Morgunblaðið - 05.06.2019, Side 24

Morgunblaðið - 05.06.2019, Side 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2019  FH hefur samið við handknattleiks- manninn Leonharð Þorgeir Harðarson til þriggja ára, en hann lék með liðinu sem lánsmaður seinni hluta vetrar. Leonharð kom þá að láni frá Haukum, en með FH spilaði hann níu deildarleiki eftir áramót og skoraði 22 mörk.  Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur samið við Bandaríkjamanninn Wayne Martin um að spila með liðinu næsta vetur. Hann er 26 ára gamall og rúmir tveir metrar á hæð. Í vetur spil- aði hann meðal annars um tíma með Leicester, sem varð enskur meistari í vor. Martin mun leika í Víetnam í sum- ar og koma svo til Íslands um mán- aðamótin ágúst/september.  Julen Lopetegui hefur verið ráðinn nýr knattspyrnustjóri Sevilla. Lope- tegui var landsliðsþjálfari Spánar áður en hann var rekinn rétt fyrir HM í Rússlandi í fyrra eftir að hafa verið bú- inn að ráða sig til Real Madrid. Þaðan var hann svo rekinn í október.  Knattspyrnumaðurinn Sölvi Snær Guðbjargarson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Stjörn- una. Sölvi, sem verður 18 ára í júlí, hefur spilað 17 leiki fyrir yngri landslið Íslands. Hann hefur komið við sögu í fimm leikjum Stjörn- unnar í sumar, en hann kom inn í liðið í fyrra og lék þá sextán ára gamall sína fyrstu úrvals- deild- arleiki. Eitt ogannað FRJÁLSAR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Þetta var frábært. Ég gæti ekki verið sáttari með þennan árangur. Þarna átti ég sex af sjö bestu köst- um mínum frá upphafi og ég ætla ekkert að stoppa hérna,“ segir Dag- bjartur Daði Jónsson, spjótkastari og tónlistarmaður. Dagbjartur, sem er af miklum frjálsíþróttaættum, vann til gull- verðlauna í spjótkasti á sínum fyrstu Smáþjóðaleikum í Svart- fjallalandi á dögunum. Þar kastaði ÍR-ingurinn lengst 77,58 metra og bætti þar með Íslandsmetið í flokki 22 ára og yngri um þrjátíu sentí- metra. Öll sex köst Dagbjarts voru yfir 74 metra sem sýnir að hann er á hárréttri leið nú þegar nýtt keppn- istímabil er að hefjast. „Eftir að hafa bætt mig mikið á síðasta ári vissi ég samt að ég ætti meira inni og lagði mikla vinnu á mig í vetur. Ég ætla mér að upp- skera eftir því í sumar. Planið er að komast yfir 80 metra múrinn og allt umfram það er bara bónus,“ segir Dagbjartur og tekur undir að það hafi ekki verið leiðinlegt að ná fyrr- nefndu meti af félaga sínum Sindra Hrafni Guðmundssyni. „Við erum æfingafélagar svo það var dálítið gaman að taka það af honum. Hann er orðinn aðeins of gamall til að bæta það úr þessu,“ segir Dagbjartur léttur. Einar Vilhjálmsson er þjálfari þeirra Dagbjarts og Sindra, en Ein- ar á Íslandsmetið í spjótkasti sem er 86,80 metrar og var sett árið 1992. Sigurður Einarsson, Sindri Hrafn, Guðmundur Sverrisson og Sigurður Matthíasson eru aðrir sem hafa kastað yfir 80 metra og Dagbjartur vill nú verða sá sjötti í hópnum. Á mót í Þýskalandi með ólympíumeistaranum Hann er aðeins 21 árs og unir hag sínum vel undir handleiðslu Einars: „Ég mun kannski skoða það eftir einhver ár að fara út en ég er mjög ánægður hér heima og hjá Einari þjálfara. Ég held að ég fari ekkert frá honum fyrr en Íslandsmetið fell- ur,“ segir Dagbjartur og hlær létt. Dagbjartur fer á morgun