Morgunblaðið - 21.06.2019, Side 33
ÍÞRÓTTIR 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2019
FÓTBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Mikilvægast fyrir mig er að finna
gott lið þar sem ég er metinn mikils.
Ég þarf að finna hamingjuna aftur í
því að spila fótbolta,“ segir Aron Jó-
hannsson við Morgunblaðið.
Þessi 28 ára knattspyrnumaður,
sem uppalinn er hjá Fjölni og á 19
landsleiki að baki fyrir Bandaríkin,
hefur nú kvatt þýska félagið Werder
Bremen. Óvíst er hvað tekur við en
Aron segir það ánægjulegt hve mik-
inn áhuga hann finni frá félögum
víða um heim sem vilja fá þennan
markahrók í sínar raðir, þrátt fyrir
að hann hafi ítrekað glímt við
meiðsli síðustu ár. Eftir að hafa
gjörsamlega raðað inn mörkum fyrir
AGF í Danmörku og AZ í Hollandi
spilaði Aron aðeins 28 leiki á fjórum
árum í þýsku 1. deildinni, flesta sem
varamaður, og skoraði 2 mörk. Nú
vonast hann til þess að sólin rísi að
nýju og að hann nái að sýna snillina
sem býr í fótunum:
„Eins og staðan er í dag þá get ég
eiginlega ekki sagt til um hvað muni
gerast. Það er mikill áhugi á mér frá
ýmsum löndum en ég bíð bara eftir
því að rétta félagið og rétta tækifær-
ið komi. Að allt smelli svo ég geti í
rauninni endurræst ferilinn eftir
erfitt tímabil. Ég er ekki nema 28
ára og er að fara inn í það sem er
talað um að séu bestu árin á fót-
boltaferlinum. Ég þarf að finna gott
lið til að koma mér í gang og hver
veit, kannski verð ég kominn aftur
til Þýskalands á næsta ári?“ segir
Aron þegar Morgunblaðið slær á
þráðinn til hans og truflar hann í
leik við Ölbu, tveggja ára gamla
dóttur sína, á heimili þeirra í Kópa-
vogi.
Þó að Aron hafi ekki náð að sýna
sitt rétta andlit hjá Werder Bremen
ber hann félaginu vel söguna. Það er
helst að hann sé óánægður með
tímabil tvö, veturinn 2016-2017, en
fyrst og fremst gerðu margs konar
meiðsli það að verkum að hann lék
aðeins 9 leiki í byrjunarliði í þýsku
deildinni. Í vetur lék hann aðeins
einn deildarleik vegna ökklameiðsla
sem héldu honum frá keppni í tæpt
ár, fram í miðjan mars síðastliðinn.
Útskúfað einn vetur en fengið
góðan stuðning í meiðslunum
„Félagið gerði allt til þess að
hjálpa mér í meiðslunum og studdi
mjög vel við bakið á mér. Það var
bara á einum tímapunkti, þegar ég
kom til baka eftir mín fyrstu meiðsli
hjá félaginu [árið 2016], ellefu mán-
aða fjarveru, sem ég var ekki nægi-
lega ánægður. Ég spilaði fyrstu þrjá
leikina, þjálfarinn var svo rekinn og
ég var í banni fyrstu tvo leikina hjá
nýjum þjálfara en svo ekki einu
sinni valinn í hóp á leikdegi. Þá tók
við helvíti leiðinlegt tímabil þar sem
ég var eiginlega heill heilsu yfir heilt
tímabil en fékk bara ekkert að spila.
Þetta var rosalega skrýtið. Þjálf-
arinn mætti á fyrstu æfingu og frá
og með henni var ég bara útilok-
aður. Hann vildi losna við mig en ég
vildi ekki fara því ég var sannfærður
um að ég væri nógu góður og betri
en aðrir sem væru að spila þarna, og
sagði honum það bara. Hann gaf sig
hins vegar ekki. Ég man að ég sagði
það við fjölskylduna mína að ég yrði
lengur í Werder Bremen en hann,
og það varð á endanum raunin.
Þarna hefði ég viljað meiri stuðning
frá félaginu. Það kom svo nýr þjálf-
ari og þá byrjaði ég að spila strax,
en meiddist því miður aftur,“ segir
Aron. Hann er einn 13 Íslendinga
sem spilað hafa í efstu deild Þýska-
lands, þó að leikirnir séu aðeins 28.
„Þetta er auðvitað ekki mikið. Fé-
lagið eyddi miklum peningum í mig
á sínum tíma og hafði trú á mér, sem
var vissulega gaman, en þegar mað-
ur lítur yfir þennan tíma og öll þessi
meiðsli þá er þetta dálítið leiðinlegur
tími. En núna eins og áður þá hef ég
fulla trú á sjálfum mér og ég veit að
ef ég hefði verið heill heilsu þá væri
staðan ekki þessi í dag. Þá væri ég
búinn að spila helling af leikjum og
skora helling af mörkum.“
En hve sterka deild gæti Aron
komist í á þessum tímapunkti?
„Vegna minnar meiðslasögu þá
eru kannski ekki mörg félög tilbúin
að taka áhættuna á að fá mig, mann
sem hefur spilað um 30 leiki með
Werder Bremen síðustu fjögur ár.
