Morgunblaðið - 26.08.2019, Side 27
bíður og verndar það sem er fyrir
aftan þá. Eftir erfiðleika stóran
hluta tímabils gæti sumarið hjá Vík-
ingum orðið ansi gott þegar uppi er
staðið. Takist liðinu að safna stigum
í þeim deildarleikjum sem eftir eru
og vinna FH í bikarúrslitum, er alls
ekki hægt að kvarta í Fossvoginum.
Það er hinsvegar lítið að frétta
hjá Grindavík. Liðið er með einn
sigur í síðustu þrettán og það var
gegn ÍBV. Síðasti deildarsigur gegn
öðru liði en langneðstum og föllnum
Eyjamönnum kom 20. maí á móti
Fylki. Fótbolti Grindavíkur er leið-
inlegur og í þokkabót ekki sér-
staklega árangursríkur. Liðið tefur
oft frá fyrstu mínútu og virðist him-
inlifandi með markalaust jafntefli í
leikjum sem mikilvægt er að vinna.
Grindavík mætir KA á heimavelli í
næstu umferð í leik sem verður
hreinlega að vinnast. Þá verður liðið
að þora að sækja til sigurs, en ekki
bíða eftir andstæðingnum, tefja og
vona það besta. Spili Grindavík ekki
betur á heimavelli sínum í öðrum
úrslitaleik næsta laugardag, er stutt
í að liðið geti farið að pakka saman
og kveðja efstu deild.
johanningi@mbl.is
Endurtekið efni frá 2006
Eyjamenn eru fallnir úr efstu
deild karla eftir afar erfitt sumar í
knattspyrnunni. ÍBV féll síðast nið-
ur síðsumars árið 2006. Merkilegt
nokk þá féll liðið einnig eftir tap fyr-
ir ÍA á Skaganum.
Örlög Eyjamanna gátu varla orð-
ið önnur úr því sem komið var. Eftir
átján leiki, sem var leikjafjöldinn í
gamla Íslandsmótsinu, þá er liðið
aðeins með 6 stig. Það er einfaldlega
allt of lítil uppskera til að eiga
möguleika á að halda sér uppi.
Frammistaða liðsins á laugardag-
inn var örugglega ekki sú versta í
sumar en Skagamenn voru engu að
síður sterkari og sköpuðu sér fleiri
marktækifæri. Erfitt er að átta sig á
því hvar ÍA gæti endað þegar upp
verður staðið. Sigurinn var kær-
kominn fyrir Skagamenn en þeir
eru nú með 25 stig eins og HK. ÍA
gæti enn endað í efri hlutanum ef
vel tekst til í síðustu umferðunum.
Undirritaður fjallaði einnig um
leik liðanna árið 2006 fyrir blaðið.
Þá hafði þjálfari tekið við ÍBV-liðinu
í ágúst sem ekki var mikið látið með
á þeim tíma. Heimir Hallgrímsson
heitir hann og reif hann ÍBV upp í
toppbaráttu nokkrum árum síðar.
Ian Jeffs sem tók við ÍBV á miðju
sumri gæti því þess vegna átt flott-
an feril framundan sem þjálfari.
Hver veit? kris@mbl.is
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Einbeiting Skúli Jón Friðgeirsson skallar boltann einbeittur gegn KA í gær.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. ÁGÚST 2019
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550
progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17.
JAPANSKIR HNÍFAR
Allt fyrir eldhúsið
Hágæða hnífar og töskur
Allir velkomnir
Einstaklingar og fyrirtæki
Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin!
1:0 Ágúst Eðvald Hlynsson 80.
I Gul spjöldErlingur Agnarsson, Dofri
Snorrason (Víkingi), Gunnar Þor-
steinsson, Sigurjón Rúnarsson,
Rodrigo Gómez (Grindavík).
Dómari: Erlendur Eiríksson, 7.
Áhorfendur: 606.
VÍKINGUR R. – GRINDAVÍK 1:0
M
Atli Hrafn Andrason (Víkingi)
Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi)
Davíð Örn Atlason (Víkingi)
Erlingur Agnarsson (Víkingi)
Halldór S. Sigurðsson (Víkingi)
Kári Árnason (Víkingi)
Sölvi Geir Ottesen (Víkingi)
Josip Zeba (Grindavík)
Rodrigo Gómes (Grindavík)
Vladan Djogatovic (Grindavík)
1:0 Einar Logi Einarsson 45.
2:0 Tryggvi H. Haraldsson 62. (víti)
2:1 Gary Martin 72.
I Gul spjöldOran Jackson ÍBV.
I Rauð spjöldEngin.
Dómari: Þorvaldur Árnason, 7.
Áhorfendur: 519.
ÍA – ÍBV 2:1
MM
Hörður Ingi Gunnarsson (ÍA)
M
Óttar Bjarni Guðmundsson (ÍA)
Einar Logi Einarsson (ÍA)
Sindri Snær Magnússon (ÍA)
Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA)
Viktor Jónsson (ÍA)
Felix Örn Friðriksson (ÍBV)
Gary Martin (ÍBV)
I Gul spjöldAndri Fannar Stefánsson,
Iosu Villar, Elfar Árni Aðalsteinsson
(KA), Skúli Jón Friðgeirsson, Arnór
Sveinn Aðalsteinsson (KR).