til Þýskalands þar sem hann mun keppa á sterku móti í Jena, þar sem ólympíumeistarinn Thomas Röhler er á heimavelli. Dagbjartur náði ein- mitt sínum besta árangri í fyrra á mótinu í Jena: „Það er geggjað mót. Svo fer ég á EM 22 ára og yngri um miðjan júlí. Það verður vonandi toppurinn á sumrinu í ár,“ segir Dagbjartur. Eins og fyrr segir er Dagbjartur með mikil frjálsíþróttagen en mamma hans er Martha Ernsts- dóttir, sem keppti í maraþoni á Ól- ympíuleikunum árið 2000, og fað- irinn er Jón Oddsson sem afrekaði að vera landsliðsmaður í frjáls- íþróttum og fótbolta. Systurdóttir Mörthu er Aníta Hinriksdóttir. „Ég held að ég hafi mætt á fyrstu æfinguna mína þriggja mánaða. Ég hef ekki fært mig úr frjálsum íþrótt- um síðan. Ég held að ég hafi fyrst kastað spjóti 10 ára og fannst ég kasta því voðalega langt, og þar með var ég búinn að finna mína grein og ákvað að verða bestur í henni,“ seg- ir Dagbjartur sem hefur getað leit- að í viskubrunn foreldra sinna en þau voru þó ekki í spjótkasti, eða hvað? „Kannski ekki þannig, en pabbi var reyndar lunkinn og er góður al- hliða þjálfari sem hjálpaði mér lengi. Við fluttum aftur til Reykja- víkur þegar ég var búinn í grunn- skóla, eftir fjögur ár á Ísafirði, og stuttu eftir það byrjaði ég að æfa hjá Einari og hef verið þar síðan.“ Gaf út plötu í vetur Utan frjálsíþróttavallarins hefur Dagbjartur fikrað sig aðeins áfram sem tónlistarmaður, og gefið út hipphopplög undir listamannsnafn- inu Bjartr. „Ég gaf út mína fyrstu plötu í febrúar og var einmitt að gefa út nýtt lag á laugardaginn. Þetta er hliðarverkefni sem ég hef verið með í tæp þrjú ár, nokkuð sem ég hef bara verið að leika mér í og hef mjög gaman af. Dagskráin í sól- arhringnum er nokkuð þétt,“ segir Dagbjartur, sem lét þó vera að stíga á svið í Svartfjallalandi: „Nei, þjóð- dansararnir voru í fyrirrúmi þar og mér fannst það ekki passa alveg inn,“ segir Dagbjartur léttur. „Þetta voru fyrstu leikarnir mínir en ég held að þeir hafi bara verið vel heppnaðir. Aðstaðan var mjög fín og ég get ekkert kvartað.“ Mættur á fyrstu æfingu þriggja mánaða gamall Ljósmynd/FRÍ Gull og met Dagbjartur Daði Jónsson á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi þar sem hann fagnaði sigri og meti.  Dagbjartur sló met félaga síns  Mamma ólympíufari og pabbi í landsliðum Birna Berg Haraldsdóttir æfði með íslenska landsliðinu í handbolta í Laugardalshöll í gær fyrir leikinn við Spán annað kvöld, þann seinni í umspili um sæti á HM. Birna gat ekki leikið með Íslandi í 35:26- tapinu í Málaga síðastliðinn föstu- dag en hún hefur verið að jafna sig af þungu höfuðhöggi sem hún fékk í leik með þýska liðinu Neckar- sulmer fyrir mánuði. Útlit er fyrir að Birna verði klár í slaginn við Spán á morgun. Einhver von er einnig til þess að Lovísa Thompson, sem varð að hætta við fyrri leikinn vegna bakmeiðsla, verði með. Læknisskoðun skilaði já- kvæðum niðurstöðum og ekki er um brjósklos að ræða, að sögn Ax- els Stefánssonar landsliðsþjálfara. Lovísa veiktist hins vegar, ofan í meiðslin, og hefur ekki getað æft í vikunni. sindris@mbl.is Lovísa hugsanlega með og Birna Berg komin á ról Morgunblaðið/Eggert Meidd og veik Lovísa Thompson á æfingu áður en landsliðið hélt utan.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.