Morgunblaðið - 23.08.2019, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“
S
íðan ég hóf minn ketó-lífs-
stíl hef ég verið óstöðv-
andi. Ég hef alltaf haft
áhuga á matseld og
bakstri og man ekki eftir
mér öðruvísi en liggjandi yfir upp-
skriftum og aðferðum í eldhúsinu. Ég
hef ávallt haft gríðarmikinn áhuga á
matargerð frá öllum heimshornum og
finnst nánast allt gott, hvaðan sem
það kemur. Þessa dagana á ketó hug
minn allan. Mér finnst dásamlegt að
umbreyta öllum mínum uppáhalds-
uppskriftum í ketó,“ segir hún.
– Hvernig var líf þitt hér áður?
„Ég hafði alltaf verið að leita að
einhverju sem hentaði mér tengt
heilsu og mataræði. Ég vissi að það
var eitthvað sem ekki fór vel með
mig. Ég var orðin samdauna ástand-
inu, en fyrir tíu árum byrjaði ég að
fasta með reglulegu millibili. Það fór
dásamlega vel í mig. En það var ekki
nóg lengur. Ég fann að ég var komin
á þennan aldur; breytingaskeiðið, þar
sem þyngdaraukning var farin að
herja á mig eins og svo oft gerist hjá
konum. Síðan var ég farin að finna
fyrir liðverkjum og sleni.“
Var í dimmum dal
Halla Björg segir að í sannleika
sagt hafi hún verið komin á stað sem
var dálítið eins og dimmur dalur.
„Ég vissi að svona vildi ég ekki
eyða ævi minni. Mig langaði að njóta
þess sem eftir er eins vel og ég gæti.
En það var eitthvað að plaga mig sem
ég vissi ekki hvað var. Svo þegar ég
byrjaði á mataræðinu fann ég fyrir
mikilli hugljómun þessu tengt.“
– Var ekki erfitt að taka út allan
sykur?
„Í fyrstu, þegar þú ert að afeitra
„Er loksins að
lifa lífinu sem
ég á skilið“
Halla Björg Björnsdóttir tók mataræði sitt í gegn fyrir ári og byrjaði
á ketó. Hún hefur misst fjöldann allan af kílóum en segir það aukaatriði.
Hún segist nú vera orðin besta útgáfan af sér og hvetur aðra til að finna
sínar leiðir í þessum efnum.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Halla Björg hefur losnað
við tæp tuttugu kíló á
ketó-matarræðinu, en segir
að andleg og líkamleg
vellíðan skipti mestu máli.