Morgunblaðið - 23.08.2019, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
Betri líðan í hálsi og baki undir leiðsögn sjúkraþjálfara.
Frábær aðstaða og góður tækjasalur á Bíldshöfða 9.
Upplýsingar og skráning á www.bakleikfimi.is
Bakleikfimi
Hefst 5. september
H
vað gerir þú til að huga að heilsunni?
„Fyrir átta árum var ég tíu kílóum
þyngri en ég er í dag og hreyfði mig ekki
markvisst. Þá áttaði ég mig á því að ég
þyrfti að taka til í lífsmynstri mínu og bæta
svefn, mataræði og hreyfingu. Fyrsti sigurinn var að
klára mitt fyrsta maraþon í Kaupmannahöfn sex mán-
uðum síðar. Þá kynntist ég í kjölfarið KR-skokki og fór
að mæta á æfingar hjá þeim.“
Hvað þýðir góð heilsa fyrir þig?
„Góð heilsa þýðir vellíðan og grunnur að góðu lífi. Lík-
aminn okkar er ökutækið sem við keyrum á gegnum lífið
og ef hann er ekki í lagi verður ferðalagið ekki eins
ánægjulegt.“
Hvað borðar þú daglega?
„Fyrst og fremst reyni ég að borða reglulega og byrja
daginn yfirleitt á hafragraut í morgunmat. Ég fæ mér
eitthvað létt í hádeginu og hef verið að þróa síðustu ár að
borða minna af kjöti og kvöldmaturinn því yfirleitt
grænmetisréttur. Ég hef mikið dálæti á indverskri mat-
argerð sem hentar vel grænkerum og eru kvöldmáltíð-
irnar oftar en ekki með indversku ívafi.“
Hvernig æfir þú?
„Ég er svo heppinn að hafa uppgötvað KR-skokk sem
er hlaupahópur sem hleypur þrisvar í viku frá KR heim-
ilinu. Þar matreiða þjálfararnir Haraldur, Margrét og
Þorlákur gómsætar æfingar og skemmtilegt fólk mætir
úr öllum áttum og við eigum frábæra stund saman.“
Hvernig hugsarðu?
„Ég reyni að temja mér jákvætt hugarfar og láta ekki
mótlæti hafa of mikil áhrif á hugsanirnar. Að hlaupa
maraþon er góð æfing fyrir hausinn því að þrátt fyrir
góðan undirbúning vill hausinn oft byrja að stríða manni
upp úr 30 km. Þá segir maður við sjálfan sig: „bara einn
km í viðbót“ og hugurinn lætur til leiðast og markið birt-
ist áður en varir.“
Hvað gerir þú til að verða besta útgáfan
af þér daglega?
„Góður svefn er undirstaðan að deginum. Ég mæli
svefninn og vinn þannig markvisst að því að hafa hann
góðan. Ég reyki ekki, neyti ekki áfengis og reyni að
borða hollan mat og hef þannig heilbrigðan grunn til að
takast á við verkefni dagsins. Ég var í markþjálfun í tvö
ár hjá Erni Haraldssyni snillingi. Í gegnum markþjálf-
unina lærði ég heilmikið um sjálfan mig og fékk í hend-
urnar aðferðir við að þróa og bæta sjálfan mig.“
Hvað ætti fólk að hafa í huga um helgina?
„Bara að muna að mæta með bros á vör með alla fjöl-
skylduna í Reykjavíkurmaraþonið um helgina og eiga
frábæran dag með öðrum hlaupurum.“
„Er alltaf að þróa
og bæta mig“
Erlendur Steinn er tölvunarfræðingur og fjögurra barna faðir
í Vesturbænum. Hann er á leið í sitt fimmta maraþon í Berlín í haust
og verður hraðastjóri í Reykjavíkurmaraþoninu um helgina.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Erlendur Steinn
verður hraðastjóri í
Reykjavíkurmara-
þoninu um helgina.
Hann hleypur hálft
maraþon á tveimur
klukkustundum.
Hvað gerir þú til að huga að heilsunni?
„Ég reyni fyrst og fremst að gera það sem veitir mér ánægju því
ég held að það sé grundvöllurinn fyrir stöðugri ástundun. Ég fæ
mikla ánægju út úr því að fara á skíði, í fjallgöngur, að hlaupa og
fara í golf. Í raun hef ég gaman af hvers kyns útivist. Ég var í hesta-
mennsku á tímabili og það má segja að það sé fjölskyldusportið sem
ég stefni á að taka upp aftur í framtíðinni.
Það er líka mikilvægt að borða fjölbreyttan og hollan mat. Ég hef
ekki trú á of miklum öfgum í þeim efnum en það er svo sem bara
einstaklingsbundið hvað virkar best. Amma mín sem var jógakenn-
ari kenndi mér að hlusta vel á líkamann þegar kemur að því hvað
maður borðar. Líkaminn kallar á þau efni sem hann þarf. Ég hef
haft það að leiðarljósi.“
Hvað borðar þú daglega?
„Ég borða oftast hafragraut með chia-fræum á morgnana. Dag-
urinn verður bara miklu betri. Ef ég borða fulla máltíð í hádeginu
fæ ég mér bara eitthvað létt á kvöldin eða öfugt. En ég reyni að
borða eina góða máltíð á dag. Mér finnst skipta miklu máli að borða
fjölbreytilegt fæði.“
Hvernig æfir þú?
„Á veturna fer ég í ræktina eftir vinnu og þá helst í tíma hjá
Védísi og Ásu Valgerði í World Class á Seltjarnarnesi, þær eru bara
algjörir snillingar. Miklar fagmanneskjur báðar tvær og æfingarn-
ar hjá þeim þess vegna alveg frábærar. Saman við þetta blanda ég
jógatímum hjá Þór, hann er með hot-jóga í bland við hugleiðslu. Það
er dásamlegt að enda vinnuvikuna í slökun og hugleiðslu. En þegar
snjór er í fjöllum og hægt að fara á skíði, þá er það í algjörum for-
gangi hjá mér.
Við erum svo heppin hér á höfuðborgarsvæðinu að það tekur ekki
nema um það bil hálftíma að skutlast upp í fjall og á skíði eða fara í
gönguferðir upp um fjöll og firnindi. Þvílík dásemd.
Á sumrin reyni ég að synda, hlaupa, ganga á fjöll og stunda
líkamsrækt utan dyra eins og hægt er.“
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
„Mikilvægt
að hafa góðan
húmor “
Sirrý Hallgrímsdóttir verkefnastjóri hefur mikla ánægju af
því að fara á skíði, í fjallgöngur, að hlaupa og í golf.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is