Morgunblaðið - 21.06.2019, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.06.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2019 Álfabakka 12, 109 Reykjavík • S. 557 2400 • Netverslun elbm.is Opið virka daga kl. 8-18 Sængurverasett, dúkar, servíettur, viskustykki, dýnuhlífar & lök, sloppar & inniskór, handklæði & þvottapokar. Vörurnar fást í Efnalauginni Björg í Mjódd LÍN fyrir hótel, veitingahús, gistiheimili, sjúkrastofnanir og heimili Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. „Ég hafði ekki hugsað mér að mæta en dóttir mín dró mig með sér. Ég veit að ég er aðeins betri en hún þannig að ég vonaði að ég yrði ekki í neðsta sæti keppninnar. Ég átti alls ekki von á því að vinna,“ segir Nína Þórsdóttir sem sigraði í meistaramóti í krossgátum sem Edda útgáfa efndi til í gær í til- efni af útkomu bókarinnar Kross- gátur þar sem birtar eru 50 gátur af síðum Morgunblaðsins. „Þetta var ótrúlega skemmtilegt,“ segir Nína um keppnina. Hún fór þannig fram að fyrst þurftu þátttak- endur að ráða tvær krossgátur og fengu 20 mínútur fyrir hvora. Tíminn réð úrslitum nema hvað hálfrar mín- útu refsing bættist við hverja villu sem var í lausninni. Fimm efstu fengu síðan þriðju gátuna og höfðu þá úr 15 mínútum að spila. Skilaði villulausri ráðningu Nína skilaði villulausri lausn eftir 14 mínútur og 11 sekúndur. Raunar var Bryndís Guðbjartsdóttir fljótari en hún gerði fjórir villur og varð í öðru sæti. Ingibjörg Óskarsdóttir varð þriðja. Hátt í tveir tugir tóku þátt í krossgátukeppninni. Nína er krossgátuunnandi. „Við er- um áskrifendur að Morgunblaðinu og leysum alltaf krossgátuna í sunnu- dagsblaðinu. Helgin er ónýt ef við höfum ekki Moggann. Ef við förum í frí þá látum við geyma blaðið og tök- um krossgátumaraþon þegar við komum heim,“ segir Nína og tekur fram að hún ráði krossgötur í öðrum blöðum og bókum. Hún segir til þess að vera góður í að ráða krossgátur þurfi viðkomandi að hafa gaman af tungumálinu. Ann- ars sé það að ráða krossgátu eins og hvert annað spil eða leikur. „Það er gaman að finna rétta orðið og láta þetta ganga upp,“ segir hún. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Meistaramót Þátttakendur í krossgátukeppninni þurftu að einbeita sér og vera jafnframt fljótir að ráða gátuna. Vonaði að ég yrði ekki í neðsta sæti keppninnar  Nína Þórsdóttir sigraði á meistaramóti í krossgátum Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sigurvegari Nína Þórsdóttir með sigurlaunin fyrir krossgátukeppnina. Helgi Bjarnason Gunnlaugur Snær Ólafsson Alþingi samþykkti í gærkvöldi breytingar á þingsályktunum um fjármálaáætlun 2020-2024 og fjár- málastefnu 2018-2022, eftir umræð- ur allan daginn. Að svo búnu, á ní- unda tímanum í gærkvöldi, var Alþingi frestað. Það kemur saman 28. ágúst til að ræða áfram mál sem tengjast þriðja orkupakka Evrópu- sambandsins. Vegna endurmats á fjárþörf At- vinnuleysistryggingasjóðs og Ábyrgðarsjóðs launa hækka útgjöld ríkisins um 11 milljarða króna í ár. Á tímabili fjármálaáætlunar hækka framlög vegna aukins atvinnuleysis að jafnaði um 7-8 milljarða króna á ári. Kemur þetta fram í breyting- artillögum meirihluta fjárlaganefnd- ar við gjaldahlið áætlunarinnar sem samþykktar voru í gærkvöldi. Ýmsar ráðstafanir eru gerðar til að draga úr áður áætluðum út- gjaldavexti auk þess sem útgjöld hliðrast á milli ára. Meirihlutinn lagði þó til hækkanir á öllum mál- efnasviðum og notaði til þess það svigrúm sem skapast við það að ákveðið er að reka