Morgunblaðið - 21.06.2019, Side 35
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2019
KNATTSPYRNA
HM kvenna
E-riðill:
Kamerún – Nýja-Sjáland ........................ 2:1
Njoya Nchout 57., 90. – Sjálfsmark 80.
Holland – Kanada .................................... 2:1
Anouk Dekker 54., Lineth Beerensteyn 75.
– Christine Sinclair 60.
Lokastaðan:
Holland 3 3 0 0 6:2 9
Kanada 3 2 0 1 4:2 6
Kamerún 3 1 0 2 3:5 3
Nýja-Sjáland 3 0 0 3 1:5 0
F-riðill:
Svíþjóð – Bandaríkin ...............................0:2
Lindsey Horan 3., sjálfsmark 50.
Taíland – Síle ............................................0:2
Sjálfsmark 48., Maria Urrutia 80.
Lokastaðan:
Bandaríkin 3 3 0 0 18:0 9
Svíþjóð 3 2 0 1 7:3 6
Síle 3 1 0 2 2:5 3
Taíland 3 0 0 3 1:20 0
Þessi lið mætast í 16-liða úrslitunum:
Noregur – Ástralía
England – Kamerún
Frakkland – Brasilía
Spánn – Bandaríkin
Ítalía – Kína
Holland – Japan
Þýskaland – Nígería
Svíþjóð – Kanada
KNATTSPYRNA
Inkasso-deild kvenna:
Fífan: Augnablik – Tindastóll ..............18.00
Varmá: Afturelding – Þróttur..............19.15
Extra völlur: Fjölnir – Grindavík ........19.15
Kaplakriki: FH – ÍR..............................19.15
3. deild karla:
Sandgerði: Reynir S. – Álftanes ..........19.00
Valsvöllur: KH – Einherji ....................20.00
GOLF:
Íslandsmótið í holukeppni hefst á Garða-
velli á Akranesi og stendur þar yfir alla
helgina.
Í KVÖLD!
síðasta ári mætir Englandi í sextán
liða úrslitum í Valenciennes á
sunnudag.
Holland tryggði sér toppsæti E-
riðilsins með 2:1-sigri á Kanada í
Reims. Lineth Beerensteyn skoraði
sigurmarkið á 75. mínútu, en hún
kom inn á sem varamaður fimm
mínútum fyrr. Áður hafði Anouk
Dekker komið Hollandi yfir og
Christine Sinclair jafnað fyrir Kan-
ada. Holland er að spila á sínu öðru
heimsmeistaramóti og hefur liðið
farið í sextán liða úrslitin á þeim
báðum. Holland mætir Japan í Ren-
nes á sunnudaginn kemur. Þrátt
fyrir tapið hafnaði Kanada í öðru
sæti riðilsins með sex stig. Fyrir
leikinn hafði Kanada haldið hreinu
fjóra leiki í röð og aðeins fengið á
sig eitt mark í síðustu tíu leikjum.
Sigurmark 11 sekúndum fyrir
leikslok skaut Kamerún áfram
Bandaríkin og Holland unnu einvígi toppliðanna Síle þurfti eitt mark í viðbót
AFP
Tilfinningar Njoya Nchout, hetja Kamerún, fagnar sigurmarkinu og sæti í sextán liða úrslitum af innlifun.
HM 2019
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Bandaríkin tryggðu sér toppsæti F-
riðils á HM kvenna í fótbolta í
Frakklandi með 2:0-sigri á Svíþjóð í
Le Havre í gærkvöldi. Lindsey
Horan skoraði fyrra markið strax á
3. mínútu og síðara markið var
sjálfsmark á 50. mínútu. Með sigr-
inum tryggðu Bandaríkin sér leik
við Spánverja í sextán liða úrslit-
unum og fer hann fram næstkom-
andi mánudag í Reims. Svíþjóð
hafnaði í öðru sæti riðilsins og
mætir Kanada í París á laugardag.
Síle gat tryggt sér síðasta sætið í
sextán liða úrslitunum en til þess
þurfti liðið að vinna Taíland með
þremur mörkum eða meira í Ren-
nes. Staðan var orðin 2:0 eftir 80
mínútur og Francisca Lara fékk
gullið tækifæri til að skora þriðja
markið en hún skaut í stöng úr
vítaspyrnu á 86. mínútu. Þrátt fyrir
mikla pressu náði Síle ekki að
skora þriðja markið og tryggja sér
sæti í sextán liða úrslitunum á sínu
fyrsta heimsmeistaramóti. Bæði lið
því úr leik. Nígería fagnaði úrslit-
unum mest því Afríkuþjóðin er
komin í sextán liða úrslit í annað
skipti í sögunni. Nígería mætir
Þýskalandi í Grenoble á laugardag-
inn.
