Morgunblaðið - 26.08.2019, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 26.08.2019, Qupperneq 12
BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Kristján Berg Ásgeirsson, eða Fiski- kóngurinn eins og hann er gjarnan kallaður, í höfuðið á fiskbúð sem hann rekur á Sogavegi í Reykjavík, hefur ferðast vítt og breitt um landið á hús- bíl í sumar og selt heita potta með góðum árangri. Segist Kristján í samtali við Morgunblaðið hafa selt 600 potta á síðasta ári og útlit sé fyrir svipaða og jafnvel meiri sölu í ár. „Ég er búinn að selja heita potta núna í 15 ár samhliða fiskinum. Ég fer gjarnan í „pottagírinn“ um miðjan apríl og er á fullu fram í miðjan októ- ber. Elsti sonur minn rekur fyrir mig Fiskikónginn á sumrin. Ég mæti þangað á morgnana og vinn til 10 en sný mér þá að heitu pottunum,“ segir Kristján. Pottana hefur Kristján selt í gegn- um heimasíðuna heitirpottar.is og í gegnum verslun sína á Höfðabakka 1 við Gullinbrú, auk þess að selja þá í húsbílnum, eins og fyrr sagði. „Ég og eiginkonan vorum búin að eiga þenn- an húsbíl í sex ár, risastóran amer- ískan trukk. Þá byggðum við okkur sumarbústað og hún vildi selja bílinn en ég var tregur til. Niðurstaðan var að ég lét fyrirtækið kaupa bílinn og fékk svo þá hugmynd að leigja mér kerru og fara á bílnum í söluferð til Akureyrar. Svo fór þetta að vinda upp á sig og ég fór að fara í fleiri sölu- ferðir. Nú er þetta eiginlega orðið fullt starf hjá mér.“ Eltir sólina Þegar Morgunblaðið hafði sam- band við Kristján var hann staddur á Ólafsvík. Hann segist sjaldnast vita hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Hann elti sólina, enda er að hans sögn best að selja heita potta í góðu veðri. „Ég er alltaf með sex óselda potta í bílnum þegar ég fer af stað en tek líka pantanir og sel af lagernum. Í gær var ég með fulla kerru af pottum, eða sex potta, en nú eru tveir farnir. Ég er yfirleitt tvo daga að klára pott- ana úr kerrunni.“ Húsbíllinn og kerran eru engin smásmíði, 18 metrar að lengd. „Til samanburðar er gámaflutningabíll með 40 feta gám aðeins 12 metra langur. Það versta við þetta er að ef ég kem heim á bóndabæi eða botn- langa í hverfum er erfitt að snúa við. Ég er orðinn algjör meistari í að bakka bílnum.“ Spurður hvernig hann tekur pott- ana af kerrunni segir Kristján að það sé lítið mál. Hægt sé að nota hafn- arkrana eða ýmis landbúnaðartæki á þeim stöðum sem hann kemur á. „Mér finnst auðveldara að afhenda potta úti á landi en í Reykjavík. Á Ak- ureyri eiga til dæmis allir sína eigin kerru.“ Hefur engu að tapa Hver er skýringin á þessari miklu velgengni að mati Kristjáns? „Ég held ég sé bara eitthvað klikkaður. Maður fær einhverja klikkaða hug- mynd og svo framkvæmir maður hana. Maður hefur engu að tapa.“ Kristján segist ekki vita hver hlut- deild hans á markaðnum er í pottasöl- unni, en segir að salan sé á heims- mælikvarða. „Ég heyrði það að miðað við söluna í okkar einu verslun vær- um við fjórða söluhæsta pottabúð í heiminum, sé horft til sölu í stökum verslunum. Menn sem ég hef hitt frá Bandaríkjunum og Kanada sem eru búnir að vera í tugi ára í þessum bransa hafa ekki heyrt svona tölur áður.“ Kristján segir að vinnudagurinn sé oft langur. „Síðasti viðskiptavinurinn fór út úr bílnum klukkan hálftvö í nótt. Þetta er rosalega skemmtilegt og gefandi starf og það skemmtileg- asta sem ég hef unnið á ævinni. Ég hef selt fisk í 30 ár á sama staðnum en hér ertu að þvælast um landið og hitta fólk.