Morgunblaðið - 26.08.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.08.2019, Blaðsíða 23
DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. ÁGÚST 2019 TWIN LIGHT RÚLLUGARDÍNA Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum alnabaer.is Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HVERSU OFT HEF ÉG BEÐIÐ ÞIG AÐ AKA EKKI AF STAÐ FYRR EN ÉG HEF SETT GLERAUGUN UPP?” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að stíga föstudagsdanssporin. ÉG HEF AUGA FYRIR FEGURÐ TA- DA! SÖNN FEGURÐ ÞARF EKKI AÐ SEGJA „ta-da!” ÉG HEYRÐI ÞETTA! GET ÉG FENGIÐ ÓKEYPIS ÁLEGG Á PÍTSUNA? ALGERLEGA! ALLT SEM ÞÚ VILT Á PÍTSUNA ER ÓKEYPIS! KOMDU MEÐ PÍTSU MEÐ ANNARRI PÍTSU OFAN Á! BJÖRN VAR HRÓKUR ALLS FAGNAÐAR Í MARGMENNI – EN ALLS EKKI UNDIR FJÖGUR AUGU. LÁTTU EINS OG ÉG SÉ NAKIN. Dætur Daníels Ágústs eru: 1) Daníela Daníelsdóttir, f. 2.12. 1989, húðflúrari, búsett í Reykjavík, en móðir hennar er Gabríela Friðriks- dóttir myndlistarmaður. Dóttir Daníelu er Una Guðný, f. 13.7. 2007; 2) Lilja Constance Daníelsdóttir, f. 11.9. 2009, en móðir hennar er Cathy Louise Lapka sem gengur undir listamannsnafninu Kitty von Sometime og er kvikmyndagerðar- kona og sjónlistakona. Alsystir Daníels er Sara Haralds- dóttir, f. 17.4. 1971, leikskólakenn- ari í Reykjavík. Hálfsystkini sam- feðra eru Helga Kristín Haralds- dóttir, f. 24.3. 1968, verkefnastjóri hjá Jónsson og Le’Macks, búsett í Hafnarfirði, og Georg Haraldsson, f. 8.12. 1976, forstöðumaður við- skiptastýringar hjá Iceland Travel, búsettur í Reykjavík. Hálfsystkini sammæðra eru Dýrleif Björk Páls- dóttir, f. 30.3. 1979, landslags- arkitekt, búsett í Reykjavík, og Kristján Páll Pálsson, f. 9.3. 1982, vinnur við umönnun aldraðra á næturvöktum, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Daníels Ágústs eru Harald G. Haralds, f. 1.9. 1943, leik- ari, söngvari og þýðandi, búsettur í Reykjavík, og Guðný Daníelsdóttir, f. 9.3. 1939, endurhæfingarlæknir, búsett í Reykjavík. Daníel Ágúst Haraldsson Guðný Daníelsdóttir endurhæfi ngarlæknir í Rvík Daníel Á. Daníelsson læknir á Dalvík Guðný Kristín Finnsdóttir húsfreyja í Önundarfi rði, á Suðureyri, Ísafi rði og í Rvík Daníel Bjarnason hákarlaskipstjóri í Önundarfi rði, síðar skipasmiður á Suðureyri og Ísafi rði, síðast í Rvík Bjarni Daníelsson fv. óperustjóri og skólastjóri Finnur Bjarnason óperusöngvari á Englandi Daníel Bjarnason tónskáld og hljómsveitarstjóri Friðrik Alexandersson raftæknifr. í Rvík Sigríður Eyrún Friðriksdóttir leik- og söngkona Kristjana Bjarnadóttir húsfr. á Stakkhamri, Miklaholtshr. Guðrún Alexandersdóttir fv. skrifstofumaður, bús. í Ólafsvík Magnús Stefánsson bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, söngvari og fv. alþm. og ráðherra Friðrik Sæmundsson bóndi á Efri-Hólum og víðar í Núpasveit Dýrleif Friðriksdóttir ljósmóðir á Dalvík Guðrún Halldórsdóttir ljósmóðir í Núpasveit Halldóra Friðriksdóttir kennari í Rvík Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja á Hallormsstað S. Björn Blöndal gítarleikari í Ham og fv. borgarfulltrúi Barði Friðriksson skrifstofustjóri og lögmaður VSÍ Margrét Barðadóttir sérkennari í Rvík Barði Jóhannsson tónlistarmaður Magndís Benediktsdóttir húsfreyja í Miklaholtsseli Bjarni Ívarsson b. í Miklaholtsseli, Miklaholtshr., Snæf Sigurbjörg Bjarnadóttir húsmóðir og verslunarmaður í Rvík Haraldur S. Guðmundsson stórkaupmaður í Reykjavík Guðfi nna Magnúsdóttir húsfreyja í Reykjavík Guðmundur Sveinsson verkamaður í Rvík Úr frændgarði Daníels Ágústs Haraldssonar Harald G. Haralds leikari, söngvari og þýðandi í Rvík Ingólfi Ómari segist svo frá:„Skrapp í Skagafjörð og dvaldi þar eina viku og þá varð þessi til um fjallið Glóðafeyki sem mér finnst svo tignarlegt“: Dröngum gyrtur himinhár héraðsjöfur fríði, Glóðafeykir fagurblár fáguð drottins smíði. Svo gerði ég þessa eftir að ég kom suður eitt kvöldið þegar sól- in var að setjast, himindýrðin var svo fögur og veðrið var kyrrt og milt og ládauður sjór: „Skærum logum skýjahöll skreytir himinvegi, aftanblikið baðar fjöll blundar hrönn á legi.“ „Óvænt heimsókn,“ segir Guð- mundur Arnfinnsson á Boðnar- miði. „Sólarlagið í gær var óvenju fagurt, þegar kvöldsólin myndaði breiða geislarák á sjón- um:“ Sólin boðar svefnsins ró senn til viðar hnígur, rauðan borða á djúpið dró, Drottinn á hann stígur. Pétur Stefánsson var líka í sól- skinsskapi: Förum um með friði og spekt, fjarri grimmd og reiði því veðrið er gott og glæsilegt með glampandi sól í heiði. Helgi Ingólfsson yrkir af því tilefni að Trump hætti við heim- sókn sína til Danmerkur þar sem kaup á Grænlandi yrðu ekki rædd: Nú Danir, svo leiðir og lens, lúta, því Trump bremsar skrens. En annars fæst veiði, á Íslandi er heiði seld fyrir sosum 1 pence. Helgi hélt síðan áfram með þeirri athugasemd að gárung- arnir segðu að Trump hefði ætlað að senda 50 cent í Tívolí sem fyrstu útborgun fyrir Grænland: Að Grænlandi gaman vér hentum, í gangsteraklóm samt við lentum. Nú bregðumst við stappi og bófanna rappi: Þeir borga í 50 centum. Indriði Aðalsteinsson segir ekki von á góðu: Bandaríkja djúpt er díki. Djöflast karl þar enn. Vont er þegar voldug ríki velja svona menn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Grænlandi, Baltimore og Flórída

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.