Morgunblaðið - 06.06.2019, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019
JAKKA- OG
BUXNASPRENGJA
Fimmtudag, föstudag og
langan laugardag
30% afsláttur
af stökum jökkum og buxum
Calvin Klein nærbuxur
3 í pakka á 4.900 kr.
Herrahúsið Ármúla 27, 108 Reykjavík, s. 551 7575 og 552 9122
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Öryggi er ábótavant varðandi hand-
rið fjölda brúa á þjóðvegum landsins
svo þar er hætta á að verði stórslys
ef eitthvað bregður út af. Handriðin
eru of lág og þau
ekki fest saman
svo viðunandi sé.
Einnig eru fest-
ingar handrið-
anna ekki nógu
góðar því þær
þurfa að vera
steyptar niður.
Púðar þurfa
sömuleiðis að
vera á handrið-
unum við brúar-
endana og þeir eftirgefanlegir við
ákeyrslu. Þetta segir Ólafur Kr.
Guðmundsson, sérfræðingur í um-
ferðaröryggismálum.
Í úttektum sínum á öryggis-
atriðum í vegakerfinu hefur Ólafur
litið til margra þátta og þar haft
Evrópustaðla sem einn útgangs-
punkta.
Ekki þarf að
spyrja að leikslokum
„Handriðin eru of lág og stundum
ekki rétt fest niður. Í ákveðnum til-
vikum eru handriðin nokkuð innan
við einn metri á hæð en þau þurfa
skv. ákveðnum stöðlum að vera að
lágmarki 1,20 metrar á hæð. Styrk-
urinn í festingum og járninu er ekki
nægur þannig að ef bíll sem ekið er á
einhverjum hraða að ráði lendir á
handriðunum þarf ekki að spyrja að
leikslokum,“ sagði Ólafur í samtali
við Morgunblaðið.
Í framangreindu sambandi til-
tekur Ólafur slys milli jóla og nýárs
á síðasta ári, þegar jeppi fór út af
brúnni yfir Núpsvötn og féll þar um
átta metra niður á jörð, svo þrír fór-
ust. Einnig slys í ágúst 2003 þegar
vöruflutningabíll fór í gegnum hand-
rið á Borgarfjarðarbrú eftir að hjól-
barði sprakk. Einn lést í því slysi.
„Ég hef rætt þessa grafalvarlegu
stöðu við fólk hjá Vegagerðinni,
samgönguráðherra og fleiri sem er
vandinn alveg ljós. Tafarlausra að-
gerða er þörf,“ segir Ólafur sem tel-
ur þörf á bráðaaðgerðum við nokkr-
ar brýr. Þar nefnir hann brýrnar
yfir Borgarfjörð, Blöndu, Eyjafjarð-
ará, Lagarfljót, jökulsárnar við
Vatnajökul, Þjórsárbú og Ölfus-
árbrú við Selfoss. Ein örfárra brúa,
sem séu fullkomlega í lagi hvað
framangreint varðar, sé yfir Mú-
lakvísl á Mýrdalssandi, sem tekin
var í notkun sumarið 2014.
Háskaleg staða á Selfossi
„Yfir Ölfusárbrúna sem er inni í
miðjum bæ á Selfossi er mikil um-
ferð – og handriðið er mjög veik-
burða svo ekki sé meira sagt. Ef bíl
væri ekið á það á einhverri ferð
myndi hann fara út af og falla tugi
metra niður í svelg árinnar, þeirra
vatnsmestu á landinu. Mér finnst
staðan á Selfossi vera mjög háskaleg
og sama á raunar einnig við um
Þjórsárbrú sem var tekin í gagnið
2003,“ segir Ólafur Guðmundsson.
Handrið á brúnum eru hættuleg
Aðgerða er þörf við margar brýr á þjóðvegunum Festingar handriðanna
geta gefið eftir Borgarfjarðarbrú, Blanda og Lagarfljót Evrópustaðlar
Þjórsárbrú Byggð árið 2003 og nú þarf að ráðast þar í endurbætur,
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ölfusárbrú Handriðið sem er á brúnni sunnanverðri þykir vera ótraust.
Ó́lafur
Guðmundsson
Að bæta öryggi á 250 mest
eknu brúm landsins kostar ekki
minna en 4-5 milljarða króna,
segir Berg-
þóra Þorkels-
dóttir, for-
stjóri Vega-
gerðarinnar.
Brýrnar eru
byggðar sam-
kvæmt við-
urkenndum
viðmiðunum á
þeim tíma
sem þær voru
byggðar. Í augum uppi liggur að
1.200 brýr verða ekki upp-
færðar skv. kröfum dagsins í
dag í einu vetfangi,“ segir Berg-
þóra í samtali við Morg-
unblaðið.
Aðgerðir til að bæta öryggi
við brýr landsins eru þegar
hafnar. „Byrjað verður á nokkr-
um stórum brúm og mislægum
vegamótum þar sem umferðin
er mest, en það eru t.d. mislæg
vegamót á höfuðborgarsvæðinu
og Borgarfjarðarbrú. Varið verð-
ur 200 millj. kr. í þetta verkefni í
ár. Í sumar verður svo unnin út-
tekt á frágangi vegriða við brýr
og forgangsröðun aðgerða end-
urmetin,“ segir Bergþóra. Hún
vekur jafnfram athygli á því að
Vegagerðin hafi ákveðið að
lækkaða leyfilegan ökuhraða
við einbreiðar brýr niður í 50
km/klst á 75 brúm; þar sem
umferð mælist meiri en 300 bif-
reiðar að meðaltali dag hvern.
Úrbætur kosta
5 milljarða kr.
FORGANGSRÖÐUN
Bergþóra
Þorkelsdóttir