I Rauð spjöldEngin.
KA – KR 0:0
Dómari: Pétur Guðmundsson, 7.
Áhorfendur: 734.
M
Almarr Ormarsson (KA)
Brynjar Ingi Bjarnason (KA)
Callum Williams (KA)
Iosu Villar (KA)
Finnur Tómas Pálmason (KR)
Kristinn Jónsson (KR)
Skúli Jón Friðgeirsson (KR)
Frakkland
Dijon – Bordeaux .................................... 0:2
Rúnar A. Rúnarsson varði mark Dijon.
Rússland
Rostov – Rubin Kazan............................. 2:1
Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn en
Björn B. Sigurðarson var ekki í hópnum.
Viðar Örn Kjartansson gat ekki verið
með RK vegna samkomulags félaganna.
CSKA Moskva – Akhmat Grozní ........... 3:0
Hörður B. Magnússon lék allan leikinn
með CSKA en Arnór Sigurðs. er meiddur.
Krasnodar – Lokomotiv Moskva ............1:1
Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með
Krasnodar.
Bandaríkin
Portland Thorns – Chicago Red Stars.. 3:0
Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn
með Portland.
Danmörk
Bröndby – AGF ........................................ 0:3
Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
með Bröndby.
Jón Dagur Þorsteinsson var veikur.
SönderjyskE – Midtjylland..................... 0:2
Eggert Gunnþór Jónsson lék fyrstu 57
mínúturnar með SönderjyskE.
Mikael Anderson kom inn á hjá Midtjyll-
and eftir 68 mínútur.
Svíþjóð
Malmö – Djurgården............................... 0:1
Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 55
mínúturnar með Malmö.
Östersund – AIK ...................................... 1:3
Kolbeinn Sigþórsson kom inn á hjá AIK
eftir 82 mínútur.
Norrköping – Helsingborg..................... 5:0
Guðmundur Þórarinsson lagði upp tvö
mörk og lék allan leikinn með N.
Daníel Hafsteins. kom inn á eftir 89 mín.
A-deild kvenna:
Piteå – Rosengård ................................... 1:1
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Rosengård.
Kristianstad – Djurgården..................... 2:0
Sif Atladóttir lék fyrstu 87 mínúturnar
fyrir Kristianstad og Svava Rós Guð-
mundsdóttir fyrstu 77 mín. Elísabet Gunn-
arsdóttir þjálfar liðið og Björn Sigur-
björnsson er aðstoðarþjálfari.
Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn með Djurgården en Guðrún Arnardótt-
ir var á varamannabekknum. Guðbjörg
Gunnarsdóttir er í barneignarfríi.
Örebro – Limhamn Bunkeflo................. 0:1
Andrea Thorisson sat á varamanna-
bekknum hjá LB.
Gautaborg – Linköping .......................... 1:1
Anna Rakel Pétursdóttir lék allan leik-
inn með Linköping.
Noregur
Haugesund – Lilleström ......................... 0:2
Arnór Smárason lék fyrstu 83 mínúturn-
ar með Lilleström.
Viking – Ranheim.................................... 2:2
Samúel Kári Friðjónsson lék allan leik-
inn fyrir Viking. Axel Óskar Andrésson er
frá keppni vegna meiðsla.
Jóhann Berg Guðmundsson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu og leik-
maður Burnley í ensku úrvalsdeild-
inni, neyddist til þess að fara af
velli vegna meiðsla í gær þegar lið-
ið gerði dramatískt jafntefli við
Wolves, 1:1.
Um miðjan síðari hálfleik settist
Jóhann Berg niður fjarri þar sem
boltinn var í leik, hélt um vinstri
fótinn og hristi hausinn. Sem betur
fer gat hann þó gengið óstuddur af
velli og virtist ekki stinga við.
Engar fréttir höfðu borist í gær-
kvöld af því hvers eðlis meiðslin
eru, en Ísland á tvo leiki í undan-
keppni Evrópumótsins 7. og 10.
september.
Án Jóhanns fékk Burnley svo á
sig jöfnunarmark úr vítaspyrnu á
fimmtu mínútu uppbótartíma, en
liðið er með fjögur stig eftir fyrstu
þrjár umferðirnar í úrvalsdeildinni.
Liverpool eitt á toppnum
Það er hins vegar Liverpool sem
á sviðið það sem af er leiktíðinni og
er eina liðið með fullt hús stiga eftir
uppgjör við Arsenal á laugardag.
Liverpool hrósaði þá 3:1-sigri þar
sem Joel Matip kom liðinu á bragð-
ið áður en Mohamed Salah skoraði
tvívegis.
Englandsmeistarar Manchester
City eru hins vegar búnir að skora
flest mörk það sem af er eftir 3:1-
sigur á Bournemouth. Sergio
Agüero skoraði tvö mörk og Ra-
heem Sterling eitt, en hann hefur
nú skorað fimm mörk í fyrstu
þremur leikjunum eða helming
allra marka City.
Á meðan gengur minna hjá
grannliðinu Man. United, sem
klúðraði vítaspyrnu annan leikinn í
röð í 2:1-tapi fyrir Crystal Palace.
Jóhann meiddist og
landsleikir nálgast
AFP
Meiðsli Jóhann Berg Guðmundsson
þurfti að fara meiddur af velli.
eftir tap í slagveðrinu