUHÓPURINN á miðvikudag
fer frá Olís Rauðavatn kl. 10.
Bækur
Bækur til sölu
Barn Náttúrunnar 1919,
Svartar Fjaðrir 1919, Gestur
Vestfirðingur 1-5, Strandamenn,
Árbækur Espolins 1-12,
Náttúrufræðingurinn 1.-43. árg.
ib., Skaftáreldar 1783-1784, Ey-
lenda 1-2, Ættir Austur-Húnvetn-
inga 1-4, 200 Pages on Barnett
Newman, Landfræðisaga Íslands
1-4, Þorsteinsætt í Staðarsveit
1-2, Skák, Heimsmeistara-
einvígið 1972, ib., Parcival 1-2,
Þorpið, Jón úr Vör 1946, Små
Skitser, en Islands rejse i som-
meren 1867, Benedikte, Stjórnar-
tíðindi 1885-2000, 130 bækur,
Old Nordisk Ordbog 1863, E.J.
Það Nýja Testament 1813 Kh.
Upplýsingar í síma
898 9475.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Sjómaður óskar eftur
sumarbústað
Ó.E. sumarbústað í langtímaleigu,
keyrslufjarlægð frá Rvk. Er sjómaður
og því sjaldan í landi en mundi vilja
njóta þegar það er. Reyklaus, reglu-
og tillitssamur. Greiðslugeta 70k per
mánuð. Hafa samband í 55@55.is
Ýmislegt
Rað- og smáauglýsingar
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
Kæra frænka,
það sem mér þykir
vænt um þig. Þú
passaðir alltaf upp á mig síðan ég
fæddist og hef alltaf litið á þig
sem mömmu 2, sérstaklega ef
mamma vissi ekki svarið þá vissir
þú það alltaf og tókst vel á móti
mér. Ég elskaði þegar þið fjöl-
Sigurborg Sólveig
Andrésdóttir
✝ Sigurborg Sól-veig Andrés-
dóttir fæddist 16.
mars 1967. Hún
andaðist 16. maí
2019.
Útför Sigur-
borgar fór fram 31.
maí 2019.
skyldan komuð upp
í sveit á sumrin, þú
vissir alltaf að ég
vildi koma til ykkar í
Boggufrí í Sand-
gerði.
Þið buðuð mér
alltaf með, alveg
sama hvert þið vor-
uð að fara. Það verð-
ur skrítið að fara til
Sandgerðis og þú
ekki sitjandi í stóln-
um þínum, þegar síminn hringdi
hjá mömmu vissum við alltaf að
þú værir að hringja eða þegar þú
komst óvænt til okkar í heim-
sókn. Ég mun aldrei gleyma
Sandgerðisdögum eða áramótun-
um eða þegar ég fékk hlaupaból-
una og þú varðst endalaust að
setja skrítið dót á bólurnar. Eða
þegar við fórum á rúntinn á lim-
mósínunni sem þið áttuð eða
endalausu útilegurnar og ferðirn-
ar. Þegar það var bingó uppi í
sveit eða tombóla varst þú alltaf
fyrst á staðinn.
Allt sem við gerðum saman var
eintómt ævintýri og öllum leið vel
kringum þig því þér þótti vænt
um alla. Þeir sem fengu ekki að
kynnast þér misstu af æðislegri
manneskju.
Minningarnar eru ótrúlegar
og ég mun alltaf muna eftir þér.
Elsku Bogga mín, ég á eftir að
sakna þín mikið og ég vona svo
innilega að þér líði vel og það hafi
verið tekið vel á móti þér þarna
uppi hjá Eygló frænku, afa,
ömmu og Eyjólfi litla frænda.
Þín litla frænka Freyjuskott,
Aldís Freyja
Kristjánsdóttir.
Maggi Ólafs dó
allt of snemma.
Ekki það að læknar
sögðu að Maggi
hefði ítrekað sent
læknavísindunum langt nef.
Lífslíkur sjúklinga sem haldnir
eru sjúkdómi þeim sem Maggi
var greindur með fyrir fjórum
árum eru oftast taldar í nokkr-
um mánuðum í mesta lagi.
Þannig þekktum við Magga alla
tíð. Hann var íþróttamaður af
guðs náð og alltaf bestur. Hann
var sannkallaður orkupakki, án
númers.
Ég kynntist Magga alveg
sérstaklega vel af því að við vor-
um í sama bekk í MA og bjugg-
um saman í huggulegum her-
bergjum í Hrafnagilsstræti.
Kjallari þessi fékk snemma
heitið „Kjallari lífsgleðinnar“.
Þarna var ekki bara stundað
nám af kappi heldur var þarna
leikið á hljóðfæri, æfðar rullur í
leikritum, farið með vísur af
þeim sem kunnu og síðast en
ekki síst spilað trekort. Þá var
mikið notuð sú mælistika kjall-
arans fyrir þá sem vildu sinna
sínum karlmannlega vexti, en
það var lítil ljósakróna í kjall-
araloftinu.
