Morgunblaðið - 23.08.2019, Qupperneq 24
Þ
rátt fyrir almennt heilbrigt líferni er það engin
tilviljun að ég umbreytti lífsháttum mínum
fyrir sextán árum. Ég á þrjá syni ásamt eig-
inmanni mínum, drengi sem nú eru orðnir full-
orðnir menn, en einn þeirra er með alvarlegan
hrörnunarsjúkdóm. Andlega er hann alveg heill, mjög
greindur, hefur lokið háskólanámi og rekur framsækið
fyrirtæki ásamt tveimur öðrum. En hann þarf aðstoð við
allar athafnir daglegs lífs. Á yngri árum varð hann oft lífs-
hættulega veikur og ég var löngum stundum hjá honum á
spítalanum. Á þessum tíma var nóg að hann fengi kvef-
pest og það gat haft mjög alvarlegar afleiðingar. Ég hélt
mér gangandi á gosi og súkkulaði, gat lítið sofið og það
tók mikinn toll af mér. Ég fann að ég hugsaði ekki nógu
vel um sjálfa mig og ákvað að taka málin í mínar hendur
svo ég gæti hugsað betur um son minn,“ segir Gyða Dís.
Er á 90% hráfæði
Eitt af því fyrsta sem hún gerði var að taka til í matar-
æði sínu og borðar í dag 90% hráfæði. Það hefur hún gert
frá árinu 2009 eða í áratug.
„Ég er enn á lífi og líður vel, en sumir telja að hráfæði
geti varla verið hollt til lengdar. Sér í lagi hérlendis yfir
dimmustu og köldustu mánuðina. Það er mismunandi
hvernig mataræði hentar hverjum og einum. Við erum öll
ólík, en hráfæði hentar mér mjög vel. Þegar mér er boðið í
veislu tek ég með mér nesti og fæ oft spurningar frá for-
vitnu fólki,“ segir hún og hlær og heldur áfram:
„Fólk vill fá að vita hvað ég er með, vill fá að smakka,
og þegar ég varð vör við hversu mörgum fannst það óg-
urlega gott sem ég var að borða fór ég að halda námskeið
þar sem ég kenni fólki að útbúa hráfæði. Þetta er sann-
arlega gómsætur matur sem ég borða og það kemur
mörgum á óvart að ég er algjör súkkulaðigrís. Ég geri
súkkulaðið sjálf og hef líka haldið mjög vinsæl námskeið í
súkkulaðigerð,“ segir hún og bendir á bloggsíðu sína,
shreeyoga.is. Það er uppskrift að hrákökunni sem hún var
með á fimmtugsafmælinu sínu og allir hafi verið mjög
hrifnir af.
Á betri stað nú en áður
Gyða Dís segist vera í miklu betra formi núna 54 ára en
þegar hún var tvítug. Bæði andlega og líkamlega.
„Yngsti sonur minn segir oft „hvað er að frétta,
mamma þú, ert eins og Benjamin Button.“ Ég yngist með
árunum, segir hún og brosir.
– Hvernig er mataræðið?
„Ég er svona 90% á hráfæði og borða einungis gufusoð-
ið grænmeti og ayurvedískan pottrétt sem samanstendur
af mung baunum, kinóa og kryddjurtum sem gerir mér
gott. Svona matur er góður fyrir meltingarkerfið og sér-
staklega yfir vetrartímann. Fólk er auðvitað mjög mis-
munandi en meltingin skiptir mig máli og ég huga vel að
þarmaflórunni. Síðustu ár hef til dæmis borðað meira af
súrkáli sem ég geri sjálf eða kaupi tilbúið. Auk þess tek ég
daglega inn góðgerla og svo hætti ég að drekka kaffi árið
2004. Fyrir mig er mjög auðvelt að hætta einhverjum rút-
ínum. En þá var ég greind með svokallað Raynards synd-
rome og þurfti að forðast þrennt: Kulda, álag eða streitu
og kaffi. Í mínu tilfelli var auðveldast að losa sig við kaffið
og það gekk bara eins og í sögu. En núna síðasta ár hef ég
bætt því aftur inn finnst gott að gera mér ákveðinn kaffi-
drykk með ýmiskonar super stöffi, en stundum nota ég
kaffi eða sleppi því og geri kakódrykk með þessu stöffi í
staðinn.
Langhlauparinn sem varð jógi
Gyða Dís hefur alltaf haft mikla hreyfiþörf. Hún var
langhlaupari áður en jógað kom inn í líf hennar og breytti
öllu.
„Það má segja að ég hafi hætt að hlaupa á toppnum
þegar ég kláraði fallegasta og skemmtilegasta hlaup lífs
míns, Laugavegshlaupið, sem var 54 km. Á þessum tíma
var ég byrjuð að iðka jóga undir handleiðslu meistara
míns, Kristbjargar Kristmannsdóttur jógakennara. Ég
var búin að læra öndun, hugleiðslu, jógasöguna og að iðka
Yamas og Niyamas. Árið 2009 hætti ég alveg að hlaupa og
kynntist Hot jóga sem kom mér skemmtilega á óvart,“
segir Gyða Dís.
Hún segir að það hafi verið magnað að upplifa það að
hægt sé að keyra púlsinn upp með því einu að anda.
„Ég bara fann mig algerlega í krefjandi jógastöðum,
fann einhvern veginn hvað jóga átti brjálæðislega vel við
líkama minn. Svo fór ég aðeins lengra og rannsakaði hvað
eða hvernig ég gæti öðlast betri reynslu, hvar ætti ég að
gera það hérlendis eða erlendis. Ég fór að sjálfsögðu til
Kristbjargar í 200 tíma jógakennaranám en mér finnst
það í raun vera grunnurinn að öllu jóga hjá mér því það er
gott að fara í íslenskan jógakennaraskóla. Það er öðruvísi
en að læra erlends sem ég gerði einnig. Í framhaldi af
rannsókn minni fór ég alveg á bólakaf í jógakennaranám
en hugsaði það í upphafi aðeins fyrir mig sjálfa til að
auðga líf mitt, læra tæknina í öndun og hugleiðslu, læra að
tækla mig á erfiðum stundum og kannski líka fyrir fjöl-
skyldu mína.“
Gyða Dís segir að við lendum öll í mótlæti í lífinu og
segir að það sé okkar ákvörðun hvernig við tökumst á við
það.
Í betra formi
54 ára en
tvítug
Gyða Dís Þórarinsdóttir, jógakennari í Shree Yoga,
breytti algerlega um stefnu fyrir 16 árum eftir að hafa
lifað á súkkulaði og gosi til að komast í gegnum erf-
ið tímabil. Síðasta áratuginn hefur hún svo gengið
skrefinu lengra með því að vera 90% á hráfæði. Eftir
að hafa stundað langhlaup í mörg ár kom jóga inn í
líf hennar og gerði það betra.
Marta María | mm@mbl.is
Gyða Dís elskar að
hjálpa fólki að ná
tökum á lífi sínu.
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
Lífrænar
mjólkurvörur
• Engin aukaefni
• Meira af Omega-3
fitusýrum
• Meira er af CLA
fitusýrum sem byggja
upp vöðva og bein
• Ekkert undanrennuduft
• Án manngerðra
transfitusýra
www.biobu.is
Mangó jógúrt
Fimm góðar ástæður til að velja lífræna jógúrt