Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2019, Side 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2019, Side 10
VIÐTAL 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.8. 2019 Þ egar ég geng inn í vinnurými myndlistarmannsins Sigurðar Sævars Magnúsarsonar tekur liturinn blár á móti mér. Tvö ógnarstór málverk af byggingum fljótandi í bláum himni hanga á vegg and- spænis hurðinni, á kommóðu í anddyrinu sitja tvö verk af hundum í bláum jakkaföt- um. „Blái liturinn er mjög áberandi í mínum verkum,“ segir Sigurður, „blár er liturinn minn.“ Sigurður hafði tekið á móti mér í íbúð sinni í austurbæ Reykjavíkur, sem þjónar einnig sem vinnurými. Veggirnir eru þaktir málverkum, bæði eftir hann sjálfan og aðra listamenn á borð við Kristján Davíðsson, Karólínu Lárusdóttur, Sigurð Örlygsson, Hjalta Parelíus og Erró. Þrettán ára byrjaði Sigurður að safna málverkum og hefur hald- ið því áfram til dagsins í dag. „Mér þykir mjög skemmtilegt að bjóða gestum hingað að skoða listaverkasafnið mitt. Þar sem ég er töluvert ungur kemur hingað mikið af ungu fólki sem er að kaupa sitt fyrsta listaverk,“ segir Sigurður. „Það er oft gaman að sýna þeim safnið þar sem það spannar svolítið íslenska myndlistarsögu,“ bætir hann við. Sigurður er ekki óvanur því að sýna myndlist, sjálfur hélt hann sína fyrstu sýn- ingu aðeins þrettán ára gamall og hefur haldið ófáar sýningar síðan. Sigurður ólst upp í Vesturbæ Reykjavík- ur. Faðir hans, Magnús Ólafsson, var deild- arstjóri á geðsviði Landspítalans lengst af og móðir hans, Birna Björnsdóttir, er sjúkraliði og tónmenntakennari. „Systur mínar tvær smituðust síðan af þessari heil- brigðisgeiraveiru og fóru báðar í hjúkrunar- fræði,“ segir Sigurður. „Þetta eru heilbrigð- isstarfsmenn allt í kringum mig, svo er ég svarti sauðurinn í listunum.“ Ungur byrjaði Sigurður að æfa sund og var, að eigin sögn, afreksmaður í íþróttinni í 11 ár. „Ég hætti að æfa sund 19 ára gamall. Frá því ég fór á mína fyrstu sundæfingu hefur sundlaugin verið mér mjög hugleikin,“ segir Sigurður, en hann segist fara í sund í Vesturbæjarlaug á hverjum einasta degi. Sigurður byrjaði að mála tíu ára gamall þegar fjölskyldan var í fríi í Kaupmanna- höfn. Systir hans hafði gefið honum striga og málningu og á hótelherbergi í Höfn mál- aði hann sitt fyrsta verk. „Ég hef ábyggilega verið kominn með ein- hverja heimþrá vegna þess að á myndinni voru fjöll og jöklar, sem var ekki alveg út- sýnið á hótelherberginu í miðborg Kaup- mannahafnar,“ segir Sigurður og hlær. Málverkið er til sýnis á vinnustofu Sig- urðar, bakgrunnurinn er blár. Við hlið þess er þriðja verkið sem hann málaði. „Annað verkið er á vinnustofu Ólafs Elíassonar í Berlín,“ segir Sigurður. „Mér þótti viðeig- andi að hann fengi að eiga það.“ Sigurður segir að þegar hann hafi málað fyrsta verk sitt hafi hann verið búinn að ákveða að gerast myndlistarmaður. „Myndlistin bara heillaði mig, hún hefur knúið mig áfram,“ segir hann. „Ég hef alltaf verið skapandi. Áður en ég slysaðist í mynd- list rak ég smíðaverkstæði í garðinum á Sólvallagötu, þar sem við fjölskyldan bjugg- um. Þegar ég var sjö ára sá ég sýningu Ólafs Elíassonar í Hafnarhúsinu og hætti að smíða til að snúa mér að myndlistinni, ábyggilega nágrönnum mínum til mikillar gleði, að þurfa ekki að vakna við hamars- högg á hverjum einasta degi. Málaði texta Megasar Í kringum fermingu leið mér svolítið eins og fertugum karli,“ segir Sigurður. „Mínar áherslur voru kannski svolítið öðruvísi en skólasystkina minna í Hagaskóla. Þegar þau vildu vera á böllum vildi ég fara á listaverka- uppboð og þegar vinir mínir vildu spila tölvuleiki vildi ég skapa listaverk.“ Sigurður Sævar hélt sína fyrstu sýningu þrettán ára gamall og telja sýningar hans nú á þriðja tug. Morgunblaðið/RAX Sjálfskipaður sendiherra á ólíklegustu stöðum Sigurður Sævar Magnúsarson hélt sína fyrstu myndlistarsýningu þrettán ára gamall. Í mánuðinum heldur hann til Evrópu í listnám og segir fátt skemmtilegra en að kynna ungu fólki myndlist. Hann segir að komið sé að kaflaskilum á sínum ferli. Pétur Magnússon petur@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.