Morgunblaðið - 23.08.2019, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari
upplýsingar um lyfið á serlyfjaskra.is.
Haltu þínu striki!
Harpatinum við gigtar- og liðverkjum.
Bætir hreyfigetu og dregur úr stirðleika.
Fæst án lyfseðils í næsta apóteki Viðurkennt af Lyfjastofnun
finnst geggjað að vinna í heitum sal, það hefur svo góð
áhrif á líkamann, ég get ekki beðið eftir keyra þetta í
infra-hitanum í Hreyfingu í haust.“
Þegar Anna er spurð fyrir hvern þessir tímar séu seg-
ir hún að þeir séu fyrir alla sem vilja komast í form lífs
síns.
„Infra power er fyrir konur og karla sem eru óhrædd
við að taka vel á og vilja komast í toppform, tímarnir eru
krefjandi en hver og einn stjórnar sínu álagi. Infra shape
er fyrir konur og karla, byrjendur sem lengra komna,
sem vilja einblína á styrktar- og liðleikaæfingar o.fl, það
er aðeins mildara en infra power. Infra barre er fyrir
konur sem vilja hið geysivinsæla barre-æfingakerfi í
infraheitum sal. Það klikkar ekki.“
Anna hefur kennt leikfimi í tvo áratugi og veit manna
best hvernig líkamsrækt fólks breytist.
„Líkamsræktin fer vissulega í ákveðna hringi en mér
finnst þróunin vera sú að fólk vill stytta æfingarnar og
nýta tíma sinn í ræktinni í botn. Lyftingar, HIIT-þjálfun
(high intensity interval training), hot yoga,
barre, hreyfiþjálfun (mobility) og fleira er
mjög vinsælt í dag og margir tímar og
æfingakerfi farin að samtvinna þessa
þætti til að ná hámarksárangri eins
og infra power sem er að hefjast hjá
okkur í Hreyfingu 2. september,“
segir hún.
Hvernig er best að borða á
svona námskeiðum?
„Við erum alltaf boðin
og búin að ráðleggja fólki
varðandi mataræðið en
það er ekki lögð sérstök
áhersla á það á þessum
námskeiðum. Fólk fær samt
aðgang að miklum fróðleik
og góðum uppskriftum
sem það getur nýtt sér. Við
erum með önnur námskeið þar
sem meiri áhersla er lögð á mat-
aræðið ef fólk vantar meiri aðstoð
þar.“
Íslenska þjóðin er oft ginn-
keypt fyrir skyndilausnum í
mataræði. Einn daginn er
sykur verkfæri djöfulsins og
hinn daginn eigum við að
dæla í okkur fitu með ketó-
mataræði. Er eitthvað af
þessu sem þér finnst virka
best?
„Hjá mér eru engin boð og
Þ
etta er það allra heitasta í dag. Ég fór til Las
Vegas í vor að kynna mér þessa tíma eftir að
hafa séð myndband með Jennifer Lopez og
Arod sem sögðu að þetta væri besta æfinga-
prógramm sem þau hefðu kynnst. Þau voru
svo hrifin að Arod fjárfesti í æfingakeðjunni sem er búin
að opna margar stöðvar í Las Vegas, Flórída, víðar í
Kaliforníu og er að opna fljótlega í New York og víðar.
Tímarnir eru kenndir í infra-heitum sal sem hefur frá-
bær áhrif á líkamann. Hann mýkir skrokkinn, liðkar og
endurnærir og fólk er berfætt á sinni dýnu. Við munum
bjóða upp á þrjú mismunandi námskeið með ólíku erfið-
leikastigi en þetta er í rauninni sambland af hot yoga,
bootcamp og styrktarþjálfun með ketilbjöllum og lóðum.
Þetta er einfaldlega mesta snilld sem ég persónulega hef
prófað í langan tíma,“ segir Anna.
Hvernig eru tímarnir byggðir upp?
„Infra power-tímarnir hefjast á jógaflæði, hreyfiteygj-
um og léttum styrktaræfingum með eigin líkamsþyngd
til þess að undirbúa líkamann
fyrir átökin. Við taka svo kröft-
ugar lotur með styrktaræfing-
um með ketilbjöllum, kjarna-
þjálfun og stuttum þol-lotum.
