Morgunblaðið - 23.08.2019, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
Nánari uppýsingar um námið gefur Esther Helga Guðmundsdóttir
esther@mfm.is | s 699 2676 | www.infact.is/about
Lærðu af níu helstu sérfræðingum í rannsóknum og meðferðum
við sykur/matarfíkn á heimsvísu! Námið hefst 7. september 2019.
Esther H. Guðmundsdóttir
MSc. (Ísland)
Stjórnandi MFM, Meðferðar-
og fræðslumiðstöðvar fyrir
matarfíkn og átraskanir
Phil Werdell
MA (USA)
Meðstofnandi og stjórnandi
SHiFT – Recovey by Acorn;
og höfundur “Bariatric
Surgery and Food Addiction”
Marty Lerner
Ph.D. (USA)
Stjórnandi Milestones in
Recovery, meðferðarstöðvar
fyrir átraskanir og matarfíkn,
rithöfundur og fyrirlesari
Vera Tarman
MD (Canada)
Höfundur “Food Junkies:
The Truth About Food
Addiction” og yfirlæknir
Renascent Treatment Center
Bitten Jonsson
(Sweden) Sérfræðingur í
greiningum og meðferðum
við sykur/matarfríkn,
þróunarstjóri SUGAR
greiningartækisins
Theresa Wright
MS (USA)
Stofnandi og stjórnandi
Renaissance Nutrition
Center og næringar-
sérfræðingur
Mary Foushi
(USA) CFA, CENAPS,
höfundur og meðstofnandi
SHiFT – Recovery by Acorn,
meðferðarprógram við
matarfíkn
Nicole Avena
Ph.D. (USA)
Gestafyrirlesari, vísindakona
og höfundur “Why Diets Fail
(Because You’re Addicted
to Sugar)”
Robert Lustig
M.D. (USA)
Gestafyrirlesari, vísinda-
maður og höfundur
“Fat Chance: Beating the
Odds Against Sugar”
INFACT Vottað nám sem matarfíkniráðgjafiá aðeins sjö mánuðum.
INFACT er fjölþjóðlegur skóli sem býður uppá nám í ráðgjöf og meðferðum við sykur/matarfíkn.
Námið fer fram með fjarfundabúnaði og 5 daga staðarlotum á Íslandi eða Kanada.
Dr. Marty Lerner sálfræðingur og sérfræðingur í meðferðum við átröskunum og matarfíkn,
verður með námskeið í tengslum við Infact námið 4.-5. nóvember 2019.
ing. Þegar við neytum erum við að afneita. Þegar við erum
að næra þá erum við að færa okkur nær okkur og vilja,
valda, elska.“
Hver er grundvallarmunur á þeim sem neyta og næra?
,,Þeir sem næra sig vilja sig, þeir sem neyta vilja sig
ekki, afneita. Við verðum valfær, fullvalda og í ljósinu þeg-
ar við nærum með ásetningi í vitund. Þegar við neytum
verðum við hins vegar í eigin myrkri, þar sem við týnumst,
afneitum okkur og hellum upp á púkana. Sá púki sem
mætir fyrstur er vanalega sá sem við höfum nært hvað
mest. Síðan koma þeir koll af kolli.“
Hvað um streitu?
,,Streita er frekja, vanþakklæti, þegar við viljum ekki
það sem við höfum framkallað, skapað. Streita verður ekki
til utan frá heldur innra með okkur, þegar við veitum lífinu
huglægt viðnám.“
En ótti?
„Ótti er blekking, vantraust á sjálfri þér.“
Áttu útskýringu á vilja?
„Vilji er verknaður, en ekki von eða væl.“
Hvað eru vonbrigði?
„Vonbrigði eru stærsti útgjaldaliðurinn. Vonbrigði eru
þín upplifun þegar vonin hefur brugðist þér; þín neikvæðu
viðbrögð þegar væntingarnar eru ekki uppfylltar … vænt-
ingar sem voru fyrir það fyrsta aldrei gróðursettar í jarð-
vegi trausts, væntingar sem aldrei höfðu neina undirstöðu
eða skilgreinda framgöngu. Væntingar sem urðu að van-
þakklæti.“
Þroskast með skrifum
Eitt af því skemmtilegasta sem Guðni gerir er að
skrifa. Hann segist þroskast með skrifunum og þó að
hann njóti þess að vinna með fólki séu þær stundir sem
hann á einn með sér góðar.
