Morgunblaðið - 23.08.2019, Page 2
H
eilsan er okkur flestum töluvert dýrmæt þótt við áttum
okkur kannski ekki á því fyrr en örlítið seint á lífsleiðinni.
Flest komumst við upp með að fara illa með okkur fyrstu
30 árin eða svo, en hjá flestum kemur einhvern tímann
að skuldadögum. Svo er það oft ekki fyrr en eitthvað fer
að „bila“ sem við neyðumst til að skipta um gír.
Við klípum af svefntímanum, hreyfum okkur ekki nægilega mikið,
fáum matinn okkar inn um bílrúður, drekkum of mikið, tökum alls konar
töflur og dót sem eru ekki lyfseðilsskyld og keyrum okkur út því það er
svo gaman að vera til. Ef við værum splunkunýr bíll myndum við aldrei
böðlast svona á honum. Við myndum þrífa
hann reglulega, fara með hann í skoðun,
gæta þess vel að hann yrði aldrei olíu-
laus og við myndum passa að það
yrði ekki þjösnast á honum.
Þótt við séum öll búin til á sama
hátt þá er mannslíkaminn misjafn-
lega byggður. Sumir þola allt og
geta jafnvel drukkið lítra af landa
á hverjum degi í 60 ár án þess að
láta á sjá meðan aðrir geta ekki
borðað rjómasósu á jólunum án
þess að fá í magann.
Það væri náttúrlega miklu auðveldara
að vera til ef það fylgdu bara leiðbeiningar
með manneskjunni og hausinn væri þannig innstilltur að hann færi eftir
þeim. Hann væri ekki stöðugt að gera eitthvað sem hann veit að er ekki
gott fyrir hann. En manneskjan er mannleg, ekki vélmenni, og þess
vegna stendur hún alltaf frammi fyrir alls kyns áskorunum.
Ég fór til fagaðila í sumar til að skoða hvort það væri eitthvað í eigin
heilsu sem mætti bæta og kom út með þær upplýsingar að ég þyrfti að
slaka örlítið meira á. Ég fékk það uppáskrifað að lesa í klukkutíma á
dag, yrði að hugleiða og fara á jóga nidra-námskeið. Þegar ég kom
heim var ég uppveðruð og þegar ég ræddi þetta við manninn minn
sagði hann: „Þetta eru býsna góðar fréttir. Ég hefði samt alveg getað
sagt þér þetta frítt,“ sagði hann og brosti.
Í kjölfarið fann ég jóganámskeið og lagði til að við sambýlisfólkið fær-
um saman. Yfir mig keyrði langur spurningavagn þar sem ég þurfti að
svara því hvernig þetta jóganámskeið yrði nákvæmlega, hver atburða-
rásin yrði, hvernig húsnæðið væri, í hverju hann ætti að vera, hvort
hann mætti vera með gleraugu í tímanum eða ekki. Ég svaraði á þá leið
að ég gæti ekki svarað neinum af þessum spurningum þar sem ég
hefði aldrei farið á svona nidra-jóganámskeið. Á einhvern óskiljanlegan
hátt samþykkti hann að koma með mér og nú erum við búin að fara í
þrjá tíma.
Eftir fyrsta tímann vorum við hugsi. Hann var frekar stífur og skildi
ekki alveg hvers vegna við hefðum borgað fyrir að hlusta á sofandi fólk í
leikfimisal í öðru póstnúmeri. Ég var ekki alveg að tengja heldur enda á
ég erfitt með að slaka á. Mér hefur oft þótt betra að hafa allt á útopnu.
Í tíma tvö náði ég slökun sem ég hafði ekki náð áður og hugsaði með
mér að þetta gæti nú kannski verið eitthvað. Maðurinn minn var ennþá
á sama stað og eftir fyrsta tímann. En svo rann þriðji tíminn upp og ég
var alveg viðbúin því að minn góði maki myndi nú bara kasta inn hand-
klæðinu. Þegar ég minntist á það sagðist hann ekkert vera hættur á
þessu námskeiði. Fólk sem byrjaði á einhverju færi alla leið og kláraði.
Fólk stæði við sitt.
Í þriðja tímanum gerðist eitthvað. Ég náði að sofna ekki en fara í
gegnum alla slökunina og fann hvernig líkaminn
dofnaði upp. Maðurinn minn tengdi betur en í
tveimur fyrstu tímunum.
Á næstu sjö vikum mun svo koma í ljós hvort
jóga nidra breytir lífinu eða ekki. Við erum
allavega á einhverri vegferð sem er örugg-
lega mjög slakandi og góð fyrir okkur. Svona
þangað til eitthvað annað gerist.
og hefur þarfnast mikilla endurbóta, öll mín innkaup
hafa því að mestu farið í endurgerð á húsinu. Eitt af því
sem ég keypti fyrir heimilið var glæsilegt antíkborð-
stofusett frá síðustu aldamótum sem smellpassar inn í
húsið.“
Hvað skiptir mestu máli í lífinu?
