Morgunblaðið - 26.08.2019, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. ÁGÚST 2019
VIÐTAL
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Það er mikilvægt að ná til yngra
fólks; að þau finni að leikhúsið er fyrir
þau. Þar með eru þau orðin gestir þar
og halda því vonandi áfram fram á
fullorðinsár,“ segir Marta Nordal,
leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar.
Yfirskrift komandi leikárs er „æskan
og unga fólkið“. „Við erum að ná í
áhorfendur framtíðarinnar. Leik-
húsið er auðvitað að glíma svolítið við
það að stærsti hópurinn sem kemur á
sýningar er miðaldra fólk, aðallega
konur. Við þurfum svolítið að skoða
það hvernig við getum náð til þessara
yngri hópa með virkari og fjölbreytt-
ari hætti,“ segir hún.
„Mér finnst líka mikilvægt að
krakkar upplifi þennan miðil. Mér
finnst leikhúsið hafa skýrara hlut-
verki að gegna í nútímanum, sér-
staklega gagnvart börnum, út af sam-
félagsmiðlum. Í leikhúsi ertu
algjörlega í núinu. Börn eru komin
svo mikið út á aðra miðla þannig að
ég held það sé mjög mikilvægt fyrir
þau að upplifa það að vera í lifandi
miðli þar sem maður horfir á raun-
verulegt fólk, getur ekki stýrt at-
burðarásinni eða flýtt sér. Maður
þarf að hvíla í mómentinu. Ég held
það sé mjög mikilvægt veganesti fyr-
ir börn.
Óplægður akur
Við viljum að krakkar finni að leik-
húsið er áhugaverður miðill þar sem
þeir geta skapað og sagt eitthvað. Á
þessu leikári erum við að gefa þeim
rödd. Það er eitthvað sem mér finnst
mjög spennandi og er í raun og veru
nokkuð óplægður akur á Íslandi,“
segir Marta. Leikfélag unga fólksins
er nýtt atvinnuleikhús á Akureyri
fyrir ungt fólk á aldrinum 13-16 ára.
„Með Leikfélagi unga fólksins erum
við að feta okkar fyrstu skref í að gefa
krökkum raunverulega rödd inn í
leikhúsið. Það er spennandi fyrir leik-
húsið að skoða hvað þessi kynslóð
hefur að færa þessum miðli, þessi
kynslóð sem er að upplifa svolítið
aðra hluti en til dæmis ég gerði þegar
ég var yngri. Við sjáum fyrir okkur að
þetta sé vaxandi fyrirbæri og okkur
langar að einbeita okkur að þessu.
Það eru rosalega öflugar fyrirmyndir
úti í heimi sem væri gaman að kynna
sér betur. Sem móðir er ég alltaf að
leita að gæðum í listsköpun fyrir
börn. Maður vill vera metnaðarfullur
fyrir hönd þeirra.“
Leikfélag Akureyrar rekur leiklist-
arskóla sem er opinn öllum grunn-
skólabörnum. Þar eru ekki haldin
inntökupróf heldur er markmiðið að
gefa krökkum kost á því að prófa leik-
list. „Leiklistarnám hjálpar manni í
lífinu þó svo maður leggi leiklist ekk-
ert fyrir sig. Þetta er gaman, þetta
eflir tjáningu og hugmyndaflug.“
Fyrsta verkefni leikársins er sýn-
ingin FML í umsjón Leikfélags unga
fólksins. Verkið, sem var frumsýnt
23. ágúst síðastliðinn, fjallar um það
að vera unglingur í dag með öllum
þeim áskorunum sem því fylgir. Vala
Fannell leikstýrir verkinu. „Hún var
að kenna í leiklistarskólanum og náði
mjög vel til unglingastigsins. Krakk-
ar á þessum aldri eru komnir með
ákveðinn þroska til þess að takast á
við alvarlega hluti. Þeir voru að gera
alvarleg verk í leiklistarskólanum og
mér fannst gaman hvað þeir tóku á
þeim af mikilli alvöru,“ segir Marta.
Næsta verkefni leikfélagsins er
Galdragáttin og þjóðsagan sem týnd-
ist, nýtt barnaverk eftir leikhópinn
Umskiptinga sem byggt er á þjóð-
sagnararfinum. Verkinu leikstýrir
Agnes Wild og verður það frumsýnt í
október. Það segir frá tveimur krökk-
um sem villast inn í heim þekktra
þjóðsagnapersóna þegar þau reyna
að bjarga vini sínum sem féll í galdra-
gáttina. „Verkið er byggt á þjóð-
sagnaarfi Jóns Árnasonar. Það er
gaman að segja frá því að nú er auð-
vitað afmæli Jóns Árnasonar svo
þetta ber upp á skemmtilegan tíma.