Hver og einn vinnur á sínum
hraða og stjórnar sínu álagi all-
an tímann. Tónlistin og stemn-
ingin er geggjuð. Fólk klárar
sig alveg en endurnærist um
leið,“ segir hún.
Anna segir að iðkandinn fái í
raun allan pakkann í þessum
tíma því um sé að ræða styrkt-
arþjálfun, aukna hreyfigetu, liðleika, þol, brennslu og
aukinn eftirbruna sem kalli á toppárangur eins og hún
orðar það.
„Ég elska æfingakerfi sem eru fjölbreytt, skemmtileg
og árangursrík. Það eru allir tímabundnir og því snilld að
geta mætt í 50 mínútna tíma og upplifað eins og maður
sé búin að haka í öll boxin og endurnæra líkamann. Mér
bönn og allir „kúrar“ skammtímalausn að mínu mati. Ég
er alls ekki hrifin af því. Ég trúi á fjölbreytni í mataræði,
borða almennt hollt og gæta að skammtastærðunum.
Það hefur alla tíð virkað best fyrir mig. Hver og einn
þarf að finna hvað virkar best fyrir sig en hinn gullni
meðalvegur er oftast bestur til lengdar.“
Hvað borðar þú á venjulegum degi?
„Hefðbundinn dagur hjá mér hefst yfirleitt á hafra-
graut með berjum eða rúsínum. Svo fæ ég mér eitthvert
létt millimál um klukkan 10.30, banana, egg, epli eða eitt-
hvað í þeim dúr, því ég kenni alltaf hóptíma í hádeginu
og mér finnst óþægilegt að borða of mikið rétt fyrir tím-
ann en samt nauðsynlegt að fá smá orku. Í hádeginu er
misjafnt hvað ég fæ mér en gott salat eða góður þeyting-
ur í skál með granóla og berjum er oft á boðstólum. Þeg-
ar ég kem heim úr vinnunni fæ ég mér stundum ristað
brauð með lárperu eða sker niður ávexti fyrir okkur
krakkana eða við skellum í góðan þeyting. Ég viðurkenni
að stundum læðist ég í smá súkkulaði á þessum tíma-
punkti en ég reyni að fá mér bara smá. Kvöldmaturinn
er mjög fjölbreyttur hjá okkur en við borðum
hefðbundinn heimilismat sem við reynum að
hafa í hollari kantinum með fullt af grænmeti.
Ég fæ mér yfirleitt eitthvert smá kvöldsnarl,
sérstaklega dagana sem ég kenni tvo eða þrjá
tíma, sem er nánast alla daga.“
Hefurðu prófað að fasta?
„Nei, í rauninni ekki, eina sem ég hef próf-
að er að borða ekkert í svona 14 tíma eða frá
svona 21.00-11.00, mér finnst
það alveg fínt af og til en
það virkar ekki fyrir
mig alla daga. Ég
veit um marga sem
fasta alveg upp í 17
tíma og finnst það
virka frábær-
lega fyrir
sig. Ég hef
aldrei próf-
að að fasta í
nokkra daga
og það er
ekki á döf-
inni hjá
mér.“
AFP
Æfingar
Jennifer Lopez
mættar í
Hreyfingu
Anna Eiríksdóttir, deildarstjóri í Hreyfingu, kennir á
splunkunýju námskeiði í haust sem byggt er á
æfingakerfi Jennifer Lopez. Um er að ræða æfingar
í heitum sal og getur fólk valið þrjú erfiðleikastig.
Marta María | mm@mbl.is
„Ég elska æfingakerfi
sem eru fjölbreytt,
skemmtileg og árangurs-
rík. Það eru allir tíma-
bundnir og því snilld að
geta mætt í 50 mínútna
tíma og upplifað eins og
maður sé búinn að haka
í öll boxin og endurnæra
líkamann.
AFP
Jennifer
Lopez er í
fantaformi.
Anna Eiríksdóttir,
deildarstjóri hóp-
tíma í Hreyfingu, er
ekki hrifin af öfgum.