Gestir og gangandi í Kjallara
lífsgleðinnar voru allmargir,
þótt flestir væru bekkjarfélag-
ar. Þarna voru helstir þeir Þórir
Jónsson, Þorvaldur Grétar, Ket-
ill, Gvendur Kalli, Siggi Kalli,
Karl Grönvold, Höddi Ólafs og
Jón bróðir Laugu. Þá voru þeir
Gísli Kolbeins, Óttar Einarsson
og Hjörtur Pálsson vel séðir
gestir. Í þessum húsakynnum
var fljótlega stofnað „Kvenhat-
Magnús Helgi
Ólafsson
✝ Magnús HelgiÓlafsson fædd-
ist 4. júlí 1940.
Hann lést 20. maí
2019.
Útförin fór fram
27. maí 2019.
arafélag Íslands“.
Helsta iðja fé-
lagsmanna var að
afneita félaginu á
alla kanta og finna
því allt til foráttu.
Gengu sumir fé-
lagsmanna það
langt að leggja sig í
líma við að vera of
kvensamir til að
hreinsa sig fyrir-
fram af grun um
aðrar tilhneigingar. Því miður
mætti ætla skyldleika við hátt-
semi pólitískra flokka þessa
dagana en einhver smáflokkur
hefur notað 70 tíma af ræðutíma
Alþingis í það að andmæla sjálf-
um sér. Öllu viðkunnanlegri var
stefnuskrá annars flokks, þar
sem sagt var að stefnt væri að
því að svíkja öll kosningaloforð.
Maggi vinur okkar fór sér
hægt í þessum málum enda var
allt annað í gangi. Það fór vart
fram hjá okkur sveinum í Kjall-
ara lífsgleðinnar að snemma
morguns dag hvern gekk íðil-
fagurt fljóð framhjá húsinu okk-
ar á leið niður í bæ. Magnús
sýndi þessari umferð alveg sér-
stakan áhuga. Það leið heldur
ekki á löngu að Maggi taldist
tekinn af markaði. Fljóðið fagra
reyndist vera frá Ólafsfirði og
reyndar á lausu. Seinna gekk
Magnús að eiga þessa konu og
bar hún honum og heiminum
öllum fjögur bráðmyndarleg
börn, eina stúlku og þrjá stráka.
Þeim er öllum vottuð innileg
samúð við þennan mikla missi.
Maggi var lærður vistfræð-
ingur og sjúkraþjálfari. Það hef-
ur vafalaust verið ísfirska sjó-
mannseðlið, sem hjálpaði til
þegar Maggi fór um allan sjó
ásamt togaraflotanum, fór á
milli skipa úti á reginhafi ef
þannig stóð á, en Maggi kom
þar vafalaust í veg fyrir alls
kyns stoðvandamál hjá sjó-
mönnum er hann kenndi togara-
sjómönnum hvernig best mætti
bera sig að.
Gamlar endurminningar frá
menntaskólaárunum eru hér
dregnar fram, því þær lögðu
grunninn að staðfastri og
fölskvalausri vináttu sem staðið
hefur í heilan mannsaldur og
langt yfir og lengra.
Jón Sæmundur
Sigurjónsson.
Margir telja að foreldrar og
kennarar séu mikilvægustu fyr-
irmyndir barna og ungmenna.
Haustið 1962 kom sveita-
strákur að Reykjaskóla í Hrúta-
firði. Hann settist í annan bekk.
Ekki hafði hann notið neinnar
beinnar kennslu í leikfimi en
var fullur áhuga og eftirvænt-
ingar, langaði að minnsta kosti
til að verða fljótur að hlaupa.
Þá var Magnús Ólafsson ung-
ur íþróttakennari á Reykjaskóla.
Hann tók á móti okkur af ljúf-
mennsku en samt festu. Hann
var fremur lágvaxinn, grannur
og stæltur. Magnús kenndi okk-
ur heilsufræði og íþróttir og
vakti fljótlega hrifningu mína og
síðan virðingu vegna alls þess
sem hann gat sýnt okkur af
sveigjum og beygjum, ótrúleg-
um stökkum eins og kraftstökki,
flikk-flakki og heljarstökki.
Hann átti auðvelt með að láta
okkur leika margt af þessu eftir,
þótt ótrúlegt sé nú. Það sem
hann gat gert í loftfimleikum,
svo sem hringjum, réðu samt
fæst okkar við.
Metnaður Magnúsar í starfi
sínu sem og ljúfmennska og
virðing sem hann ætíð sýndi
nemendum sínum er mér efst í
huga nú þegar kom að kveðju-
stund. Ég hef verið svo lán-
samur að hitta hann öðru
hverju á förnum vegi síðustu
misserin, ætíð ljúfan í viðmóti
og æðrulausan þó að ljóst væri
að hverju drægi.
Minning lifir um góðan
dreng. Magnús var mér afar
dýrmæt fyrirmynd.
Ég sendi Hildi og öðrum að-
standendum innilegustu samúð-
arkveðjur.
Steinar Matthíasson.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi
liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er
hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og hve-
nær sá sem fjallað er um fæddist,
hvar og hvenær hann lést og loks
hvaðan og klukkan hvað útförin
fer fram. Þar mega einnig koma
fram upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn. Ætlast er
til að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður, en
ekki í minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
skal senda hana með æviágripi í
innsendikerfinu. Hafi æviágrip
þegar verið sent er ráðlegt að
senda myndina á netfangið minn-
ing@mbl.is og láta umsjón-
armenn minningargreina vita.
Minningargreinar