Morgunblaðið - 26.08.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.08.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. ÁGÚST 2019 Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is FIGGJO LEIRTAU FYRIR MÖTUNEYTI OG SKÓLA Figgjo er norskt hágæða merki í borðbúnaði Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Lögreglan í Hong Kong greip til þess ráðs að sprauta vatni á mót- mælendur og hleypti einnig af föst- um skotum í fyrsta skipti í sögu mót- mælanna þar. Talsmaður lögreglunnar í Hong Kong, Leung Kwok Win, tjáði fjöl- miðlum að skoti hefði verið hleypt af byssu lögreglumanns. Á fréttavef AFP er haft eftir honum: „Af því er ég best veit þá var það einkennis- klæddur lögreglumaður sem hleypti af skoti.“ Hann upplýsti þó ekki hvort einhver hefði særst í kjölfarið. Almenningur hefur nú mótmælt í þrjá mánuði í Hong Kong. Fyrst um sinn var mótmælt frumvarpi sem ríkisstjóri Hong Kong, Carrie Lam, hugðist leggja fram og hefði heim- ilað framsal afbrotamanna til Kína. Íbúar Hong Kong töldu fyrirætlan- irnar vera skýrt merki um að Kína væri að auka völd sín yfir sjálfstjórn- arhéraðinu og hafa því mótmælt á götum Hong Kong síðan í júní. Með vikunum hafa mótmælin hins vegar þróast út í almenn mótmæli gegn stjórnvöldum í Hong Kong. Stærst- ur hluti mótmælenda eru háskóla- nemar. Mótmælafundur hófst um eftir- miðdaginn í gær í Tsuen Wan-héraði í Hong Kong en aukin harka færðist í mótmælin með kvöldinu. Þá kom til átaka milli mótmælenda og óeirða- lögreglunnar, sem hafði varla hemil á ungum, grímuklæddum mótmæl- endum, vopnuðum steinum og bamb- usspjótum svo fátt eitt sé nefnt. Lögreglan beitti táragasi til að hafa hemil á mótmælunum en sprautaði síðan vatni á mótmælend- ur með slökkvidælum í fyrsta sinn í sögu mótmælanna. Ekki er vitað til þess að neinn hafi særst í þeim átök- um en mannréttindasamtökin Am- nesty International hafa varað við notkun vatnskrana þar sem þeir gætu ógnað öryggi mótmælenda og leitt til enn frekari átaka. Nokkrir særðust í mótmælunum á laugardag en mótmælin halda nú áfram, að liðnu vikuhléi. Fordæma ofbeldið Stjórnvöld í Hong Kong for- dæmdu meint skemmdarverk og of- beldi mótmælenda á laugardag, að því er fram kom í umfjöllun South China Morning Post. Þá hafði AFP eftir 19 ára gömlum kínverskum há- skólanema að honum sýndist það „ekki bera neinn árangur að mót- mæla friðsamlega“. Þá hafa leiðtog- ar stúdentahreyfinga í Hong Kong hvatt námsmenn til að sniðganga fyrirlestra fyrstu tvær vikur skóla- annarinnar sem er nýhafin. AFP Óeirðir Mótmælin í sjálfsstjórnarhéraðinu hafa staðið yfir í um 3 mánuði. Átök í mótmælum í Hong Kong  Lögregla hleypti af föstum skotum í fyrsta skipti í mótmælunum  Hafa nú staðið yfir í þrjá mánuði  Vatni, gúmmíkúlum og táragasi verið beitt hingað til  Mótmæla stjórnvöldum í Kína Javad Zarif, utanríkisráðherra Ír- ans, sótti leiðtogafund G7- ríkjanna, að beiðni Emmanuels Macron, forseta Frakklands. Koma Zarifs var ekki tilkynnt öðr- um þjóðarleiðtogum. Fundinn sóttu einnig leiðtogar Bretlands, Kanada, Þýskalands, Ítalíu, Japan og Bandaríkjanna, að því er fram kemur á fréttavef AFP. Macron bauð Zarif á leiðtoga- fund ríkjanna sjö til þess að draga úr vaxandi spennu milli Írans og Bandaríkjanna en þó er ekki gert ráð fyrir því að utanríkisráðherra Írans muni ræða einslega við Don- ald Trump Bandaríkjaforseta. Leiðtogafundur G7-ríkjanna fór fram um helgina í Biarritz í suð- vesturhluta Frakklands. Leiðtogar Frakklands, Þýskalands og Bret- lands lögðu áherslu á að ræða skógareldana miklu sem nú geisa í Amazon-frumskóginum. Vel fór á með Donald Trump og Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, á morgunverðarfundi leiðtoganna í Biarritz, þar sem spenna á viðskiptamarkaði, út- ganga Breta úr Evrópusamband- inu og skógareldarnir voru til um- ræðu. Áður en Johnson hélt á morgun- verðarfundinn sagði hann Banda- ríkin verða að afnema höft á bresk fyrirtæki, vildu þau gera fríversl- unarsamning við Bretland. Trump segir viðamikinn fríversl- unarsamning við Bretland vera í undirbúningi og eftir morgunverð- arfund leiðtoganna tveggja lofaði hann því að samningurinn yrði af- ar umfangsmikill. veronika@mbl.is Íran óvænt á fund G7-ríkja  Skógareldarnir í Amazon-frumskóg- inum voru á meðal umræðuefna AFP Leiðtogafundur Leiðtogar aðild- arríkja G7 funduðu um helgina. Mexíkóskar maríatsí-sveitir spiluðu á 26. alþjóðlegu hátíðinni „Mariachi and Charro International Festival“ sem haldin var í mexíkósku borginni Guadalajara. Maríatsí-tónlist var á heimsminjaskrá UNESCO árið 2011 lýst „hluti af ósnertanlegum menningararfi mann- kyns“. veronika@mbl.is AFP Fjölmenni á mexíkóskri tónlistarhátíð Minnst sjö létust á Mallorca, þegar tveggja sæta einka- flugvél og þyrla rákust saman á flugi í gær. Sagt er frá þessu á fréttavef breska ríkisútvarpsins (BBC). Slysið varð í nágrenni við Inca, vinsælan ferða- mannastað á norðurhluta eynnar. Fimm hinna látnu voru í þyrlunni en tveir voru um borð í flugvélinni. Mikil mildi þykir að enginn hafi látist á jörðu niðri því erlendir fréttamiðlar greina frá því að brak úr vél- unum hafi fallið nærri mannvirkjum og umferðar- götum. Forseti Mallorca, Francina Armengol, lýsti því yfir að björgunaraðgerðir stæðu yfir á svæðinu en í gær var litlar upplýsingar að fá um hina látnu. SPÁNN Þyrla og flugvél rákust á Slysið varð í ná- grenni við Inca. Ísraelski herinn gerði loftárásir á nokkrar bækistöðvar íranska hersins í Sýrlandi í gær. Ísraelsk yfirvöld hafa lýst því yfir að aðförin hafi verið til þess að sporna við væntanlegri drónaárás Írana. Fréttavefur breska rík- isútvarpsins (BBC) greindi frá þessu. Í kjölfar árásanna sagði forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, herinn ávallt bregðast við árás- artilburðum Írana. Ísraelski herinn lætur vanalega lítið bera á aðgerðum hersins í Sýrlandi en ísraelsk stjórnvöld vöktu athygli á aðgerðunum á laugardag og lýstu því yfir að brugðist hefði verið skjótt við. SÝRLAND Réðust á bækistöðvar Írana Benjamin Netanyahu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.