Mátti ekki tæpara standa
Kamerún tryggði sér sæti í sex-
tán liða úrslitunum á öðru heims-
meistaramótinu í röð með drama-
tískum 2:1-sigri á Nýja-Sjálandi í
Montpellier. Tæpara mátti það ekki
standa, því Njoya Nchout skoraði
sitt annað mark og sigurmarkið ell-
efu sekúndum áður en uppbót-
artíminn var liðinn. Með jafntefli
hefði Kamerún verið á heimleið.
Kamerún hefur farið áfram á báð-
um heimsmeistaramótum sínum til
þessa. Bronslið Afríkukeppninnar á
Knattspyrnukonan Cloé Lacasse
gæti spilað sinn fyrsta landsleik fyr-
ir Ísland gegn Ungverjalandi á
Laugardalsvelli 29. ágúst, þegar ný
undankeppni EM hefst. Alþingi
samþykkti í vikunni lög sem veita
Cloé íslenskan ríkisborgararétt, sem
hún hefur beðið eftir síðustu misseri.
Cloé, sem er fædd og uppalin í
Kanada, er 25 ára gömul og hefur
verið ein af bestu leikmönnum úr-
valsdeildarinnar á Íslandi síðustu ár.
Hún kom til ÍBV fyrir sumarið 2015
og hefur síðan skorað 50 mörk í 73
deildarleikjum auk þess að verða
bikarmeistari 2017. Hún er næst-
markahæst í deildinni í ár með sjö
mörk í sex leikjum. Jón Þór Hauks-
son landsliðsþjálfari sagði í samtali
við Fótbolta.net í gær að Cloé kæmi
„að sjálfsögðu til greina í landsliðið
eins og allir frábærir leikmenn“.
Cloé í landsliðinu í ágúst?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Öflug Cloé Lacasse í leik gegn KR.
Hún hefur skorað 7 mörk í sumar.
Bandaríski leikstjórnandinn Danielle Rodriguez mun
leika með KR á næsta tímabili. Rodriguez er búin að
vera afar sterk með Stjörnunni síðustu ár og var stór
ástæða þess að liðið fór alla leið í undanúrslit um Ís-
landsmeistaratitilinn í körfubolta á síðustu leiktíð.
Stjarnan ákvað hins vegar að draga lið sitt úr efstu
deild til að spila í 1. deild og færði Rodriguez sig því
um set. KR komst einnig í undanúrslit Íslandsmóts-
ins á síðasta tímabili en varð að sætta sig við tap gegn
verðandi meisturum í Val. Rodriguez, sem er 25 ára,
skoraði 25,5 stig, tók 10,9 fráköst og gaf 8,6 stoðsend-
ingar að meðaltali í leik síðasta vetur og var á meðal
bestu leikmanna úrvalsdeildarinnar. Áður hafði KR
krækt í Sóllilju Bjarnadóttur frá Breiðabliki.
johanningi@mbl.is
Rodriguez í Vesturbæinn
Danielle Rodriguez
Smáatriðin
skipta máli
Fáðu sérmenntaðan lýsingarráðgjafa Pfaff í heimsókn án endurgjalds.
Pfaff býður upp á framúrskarandi ráðgjöf í lýsingu viðskiptavinum okkar að kostnaðarlausu.
Lýsingarráðgjafi Pfaff kemur í heimsókn, tekur út lýsingu á heimilinu og bendir á lausnir
sem henta í hverju rými. Hugað er sérstaklega að því hvernig lýsingin kemur út
útlitslega og hvaða birta hentar hverjum aðstæðum.
Vinsamlega pantið tíma í pfaff@pfaff.is
Spænska meistaraliðið Barcelona í
handknattleik, sem Aron Pálm-
arsson leikur með, hefur styrkt lið
sitt vel og krækt í Luka Cindric frá
Kielce í Póllandi. Spænska liðið
keypti Cindric frá pólsku meist-
urunum og skrifaði hann undir
fjögurra ára samning við Barce-
lona.
Aron fær meiri
samkeppni