“ Pottarnir sem Kristján selur eru af ýmsum gerðum – rafmagnspottar, hitaveitupottar og jafnvel sundlaug- ar. Þá selur hann ýmsan hliðarbúnað eins og lok, tröppur og hreinsiefni. Pottana kaupir hann frá Kanada, Bandaríkjunum og Kína. „Ég á yfirleitt 250 potta á lager og því er úr nógu að velja. Ég held að engin pottaverslun í heiminum hafi svona stóran lager.“ Kristján er þekkt nafn í íslensku samfélagi. Bæði hefur hann auglýst þjónustu sína af kappi en einnig verið með matreiðsluþætti í sjónvarpi m.a. Hjálpar það ekki til við pottasöluna? „Ég verð alltaf smá hrærður ef fólk þekkir mig en mér finnst það bara skrýtið. Ég hef bara unnið við að selja fisk og það er ekkert merkilegt starf í sjálfu sér. En þetta hefur hjálpað mér. Aðalmálið er að vera maður sjálfur, vera heiðarlegur og koma vel fram,“ segir Kristján að lokum. Selur 600 heita potta á ári  Selur mest í góðu veðri  Ferðast um á húsbíl á sumrin með sex potta í kerru  Sonurinn rekur Fiskikónginn yfir sumartímann  Er með 250 potta á lager Morgunblaðið/Árni Sæberg Sölumaður Ameríski húsbíllinn og kerran eru engin smásmíði, eða 18 metrar að lengd. Kristján er með 250 potta á lager. Heitir pottar » Kristján selur heitavatns- potta, rafmagnspotta, sund- laugar og ýmsan búnað sem tengist pottunum. » Hefur verið fisksali í 30 ár. » Pottarnir koma frá Banda- ríkjunum, Kanada og Kína. Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is Apótekið þitt í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2 Afgreiðslutími: 9-18:30 virka daga 10-16:00 laugardaga Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta. Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og hagstætt verð. • Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur • Frí heimsendingarþjónusta 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. ÁGÚST 2019 Jens Weidmann, bankastjóri þýska seðlabankans, hefur lýst sig andvígan því að kulnun í stærsta hagkerfi Evrópu verði mætt með víðtækum efna- hagslegum örv- unaraðgerðum. Weidmann sagði við Financial Times að ástæðulaust væri að missa stjórn á sér af hræðslu jafnvel þótt stefndi í samdrátt í þýska hagkerf- inu í fyrsta sinn í sex ár. Dróst hag- kerfið lítilsháttar saman á öðrum fjórðungi ársins, aðallega vegna spennu í viðskiptasambandi Banda- ríkjanna og Kína, veiks hagvaxtar á heimsvísu og vegna ótta við afleið- ingar útgöngu Breta úr ESB. Ummæli Weidmanns þykja end- urspegla djúpan klofning meðal leiðtoga helstu hagkerfa heims um hvernig brugðist skuli við merkjum þess efnis að áratugar uppsveiflu í alþjóðahagkerfinu sé að ljúka. Weidmann sagðist leggjast gegn því að Evrópubankinn (ECB) hæfi að nýju veruleg kaup á skuldabréf- um. Hann sagðist einkum og sér í lagi leggjast gegn kaupum á ríkis- verðbréfum vegna þess að þau gætu hulið mörkin milli ríkisfjár- málanna og peningastefnunnar móðu. „Spurningin er hvort nýjar að- gerðir séu nauðsynlegar út frá verðbólguhorfum okkar, sérstak- lega þó ef hjáverkun ykist og skil- virkni minnkaði,“ sagði Weidmann. agas@mbl.is. Andsnúinn örvunar- aðgerðum Jens Weidmann 26. ágúst 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.61 125.21 124.91 Sterlingspund 152.21 152.95 152.58 Kanadadalur 93.51 94.05 93.78 Dönsk króna 18.469 18.577 18.523 Norsk króna 13.852 13.934 13.893 Sænsk króna 12.849 12.925 12.887 Svissn. franki 126.18 126.88 126.53 Japanskt jen 1.1681 1.1749 1.1715 SDR 170.66 171.68 171.17 Evra 137.71 138.49 138.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.5674 Hrávöruverð Gull 1495.5 ($/únsa) Ál 1738.0 ($/tonn) LME Hráolía 60.11 ($/fatið) Brent

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.