Við erum að kynna krökkum þjóð-
sagnaarfinn, þessar helstu fígúrur úr
þessu galleríi þjóðsagnanna.“
Hollt að líta til baka
Stærsta sýning leikársins, rokk-
söngleikurinn Vorið vaknar sem
fjallar um unglinga á 19. öld, verður
frumsýnd í janúarlok. „Það sem er
magnað við þetta verk er að sjá
breytingarnar á samfélaginu. Það er
áhugavert að krakkar skoði sjálfa sig
í ljósi sögunnar. Þarna eru unglingar
sem glíma við sömu tilvistarmál og
krakkar eru að glíma við í dag. Þarna
eru þau að uppgötva kynhvötina,
fyrstu kynlífsreynsluna og kynvit-
undina.“ Verkið fjallar einnig um það
að finnast maður ekki uppfylla ytri
skilyrði sem sett eru af foreldrum og
vonbrigðin sem fylgja því að passa
ekki inn. Marta segir krakka í sam-
tímanum upplifa það sama. „Þú ert að
upplifa lífið, fara úr æskunni yfir í
fullorðinsár og það sem því fylgir.
Ytri skilyrði eru auðvitað mikið
breytt en það er samt þannig að hin
unga kynslóð hvers tíma er alltaf í
einhvers konar andsvari við hina
eldri. Það er áhugavert að sjá það og
ég held það sé hollt að líta til baka.“
Marta segir söngleikinn, sem
byggður er á frægu verki Franks
Wedekinds frá 1891, áhugaverðan í
framsetningu. „Það er skemmtilegt
hvernig þeir setja þetta verk upp í
söngleik.“ Sögusviðið er áfram á 19.
öldinni og söguþráðurinn er enn sá
sami en svo brjótast krakkarnir í
verkinu út í rokktónlist. „Þeir eru
nýja fólkið sem hefur allt aðrar vænt-
ingar til lífsins og allt aðra sýn en þeir
sem stjórna og eru í rauninni and-
stæðan við kerfið. Það er mjög töff
nálgun að tefla saman þessum að-
stæðum.“ Með hlutverk fara tíu ungir
leikarar, sem flestir eru nýútskrif-
aðir. Aðalhlutverkin í Vorið vaknar
eru í höndum Júlís Heiðars Halldórs-
sonar, Þórdísar Bjarkar Þorfinns-
dóttur og Rúnars Kristins Rúnars-
sonar. Edda Björg Eyjólfsdóttir og
Þorsteinn Bachmann fara með hlut-
verk fullorðinna í verkinu.
Áskorun að ná til fólks
Leikfélagið tekur einnig þátt í
gjörningahátíðinni A! sem haldin
verður í október. „Ég hef áhuga á
samruna listforma, framúrstefnu og
tilraunakenndri list. Við tökum virk-
ari þátt en við höfum gert. Það er
skemmtilegt að eiga í samtali við
myndlistina. Mér finnst skemmtilegt
að maður sé að vinna með öðrum
stofnunum, eins og Listasafn Akur-
eyrar, ekki bara innan síns eigin
geira. A! verður áhugaverð alþjóðleg
hátíð með listafólki héðan og þaðan.
Gjörningaformið er svo opið og gefur
svo marga möguleika. Það er mjög
„inspírerandi“,“ segir Marta.
„Helsta áskorunin hér, eins og ann-
ars staðar, er að ná til fólks og kveikja
áhuga. Ég tel að við séum í mikilli
sókn og leikhúsáhuginn er auðvitað
alveg einstakur meðal Íslendinga
þannig það er ekki hægt að kvarta yf-
ir því. En áskorun okkar allra sem er-
um að starfa í listum er að ná í gegn,
ná eyrum fólks, því það er svo mikið
áreiti alls staðar. Svo er alveg morg-
unljóst að við þurfum meira fjár-
magn. Við erum svo langt á eftir sam-
bærilegum stofnunum í Reykjavík
sem er stórskrítið miðað við það hvað
við Menningarfélagið í heild fram-
leiðum mikið. Þetta er barátta sem
maður verður að halda uppi á upp-
byggjandi hátt og er ekkert búin. Það
er okkar að sýna fram á hvað við er-
um mikilvæg.“
Marta er ánægð með síðasta leikár.
„Síðasta ár var ótrúlega flott. Ég er
mjög stolt af því og það bar árangur.
Það var svo sannarlega tekið eftir
okkur svo það var hvetjandi fyrir
mann.“
Leikhúsið mikilvægt veganesti
„Æskan og unga fólkið“ er yfirskrift næsta leikárs hjá Leikfélagi Akureyrar Marta Nordal leik-
hússtjóri segir mikilvægt að ungmenni fái að upplifa leikhúsmiðilinn og skapa innan hans
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Leikhús „Helsta áskorunin hér, eins og annars staðar, er að ná til fólks og kveikja áhuga,“ segir Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar.
Edda Björg
Eyjólfsdóttir
Agnes
Wild
Vala
Fannell
Þorsteinn
Bachmann
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
ULTRA
KATTASANDUR
– fyrir dýrin þín
■■■ Sporast lítið
■■■ Lyktarlaus
■■■ Frábær lyktareyðing
■■■ Náttúrulegt hráefni
■■■ 99.9% rykfrír
■■■ Klumpast vel