Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2019, Qupperneq 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2019, Qupperneq 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.8. 2019 Verk úr nýjustu seríu Sigurðar. Sigurður hélt sína fyrstu listsýningu þrettán ára gamall í glersal Höfðatorgs á Menningarnótt. „Ég sá að það var verið að auglýsa eftir listamönnum sem vildu vera með sýningar þannig að ég tala við umboðsmanninn minn, sem var móðir mín, og við sóttum um.“ Um sumarið hafði Jóhannes Ásbjörnsson, eigandi Hamborgarafabrikkunnar, samband og bauð Sigurði að sýna verk sín á fjöl- skylduskemmtun á Höfðatorgi. „Það var mikil hvatning fyrir mig og það sem ég var að gera á þessum tíma. Síðan eru sýningarnar orðnar fleiri,“ segir Sig- urður. „Þessi fyrstu ár átti ég fullt af verkum inni á vinnustofu og svo þegar ég fékk sal til að sýna í valdi ég myndir fyrir salinn og raðaði þeim einhvern veginn. Þetta voru mjög blandaðar sýningar,“ segir Sigurður. „Svo var maður svo ungur listamaður að verkin voru mismunandi og mjög ólík. En árið 2015, þegar ég var sautján ára, fékk ég hugmynd að stærri sýningu.“ Sigurður hafði kynnst textum og lögum Megasar, sem veittu honum slíkan inn- blástur að hann ákvað að vinna þrjátíu olíu- málverk upp úr textum tónlistarmannsins. „Frá því ég kynntist tónlist Megasar þar til sýningin var opnuð liðu tvö ár, þetta var tveggja ára ferli,“ segir Sigurður. „Þetta var í raun fyrsta stóra sýningin.“ Hann sýnir mér verk úr sýningunni sem unnið er upp úr texta lagsins Hann á afmæli í dag, sem fjallar um hátíðahöld á sautjánda júní. „Það rignir hálfétnum pulsum, pappírs- fánaræflum, prinspólóumbúðum á stjórn- arskrána spanskgræna,“ þylur Sigurður eft- ir minni. Málverkið sýnir einmitt það; pylsur í SS-pylsubréfi, prins póló og litla íslenska fána. Í bakgrunni verksins trónir Moggahöll- in í Aðalstræti, sem mér þykir skemmtileg tilviljun. Tíu sýningar á einum mánuði Daginn eftir tuttugu ára afmælisdag sinn, hinn 16. september 2017, hélt Sigurður sýn- ingu í Norðurljósasal Hörpu. „Þá voru tíu ár síðan ég ákvað að gerast myndlistarmaður tíu ára gamall svo ég ákvað að fagna með myndlistar- og tónlistarveislu,“ segir Sig- urður. „Þar gat ég sýnt þróun í verkum mín- um þessi fyrstu tíu ár. Þótt ég viti það ekki tel ég mig trúlega yngsta myndlistarmanninn á Íslandi sem hefur haldið yfirlitssýningu á verkum sínum,“ segir Sigurður og hlær. Samhliða afmælissýningunni opnaði Sig- urður níu aðrar sýningar víðs vegar um höf- uðborgarsvæðið í sama mánuði. „Þetta var bæði fyrir áhangendur mína, sem fengu að sjá hvað ég hef verið að gera mín fyrstu ár, en þessar sýningar voru líka fyrir mig sjálf- an. Ég vildi líta yfir sviðið og skoða hvert þetta ætti allt saman að halda,“ segir Sig- urður. „Fyrst og fremst sá ég afrakstur tíu ára vinnu. Ég hugsa auðvitað allt öðruvísi í dag en ég gerði þegar ég var ellefu eða tólf eða fjórtán ára gamall að mála mín fyrstu verk. Það var ágætt að sjá þróunina og sjá að þetta stefnir eitthvað,“ segir Sigurður, en í kjölfar sýningarinnar ákvað hann að hefja umsóknarferli um listnám í Evrópu. Fetar brúna til Evrópu „Það hefur verið stefnan alla tíð að fara út í listnám,“ segir Sigurður. „Þótt maður sé í ákveðnum þægindaramma hér heima, þá er heimurinn stór.“ Sigurður tók á móti blaðamanni í vinnu- stofu sinni í austurbænum, en hann hefur einnig vinnuaðstöðu í vesturbænum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.