Það hefur þó eiginlega komið mér á
óvart hve mikill áhugi mér er sýnd-
ur og það gefur mér byr undir báða
vængi. Það er gaman að sjá að mað-
ur sé enn eftirsóknarverður. En það
getur vel verið að ég fari núna til
Skandinavíu og taki sénsinn þar, til
að byggja mig upp aftur.“ Aron hef-
ur fengið mörg tilboð frá félögum í
löndum eins og Kína, Sameinuðu ar-
abísku furstadæmunum og fleirum
þar sem há laun eru í boði fyrir
knattspyrnumenn:
Fáir skilja hvernig manni líður
„Ég er búinn að ýta þessu að
mestu leyti frá mér því eins og ég
segi þá er ég enn aðeins 28 ára. Ef
ég væri 33 myndi ég frekar skoða
það. Mikilvægast fyrir mig er að
finna gott lið þar sem ég er metinn
mikils og mun njóta þess aftur að
spila fótbolta, því það er ekki búið að
vera neitt rosalega gaman að vera
alltaf meiddur eða á bekknum. Ég
þarf að finna hamingjuna aftur í því
að spila fótbolta, og ég held að ég
geri það ekki núna með því að fara
til dæmis til Kína eða Tyrklands.“
Blaðamaður kemst ekki hjá því að
sjá mikil líkindi með ferli Arons og
Kolbeins Sigþórssonar. Báðir röð-
uðu inn mörkum í Hollandi áður en
þeir fengu verðskuldað tækifæri í
sterkari deild en hafa svo sáralítið
spilað síðustu ár:
„Við þekkjumst alveg og spjöllum
einstaka sinnum saman. Við höfum
gengið í gegnum margt svipað, sem
aðrir hafa ekki gengið í gegnum.
Þegar maður hefur verið svona lengi
meiddur þá eru ekki margir í þess-
um fótboltaheimi sem skilja hvernig
manni líður. Fólk heldur alltaf að
það sé bara dans á rósum að vera at-
vinnumaður í fótbolta, en ég get al-
veg lofað því að það að eiga við
svona meiðsli og mótlæti sem þeim
fylgir að stríða er alls ekkert auð-
velt,“ segir Aron alvarlegur, en
verður svo að taka stutt hlé til að
hlæja aðeins með blaðamanni þegar
Alba litla tilkynnir skýrt og skil-
merkilega að hún sé nú búin að kúka
á gólfið. Síðan bætir hann við:
„Það sem mér finnst flott hjá okk-
ur Kolbeini er að við viljum finna
hamingjuna í því að spila fótbolta
aftur. Ég get rétt ímyndað mér að
Kolbeinn hafi líka fengið góð tilboð
frá framandi löndum, þar sem félög-
in eru mikið fjárhagslega sterkari,
en við höfum báðir trú á því sem við
getum og vitum að þegar við erum
heilir þá stöndum við okkur.“
Vil finna hamingjuna
í fótboltanum aftur
Félög víða um heim sýna Aroni áhuga þrátt fyrir erfið ár hjá Werder Bremen
Aron Jóhannsson
» Er 28 ára gamall og skoraði
13 mörk í 37 deildarleikjum hjá
Fjölni áður en hann fór í at-
vinnumennsku 2010, þá 19 ára.
» Skoraði 23 mörk í 65 deild-
arleikjum fyrir AGF í Dan-
mörku, og 29 mörk í 60 deild-
arleikjum fyrir AZ í Hollandi.
» Skoraði 2 mörk í 28 deildar-
leikjum hjá Werder Bremen ár-
in 2015-2019.
AFP
Þýskaland Aron Jóhannsson í leik með Werder Bremen í fyrra, áður en hann meiddist og var úr leik í tæpt ár.
Hvenær er í lagi að fara í
brúðkaup og hvenær er ekki í
lagi að fara í brúðkaup? Þetta
virðist hafa verið vinsælt um-
ræðuefni á kaffistofum landsins
síðustu daga vegna þeirrar
ákvörðunar Hannesar Þórs Hall-
dórssonar að ferðast til Ítalíu í
glæsilegt brúðkaup Gylfa Þórs
Sigurðssonar og Alexöndru
Helgu Ívarsdóttur.
Það er sem sagt ekki nóg
með það að keppni í Pepsi Max-
deild karla í sumar sé eins
skemmtilega ófyrirsjáanleg og
spennandi og hún hefur verið, og
leikirnir margir frábær skemmt-
un, heldur eru núna í deildinni
leikmenn sem hver einasti Ís-
lendingur þekkir og vill taka þátt
í kaffispjalli um. Það held ég að
sé frábært fyrir fótboltann.
Auðvitað vonuðu allir að
innkoma sjálfs landsliðsmark-
varðarins í deildina myndi vekja
meiri áhuga á henni, og ég er
viss um að það hefur gengið eftir
hvort sem áhorfendatölur end-
urspegla það eða ekki.
Flestir virðast styðja Hann-
es í þessu óvenjulega brúð-
kaupsmáli en aðrir gagnrýna
hann og lauma með skoti á ótrú-
lega stöðu Íslandsmeistara Vals,
í fallbaráttu með næstflest mörk
fengin á sig í deildinni. Kannski
væri gagnrýnin minni ef Valur
væri í toppmálum eins og búist
var við fyrir tímabilið, og kannski
væri stuðningurinn minni ef
Hannes hefði ekki átt tvo glimr-
andi sigurleiki með landsliðinu
fyrir brúðkaupið.
Það er að minnsta kosti
gott að í deildinni séu slíkir
stjörnuleikmenn að fólk myndi
sér skoðun á því hvernig þeir
hlúa að sínum meiðslum eða
hvað þeir gera um helgar, en
best væri að slík umræða byggð-
ist á staðreyndum.
BAKVÖRÐUR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is