Morgunblaðið - 21.06.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.06.2019, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 1. J Ú N Í 2 0 1 9 Stofnað 1913  144. tölublað  107. árgangur  ROKKY VILL AÐ FÓLK DANSI VIÐ TÓNLIST SÍNA LANDAÐI FYRSTA LAXINUM VILL FINNA HAMINGJU Í BOLTANUM Á NÝ HELGA STEFFENSEN 10 ARON JÓHANNSSON 33SECRET SOLSTICE 36 Veiga Grétarsdóttir varði sig vel með sólarvörn áður en hún lagði í næsta áfanga frá Þjórsárósum í gærmorgun. Hún rær á sjókajak rangsælis í kringum landið, „á móti straumnum“, sem er einmitt heitið á leiðangri hennar. Veiga er fyrsta kon- an til að róa hringinn og fyrsti einstaklingurinn sem rær hann einn. Hún safnar áheitum fyrir Píeta-samtökin. Hún lagði af stað frá Ísafirði 14. maí en hefur misst nokkra daga úr að und- anförnu vegna veikinda. Nú eru þau að baki og Veiga komin aftur af stað. Margar vikur eru þó eftir. Morgunblaðið/RAX Rær á móti straumnum koma til skoðunar það fyrirkomulag við aðra umræðu um lagafrumvörp og síðari umræðu um tillögur, að réttur manna til að taka til máls sé óend- anlegur [...]“ sagði Steingrímur. Þarf að ná samstöðu Hann sagði að um þessi atriði þurfi að ná samstöðu. Mikil vinna hafi verið unnin á síðustu þingum. Kvaðst hann vonast til að málið kæmist í farveg á allra næstu dögum. Steingrímur sagði að málið væri sameiginlegt verkefni allra þing- manna. „Við þurfum að standa saman um virðingu og sóma Alþingis en hvort tveggja getur aðeins verið áunnið,“ sagði hann. Þingi var frestað í gærkvöldi að lokinni afgreiðslu fjármálaáætlunar og fjármálastefnu. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Forseti Alþingis boðar að hafin verði vinna við endurskoðun þingskapa Al- þingis. Vísar hann til þróunar mála undanfarnar vikur og segir að taka verði til endurskoðunar einkennilega framkvæmd andsvara og það fyrir- komulag að þingmenn hafi rétt til að taka til máls í hið óendanlega í þriðju eða seinni umræðu um þingmál. Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, var greinilega að vísa til málþófs þingmanna Miðflokksins um mál sem tengjast þriðja orkupakkan- um þegar hann sagði við þingfrestun í gærkvöldi að flestir þingmenn væru hugsi yfir því hvernig störfum þing- manna væri hagað, samkvæmt gild- andi reglum, og birtist þjóðinni dag- lega í fréttum og beinum útsend- ingum. Velti hann því fyrir sér á hvaða braut Alþingi væri komið, ekki síst í ljósi þess rýra trausts sem það nyti um þessar mundir. „Við blasir einkennileg fram- kvæmd andsvara sem verður að taka til endurskoðunar og færa í það horf sem til var stofnað í upphafi, við af- nám deildanna 1991. Eins hlýtur að Boðar endurskoðun reglna um umræður  Forseti Alþingis hvetur til samstöðu um virðingu og sóma Starfsamt þing » Á þessu þingi hafa verið samþykkt 120 lög og 47 álykt- anir. 49 munnlegum fyr- irspurnum hefur verið svarað og 338 skriflegum og 35 sér- stakar umræður hafa verið. » Þingið hefur þegar staðið í um 865 klukkustundir og enn eru nokkrir dagar eftir. MAukið atvinnuleysi kostar … »2 Varaformaður stjórnar Lífeyrissjóðs verslunarmanna (LV) segist harma þá ákvörðun fulltrúaráðs VR að aft- urkalla umboð fjögurra stjórnar- manna sem tilnefndir eru af stéttar- félaginu í átta manna stjórn og skipa nýja í þeirra stað. Fráfarandi formað- ur stjórnar LV, Ólafur Reimar Gunn- arsson, hefur sagt af sér stjórnar- störfum í VR og sagt skilið við félagið vegna málsins. Ólafur segir að lögmæti ákvörðun- ar fulltrúaráðsins hafi verið könnuð. Þegar VR afturkalli umboð þeirra og tilnefni nýja í stjórn sé stjórnarsetu þeirra fjögurra lokið. FME hefur áhyggjur Guðrún Hafsteinsdóttir er varafor- maður stjórnar LV, tilnefnd af Sam- tökum atvinnulífsins, og hún er jafn- framt stjórnarformaður Land- samtaka lífeyrissjóða. „Þau afskipti sem sérstaklega formaður stjórnar VR hefur haft af stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna eru með öllu óásætt- anleg og gagnrýni ég það harkalega. Ég vil minna á það að allir þeir sem setjast í stjórnir félaga, hvort sem það eru félagasamtök eða skráð hlutafélög eða önnur, lúta umboðs- skyldu við hluthafa sem lýtur að því að við erum öll sjálfstæð í okkar störf- um. Við megum ekki undir nokkrum kringumstæðum hlaupa eftir duttl- ungum fólks úti í bæ sem vill ráðskast með þær niðurstöður sem koma frá þessum stjórnum,“ segir Guðrún. Telur hún að Fjármálaeftirlitið geti ekki setjið hjá. Ólafur segir að FME hafi kallað hann á fund í gær og lýst yfir áhyggjum af þróun mála. Telur hann að stofnunin sé að kanna málið, hvað nákvæmlega segist hann ekki vita. helgi@mbl.is , athi@mbl.is » 4 Telur afskipti VR óviðunandi  FME skoðar stjórnarskiptin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.