Hann hefur gefið út Mátt viljans og Mátt athyglinnar á
Íslandi og Presence Is Power og Presence Is Power the
seven step workbook á ensku.
Um þessar mundir er hann að skrifa bókina um mátt
hjartans. Hann segir bókina áhugavert verkefni. Að lífið
sé skóli og hann hafi fengið verkefni með skrifunum. ,,Ég
er hraustur á líkama og sál en fyrir átta mánuðum, þegar
ég byrjaði að skrifa bókina uppgötvaði ég að hjartað í mér
er úr takti. Ég trúi að hugurinn stýri heilsunni og átta
mig á því að tilvist mín í dag er ekki alveg í samhljómi.
Þetta er skemmtilegt verkefni og áskorun sem ég leitast
við að skilja. Ég hef farið í alls konar rannsóknir en held
áfram að vinna að því að finna samhljóm í minni tilvist
svo að hjartað geti fundið taktinn.“
Það er fallegt að fylgjast með Guðna lýsa eigin heilsu.
Hann gerir það með forvitni í huga, tekur ábyrgð á eigin
hjartslætti og heldur áfram að finna lausnir með hjarta-
stöðina opna.
Sjálfur hef ég aldrei gert mistök í lífinu. Ég hef gert
hluti sem höfðu neikvæðar afleiðingar fyrir mig og aðra –
en ef ég lít á líf mitt hingað til sem mistök er ég um leið
að hafna minni eigin guðdómlegu tilvist í dag, eins og ég
er, núna.
Ég er viljandi vera og vil mig umbúðalaust. En stund-
um gleymi ég mér í vinnu og það er því mitt helsta verk-
efni í dag að líta inn á við. Gefa sjálfum mér tíma og rými
til að finna og að skilja að þakklæti er uppljómun, vitund
og þar vil ég vera.“
Guðni segir að ein besta spurning sem hann spyrji í
ráðgjöfinni hjá sér, sé hvort fólk vilji sig. Hvort það hafi
heimild til að vera í lífinu og leyfi til að velja að vilja sig og
elska svo það geti ákveðið að hætta að meiða sig og refsa.
Hvort það vilji fyrirgefa sér?
Að spjalla við Guðna opnar margar nýjar brautir.
Hann talar á heildrænan hátt og tengir líkama, sál, hugs-
anir og tilfinningar saman.
Hann talar mikið um að vakna til vitundar. Þegar þú
vaknar til vitundar um að þú ert ekki hugsanir þínar, af-
staða þín eða dómar þá skilurðu að allt sem þú veitir at-
hygli vex og dafnar. „Þá ertu orðinn galdramaður sem
veit og skilur að orka eyðist aldrei heldur getur aðeins
umbreyst. Þá veistu að athyglin er auðlind sem þú getur
nýtt og ráðstafað takmarkalaust, þegar þú tengir þig við
hana, þegar þú vilt þig til fulls og elskar þig umbúðalaust,
þegar þú ert valfær.“
Höfnun á þér er höfnun á öllum heiminum
Þegar þú segir að þú hafir ekki viljastyrk að mati
Guðna, þá hefurðu rétt fyrir þér. Þú ert að segja: „Ég vil
mig ekki. Ég hef ekki styrk til að vilja mig. Ég er ekki
sterkur ljósberi. Ég er tvístruð og óábyrg manneskja.
Ljósið mitt er dreift. Þegar þú afneitar sjálfum þér svona
ertu í raun að afneita alheimsorkunni, aftengja þig sjálfri
sköpuninni. Þegar þú hafnar þér ertu að hafna öllu í
heiminum, sjálfum upprunanum, börnunum þínum, jörð-
inni. Þú getur ekki hafnað þér án þess að hafna öllu öðru
á sama tíma.“
Guðni segir hollast fyrir okkur öll að hætta að hafna.
Það er bara eitt lögmál í þessum heimi og það er lögmálið
um orsök og afleiðingu. Ef þú velur þig mun það val hafa
afleiðingar. Ef þú hafnar þér mun það val hafa afleið-
ingar. Við berum ábyrgð á eigin velsæld og það er frábær
staðreynd. Værum við ekki miklu verr sett ef okkar eigin
velsæld væri föst í höndum annarra?
