Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2019, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.8. 2019
LÍFSSTÍLL
N
ú er liðið á sumarið
og hver að verða
síðastur að kaupa
sér sumarblóm. Í
garðyrkjustöðinni
Flóru í Hveragerði mun starfsfólk
senn kveðja hin litríku og fallegu
sumarblóm og hefur þegar hafið
undirbúning haustsins. Það voru
Þorvaldur Snorrason, eigandi
garðyrkjustöðvarinnar Flóru, og
Linda María Traustadóttir,
garðyrkjunemi og starfsmaður
stöðvarinnar, sem tóku á móti
blaðamanni þegar hann bar að
garði í Hveragerði.
„Sumarið í sumar hefur verið
eins gott og sumarið í fyrra var
leiðinlegt,“ segir Þorvaldur. „Við
finnum fyrir því þegar veðrið er
svona gott. Fólk kemur oftar í
blómabúðir og virðist áhugasamara
um að rækta garðinn sinn.“
Síðustu metrar sum-
arblómanna
„Sumarblómin hafa auðvitað verið
vinsælust hjá okkur,“ segir Linda
María, „þá helst sólboði, marga-
ríta, petúnía, stjúpa og snædrífa.“
Þorvaldur segir sömu tegundir
vinsælar í sumar og hafi verið síð-
ustu sumur, þótt litirnir séu stund-
um breytilegir.
„Sumarblómin eru eiginlega á
síðustu metrunum,“ bætir Þorvald-
ur við, „snædrífan seldist upp á
öllu landinu, stjúpan er alveg búin
og við eigum lítið eftir af hinum
sumarblómunum,“ segir hann og
bendir á síðustu sumarblómin sem
standa á tveimur tréborðum á úti-
svæði garðyrkjustöðvarinnar.
„Það sem tekur við af sumar-
blómunum eru tré, runnar og inni-
plöntur, við vorum til dæmis að fá
friðarliljurnar, sem eru alltaf vin-
sælar,“ segir Linda María.
„Við höfum verið að selja tré og
runna í allt sumar, en salan heldur
áfram í ágúst og september og lík-
legast fram í október,“ segir Þor-
valdur og bætir við að haustið sé
Sumarblóm á síðasta snúningi
Það var blómlegt and-
rúmsloft í garðyrkju-
stöðinni Flóru í
Hveragerði þegar
blaðamaður Sunnu-
dagsblaðsins leit í
heimsókn. Nú nálgast
haustið óðfluga og tíð
sumarblómanna
senn á enda.
Pétur Magnússon petur@mbl.is
Þorvaldur Snorrason, eigandi garðyrkjustöðvarinnar, og Linda María Traustadóttir garðyrkjunemi stóðu vaktina í Flóru.
Ljósmynd/Pétur Magnússon
Nú fer hver að verða síðastur að næla sér í sumarblóm.