ríkissjóð ekki með afgangi í tvö ár, eins og áður var áformað og nýja skatta og hækkanir á öðrum. Nýir grænir skattar Tekjur ríkissjóðs minnka vegna samdráttar í efnahagslífinu og kerf- isbreytinga á tekjuskatti einstakl- inga. Á móti vega nýjar ráðstafanir til tekjuaukningar, samtals um 35 milljarða á tímabilinu. Gert er ráð fyrir að grænir skattar skili tekjum frá og með næsta ári, annars vegar gjald á almenna urðun sorps frá heimilum og fyrirtækjum og hins vegar gjald á flúoraðar gróðurhúsa- lofttegundir sem meðal annars eru notaðar eru í kæli og frystitæki. Samtals á þessi skattur að skila 11,5 milljörðum á tímabilinu. Fyrirhugað er að veita aukið fjár- magn til skatteftirlits og er áætlað að skatttekjur aukist um 10 millj- arða. Meðal annarra ráðstafana til tekjuaukningar er frestun á banka- skatti um eitt ár. Leggja til útgjöld og skatta Stjórnarandstöðuflokkarnir kynntu einnig sínar breytingartil- lögur og var tekist á um hugmynd- irnar í umræðum um fjármálaáætl- un og fjármálastefnu á Alþingi í gær. Samfylkingin lagði til aukin út- gjöld ríkissjóðs, meðal annars að framlag til loftslagsmála hækki auk framlaga til flestra málefnasviða vel- ferðar-, heilbrigðis- og menntamála. Til þess að fjármagna útgjöldin lagði flokkurinn til skattahækkanir, meðal annars að auðlindagjöld yrðu hækkuð sem og fjármagnstekju- skattur og komið á auðlegðarskatti. Logi Einarsson, formaður Sam- fylkingarinnar, sagði á blaðamanna- fundi í gærmorgun að flokkurinn hefði áhyggjur af því að þeir sem eftir sátu í uppganginum, öryrkjar, aldraðir, námsmenn og fólk með meðaltekjur, muni þurfa að líða fyrir niðursveiflu í efnahagslífinu og nið- urskurð og lagði áherslu á að þörf væri á því að stoppa í velferðargötin. Villandi málflutningur Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra vísar málflutningi minnihlut- ans um niðurskurð á bug. „Það er reyndar mjög villandi málflutningur sem því miður hefur verið hafður uppi um að hér sé verið að skera nið- ur í mikilvægum málaflokkum, þeg- ar staðreyndin er sú að aukning er hægari en gert var ráð fyrir í fyrri áætlun,“ segir Katrín. Aukið atvinnuleysi kostar 7-8 milljarða  Breytingar ríkisstjórnarflokkanna á fjármálaáætlun og fjármálastefnu samþykktar á Alþingi í gær- kvöldi eftir snarpar umræður  Alþingi frestað til 28. ágúst  Þá verður áfram rætt um 3. orkupakkann Logi Einarsson Katrín Jakobsdóttir Tímamót áttu sér stað í starfsemi Bjargs, íbúðafélagsins sem BSRB og ASÍ stofnuðu fyrir þremur ár- um, en í gær fékk fyrsti leigjandi félagsins afhenta lyklana að íbúð við Móaveg í Grafarvogi. Það var Katrín Einarsdóttir, einstæð tveggja barna móðir, sem fékk af- henta lykla að fyrstu íbúðinni sem fer í útleigu. Samkvæmt upplýs- ingum frá Bjargi hefur Katrín búið um nokkurt skeið í einu herbergi heima hjá foreldrum sínum ásamt börnum sínum, sem eru fjögurra og tíu ára gömul, og því fjölskyldunni kærkomið að komast í nýja íbúð hjá Bjargi. Alls fá 68 leigjendur afhentar íbúðir á vegum Bjargs í júní og júlí, við Móaveg og í Asparskógum á Akranesi. Um 1.150 félagsmenn ASÍ og BSRB eru nú á biðlista eftir íbúðum og eru á þessari stundu alls 563 íbúðir í byggingu á vegum fé- lagsins. 490 til viðbótar eru í hönn- unarferli. Áætlað er að afhenda leigjendum 141 íbúð til viðbótar í ár. omfr@mbl.is Ljósmynd/aðsend Afhending Katrín og börn hennar fengu blómvönd og lykla að íbúðinni í gær. Fékk fyrstu íbúðina afhenta hjá Bjargi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.