Það er endurfæðing í hverju augnabliki sem þú vakn-
ar til vitundar; þegar þú meðtekur máttinn sem felst í
því að velja þig eða hafna þér, augnablik fyrir augna-
blik.“
Skemmtir sér dásamlega þegar hann er leiðinlegur
Guðni er með áhugaverða hugsun þegar kemur að hon-
um sjálfum á dögum þegar rignir í lífinu. ,,Ég skemmti
mér dásamlega þegar ég er leiðinlegur. Það er verulega
fyndið. Ég var lengi vel að vilja mig einungis ef ég upp-
fyllti ákveðin skilyrði, það tók mig mörg ár að vilja mig í
viljandi vitund, rétt eins og ég er hverju sinni. Ég þurfti að
læra að treysta mér, öðlast traust á mér. Að ég væri sú
manneskja sem ég vildi vera. Það er sjálfsvirðing án skil-
yrða. Í dag vil ég mig – líka þegar ég vil mig ekki. Tilfinn-
ingar eru eins og veðrið. Það er ekki alltaf sól. Stundum
koma ský fyrir sólu og skammdegið tekur yfir. Þegar ég
verð þungur og leiðinlegur verð ég þreytandi þá veit ég að
ég er þreyttur og þarf að hvíla mig. En þá vil ég mig samt.
Ég vel að yfirgefa mig eða
hafna mér ekki, ég vel að hlúa
að mér, elska mig, næra og
hvíla, vera þakklátur.“
Hvernig getum við elskað
börnin okkar meira?
,,Með því að elska okkur,
vera ást. Ef við treystum
okkur þá treystum við börn-
unum okkar. Ótti er ákveðin
bæn, skilaboð um vantraust.
Elskarðu þig eins og þú ert?
Þá elskarðu börnin þín eins
og þau eru. Það er ekki hægt
að elska börnin okkar meira
en við elskum okkur sjálf.“
Guðni segir að ef við erum
ást þá sé engin aftenging og
þá alls ekki til barna okkar.
Hann segir börn og foreldra í
samsviði orku og að þau hafi
sterk áhrif á hvort annað.
Guðni er giftur Guðlaugu Pétursdóttur og segir hann
hjónabandsorkuna dýrðlega. Hann segir að enginn skyldi
leita að ástinni, hún finni mann þar sem maður er staddur
hverju sinni. Þó að þau hjónin séu ólík þá eru þau í sömu
orkunni, heitbundin tíðni hjartans, hún færir gleði og feg-
urð inn í sambandið og hann umgjörð og stöðugleika.
Deyjum þegar við missum áhugann á lífinu
Guðni er á því að við deyjum þegar við missum áhugann
á lífinu, á okkur sjálfum. Að það sé áhugavert að vera for-
vitinn, þá er maður að sjá fram í tímann. Finnandi og
hvetjandi, áhugasamur og lifandi. Að vera ungur er við-
horf tilgangs, að vera gamall og úr sér genginn sé viðhorf
tilgangsleysis. „Ertu vínber fullt af vökva og lífi eða upp-
þornuð rúsína?“
Það er dásamleg stund að eiga tíma með Guðna. Þar
sem kærleikurinn fær að flæða, óhindraður í allar áttir.
,,Ég hef alltaf haft mikla
stjórn í lífinu og haft aga.
En þegar ég varð fertugur
stóð ég frammi fyrir því að
velja hvað mig langaði að
gera við restina af lífinu.
Hvort ég vildi mig viljandi
eða ekki og hver væri til-
gangur minn í þessari
jarðvist. Þá var ég búsettur
í Los Angeles, sem ég flutti
til 35 ára eftir að hafa
nýverið skilið við fyrri
eiginkonu mína sem ég
átti einn son með.“
Guðni segir tilganginn
sinn á jörðinni skýran.
Hann segist þroskast
með skrifum og hefur
gefið út nokkrar bækur.
Það er ekki til fitandi matur
og fyllandi brennivín, aðeins
fitandi fólk og fyllandi mann-
eskjur. Ég þekki ekki marga
einstaklinga sem kunna að
drekka án þess að yfirgefa sig.
Þeir búa flestir erlendis.“