Morgunblaðið - 26.08.2019, Blaðsíða 32
Harðfiskvörur okkar hafa þá sérstöðu að vera
kæliþurrkaðar og með prótíninnihald á bilinu 83–88%
Harðfiskur er hollt og gott nasl sem
nauðsynlegt er að hafa með á völlinn
Framleiðandi: Tradex ehf
Eyrartröð 11 | 220 Hafnarfjörður | tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Tilvalinn með
á völlinn
Listasafn ASÍ hefur valið Bjarka
Bragason myndlistarmann til sam-
starfs en safnið kallaði nýverið eftir
tillögum frá myndlistarmönnum
vegna innkaupa og til samstarfs um
sýningahald á næsta ári og bárust
55 tillögur frá 62 listamönnum.
Ákveðið var að kaupa verk af
Bjarka og bjóða honum til sam-
starfs um sýningahald á tveimur
stöðum á landinu á næsta ári.
Bjarki Bragason valinn
af Listasafni ASÍ
MÁNUDAGUR 26. ÁGÚST 238. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Víkingur vann mikilvægan sigur á
Grindavík í slagveðrinu í gærkvöldi
þegar liðin mættust í Fossvoginum
í Pepsí Max-deild karla. Með sigr-
inum lyftir Víkingur sér nokkuð frá
fallsætunum. Er liðið nú fjórum stig-
um á undan Grindavík sem er í næst-
neðsta sæti. KA er þremur stigum
fyrir ofan Grindavík eftir að hafa
fengið stig gegn KR. »26-27
Mikilvægur sigur hjá
Víkingi í slagveðrinu
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Valskonur halda efsta sætinu í
Pepsí-deild kvenna í knattspyrnu
eftir stórsigur á Fylki í Ár-
bænum í gær. Elín
Metta Jensen náði
þeim áfanga í leiknum
að skora sitt 100.
mark í efstu deild.
Valur er með tveggja
stiga forskot sem
fyrr á Íslandsmeist-
arana í Breiðabliki sem
unnu Stjörnuna. Í
neðri hlutanum rétti
KR sinn hlut veru-
lega með sigri í
Keflavík.
»24-25
Sannfærandi hjá topp-
liði Vals í Árbænum
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Skagamaðurinn Gísli Jens Guð-
mundsson er yngsti rakarinn á
Akranesi en engu að síður hokinn
af reynslu eftir að hafa starfað við
iðnina í 29 ár.
Eins og algengt er var Gísli óráð-
inn hvað gera skyldi á yngri árum.
„Ég reyndi fyrir mér á sjónum og í
ýmsum störfum en svo langaði mig
til þess að prófa að vera rakari,
skapa eitthvað, dreif mig suður í
skólann, fékk samning hjá Hár-
greiðslustofunni Permu á Eiðis-
torgi, líkaði vinnan vel og eftir að
hafa starfað í Reykjavík í 17 ár
opnaði ég eigin stofu hér á Akra-
nesi og hef notið þess að vinna á
heimaslóðum undanfarin 12 ár.“
Áður en Gísli opnaði Hársnyrti-
og rakarastofu Gísla réðu Jón
Hjartarson og Hinrik Haraldsson
hárríkjum á Skaganum. Hann at-
hugaði með að fá vinnu hjá rakara-
og hárgreiðslustofunum á Akranesi
og þar sem þær voru ekki tilbúnar
að bæta við sig fólki á þeim tíma
ákvað hann að fara út í sjálfstæðan
rekstur. „Ég var orðinn leiður á því
að keyra nær daglega í bæinn á
morgnana og heim á kvöldin og
taldi að nægt rými væri fyrir þriðja
hjólið hérna. Það reyndist rétt og
það hefur verið æðislegt að hafa
þessa eldri rakara í næsta ná-
grenni. Ég get ekki hugsað mér að
þeir fari að hætta enda er þessi þrí-
hyrningur svo menningarlegur og
skemmtilegur.“
Tvær flugur í einu höggi
Það sem helst skilur rakarastofur
frá hárgreiðslustofum er að menn
koma almennt beint inn af götunni
á rakarastofu án þess að panta
tíma, þótt pantanir séu líka í heiðri
hafðar. Margir koma eingöngu til
þess að spjalla, hanga á húninum á
morgnana þar til opnað er, fá sér
kaffisopa og leggja línurnar fyrir
daginn. „Svona er þetta á rakara-
stofum víða um heim og þessar
samræður og rökræður gera starfið
og lífið bara skemmtilegra,“ segir
Gísli. Diana Carmen Lorenz vinnur
hjá honum og því er stofan jafn-
framt hárgreiðslustofa. „Þannig
sláum við tvær flugur í einu höggi,“
segir sundmaðurinn fyrrverandi og
núverandi hjólreiðamaður í frí-
stundum.
Myndir af Elvis Presley og gítar
með eiginhandaráritun snillingsins
hanga á vegg á stofunni. „Ég spila
á gítar, á þrjá gítara, og þar sem ég
var með myndirnar af goðinu í
tengslum við hárvörur sem ég sel
fannst mér tilvalið að láta áritaðan
gítarinn hanga við hliðina,“ segir
Gísli. Áritunin er reyndar ekki
handskrifuð heldur fengin á netinu,
svo því sé haldið til haga. „Það
kemur fyrir að menn taki lagið á
meðan þeir eru að bíða eftir klipp-
ingu og ég á það til að syngja og
spila afmælissöng þegar afmælis-
börn koma til mín í tilefni tímamót-
anna. Annars leik ég mest fyrir
sjálfan mig.“
Morgunblaðið/RAX
Rakarinn Skagamaðurinn Gísli Jens Guðmundsson spilar og syngur fyrir viðskiptavini ef vill.
Spilar og syngur fyrir
viðskiptavini á Skaganum
Þríhyrningurinn skemmtilegur og menningarlegur