„Sem móðir þriggja barna skiptir mig mestu máli að
börnunum mínum líði vel, að þau fái sem heilbrigðast
uppeldi og hæfileikar þeirra fái að njóta sín. Ég
reyni eftir fremsta megni að vera góð fyrirmynd,
en auðvitað má alltaf gera betur.“
Hver er uppáhalds-
hönnuðurinn þinn?
„Ég á mér engan
uppáhaldshönnuð, ég
fell meira fyrir gæða-
efnum og fallega snið-
inni flík.“
Hver er uppáhalds-
ilmurinn?
„Uppáhalds-
ilmurinn minn er
Patchouli Patch frá
L’artisan sem ég hef
notað í mörg ár. Ég
elska líka sjávarilm og
ilm af góðu kaffi.“
Hver er besti dagur
lífsins?
„Það hafa verið svo
margir bestu dagar
lífs míns, en ætli ég
verði ekki að segja
dagarnir þegar börnin
mín fæddust.“
Hver er tilgangur
lífsins?
„Þegar stórt er
spurt er fátt um svör.
En ef ég á að reyna að svara þessari spurningu væri það
líklega að reyna að njóta augnabliksins og gera það besta
úr þessu eina lífi sem við höfum.“
Hvað fleira er í uppáhaldi?
„Ítalía hefur alltaf verið uppáhaldslandið mitt enda
ekkert land sem ég hef heimsótt jafn oft um ævina. Lest-
ur góðra bóka er líka í uppáhaldi hjá mér, sér í lagi bók-
mennta frá síðustu og þarsíðustu öld.“
Vigdís Rún hefur
tekið húsið sitt á
Akureyri fallega í
gegn.
Vigdís Rún
keypti sér tvö
pör af fallegum
eyrnalokkum á
Ítalíu. Annað
parið keypti
hún í Feneyjum
og hitt í Flórens.
Vigdís Rún er fagurkeri
sem kann vel við að hafa
fallega hluti í kringum sig.
H
vað er það fallegasta sem þú átt?
„Börnin mín eru svo sannarlega það fal-
legasta sem ég á, og líka kötturinn minn
sem er mér mjög kær.“
Hvað skiptir mestu máli þegar heilsan er
annars vegar?
„Varðandi heilsuna þá tel ég mataræðið skipta mestu
máli. Ég hef alla tíð verið meðvituð
um hollt mataræði og borða
alla jafna mjög hollt fæði,
helst lífrænt. Því miður
er ég alltof löt við að
hreyfa mig en mér
finnst fátt betra en
að slaka á í sundi og
gufu eftir annasam-
an dag.“
Hvað keyptir þú
þér síðast?
„Ég var að koma
úr dásamlegu sumar-
fríi þar sem ég ferðaðist
um hálfa Ítalíu og þar
keypti ég mér tvö pör af fal-
legum eyrnalokkum; eitt par í
Feneyjum og annað í Flórens.“
Hver er uppáhaldssnyrtivaran?
„Uppáhaldssnyrtivaran mín er rósavatn frá
Jurtaapótekinu sem er alltaf í veskinu mínu. Dr.
Hauschka-vörurnar eru líka í miklu uppáhaldi hjá
mér en ég hef nánast eingöngu notað þær síðast-
liðin 15 ár. Maskari er líka ómissandi fyrir mig og
ef ég vil vera sérstaklega fín set ég á mig rauðan
varalit.“
Hver er uppáhaldsmorgunmaturinn?
„Ég byrja alla daga á að fá mér sítrónuvatn og
espresso. Ef ég vil gera vel við mig fæ ég mér
gríska jógúrt með ávöxtum og hnetum en um helg-
ar fæ ég mér kaffi og croissant.“
Hvað skiptir mestu máli þegar kemur að heilsunni?
„Góður svefn og vatnsdrykkja gera kraftaverk fyrir
mig. Jákvæðni, bros og fallegar hugsanir gera lífið líka
skemmtilegra fyrir alla, mann sjálfan og fólkið í kringum
mann.“
Hvað keyptir þú síðast fyrir heimilið?
„Ég keypti dásamlega fallegt hús í innbænum á Ak-
ureyri fyrir einu og hálfu ári. Húsið var byggt árið 1903
Fagurkerinn Vigdís Rún er menntaður listfræðingur frá
Háskóla Íslands og býr nú á Akureyri þar sem hún starfar
sem menningarfulltrúi á Norðurlandi eystra.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Vigdís Rún keypi hús í innbænum
á Akureyri fyrir einu og hálfu ári
síðan. Húsið var byggt árið 1903.
Vigdís Rún ásamt syni
sínum Jón Kiljan Scheving.
Fagurkeri sem
setur fókus á mat
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is, Elínrós
Líndal elinros@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttirkata@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina tók Árni Sæberg.
Ljósmynd/Thinkstock
„Ég hefði getað
sagt þér þetta frítt“
Marta María Jónasdóttir
AFP